Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 47 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. ísl tal Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. enskt tal STÆRSTA MYND ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM. STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA TÍMA. STÆRSTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA. Sýnd með íslensku og ensku tali. Kvikmyndir.is 26 þúsund gestir á 9 dögum  SV MBL "Afþreyingarmyndir gerast ekki betri."“ ÓÖH „Tvímælalaust besta sumarmyndin...“  „Geðveik mynd. Alveg tótallí brilljant“ .ÞÞ.FBL. „ eðveik ynd. lveg tóta lí bri ljant“ . .F L.  Allt er vænt sem vel er grænt. KD. Fréttablaðið. www .regnboginn.is Sýnd kl. 3, 5.40 og 8. Sýnd kl. 3 og 8. ÓHT Rás 2 Hverfisgötu  551 9000 Nýr og betri Sýnd kl. 10.20. B.i. 16.  SV Mbl Sýnd kl. 5.40 og 10.30.  SV Mbl ÓÖH „Tvímælalaust besta sumarmyndin...“  SV MBL "Afþreyingarmyndir gerast ekki betri."“  „Geðveik mynd. Alveg tótallí brilljant“ .ÞÞ.FBL. 26 þúsund gestir á 9 dögum Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 10.30. B.i. 12 ára. ÞÓRIR tónlistarmaður er skráður Þórir Georg Jónsson í þjóðskrá. Hann er aðeins 19 ára, en þrátt fyrir þennan unga aldur er fyrsta platan á leiðinni. Hún ber vinnuheitið I Be- lieve in This og kemur út í sept- ember ef allt fer að óskum. „Ég hef verið í hljómsveitum frá því ég man eftir mér. Svo fór ég að dunda mér við að gera lög upp á eigin spýtur, setti nokkur á disk og fór niður í 12 tóna og seldi diskinn á tvö hundruð kall. 12 tónamönnum líkaði það sem ég var að gera og spurðu mig hvort ég vildi ekki gera plötu fyrir þá,“ segir Þórir. Tónlist Þóris má e.t.v. lýsa sem þjóðlagaskotnu poppi. Útsetningar eru ekki yfirþyrmandi, oftast er hann einn með kassagítarinn. Þórir segir að vel gangi að semja. „Það áttu til dæmis upphaflega að vera níu lög á plötunni, en þegar upp- tökur frestuðust um nokkrar vikur bættust við þrjú, þannig að þau eru tólf alls.“ Þórir er í hljómsveitunum Fight- ing Shit og Hryðjuverkum, sem spila svokallaða harðkjarnatónlist, ansi ólíka lágstemmdri músík hans sjálfs. Hvorum megin er hjartað? „Báðum megin. Manni líður ekki alltaf eins.“ Ertu ekki svolítið eins og dr. Jek- yll og hr. Hyde? „Ég veit það ekki. Báðar hljóm- sveitir eru mjög melódískar. Þetta er bara spurning hversu vanur mað- ur er að greina melódíuna í hávað- anum. Flest góð tónlist hefur mel- ódíu, það eru gömul sannindi og ný.“ Eitt laganna á væntanlegri plötu er hið vinsæla „Hey Ya!“, sem Out- kast gerði allt vitlaust með fyrir skömmu. Útgáfa Þóris er að vonum rólegri en frumútgáfan. „Textinn í laginu á miklu betur við þessa út- gáfu. Reyndar er kassagítarinn áberandi í upprunalegu útgáfunni og sennilega hefur lagið hljómað svipað þessu þegar það var samið.“ Spurður um áhrifavalda segist Þórir hlusta á alla tónlist, frá sígildri tónlist til dauðarokks. „En í þessum geira eru það kannski helst þessir frægustu, eins og Elliott Smith og Nick Drake.“ Þórir er búinn að vera að spila á ýmsum stöðum að und- anförnu og á morgun, laugardag, er hann að spila á útimarkaðinum á Sirkus. Þórir sendir frá sér þjóðlagapopp og er í harðkjarnasveitum Morgunblaðið/Árni Torfason Plata Þóris kemur út í september. Í tveimur heimum Þórir spilar á útimarkaðinum á Sirkus á morgun. ivarpall@mbl.is ÞRÁTT fyrir merka lýðræðishefð er bandarískt samfélag ótrúlega aftarlega á merinni þegar kemur að jafnréttismálum. Hlutir eins og foreldraorlof og leikskólakerfi þekkjast varla og því hafa konur færri valkosti