Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 30
OA-samtökin halda fund í dag, sunnudag, kl. 20.00 til 21.30 í Fé- lagsmiðstöðinni Miðbergi, Gerðu- bergi 1, Breiðholti. Á fundinum mun OA-félagi frá Bandaríkjunum segja frá því hvernig hún hefur náð bata frá matarfíkn, með því að vinna eftir kerfi OA-samtakanna. Allir sem vilja kynna sér OA-samtökin eru vel- komnir. OA eru samtök fólks sem á við sameiginlegt vandamál að stríða, matarfíkn. OA-samtökin, Overeaters Anonymous, eru byggð á sama grunni og AA-samtök- in og reynsla okkar er sú að þær að- ferðir, sem reynst hafa svo vel gegn áfengis- og vímuefnafíkn, reynist jafn vel við að ná tökum á matarfíkn. Nánari upplýsingar um samtökin er að finna á heimasíðunni: www.oa.is. Samtök um matarfíkn funda FRÉTTIR 30 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Jón Hólm Stefánsson, sími 896 4761. Ef þú þarft að selja eða kaupa bújörð hvar á landi sem er hafðu þá endilega samband við okkar mann, Jón Hólm bónda, sem aðstoðar þig með bros á vör. Bújarðir Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Nóatún 30 - Laus strax Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. Mjög góð 82,1 fm, 4ra herbergja íbúð á besta stað. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, tvær samliggjandi stofur, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Lítil geymsla við inngang. Sérgeymsla í kjallara með góðum glugga. Sameig- inlegt þvottahús og þurrkherbergi. Íbúðin er laus strax. Verð 12,9 millj. Laugavegur 182 • 105 Rvk • Fax 533 481 • midborg id Tækifæri á Austurlandi! Höfum í einkasölu jörð í ca. 26 km fjarlægð frá Egilsstöðum nánar tiltekið í Skriðdal. Ágætt íbúðarhús, 181,7 fm að stærð. Góð útihús eru á jörðinni. Góð- ar veiðilendur og hreindýraarður. Heimarafstöð. Samningur við Héraðsskóga liggur fyrir. Staðsetning jarðarinnar býður upp á mjög mikla möguleika þegar lokið verður að leggja góðan veg frá Reyðarfirði (linuveg). Ásett verð 25 millj. Skipti á góðri eign á höfuðborgarsvæðinu koma til greina. Nánari upplýsingar hjá Fasteigna-og skipasölu Austurlands s. 580 7905. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár REYNIGRUND - AKRANESI Nýtt á skrá. Sérlega glæsilegt og vel viðhaldið einbýlishús í grónu hverfi. Húsið er samtals 232 fm, þar af er bílskúr 38 fm. Fimm svefnherbergi, borðstofa og rúmgóð stofa með arni. Parket öllum gólfum nema baði og þvottahúsi, þar eru flísar. Sérlega falleg aðkoma og gróinn garður. Verð 29 millj. Allar nánari uppl. gefur Hákon á Gimli í síma 570 4800 eða 898 9396. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár ÁLFTAMÝRI 50 - laus fljótlega Vorum að fá í einkasölu góða 3ja herb. 73 fm íbúð á 4. hæð. Tvö svefnherbergi með skáp- um, eldhús með góðri eldri innréttingu og borðkrók, upp- gert flísalagt baðherbergi, t.f. þvottavél og stofa með suður- svölum. Íbúðin er með parketi á gólfum. Sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla er í kjallara ásamt hjóla – og vagnageymslu. Þetta er góð eign á frábærum stað, þar sem er stutt í skóla og alla almenna þjónustu. Áhv. 4,8 millj. Verð 12,5 millj. Sigríður tekur vel á móti ykkur í dag á milli kl. 14 og 17. Suðurlandsbraut 54 við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali. Til sölu í Kerengi nr. 29 í Grímsnesi mjög vandaður og fallegur bústaður á 0,9 ha eignarlóð. Húsið er byggt árið 1994 og er 60 fm að stærð auk 20 fm svefnlofts. Húsið skiptist í tvö svefnherbergi, stóra sólríka stofu, eld- húskrók og baðherbergi. Verð 8,8 millj. Til afhendingar strax. (til 34041) Stefán tekur á móti gestum á milli kl. 13:00 og 