Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 41
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 41 Útsölustaðir Apótek og lyfjaverslanir Töskur Ekta leður Wild bags fashion Afmælisþakkir Kæru vinir og frændfólk. Við þökkum af alhug vinarhug í tilefni 80 ára afmælis og einstakan hlýhug og samúð í þeirri sorgarraun er knúði dyra hjá okkur. Megi Guðs blessun vera með ykkur. Halldís og Tómas Tómasson. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0–0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. Rbd2 Rc5 10. c3 Be7 11. Bc2 Bg4 12. He1 Dd7 13. b4 Re6 14. Rf1 Hd8 15. Re3 Bh5 16. g4 Bg6 17. Rf5 0–0 18. a4 Hfe8 19. axb5 axb5 20. Bd2 d4 21. Be4 Bf8 22. Db3 dxc3 23. Bxc3 Bxf5 24. Bxf5 g6 25. Hed1 Dc8 26. Bxe6 Hxe6 27. Rg5 He7 Staðan kom upp á meistaramóti Skákskóla Íslands sem lauk fyrir skömmu. Sigurvegari mótsins, Hall- dór Brynjar Halldórsson (2.200), hafði hvítt gegn stigahæsta keppanda mótsins, Degi Arngrímssyni (2.230). 28. e6! fxe6 28. … Hxd1+ hefði einnig leitt til tapað tafls eftir 29. Hxd1 fxe6 30. Bf6 He8 31. Df3. 29. Hxd8 Rxd8 30. Bf6 Bg7? 31. Bxe7 Bxa1 32. Bxd8? Hvítur hefði auðveldlega unnið eftir 32. Dh3! h5 33. Dd3 Kg7 34. gxh5 og hvítur mátar. 32. … Dxd8 33. Dxe6+ Kg7 34. Df7+?! Þó að hvítur fá yfirburðatafl eftir þetta hefði 34. h4 Dd1+ 35. Kg2 Kh6 36. Dc8 verið fljót- legri vinningsleið. 34. … Kh6 35. Rf3 Bf6 36. h4! Bxh4 37. Df4+ g5 38. Df5 Kg7 39. De5+ Df6 40. Dxc7+ Kg6 41. Dc2+ Kg7 42. De4 Df7 43. Kg2 h5 44. De5+ Kg8 45. Rxh4 gxh4 46. Dg5+ Kf8 47. Dxh5 Db7+ 48. f3 Da6 49. Dxh4 Dd6 50. Dh8+ Ke7 51. Dg7+ Ke8 52. Dc3 Kf7 53. Db3+ Kg7 54. Dc3+ Kf7 55. De1 Kf8 56. De4 Kg8 57. De8+ Kg7 58. Dxb5 Dd2+ 59. Kg3 De1+ 60. Kf4 Dc1+ 61. Ke4 De1+ 62. Kf5 Db1+ 63. Kg5 Dg6+ 64. Kh4 Dh6+ 65. Dh5 Dd6 66. Dg5+ Kh8 67. Kh5 Kh7 68. f4 Dc6 69. Df5+ Kh8 70. Kg5 Dg2 71. Kg6 Dd5 72. Df6+ og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Dagana 22. til 29. júlí næstkomandistendur Íslenska vitafélagið fyrirfræðslu- og skemmtidagskrá viðnokkra af vitum landsins ásamt heima- mönnum á hverjum stað. Markmið dagskrárinnar er að vekja fólk til umhugsunar um þann menn- ingararf sem fólginn er í vitum og öðrum strand- minjum, sem ónýttar liggja við strendur landsins. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vita- félagsins, er einn skipuleggjenda Vitadaga. Hvað verður á boðstólum á Vitadögum? „Vitadagarnir hefjast á Seyðisfirði þann 22. júlí með komu norskra gesta; tónlistarmanna, sagna- manna, formanns norska vitafélagsins ásamt tveimur bátum, sem smíðaðir voru við lok nítjándu aldar. Bátarnir verða sjósettir á Seyð- isfirði og þeim siglt um fjörðinn. Um kvöldið verður dagskrá í tali og tónum við vitann á Dala- tanga, og boðið upp á mat af grilli. Laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. júlí tekur Íslenska vitafélagið svo þátt í hátíðarhöldum á Siglufirði, þar sem norsku bátarnir verða sjósett- ir, tónlistarmennirnir leika á bryggjuballi og á sunnudeginum verður dagskrá við Sauðanesvita. Sama dag verður einnig hátíðarstemning við Galtarvita í tengslum við siglingadaga á Ísafirði. Tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjónsson mun þar segja frá reynslu sinni af vitanum, en hann eyddi þar hluta æsku sinnar. Þá verður ljósmyndasýn- ing í vitavarðarbústaðnum og heilgrillað lamb á teini.