Morgunblaðið - 17.06.2004, Side 49

Morgunblaðið - 17.06.2004, Side 49
Málfundur Jafnréttisdeildar Heimdallar Jafnréttisdeild Heim- dallar heldur fund um jafnréttismál föstudaginn 18. júní á skemmti- staðnum Felix klukkan 21.30. Atli Harðarson heimspekingur mun halda inngangserindi um jafnrétti í sögulegu og heimspekilegu ljósi. Framsögu halda Helga Baldvins- dóttir Bjargardóttir, formaður jafn- réttisdeildar Heimdallar, og Katrín Anna Guðmundsdóttir, ráðskona Femínistafélagsins. Reynt verður að varpa upp mismunandi nálgunum á jafnréttishugtakið, markmið og leiðir í jafnréttisbaráttunni. Að því loknu verður opnað fyrir spurningar og umræður. Allir velkomnir. Fundur ásatrúarmanna á Grand Rokk Fundur ásatrúarmanna, þeirra sem vilja endurreisa Reykja- víkurgoðorðið, fer fram sumardag- inn fyrsta 2004 á efri hæð skákstað- arins Grand Rokk, við Smiðjustíg 6, 101 Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 15. Skv. fundarboði er efni fund- arins m.a. spurning um hvort krefj- ast eigi uppskiptingar Ásatrúar- félagsins og eigna þess þannig að þeir heiðnu menn sem telja sig ekki lengur eiga samleið með þeim sem virðast ráða Ásatrúarfélaginu, geti starfað í trúfélagi og fengið aðgang að eignum þeim sem þeir hafa greitt fyrir með sóknargjöldum sínum. Í öðru lagi hvort krefjast eigi op- inberrar rannsóknar á stjórn- arháttum og fjárreiðum Ásatrúar- félagsins og eignarhaldsfélagsins Hörgs ehf. og hvort kæra eigi bók- haldsóreiðu Ásatrúarfélagsins og Hörgs ehf. eins og segir í tilkynn- ing. Opinn veiðidagur í Soginu Laug- ardaginn 19. júní verður opinn veiði- dagur í Soginu við Alviðru frá kl. 11 árdegis til kl. 18 síðdegis. Þá munu reyndir veiðimenn frá Stangveiði- félagi Reykjavíkur verða til leið- sagnar um svæðið, leiðbeina um veiðistaði, hvernig á að kasta færi og almennt að bera sig að við veiðar. Þeir munu miðla fróðleik um Sogið og sjálfsagt munu veiðisögur fljóta með. Hér gefst fágætt tækifæri til að spreyta sig undir leiðsögn reyndra veiðimanna og njóta úti- veru í fallegu umhverfi. Takið með ykkur veiðistangir. Allir velkomnir. Símsvörunarnámskeið Útflutn- ingsráð og Mímir-símenntun halda í sameiningu símsvörunarnámskeið á ensku fyrir þjónustufulltrúa útflutn- ingsfyrirtækja. Nemendur læra al- gengan orðaforða, að taka á móti skilaboðum og að veita upplýsingar á ensku. Námskeiðið er ætlað ein- staklingum með lítinn grunn í ensku og verður haldið mánudaginn 21. júní kl. 13–15 að Grensásvegi 16a. Kennari er Priscilla Bjarnason. Verð er 3.600 kr. Skráning er hjá Útflutningsráði í síma 511 4000 og Mími-símenntun í síma 580 1800. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvuskeyti á netföngin ut- flutningsrad@utflutningsrad.is eða mimir@mimir.is Á MORGUN FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 49 EINS og undanfarin ár verður há- tíðarguðsþjónusta í Kópavogs- kirkju á þjóðhátíðardaginn og hefst hún kl. 12.30. Messutíminn er við það miðaður að kirkjugestir geti tekið þátt í skrúðgöngu dagsins. Séra Ingþór Indriðason Ísfeld prédikar og sóknarprestur þjónar fyrir altari. Halldór Björnsson syngur einsöng, eigið lag við sálm eftir Bjarna Jónsson. Kór Kópa- vogskirkju syngur og leiðir safn- aðarsöng. Organisti Julian Hew- lett. Strengjakvartett leikur í um stundarfjórðung fyrir guðsþjón- ustu. Boðið verður upp á kaffi og konfekt í safnaðarheimilinu Borg- um að lokinni guðsþjónustu. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Lýðveldishátíð Landakirkju Í DAG, 17. júní kl. 11:00, verður Lýðveldishátíð í Landakirkju. Íþróttafélagið ÍBV, leikmenn, þjálf- arar og foreldrar sérstaklega vel- komnir. Mætum í íþróttagöllunum og upplifum þann samhug sem ein- kennir okkar góða íþróttafélag sem og samfélag. Íþróttafólk les ritn- ingarlestra og tekur virkan þátt. Létt messa í hátíðlegri alvöru, óhefðbundið form. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Guðmundar H Guðjónssonar. Prestur sr. Þorvald- ur Víðisson. Fjölmennum í kirkju á afmælishátíð lýðveldisins. Morgunblaðið/Arnaldur Kópavogskirkja 17. júní Tívolísyrpa Hróksins og Hús- dýragarðsins Lokamótið í Tívolí- syrpu Hróksins og Húsdýragarðsins fer fram í dag. Mótið fer fram í Vís- indatjaldinu í Húsdýragarðinum. Mæting á lokamótið er kl. 12.30 og byrjað verður að tefla kl. 13. Tefldar verða 7. umferðir með 10 mínútur til umhugsunar. 20 krakkar hafa tryggt sér þátttökurétt með frammistöðu sinni á stigamótunum í vetur. Í DAG ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN 17. júní verður há- tíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju á 60 ára af- mæli lýðveldisins. Dóms- og kirkjumálaráð- herra, Björn Bjarnason, prédikar og séra Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Guðsþjónustan hefst kl. 14. Klukkan 20 verður fimmtudagskvöldganga undir heitinu Heimsmynd náttúrufræðingsins Jónasar Hallgrímssonar. Í gönguferðinni mun Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur fjalla um sýn Jónasar á náttúru og vísindi. Gangan hefst við útsýnisskífuna við Hakið og verður gengið að Þingvallakirkju. Þegar göngunni lýkur, um kl. 22, verða kvöldbænir í Þingvallakirkju. Laugardaginn 19. júní verður löng gönguferð kl. 13.00 en þá verður gengið frá Fræðslu- miðstöð með efri barmi Almannagjár að Langa- stíg. Gönguferðin tekur um 2–3 klst og vissara er að vera vel búinn til fótanna þar sem slóðin er á mörgum stöðum grýtt. Sunnudaginn 20. júní geta börn á aldrinum 8–12 ára haldið áfram að reyna fyrir sér í hlut- verki fornleifafræðinga. Á bakka Öxarár hefur verið komið fyrir fornleifum á afmörkuðu upp- graftrarsvæði þar sem krakkar geta grafið und- ir eftirliti og kynnst vinnubrögðum fornleifa- fræðinga. Þá muni, sem finnast, verður að skrá og teikna. Þeir þátttakendur fá viðurkenning- arskjal og minjagrip úr fornleifauppgreftinum með heim. Fornleifaskóli barnanna verður alla sunnudaga í sumar frá kl. 13–16 í Prestakrók á Neðrivöllum. Guðsþjónusta verður í Þingvallakirkju kl 14.00 og farið verður í gönguferð að henni lok- inni um þingstaðinn forna þar sem saga og staðhættir á Þingvöllum verða til umfjöllunar. Hátíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju Alþjóðlegi jarðvegsverndardag- urinn Í tilefni af alþjóðlega jarðvegs- verndardeginum sem er 17. júní ár hvert hafa Landgræðsla ríkisins og Landvernd haft forgöngu um hádeg- isfyrirlestur þar sem landeyðing verður til umfjöllunar. Fyrirlesarar koma frá Suður-Afríku, Kína og Ís- landi. Fyrirlesturinn verður í Nor- ræna húsinu í Reykjavík þriðjudag- inn 22. júní. Námskeið fyrir fólk í ferðaþjón- ustu Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands býður upp á námskeið fyrir fararstjóra, landverði, fólksflutn- ingabílstjóra og aðra sem starfa í ferðaþjónustu . Um er að ræða fjögra stunda nám- skeið um mannlegan stuðning og áfallahjálp sem starfsfólk í ferðaþjón- ustu getur staðið frammi fyrir að þurfa að veita. Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um: lífeðlisfræði streitu og áfallastreitu, áföll, áfallahjálp, sál- ræna skyndihjálp sem er einn þáttur í áfallahjálp, hvernig best er að koma fram og tala við fólk sem orðið hefur fyrir áföllum, sorg og sorgarviðbrögð, sorgarúrvinnslu, stuðning við fólk í sorg, börn og áföll, viðbrögð barna við áföllum, sorgarviðbrögð barna og hvernig stuðing börn þurfa. Námskeiðið hefst mánudaginn 21.júní og stendur frá kl. 17.30 til 21.30. Fyrirlestur í kinesiologi Jarle Tam- sen heldur fyrirlestur í kinesiologi mánudaginn 21. júní kl. 20 í Asparfelli 12. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn. Á NÆSTUNNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.