Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út laugardaginn 19. júní. Fréttaþjónusta verður á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, í dag og á morgun. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á net- fangið netfrett@mbl.is eða í síma 569 1285. Fréttavakt á mbl.is starfsmenn yrðu 13 þúsund talsins. Veltan yrði alls um 130 milljarðar króna. Það gerði Bakkavör að stærsta fyrirtæki landsins miðað við veltu og starfsmannafjölda. Samstæðan keypti 10,27% hlut í Geest í lok síðasta mánaðar á 5–6 milljarða króna og hefur verið að auka við hlut sinn í félag- inu síðan. Fjárfesting Bakkavarar í Geest nemur nú um 11–12 milljörðum króna. Samstæðan átti röska 7 milljarða í hand- bæru fé samkvæmt uppgjöri síðasta árs- fjórðungs, sem mun hafa verið ætlað til ytri BAKKAVÖR Group er við það að eignast fimmtungshlut í breska matvælaframleiðand- anum Geest eftir að hafa aukið við eign sína í fyrirtækinu um 3,11% í gær og á samstæðan nú 19,26% hlutafjár í Geest. Fari eignarhluturinn yfir 20% verður Geest hlutdeildarfélag Bakkavararsamstæð- unnar og munu hlutdeildartekjur til sam- stæðunnar þá nema a.m.k. milljarði króna á ári. Verði farið í yfirtöku á Geest að sex mánuðum liðnum mun velta Bakkavararsam- stæðunnar í það minnsta sjöfaldast og vaxtar. Því mun Bakkavör hafa fjármagnað kaupin að mestu leyti úr eigin sjóðum. Geest sérhæfir sig í framleiðslu ferskrar tilbúinnar matvöru og framleiðir yfir 2.000 vörur sem eru seldar undir merkjum við- skiptavinanna. Allir helstu stórmarkaðir Bretlands eru viðskiptavinir félagsins. Meginstarfsemi þess er í Bretlandi en Geest starfrækir einnig verksmiðjur á meginlandi Evrópu og í Suður-Afríku. Bakkavör að ná 20% hlut í Geest  Bakkavör/B1 STÚLKUR og drengir hugsa afar ólíkt um störf og hafa mjög ólík viðhorf til þeirra. Þannig þykir drengjum störf verkfræðings og rafvirkja mun virðingarmeiri en stúlkum og stúlkum að sama skapi starf hjúkr- unarfræðings og grunnskólakennara mun virðingarmeira en drengjum. Læknar tróna þó í efsta sæti í virðingarstiga beggja kynja. Þetta kemur fram í grein um nýja rannsókn Guðbjargar Vilhjálmsdóttur, lektors í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, sem birtist í blaðinu 19. júní, sem kemur út í til- efni af kvenréttindadeginum á morgun. Í rannsókn sinni gerði Guðbjörg tilraun til að kortleggja hugsun kynjanna um störf. Mældi hún hugsun um ellefu störf með tólf tvíhliða skölum, sem vísa til ólíkra hliða starfanna. Meðal þessara skala voru tekju- skali, virðingarskali og áhugaskali. Í ljós kom að tekju- og áhugaskalar fóru saman hjá drengjum, þ.e.a.s. drengir sýndu meiri áhuga á tekjum, en stúlkurnar höfðu aftur á móti meiri áhuga á virðingu, þannig að virð- ingar- og áhugaskalar fóru saman. Þá þótti athyglisvert að drengir nota mun víðari tekjuskala þegar þeir leggja mat á starfstekjur. Þannig sjá drengirnir fyrir sér mun hærri tekjur en stúlkur. Leiddar eru líkur að því að það geti verið ein af skýr- ingum kynbundins launamunar; að stúlk- urnar beinlínis „sjái“ ekki efstu stig launa- skalans. Rannsókn Guðbjargar tók til 911 nemenda í tíunda bekk í 26 skólum. Var hún lögð fyrir árið 1996. Guðbjörg kortlagði lífsstíl ungling- anna með níutíu spurningum um frístundir þeirra og kom í ljós að kynferði er mjög sterkur þáttur í vali unglinga á lífsstíl. Drengir sjá fyrir sér mun hærri tekjur en stúlkur Ný rannsókn bendir til ólíkrar hugsunar kynja um störf Á UPPSKERUHÁTÍÐ íslensku leiklistarverðlaunanna í gærkvöldi afhenti forseti Íslands, Ólaf- ur Ragnar Grímsson, Sigríði Ármann, frumherja