“ Af hverju er nauðsynlegt að vekja athygli á vit- um og öðrum strandminjum? „Menning þessarar þjóðar er að miklum hluta tengd við ströndina, þótt Ísland hafi lengst af ver- ið bændasamfélag. Það eimir enn eftir af þessum bændahugsunarhætti þegar við viljum helst reka alla erlenda ferðamenn til fjalla, líkt og ærnar, í stað þess að bjóða þeim upp á það sem ströndin hefur upp á að bjóða. Við eigum alveg ógrynni af minjum og menjum við ströndina, og eru vitarnir sýnilegastir þeirra. Auk þeirra er fjöldi skipa- lægja, verbúða og þ.h. sem liggur undir skemmd- um. Hægt er að hlúa að þessum minjum og gera þær aðgengilegar og áhugaverðar almenningi, og viljum við vekja athygli á því.“ Hvernig er með skráningu og miðaverð? „Öllum kostnaði verður stillt í hóf, og verður t.d. enginn aðgangseyrir að hátíðahöldunum á Siglufirði. Hins vegar er gott að fólk skrái sig fyr- ir fram ef það ætlar að taka þátt á Seyðisfirði eða Galtarvita, þar sem við verðum að vita hve mikið á að grilla. Upplýsingar er hægt að nálgast á vef- síðunum www.siglo.is, www.galtarviti.is og www.isafjordur.is/siglingadagar.“ Strandminjar | Fræðslu- og skemmtidagskráin Vitadagar Meira að sjá en fjöllin blá  Sigurbjörg Árnadótt- ir er fædd þann 25. júní 1954 í Svarfaðardal og er leikari frá Leiklist- arskóla Íslands, hefur unnið sem fréttaritari Ríkisútvarpsins, við dagskrárgerð fyrir börn og unglinga hjá finnska sjónvarpinu og hefur starfað sem leið- sögumaður, aðallega í Finnlandi og Eistlandi. Sigurbjörg hefur jafn- framt unnið við ráðgjöf í ferða- og þjónustu- málum. Sigurbjörg stofnaði Vitafélagið fyrir einu og hálfu ári, eftir að hafa kynnst starf- semi svipaðra félaga á Norðurlöndum Gæluverkefni verkfræðinga Í MORGUNBLAÐINU sl. þriðju- dag var viðtal við Örn Sigurðsson um færslu Hringbrautar og „þrælsótta“ embættismanna gagn- vart fyrirsvarsmönnum ráðhúss- klíkunnar. Held að þetta sé mis- skilningur hjá Erni og virðast embættismennirnir sjálfir stað- festa það í fréttinni. Ég held, einmitt, að embætt- ismennirnir hjá borgarverkfræð- ingi og Gatnamálastofu stýri Reykjavíkurborg og allri fram- kvæmdagleðinni. Færsla Hring- brautar er bara gæluverkefni verkfræðinga sem vilja fyrir alla muni sleppa við 2 mín. bið fyrir jeppann á gatnamótum. Um leið geta þeir orðið sér úti um millj- arða æfingu við að færa götuna. Eftir sitja skattgreiðendur með reikninginn fyrir þessu nauðsynja- lausa endurmenntunarnámskeiði. Til viðbótar við sjónmengun, moldarmengun og landmengun. Allt til þess að jeppinn bíði ekki nema mínútu við gatnamótin í stað 2–3 nú. Hitt er svo annað mál að embættismönnum hefur tekist ansi vel upp við að selja R- listanum þessa hugmynd sem vill ólmur gera hana að sinni og kallar hana nú „of seint að hætta við“ sem kemur í stað hins gamla slag- orðs Ingibjargar Sólrúnar „við höfum farið vel yfir málið“. Næst er að bíða og sjá hvernig miðbakkinn verður eyðilagður með ærnum tilkostnaði. Hitt er svo annað mál að auðvit- að á að kjósa borgarverkfræðing og gatnamálastjóra í kosningum á meðan meirihluti íbúa er á þeirri skoðun að ekki eigi að leggja sveitarfélög niður. Sjálfur sé ég enga þörf fyrir sveitarfélög. Og vil ekki trúa því að borgararnir sjálf- ir séu ekki fullfærir um að gera það sem kosnir milliliðir gera svo illa. Virðingarfyllst, Einar Guðjónsson, Grettisgötu 64. Ættarmót Guðmundar og Bjargar ÆTTARMÓT niðja Guðmundar Péturssonar og Bjargar Höskulds- dóttur frá Streiti í Breiðdal verður haldið helgina 23.