Morgunblaðið - 18.07.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ACTAVIS STYRKIST
Í undirbúningi er skráning Actav-
is í kauphöllinni í London sem er
meðal annars liður í því að styrkja
ásýnd Actavis sem alþjóðlegs félags.
Fyrirtækið hefur þegar valið lyf til
þróunar allt fram til ársins 2016.
Virkjun Gullfoss og Geysis
Í nýrri bók Ómars Ragnarssonar
kemur fram að virkjun Gullfoss eða
Geysis myndi hafa í för með sér
miklu minni óafturkallanleg um-
hverfisáhrif en Kárahnjúkavirkjun.
Bókin heitir Kárahnjúkavirkjun –
með og á móti og hefur Ómar varið
undanförnu ári í að skrifa hana.
Óttast ofbeldismenn
Algengt er að fólk veigri sér við að
bera vitni í heimilisofbeldismálum,
að því er fram kemur í samtali við
Drífu Snædal, fræðslu- og kynning-
arstýru Kvennaathvarfsins.
Ákærur vegna bruna
Indverska lögreglan handtók í
gær fimm stjórnendur barnaskóla
fyrir vanrækslu í starfi vegna elds-
voða sem varð að minnsta kosti 90
börnum á aldrinum 6-10 ára að bana.
Sautján börn voru enn í lífshættu í
gær. Stjórnendurnir voru ákærðir
fyrir að brjóta reglur um brunavarn-
ir og slökkviliðsmenn sökuðu kenn-
ara skólans um að hafa flúið út úr
byggingunni án þess að hjálpa börn-
unum.
Neyðarástand á Gaza
Yasser Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, lýsti yfir neyðarástandi á
Gaza-svæðinu í gær vegna mann-
rána og glundroða. Hann samþykkti
einnig umbætur á öryggissveitum
Palestínumanna en hafnaði afsagn-
arbeiðni Ahmeds Qoreis forsætis-
ráðherra.
Reynt að myrða ráðherra
Fimm lífverðir nýskipaðs dóms-
málaráðherra Íraks biðu bana og sjö
aðrir særðust þegar reynt var að
ráða hann af dögum í Bagdad í gær.
Ráðherrann sakaði ekki. Óþekktur
tilræðismaður sprengdi bíl sinn í loft
upp nálægt þremur bílum ráð-
herrans og lífvarða hans.
Líkur á eignarnámi
Landsvirkjun reiknar með að
óska eftir eignarnámi á landi sem fer
undir háspennulínur frá Kára-
hnjúkavirkjun. Samkomulag hefur
tekist við flesta landeigendur um
greiðslur fyrir landnotkun en nokkr-
ir hafa gert ágreining um verð fyrir
landið.
Y f i r l i t
Í dag
Skissa 6 Myndasögur 40
Umræðan 24/29 Velvakandi 42
Forystugrein 26 Staður og stund 42
Minningar 33/36 Menning 43/49
Auðlesið efni 37 Ljósvakamiðlar 50
Dagbók 40 Staksteinar 54
Víkverji 40 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
NÝ rannsókn þar sem metin er áhættan sem
fylgir því að fara um Hvalfjarðargöngin leiðir í
ljós að sex sinnum öruggara er að fara göngin en
aka fyrir Hvalfjörðinn. Guðni I. Pálsson verk-
fræðingur gerði rannsóknina og lagði hana fram
sem meistaraprófsritgerð við Tækniháskólann í
Lundi í sumar. Ritgerðin nefnist Risk Manage-
ment in Hvalfjord Tunnel og leiðbeinendur voru
Håkan Frantzich og Björn Karlsson brunamála-
stjóri.
Hvalfjarðargöngin eru gerð samkvæmt norsk-
um stöðlum, en í Noregi eru nokkur hundruð km
af göngum og hefur aldrei orðið alvarlegt slys í
þeim að sögn Guðna.
„Borið saman við ástandið áður en göngin
komu til sögunnar er ljóst að öryggi hefur aukist
til muna, en tölfræðilega er sex sinnum öruggara
að nota göngin en gamla veginn fyrir Hvalfjörð-
inn,“ segir Guðni.
Áhætta vegna bensíns og sprengiefna
„Ég reyndi að skoða sem flestar hugsanlegar
áhættur, s.s. umferðarslys, bruna og flutning með
hættuleg efni, s.s. gas, bensín og sprengiefni.“
Guðni fékk út niðurstöður sínar með því að
skoða líkur á banaslysum í göngunum og jafn-
framt líkur á bruna. Brunalíkurnar voru metnar
með því að skoða tölfræði frá Evrópulöndum og
meta tíðni slysa í öðrum jarðgöngum. „Ég reyndi
að meta afleiðingar bruna með því að reikna út
hitastig í göngunum og hversu eitraður reykurinn
verður og áhrif þessa á fólk. Varðandi umferð-
arslysin notaði ég tölfræði sem til er um slysa-
tíðni á þjóðvegum hérlendis.“
Guðni segir að ef miðað væri við venjulegan
veg ofansjávar þvert yfir Hvalfjörðinn í stað jarð-
ganga, ætti sá vegur að vera tíu sinnum öruggari
en vegurinn fyrir Hvalfjörð, en göngin ná ekki
svo háu öryggisstigi vegna aukinnar áhættu þar
niðri, sérstaklega vegna bruna.