á sviði listdans á Íslandi og fyrsta íslenska ball- etthöfundinum, sérstök heiðursverðlaun Grímunnar, fyrir einstakt framlag til sviðslistar á Ís- landi. Í þakkarræðu sinni fagnaði Sigríður þeim framgangi sem danslistin hefur átt að fagna hér á landi og hvatti hún til þess að klassíski ballettinn yrði á ný hafinn til vegs og virðingar. Ís- lenskar listdansmeyjar tóku hana á orðinu og stigu slíkan dans henni til heiðurs. /6 Morgunblaðið/Eggert Sigríður Ármann heiðruð á Grímunni í gærkvöldi KVIKMYNDINNI Næsland hefur verið boðin þátttaka í aðalkeppninni á al- þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi sem fram fer fyrstu dag- ana í júlí. Friðrik Þór Friðriksson, leik- stjóri myndarinnar, er ánægður með þennan heiður. „Þetta er bara fínt. Það eru góðir áhorfendur í Tékklandi. Þeir eru svo vel upp aldir,“ segir Friðrik Þór. Næsland keppir í Karlovy Vary  Góðir/62 BÆNDUR sem hafa byggt upp æðarvarp í Dyrhólaey og annast umhirðu landsins hafa kært ákvörðun Umhverfisstofnunar, um að opna eyna 10. júní ár hvert, til umhverfisráð- herra. Áður var eyjan alltaf lokuð allri um- ferð frá 1. maí og fram til 25. júní en und- anfarin þrjú ár hefur hún verið opnuð 10. júní. Þorsteinn Gunnarsson, bóndi á Vatns- skarðshólum, segir að forstöðumaður nátt- úruverndarsviðs Umhverfisstofnunar hafi mætt á staðinn fyrirvaralaust í fylgd lögreglu og klippt í sundur hlið að staðnum og tekið í burtu skilti þar sem kveðið var á um lokun svæðisins. Dyrhólaey var friðlýst árið 1978 að frumkvæði bænda en að mati Þorsteins og annarra varpbænda er sjáanlegur munur á fuglalífinu þar eftir að opnunin var færð framar; lundabyggðin á undir högg að sækja, kríuvarpið er horfið, minna ber á mófugla- varpi og æðarvarp er ekki svipur hjá sjón. Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofn- unar, segir að málið eigi sér langa sögu en að þarna stangist á atvinnuhagsmunir æðar- bænda og hagsmunir varðandi ferðaþjón- ustu. „Það hefur verið mat sérfræðinga okk- ar og Náttúrufræðistofnunar að fuglalífinu í Dyrhólaey stafi ekki hætta af þessu. Það er hins vegar umdeilt hvort umferðin skaði æð- arvarpið eða ekki. Við tökum tillit til nátt- úruverndarsjónarmiða en ef það eru aðrir at- vinnuhagsmunir þá er það annað mál,“ segir Davíð og áréttar að umferð um eyna sé ekki óheft á þessum tíma. Einungis sé leyfilegt að fara upp á útsýnisstaði á háeynni en lægri hlutinn sé lokaður fram til 25. júní. Davíð segir að þegar fulltrúar Umhverfisstofnunar komu á staðinn til að opna Dyrhólaey hafi verið búið að skipta um lás án vitundar Um- hverfisstofnunar. Lögreglan var í næsta ná- grenni og því kölluð til og beðin um að klippa í sundur hliðið. Æðarbændur kæra Umhverfisstofnun GAT kom á skrokk skemmtiferðaskipsins Albatros á leið þess hingað frá Færeyjum og tefst áætlun þess um 3–4 daga á meðan við- gerð fer fram í Straumsvíkurhöfn. Um borð eru um 650 farþegar og verður þeim boðið upp á ferðalög og afþreyingu á meðan skipið er í viðgerð en þeir geta eftir sem áður gist í skipinu. Skipið átti að leggja frá Reykjavík til Akureyrar kl. 18 í gær en hætt var við það og skipinu siglt kl. 14 til Straumsvíkur. Skv. upplýsingum Samskipa, umboðsaðila Albatros, er gatið ekki stórt en það kom þegar skipsskrokkurinn rakst á fyr- irstöðu á útstíminu frá Færeyjum, en ekki er vitað hvort fyrirstaðan var manngerð eða ekki. Gatið kom á stafnhylki skipsins og stendur til að þétta það í Straumsvíkurhöfn. Morgunblaðið/Eggert Skemmtiferðaskipið í Straumsvík. Gat kom á Albatros ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.