–25. júlí næst- komandi. Ættarmótið verður hald- ið við félagsheimilið Brún í Bæj- arsveit þar sem er fyrir hendi tjaldsvæði, sundlaug og grill- aðstaða. Stutt er í Borgarnes og Hvanneyri. Sjáumst sem flest. Ættarmótsnefndin. Simbi er enn týndur SIMBI er enn týndur en hann hvarf frá Rauðarárstíg 27. júní. Hann er gulbröndóttur með bláa ól og eyrnamerktur R 3183. Þeir sem vita hvar hann er eða vita hvað varð um hann eru beðnir að hafa samband í síma 868 5623 eða 562 79 Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Framkvæmdir við færslu Hring- brautar. ÁRNI Jónsson var sæmdur franskri heiðursorðu á dögunum en hann er að hefja sitt tíunda ár sem forseti Alliance Francaise á Íslandi. Alli- ance Francaise hefur verið starf- rækt á Íslandi síðan 1911 en sam- tökin standa fyrir frönskukennslu og ýmsum menningarviðburðum. Árni vinnur störf sín í sjálfboða- vinnu en hann segist hafa áhuga á að koma í gang vinnu að útgáfu bókar um starfsemi samtakanna á Íslandi sem kæmi út á hundrað ára afmæli þeirra. Það var sendiherra Frakklands á Íslandi, Louis Bardol- let, sem veitti orðuna. Morgunblaðið/Jim Smart Frönsk heiðursorða fyrir félagsstörf SUMARHÁTÍÐ Félags CP á Ís- landi var haldin í Reykholti í Bisk- upstungum fyrir stuttu og er þetta þriðja árið sem hátíðin er haldin þar. Gleðin hófst með grilli og söng og síðan var börnunum m.a. boðið á hestbak. Kvöldskemmtun var í Ara- tungu þar sem Bárður og Birta skemmtu ásamt Leikfélagi Sólheima sem sýndi atriði úr Latabæ fyrir hátt í 200 gesti og að lokum spiluðu Pétur og postularnir. Á sunnudag var farið í Dýragarðinn í Slakka. Félag CP á Íslandi er félag fatl- aðra, foreldra, fagfólks og áhuga- samra um Cerebral Palsy sem hefur verið þýtt heilalömun á íslensku. CP er algengasta tegund hreyfihömlun- ar barna. Heimasíða félagsins er cp.is. Ýmislegt var til sekmmtunar í Reykholti, m.a. farið á hestbak. Hér er Haukur Hákon Loftsson á baki á hryssunni Hörpu. Sumarhátíð CP félagsins ÞRÖSTUR Sigtryggsson, fyrrum skipherra á varðskipunum, hefur opnað menningar- og minjasafn í Hlíð, eða Ytrihúsum II, við Núp í Dýrafirði þar sem hann ólst upp. Faðir hans, séra Sigtryggur Guð- laugsson, stofnandi og fyrsti skóla- stjóri Núpsskóla, bjó þar ásamt eig- inkonu sinni, Hjaltlínu Guðjónsdóttur, frá 1930 til æviloka og hefur flest haldist óbreytt í hús- inu frá þeim tíma. Kemur þetta fram á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði, bb.is. Þar segir einnig að fyrir nokkrum árum var í bígerð að gera húsið að safni en vegna viðgerða var því frestað. Unnt er að kaupa sér aðgangskort að safninu með mynd af skrúðgarð- inum Skrúði, skólanum og fjöl- skyldusetrinu sem allt er að finna á Núpi. Opnaði Menn- ingar- og minjasafn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.