Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 23
Jim Dine: Mótasmiðurinn frá 1975,
kol, pastel, hvít krít og gljálakk.
hansen þar sem ég var þá að vinna
en mun hafa hætt við, líkast til
verið gagntekinn af hinu glæsilega
úrvali höggmynda á safninu.
Trúlega hefur Dine komið á
safnið, rekist þar á ungt fólk sem á
veturna er þar jafnaðarlega að
teikna eftir myndastyttum, að-
allega með koli, í hinni frábæru
höggmyndadeild og fengið hug-
ljómun. Hvað sem öðru leið fékk
hann sérstakt leyfi til athafna eftir
lokunartíma og nýtti sér vel. Menn
taki eftir að þetta skeði á sama
tíma og víða var verið að ómerkja
sígilda rissið og ýta út af borðinu í
listaskólum, sums staðar til hags
fyrir táknfræði, semiotik, sem
krefst minni yfirlegu og þjálfunar
til viðunandi árangurs, svona líkt
og einþrykkið í grafíkinni.
Jim Dine er drjúgur meistari
þegar honum tekst best upp, eink-
um eru nákvæmnisriss hans
áhrifarík, en í þeim er línan afar
létt og lifandi, hins vegar á hann
einnig til að gera fljótriss og fyrir
kemur að skuggarnir verða þá
„loðnir og skítugir“, eins og það
var orðað í listaskólum hér fyrrum.
Hér sýnist að sjálfsögðu sitt hverj-
um, en sýningin í heild sinni mjög
áhrifarík, einkum vegna þess að
maður var búinn að sjá svo mikið
af einni hlið listamannsins á söfn-
um, aðallega baðsloppum og hjört-
um, en í óvenjulegri og hrifaríkri
útfærslu. Athyglisvert hvað lista-
maðurinn gerir mikið af afhjúpandi
og sálrænum rissum af persónu
sinni en sú sérstaka list hefur ekki
átt upp á pallborðið lengi, nema í
ljósmyndum og þá helst hug-
myndafræðilegs eðlis, annars kem-
ur listamaðurinn víða við í mynd-
efnavali. Sjálfur segir Jim Dine
meðal annars: Ég geri ekki skiss-
ur. Ég geri ekki stúdíur. Teikning
er teikning, málverk er málverk.
Það fyrirfinnast vissulega hlutir
sem ég mála ekki. Ég mála ekki
portrett. Ég held ekki að ég hafi
nokkurn tíma gert sjálfsmynd, en
ég hef margoft rissað mig upp af
mikilli nákvæmni. Það er heilmikið
að stroka út, heilmikið að færa í
sömu skorður aftur og vinnan get-
ur tekið marga mánuði. Fyrir mér
er teikning erfiði, ekki í neikvæð-
um skilningi heldur sjálfri birting-
armynd sinni og styrkleika. Teikn-
ingin gerir mér fært að rannsaka,
á stundum heppnast mér full-
komlega að sjá, en þegar ég segi
að sjá meina ég hið innra auga.
Ekki það sem tvö augu nema held-
ur minning um hlutinn þannig sem
hann leit út, umfang hans og birt-
ingarmynd eins og ég vil að hann
líti út.
Lesandinn þarf að meðtaka
þennan orðaleik rétt, til að mynda
er hægt að leggja tvennan skilning
í hugtakið portrett, annars vegar
misnákvæma kortlagningu ytra
byrðis viðfangsins hins vegar hina
sálrænu dýpt, útgeislan og áru
þess. Þegar hann segist ekki gera
sjálfsmyndir vísar hann einnig til
þess að meginveigurinn hjá sér
liggi í hinni innri lifun, innra auga
og sjálfu sálardjúpinu.
Jim Dine er mjög gott dæmi
þess að stílbrögð og fræðikenn-
ingar úreldast en myndefni ekki,
að alltaf er mögulegt að nálgast
þau frá nýjum sjónarhornum, lif-
unin, ferskleikinn og krafturinn
skipti öllu máli. Tilefni að vitna
enn og aftur í orð Gombrichs;
langi þig til að mála blóm, málaðu
blóm …
nnar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 23
Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík · Sími 569 7700 · www.nyherji.is
SAP fyrir sveitarfélög
Kröftugri framtíð með SAP
SAP kemur þínu sveitarfélagi í fremstu röð
Sparar vinnu - Markvissar stjórnendaupplýsingar
SAP fyrir sveitarfélög er samþætt lausn sem leysir helstu þarfir
sveitarfélaga til upplýsingakerfis. Gögn flæða í rauntíma á milli
lausnarhluta sem sparar vinnu og minnkar villuhættu, auk þess sem
stjórnendaupplýsingar eru ávallt uppfærðar samstundis.
Vex eftir þörfum
SAP fyrir sveitarfélög er stöðluð lausn sem hægt er að kaupa og
innleiða í einingum og getur lausnin þannig vaxið með
sveitarfélaginu og þörfum markaðarins hverju sinni.
SAP fyrir sveitarfélög inniheldur meðal annars:
• Fjárhagslausnir
• Vefviðmót fyrir starfsmenn og íbúa
• Stjórnendaupplýsingar
• Samhæft árangursmat - Balanced Scorecard
• Verkbókhald og vörustjórnun
• Launa- og mannauðslausn
Hafðu samband við ráðgjafa Nýherja sem búa yfir
mikilli reynslu og þekkingu á sviði mannauðs- og
viðskiptalausna fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Síminn er 569 7700 og netfangið er sap@nyherji.is
Langhalauppskriftin er þessi: Öng-
ull er silfurlituð þríkrækja nr.10.
Stél er svart og gult íkornaskott og
kristal flash. Broddur er silfurlitað
ávalt tinsel, búkur blátt míkrótinsel,
vöf silfurlituð ávöl tinsel, skegg úr
dökkblárri hanafjöður, vængur úr
svörtum íkorna og hliðar eru skóg-
arhanafjaðrir.
Hefðbundna útfærslan er þessi:
Öngull er svört tvíkrækja nr 10, stél
er gulur íkorni, broddur ávalt silf-
urtinsel, búkur úr bláu míkrótinsel,
skegg dökkblá hanafjöður, vængur
svartur íkorni og hliðar er skógar-
hanafjaðrir. Höfundur segir Röggu
hafa reynst mjög vel í laxi og sjóbirt-
ingi og að hann hnýti hana jöfnum
höndum eins og hér sést auk straum-
flugu- og túpuútfærslna.
Svo mörg voru þau orð og nú er
bara að hnýta leynivopnin og rót-
fiska.
Ragga