Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ NOKKRIR bændur á Austurlandi hafa ekki gengið að tilboði Lands- virkjunar um greiðslu fyrir land sem fer undir háspennulínur sem liggja frá Fljótsdal að álverinu í Reyðar- firði. Albert Guðmundsson, verk- fræðingur hjá Landsvirkjun, segir Landsvirkjun reikna með að óskað verði eftir eignarnámi náist ekki samningar. Háspennulínurnar verða mikil mannvirki. Um er að ræða tvær línur sem að hluta til liggja samhliða Kröflulínu-2 en hún er líka kölluð byggðalína. Leggja þarf tvær línur til að tryggja öryggi í flutningum ork- unnar. Álver má aldrei verða raf- magnslaust og því eru byggðar tvær línur ef önnur bilar eða gera þarf við línu. Möstrin verða 25–30 metra há og verða alls um 330. Þau verða V- laga líkt og möstur í háspennulínu sem liggur yfir Hellisheiði. Línurnar verða um 50 km á lengd. Önnur liggur um Hallsteinsdal, en hin um Þórudal. Verða nokkuð áberandi í landslaginu „Við drögum enga dul á það að þessar raflínur verða nokkuð áber- andi í landslaginu,“ segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. Hann segir að ekki hafi komið til greina að leggja línurnar í jörð því að við það tífaldist kostnaður við línu- lögnina. Kostnaðurinn er áætlaður 4,3 milljarðar, en auk þess þarf að byggja tengivirki sem þýðir að heild- arkostnaður við verkið verður 8–9 milljarðar. Búið er að bjóða út slóðagerð að vinnusvæðunum og hefjast fram- kvæmdir við slóðana í sumar. Á næsta ári verða undirstöður reistar og byrjað að reisa möstrin og árið 2006 verður byrjað að strengja lín- una. Framkvæmdum á að vera lokið 1. október 2006. Talsvert mikið land þarf undir há- spennilínurnar, en miðað er við að þær þurfi 125 metra breitt belti. Lín- urnar liggja um lönd um 20 landeig- enda. Albert Guðmundsson sagði að búið væri að ræða við þá og gera þeim tilboð um greiðslur fyrir landnotkun. Tilboðin væru miðuð við mat frá matsnefnd eignarnámsbóta á sam- bærilegu land. Hann sagði að búið væri að ganga frá samningum við um 2/3 landeigenda. Nokkrir hefðu þó gert ágreining um verðið og hann sagðist reikna með að í einhverjum tilvikum myndi Landsvirkjun óska eftir eignarnámi, en það þýddi að málið færi til matsnefndar eignar- námsbóta. Hann sagði þetta ekki óvenjulegt. Við línulagnir í gegnum tíðina hefðu alloft verið óskað eftir eignarnámi. Þetta væri lögformlegur ferill sem báðir aðilar væru sammála um að fara þegar menn næðu ekki saman í frjálsum samningum. Albert sagði að verð fyrir landið væri mismunandi. Það færi eftir land- gæðum, nálægð við byggð og fleiru. Landsvirkjun væri að bjóða á bilinu 90–200 þúsund fyrir hektarann. Hann vildi ekki gefa upp hversu mik- ið Landsvirkjun hefði áætlað að borga samtals til landeigenda. Landsvirkjun á einnig eftir að ná samningum við landeigendur um vatnsréttindi vegna Kárahnjúka- virkjunar. Að sögn Sigurðar Arnalds, kynningarstjóra Kárahnjúkavirkjun- ar, reiknar Landsvirkjun með að þurfa að greiða um 500 milljónir fyrir vatnsréttindin. Landsvirkjun hefur ekki lokið samningum við alla landeig- endur í Fljótsdal vegna lagningar tveggja háspennulína Raflínurnar sem liggja frá Fljótsdal í Reyðarfjörð verða um 50 km langar. Reiknar með að óskað verði eftir eignarnámi SMÍÐI á svokölluðum távegg er haf- in í botni Hafrahvammagljúfurs. Veggurinn, sem verður um 40 metra hár, verður hluti Kárahnjúkastíflu. Jafnframt er verið að flytja jarðveg í stífluna, en í hana fara um 8,5 millj- ónir rúmmetrar