Í rannsókninni voru búin til líkleg brunatilvik í
göngunum og reiknað út hvað gæti gerst ef
kviknaði í einum fólksbíl. Prófaðir voru allir stað-
ir í göngunum og prófuð ýmis tilbrigði með
bruna, allt frá skásta tilvikinu upp í það versta,
t.d. í miðjum göngum í mikilli umferð um versl-
unarmannhelgi. Reiknað var út að fólksbílsbruni
myndi ekki kosta mannslíf, en ef kviknaði í tveim
eða fleiri fólksbílum gæti slíkt hugsanlega farið
að kosta mannslíf. Enn verri yrðu afleiðingarnar
ef kviknaði í vöruflutningabílum, en á móti kemur
að líkurnar á slíkum bruna eru minni. Fékk
Guðni það út að afleiðingarnar af bruna í vöru-
flutningabíl gætu orðið allt frá engu mannsláti
upp í mörg.
Vantar viðmiðunarmörk
Varðandi tillögur til úrbóta segir Guðni að það
vanti að yfirvöld setji viðmiðunarmörk um það
hversu hættuleg umferðarmannvirki megi vera.
„Aðaltillaga mín er sú að menn skoði áhættuna
gaumgæfilega áður en ráðist er í framkvæmd
jarðganga og skilgreini ásættanleg viðmiðunar-
mörk, því það er dýrara að gera ráðstafanir eftir
á.
Ef kviknar í í miðjum Hvalfjarðargöngunum er
3 km gangur upp úr þeim, en til samanburðar er
gerð krafa um það í húsbyggingum að ekki megi
vera meira en 25 metrar í næsta útgang. Með því
að grafa göng til hliðar við aðalgöngin og hafa
neyðarútganga inn í þau með reglulegu millibili
t.d. 250 metra, eins og sænskir staðlar segja til,
um myndi öryggi aukast til muna. Það er vart
framkvæmanlegt að grafa slík neyðargöng neð-
ansjávar eftir á, en ég ímynda mér að með litlum
tilkostnaði hefði mátt hafa Hvalfjarðargöngin að-
eins víðari og steypa upp eldfastan millivegg og
þar með aðskilja brunahólfin.“
Ný rannsókn verkfræðings á áhættu í Hvalfjarðargöngum
Sex sinnum öruggara að
aka göngin en Hvalfjörðinn
SEX torfærubílar frá Noregi og
Svíþjóð sátu fastir í tollinum í
Reykjavík í fyrradag og var allt
útlit fyrir að aflýsa yrði torfæru-
keppni sem ráðgert var að halda í
gær. „Með aðstoð góðra manna og
fjármálaráðherra þá fengum við
neyðarleyfi í gang. Allur pakkinn
var ræstur út og við fengum bílana
út klukkan tíu í [fyrrakvöld],“
sagði Garðar Gunnarsson, formað-
ur Landssambands íslenskra akst-
ursíþróttafélaga, rétt áður en
keppnin hófst í gærmorgun.
Garðar sagði að skipuleggjendur
mótsins hefðu reiknað með að
greiða átta til tíu milljónir króna í
tryggingar fyrir bílana við komuna
til landsins. Á síðustu stundu hefði
tollstjórinn í Reykjavík krafist 25
milljóna króna í tryggingu. Hann
sagði að svona trygging ætti að
dekka hugsanlegt tap ríkissjóðs og
með hliðsjón af því hefði þetta ver-
ið alltof há upphæð sem þeir gátu
ekki greitt. Lögfræðingur fjár-
málaráðuneytisins hefði svo lýst
sig samþykkan þessari kröfu toll-
stjóra rétt fyrir lokun ráðuneytis-
ins á föstudaginn. Allt sat þá fast.
„Sem betur fer bjargaði Geir
Haarde okkur,“ sagði Garðar –
Geir hefði gefið út bráðabirgða-
leyfi svo hægt var að leysa bílana
út. Hafði LÍA boðið Norðmönn-
unum og Svíunum að koma hingað
til lands að keppa í torfæru við Ís-
lendinga.
Garðar sagði að hefði þetta ekki
bjargast hefðu Íslendingarnir ekki
ætlað að keppa til að styðja við
bakið á gestunum. Þegar Íslend-
ingar hefðu farið til útlanda með
sína bíla hefði þetta ekki verið
neitt vandamál.
Tvísýnt var hvort norræn torfærukeppni yrði haldin
Geir Haarde bjargaði okkur
LÖGREGLAN á Akureyri
fann fíkniefni í bíl sem stöðv-
aður var í bænum á föstudags-
kvöldið. Fundust efnin, sem eru
líklega kannabisefni og
e-töflur, við leit en viðkomandi
framvísaði líka hluta þeirra
sjálfviljugur. Rannsókn heldur
áfram.
Þá voru tíu ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur í og við
bæinn sama kvöld. Einn var
tekinn fyrir ölvunarakstur um
nóttina.
Með fíkni-
efni í
bílnum
Á GAMLA fótboltavellinum í Rofabæ í Árbæ er
sparkað í bolta af mikilli list. Áhugi Árbæinga á
knattspyrnu tengist kannski góðu gengi Fylkis-
manna sem núna eru í efsta sæti Landsbanka-
deildarinnar. Nú er farið að síga á seinni hluta
mótsins, en hann hefur oft reynst Fylkismönnum
erfiður. Þetta vita ungmennin í Árbænum og því
leggja þeir líkt og meistaraflokkurinn sig fram
um að æfa.
Morgunblaðið/RAX
Í fótbolta í góðu veðri