Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 44
MENNING
44 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sumarkvöld við orgelið
í Hallgrímskirkju
18. júlí kl. 20.00:
Douglas A. Brotchie leikur
verk m.a. eftir Bach, Messiaen,
Hafliða Hallgrímsson og Leighton.
Sun . 18 .07 20 .00 UPPSELT
F im . 22 .07 20 .00
Fös . 23 .07 20 .00
Fös . 06 .08 20 .00
ATHUGIÐ ! SÝNINGIN ER EKKI FYRIR V IÐKVÆMA
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Sígild tónlist í sögulegu umhverfi
23.-25. júlí 2004
Opnunartónleikar föstudaginn 23. júlí kl. 20.00
Flutt verður tónlist eftir W.A. Mozart.
Miðdegistónleikar laugardaginn 24. júlí kl. 15.00
Elín Ósk Óskarsdóttir sópran og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari flytja
norræn lög og þekktar óperuaríur.
Kvöldtónleikar laugardaginn 24. júlí kl. 20.00
Trio Polskie flytur verk eftir Haydn, Beethoven og Schubert.
Lokatónleikar sunnudaginn 25. júlí kl. 16.00
Flutt verða m.a. verk eftir Grieg, Beethoven og Schumann.
Fyrirlestur: Bjarki Sveinbjörnsson heldur erindi í Snorrastofu laugardaginn 24. júlí
kl. 17.30 sem nefnist „Har Island historie I musik?“
Flytjendur: Arkadiusz Dobrowolski, Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla
Gylfadóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir, Sebastian Gugala, Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
Tomasz Bartoszek og Þórunn Ósk Marinósdóttir.
Tónleikarnir verða haldnir í Reykholtskirkju.
Miðapantanir í símum 891 7677 og 552 3208.
Miðasala við innganginn.
Tölvupóstur: samhljomur@simnet.is
Heimasíða: www.vortex.is/festival
og www.reykholt.is
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI Yfir 10.000 miðar seldir
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Þúsundir áhorfenda um allt land eru á sama máli:
„FAME er frábær skemmtun“
fim. 22. júli kl. 19.30 fá sæti
fös. 23. júli kl. 19.30 fá sæti
fös. 6. ágúst kl. 19.30 laus sæti
lau. 7. ágúst kl. 19.30 laus sæti
MÁLVERK sem selt var á uppboði
hjá uppboðsfyrirtækinu Sotheby’s í
New York fyrir rúmum þremur ár-
um á 75 þúsund pund, jafnvirði
tæplega tíu milljóna íslenskra
króna, gæti í raun reynst milljóna
punda virði. Listfræðingar sem
skoðað hafa verkið að undanförnu
vilja nefnilega eigna það ítalska
listmálaranum Caravaggio, en
hann var byltingarmaður í evr-
ópskri myndlist og upphafsmaður
dramatísks raunsæis á barokktím-
anum sem hafði sterk áhrif á lista-
menn á borð við Velázquez og Rem-
brandt.
Á fréttavef BBC kemur fram að
listaverkasalinn Clovis Whitfield,
sem er sérfræðingur í ítalskri 17.
aldar list, hafi komist að þeirri nið-
urstöðu að verkið, sem nefnist
Apolló lútuleikari, væri í raun eftir
Caravaggio eftir að hann hann
skoðaði það fyrir hönd við-
skiptavinar. Þegar verkið var selt
hjá Sotheby’s í ársbyrjun 2001 var
það í uppboðsskránni eignað 17.
aldar listamanninum Carlo Magn-
one og standa menn þar á bæ ennþá
á því fastar en fótunum að mál-
verkið sé ekki eftir Caravaggio. Að
sögn ónafngreinds starfsmanns
uppboðsfyrirtækisins ráðfærðu
þeir sig við hóp mikils metinna
fræðimanna fyrir söluna á sínum
tíma og tekur hann fram að afstaða
þeirra hafi ekki breyst í ljósi nýrra
upplýsinga.
Í samtali við fréttadeild BBC
sagði Whitfield að áhugi hans á
myndinni hefði kviknað þegar hann
sá uppboðsskrá Sotheby’s á sínum
tíma. Fyrst var talið að hér væri um
að ræða eftirlíkingu á Caravaggio-
verki sem til sýnis er í Metropolit-
an-listasafninu í New York og
samskonar útgáfu verksins sem sjá
má í Vetrarhöllinni í Pétursborg.
En að sögn Whitfield samsvöruðu
lýsingar 17. aldar ævisöguritarans
Giovanni Baglione á Caravaggio-
verki að nokkru útliti verksins sem
hér um ræðir, þ.e. Apolló lútuleik-
ara. Að sögn Whitfield var verkið
hreinsað og skoðað með röntgen-
tækninni, en við það uppgötvaðist
ýmislegt sem gaf ótvírætt til kynna
að hér væri um frumgerð að ræða í
stað eftirlíkingar. „Ýmsar lagfær-
ingar höfðu verið gerðar, þar á
meðal teiknaðar útlínur á hendi
drengsins, auk þess sem finna mátti
skurði í myndfletinum sem eru ein-
mitt einkennandi fyrir málverk
Caravaggios. Slíkt hefði ekki verið
að finna í verkinu ef hér væri um
eftirlíkingu að ræða.“ Whitfield
segist sökum þessa sannfærður um
að málverkið sé frummynd eftir
Caravaggio og að verkið í Vetr-
arhöllinni sé síðari tíma útfærsla
listamannsins á sama myndefni.