af fyllingarefni. Virkjunarsvæðið tekur breyt- ingum nánast á hverjum degi, en þessa dagana lítur svæðið svona út þegar horft er inn gljúfrið frá bráða- birgðastíflu sem færir Jöklu úr far- vegi sínum og inn í svokölluð hjá- veitugöng. Smíði táveggsins hafin Morgunblaðið/Egill Ólafsson KARLMAÐURINN sem ekið var á í Ártúnsbrekku aðfaranótt mið- vikudags er á batavegi á gjör- gæsludeild Landspítalans. Að sögn læknis er hann kominn úr önd- unarvél. Líðan níu ára drengs frá Græn- landi sem fluttur var í sjúkraflugi frá Ammassalik á fimmtudag er óbreytt og er hann áfram í önd- unarvél. Hann hlaut mikla höfuð- áverka þegar járnplata féll á hann og var Slökkvilið Akureyrar beðið um sjúkraflug. Á batavegi eftir bílslys „ÞÓ AÐ sauðburði ljúki oftast nær í maí er alltaf ein og ein ær sem ber á óvenjulegum tíma, ann- aðhvort löngu fyrir sauðburð eða á eftir, eins og ærin Flekka gerði þetta árið. Einhverra hluta vegna hefur hún ekki lembst fyrr en svona seint. Hún valdi sér sólríkan sumardag um miðjan júlí til að eignast lömbin sín tvö, hrút og gimbur,“ segir Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal við Vík í Mýrdal, og sagði ána ekkert láta trufla sig frá því að kara lömbin þótt hún væri mynduð. Sauðburður í Fagradal Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Það er ekki algengt að ær beri í júlí, en það kemur þó fyrir. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ærin Flekka frá Fagradal bar tveimur lömbum, hrút og gimbur, og gekk burðurinn vel. „ÞETTA hefur gengið svona upp og niður,“ sögðu þeir félagar Pálmi Hreiðarsson og Guð- mundur Jörundsson, en þeir komu til Akureyrar síðdegis á föstudag eftir að hafa gengið frá Reykjavík. Þeir lögðu af stað á föstudegi í síðastliðinni viku, en tilgangur göngunnar var að safna fé fyrir Atvinnu með stuðningi og Handverkstæðið Ásgarð. Atvinna með stuðningi aðstoðar bæði fatl- aða og ófatlaða við að komast í vinnu á almennum vinnumarkaði. Þeir Pálmi og Guðmundur voru á lokasprettinum þegar Morg- unblaðið hitti þá á Moldhaugna- hálsi síðdegis í gær, áttu ófarna nokkra kílómetra. „Meiðsli hafa nokkuð verið að hrjá okkur, alls konar eymsli, sársauki og blöðrur, þannig að við höfum farið aðeins hægar yfir en við stefndum að,“ sögðu þeir. Að jafnaði lögðu þeir að baki um 60 kílómetra á dag, voru á ferð- inni frá því um kl. hálf sjö á morgnana til hálf tólf á kvöldin, „þannig að maður hefur nú ekki sofið mikið, en við bætum úr því þegar þetta er búið.“ Veðrið lék við göngugarpa nánast allan tímann, en síðasta daginn var fremur kalt. Ökumenn voru tillitssamir að sögn, „Flestir óku hægt fram hjá okkur, margir veifuðu eða stoppuðu og gáfu sig á tal við okkur, það var ánægju- legt.“ Pálmi og Guðmundur sögðust vissulega vera þreyttir og þeir hlökkuðu til að hvíla sig, fara í gott bað og hrein föt. „Auðvitað var þetta erfitt, en við höfðum búið okkur vel undir þetta átak andlega, það kom aldrei til greina að gefast upp, við ætl- uðum okkur alltaf alla leið. Nú höfum við náð þeim áfanga og er- um sáttir,“ sögðu göngugarp- arnir, en þeir höfðu ekki haft fregnir af því hversu mikið fé hefði safnast með tiltækinu. Gengu frá Reykjavík til Akureyrar á sjö og hálfum degi Þreyttir en sáttir Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Glaðir en þreyttir. Félagarnir Pálmi Hreiðarsson t.v. og Guðmundur Jör- undsson á Moldhaugnahálsi fyrir lokasprettinn til Akureyrar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.