17:00 Sími 899 2362 SUMARBÚSTAÐUR GRÍMSNESI Þriðja bindi Stangaveiðihandbók- arinnar eftir Eirík St. Eiríksson kom út fyrir nokkrum dögum og er yfirskrift þessa bindis „Frá Hrútu til Jöklu“ sem þýðir í stuttu máli að greint er frá öllum veiði- ám og vötnum á svæðinu frá Hrútafjarðará til Jökulsár á Fjöll- um. Umfjöllun er um nærfellt 400 veiðiár- og vötn á umræddu svæði í þessu bindi og líkt og í fyrri bindum er auk almennra upplýs- inga gerð grein fyrir veiðimögu- leikum og sölustöðum veiðileyfa í hverju einstöku tilviki. Fyrsta bindi þessa bókaflokks fjallaði um svæðið frá Brynjudal í Hvalfirði til Brunasands í Vestur- Skaftafellsýslu, annað bindið fjallaði um Vesturland og Vest- firði. Næsta sumar verður svo hringnum lokað að sögn Eiríks með umfjöllun um vötn og ár á austanverðu landinu. Vantað … Að sögn Eiríks hafa viðtökur við fyrri bindunum tveimur verið mjög góðar og vonast hann eftir viðlíka undirtektum nú, enda sé Norðurlandið þekkt fyrir sínar frægu laxveiðiár. „Það hefur hins vegar vantað tilfinnanlega góðar upplýsingar um silungsveiðimöguleika á mörg- um vatnasvæðum norðanlands og þá á ég ekki síst við um mögu- leikana á hinum víðfeðmu heið- arlöndum á Arnarvatnsheiði og svo á Auðkúluheiði þar sem mikl- ar breytingar hafa orðið eftir að Blanda var virkjuð. Þá er ítarlega fjallað um veiðimöguleika á Skaga, svo dæmi séu nefnd, en þar er að finna mörg frábærlega góð veiðivötn,“ segir Eiríkur og bætir við að Stangaveiðihandbæk- urnar eigi ekki aðeins erindi til veiðimanna, því í bókunum sé að finna mikinn fróðleik sem nýst geti fólki á ferðum þess um landið. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Eiríkur St. Eiríksson t.v., höfundur Stangveiðihandbókarinnar, afhendir Jóhannesi Kristjánsson, bifvélavirkjameistara og nestor norðlenskra veiði- manna, fyrsta eintak nýju bókarinnar, þriðja bindis. „Athöfnin“ fór fram í verslun Pennans-Bókvals í göngugötunni á Akureyri á dögunum. Frá Hrútu til Jöklu ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? BARNAVERNDARNEFND Vest- mannaeyja hefur gert sérstaka samþykkt í tilefni fjölmiðlaumfjöll- unar um mál Barnaverndarstofu og meðferðarheimilisins á Torfastöð- um. „Vegna umfjöllunar fjölmiðla um mál Barnaverndarstofu og meðferð- arheimilisins á Torfastöðum harmar nefndin þá aðför sem gerð er að forstjóra stofunnar og starfsmönn- um hennar. Nefndin bendir jafn- framt á að málið varðar viðkvæm atriði tengd börnum sem ekki eiga erindi í opinbera umræðu. Trúverð- ugleiki frásagna þeirra barna er greindu frá meintri kynferðislegri misnotkun var þannig að málin kröfðust frekari athugana lögreglu. Sú niðurstaða ríkissaksóknaraemb- ættis að ákæra ekki í málinu er á ábyrgð þess embættis.“ Harma um- fjöllun um barnavernd- armál KARLMAÐUR frá fyrrverandi Sovétlýðveldi kom með farþegaferj- unni Norrænnu á miðvikudags- morgun og óskaði eftir pólitísku hæli hér á landi. Útlendingastofnun ákvað að hafna beiðni mannsins og fór hann aftur með Norrænu um hádegið, að sögn Helga Jenssonar sýslufulltrúa. Maðurinn var einn á ferð. Synjað um pólitískt hæli SIGRÚN Guðmundsdóttir í Reykjavík vann vikuferð fyrir fjóra á úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu sem haldið var í Portúgal fyrir skemmstu. Sigrún bauð með sér eiginmanni sínum, Eiríki Hjartarsyni, og börnum þeirra, Ingibjörgu og Guðmundi Sveini. Á myndinni afhendir Einar Páll Tómasson, markaðsstjóri Master- Card, Sigrúnu og dóttur hennar, Ingibjörgu, vinninginn í húsakynn- um Kreditkorts hf. Vann viku- ferð fyrir 4 til Portúgals

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.