Margir virtir listfræðingar hafa
staðfest uppgötvun Whitfields,
þeirra á meðal Denis Mahon, sem er
talinn einn fremsti sérfræðingur í
ítalskri 16. og 17. aldar list. Áður en
verkið var hreinsað hafði Mahon
raunar haldið því fram að það gæti
ekki verið eftir Caravaggio, en þeg-
ar búið var að hreinsa það skipti
hann um skoðun og styður nú álit
Whitfields.
Í frétt BBC kemur fram að for-
svarsmenn Sotheby’s hafa enga trú
á uppgötvun Whitfields og er haft
eftir talsmanni fyrirtækisins að
„engar nýjar upplýsingar hafi kom-
ið fram sem breyta myndu upp-
haflegri skráningu fyrirtækisins.
Við berum fullt traust til þeirra
fræðimanna sem rannsökuðu verk-
ið fyrir okkur á sínum tíma og eign-
uðu það Magnone. Og ef við værum
að fara að selja verkið í dag dytti
okkur ekki í hug að eigna Cara-
vaggio það.“
Myndlist | Seldi Sotheby’s málverk eftir Caravaggio án þess að gera sér grein fyrir því?
Verkið umdeilda sem mögulega er eftir Caravaggio.
Verkið gæti reynst
milljóna punda virði
ALLT útlit er fyrir að söng-
leikjaútgáfa af kvikmynd Susanne
Bier Den eneste ene (Sá eini
sanni) muni slá í gegn líkt og
myndin sjálf gerði á sínum tíma.
Kvikmynd Bier, sem frumsýnd var
í Danmörku fyrir fimm árum, féll
vel í kramið hjá dönskum áhorf-
endum og sló öll aðsóknarmet en
um 850 þúsund manns sáu mynd-
ina í dönskum kvikmyndahúsum.
Hún hlaut einnig náð fyrir augum
dómnefndarmanna hinna virtu
Bodil-verðlauna og var m.a. kjörin
mynd ársins í Danmörku 1999.
Um þessar mundir er verið að
undirbúa söngleikjaútgáfu af
myndinni og þegar hafa verið seld-
ir 25 þúsund miðar í forsölu þó
ekki verði söngleikurinn frum-
sýndur fyrr en eftir rúma níu mán-
uði, þ.e. 18. mars 2005. Upp-
færslan verður sýnd í Forum í
Kaupmannahöfn og tekur salurinn
um þrjú þúsund manns í sæti, en
áhorfendur munu sitja allt um-
hverfis leiksviðið.
Þegar er búið að skipa í öll hlut-
verkin og munu þekktir danskir
leikarar og söngvarar fara með
hlutverkin. Má þar nefna Niels Ol-
sen sem fer með hlutverk Nillers
en hann lék sama hlutverk í mynd-
inni, Theresa Glahn, sem flestir
ættu að muna eftir sem Søs í þátt-
unum um Nikolaj og Julie, og Lars
Bom, er fór með aðalhlutverkið í
þáttaröðinni Strisser på Samsø
auk þess að leika Johnny í saka-
málasyrpunni Rejseholdet.
Að sögn aðstandenda uppsetn-
ingarinnar munu sérstakir leyni-
gestir taka lagið á hverri sýningu
og er þá um þekkta danska tónlist-
armenn að ræða. Gert er ráð fyrir
að öll lögin úr myndinni fái að
hljóma í söngleiknum en að auki
verður tíu nýjum frumsömdum
lögum bætt við. Kvikmynda-
tónlistin, varð líkt og myndin sjálf,
afar vinsæl á sínum tíma og hafa nú
selst meira en 130 þúsund eintök af
diskinum með tónlistinni.
Í samtali við Berlingske Tidende
sagðist Bier frá upphafi hafa
dreymt um að myndin yrði síðar
gerð að söngleik. „Þessi einfalda
yndislega saga, persónurnar og tón-
listin smellpassa inn í söngleikjastíl-
inn. Meðan við vorum að taka
myndina hugsað ég oft með mér að í
raun værum við alls ekki að búa til
kvikmynd heldur söngleik,“ segir
Bier sem er listrænn stjórnandi
verkefnisins en leikstjórnin er í
höndum Peters Langdal sem þekkt-
ur er fyrir leikstjórnarvinnu sína
hjá Betty Nansen leikhúsinu í
Kaupmannahöfn.
Leikhús | Danir bíða spenntir eftir söngleiknum Den eneste ene
Leikendurnir sem komu fram í myndinni, Niels Olsen er þriðji frá vinstri.
Sá eini sanni breytist í
söngleik á fjölunum
www.denenesteene.dk