en kynsystur þeirra víða í Evrópu þegar kemur að því að samræma starfsframa og barnauppeldi. Hugarfarið gagnvart hlut- verkum kynjanna er fyrir vikið í öðrum gír en t.d. á Norðurlöndum, og hvergi sést þetta betur en í hugmyndaheimum vinsæld- arkvikmynda á borð við þá sem hér er til umræðu. Uppeldi Hel- enu er nefnilega ein af þessum myndum sem vekja fyrst og fremst eina spurningu í huga mannns, þ.e: Hvers vegna í ósköp- unum er enn verið að gera svona myndir á 21. öldinni? Það renna síðan á mann tvær grímur þegar maður áttar sig á því að það er einmitt ástæða fyrir því að verið er að búa til svona myndir á 21. öldinni. Og svo á þetta að vera gamanmynd! Í myndinni segir af ungpíunni Helenu (Kate Hudson) sem lifir áhyggjulausu lífi, er á „frama- braut“ í tískuiðnaðinum og hefur efni á því að kaupa sér flott föt og djamma á dýrum stöðum. Systir hennar Jenny (Joan Cusack) er hin fullkomna andstæða, enda komin í hóp þeirra fyrirbæra sem bera alveg sérstök útlitseinkenni í bandarískum kvikmyndum, aug- lýsingum og sjónvarpsþáttum og reyndar meðal þeirra alltof mörgu kvenna sem fylgja þessum fyr- irmælum í veruleikanum. Þetta fyrirbæri er „mamman“ (eða „the mom“, eins og Kristján Ólafsson kynni að benda á) og sú vera má ekki gera margt af því sem Hel- ena má ennþá. Hún verður að vera jarðbundin, lifa fyrir börn og heimili og klæðast hryllilega púka- legum fötum, svo ekki sé minnst á klippinguna. Fyrir vikið fær hún reyndar inngöngu í sérstakt leyni- félag kvenna í sömu aðstöðu. Skiljanlega þykir Helenu það ekki mjög aðlaðandi tilhugsun að breytast í slíka veru, en virðist ekki hafa val um annað þegar henni er treyst fyrir uppeldi þriggja barna elstu systur sinnar. Helena þarf að hætta í vinnunni, og taka saman við ungan prest til þess að dæmið gangi upp, og áður en yfir lýkur finnur hún „mömmu- na“ innra með sér og samþykkir þann veruleika sem við henni blas- ir. Það hefði e.t.v. mátt búa til gamanmynd um þetta efni á ein- hvern áhugaverðari hátt, en í Uppeldi Helenu takast klisjurnar hreinlega á loft og magnast upp í hið illþolanlega. Ég segi því bara eins og Megas á dögunum: Afsak- ið meðan ég æli … Móðir eða skækja? KVIKMYNDIR Sambíóin Kringlunni, Álfabakka og Akureyri Leikstjórn: Gary Marshall. Aðalhlutverk: Kate Hudson, John Corbett, Joan Cus- ack. Bandaríkin, 119 mín. RAISING HELEN / UPPELDI HELENU  Heiða Jóhannsdóttir „Í Uppeldi Helenu takast klisjurnar hreinlega á loft og magnast upp í hið illþolanlega,“ segir meðal ann- ars í dómnum um myndina. OPIN KERFI og Sambíóin stóðu fyrir Hewlett-Packard litasam- keppni á vefsíðunni www.prent- arar.is á dögunum. Þar gátu þátttak- endur litað þekktar sögupersónur úr kvikmyndinni Skrekk 2 myndinni, til dæmis Skrekk sjáfan, Fíónu prins- essu og Asnann. Þátttakan var að sögn aðstandenda mjög góð. Fyrstu verðlaun fékk Margrét Ei- ríksdóttir og fékk hún að launum HP Photosmart 735 stafræna myndavél. Önnur verðlaun fékk Gunnhildur Einarsdóttir og var hún leyst út með HP Photosmart 7260 ljósmyndaprentara. Aukaverðlaun voru jafnframt veitt fleiri þátttak- endum, svo sem bíómiðar á mynd- ina, bolir og hin sígildu Skrekks- eyru sem vinningshafarnir skarta hér að ofan. Lituðu Skrekk til sigurs Morgunblaðið/Árni Torfason Halldóra Matthíasdóttir, markaðsstjóri hjá Opnum kerfum, vinningshaf- arnir Margrét Eiríksdóttir og Gunnhildur Einarsdóttir og Christof Weh- meier, kynningarstjóri Sambíóanna, við afhendingu verðlaunanna. Verðlaun | Litasamkeppni Skrekks 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.