Morgunblaðið - 18.07.2004, Side 13
hvort myndbirting er heimil felst í
því hvort hún geti talist framlag til
umræðu sem varðar almenning.
Minna máli skiptir hvar myndirnar
eru teknar. Einstaklingar, jafnvel
þótt frægir séu, eiga ekki að þurfa að
sæta því að myndir séu birtar af
þeim, án þeirra samþykkis, þótt þeir
láti sjá sig á almannafæri til dæmis í
búðarferð, á baðströnd, á skíðum eða
á veitingastað. Öðru máli myndi
gegna ef viðkomandi eru í opinber-
um erindagjörðum af einhverju tagi,
til dæmis ef þeir koma fram sem
fulltrúar stofnana eða félagasam-
taka eða eru þátttakendur í frétt-
næmum viðburðum. Sömu sjónar-
mið virðast geta við um birtingu
upplýsinga almennt, þótt vissulega
séu myndir áþreifanlegri íhlutun í
einkalíf heldur en annars konar frá-
sögn.
Það hefur áhrif á mat á því hversu
alvarleg íhlutunin er hvort viðkom-
andi einstaklingur hefur orðið fórn-
arlamb fjölmiðlaeineltis eða ekki en
er þó ekki úrslitaatriði.
Sérstök sjónarmið eiga við um
stjórnmálamenn eins og fram hefur
komið í fyrri dómum á þessu sviði.
Almenningur getur átt rétt á að vita
um atriði úr einkalífi þeirra. Rétt-
arstöðunni er lýst svo í yfirlýsingu
ráðherranefndar Evrópuráðsins um
frjálsa stjórnmálaumræðu sem sam-
þykkt var 12. febrúar 2004: „Einkalíf
og fjölskyldulíf stjórnmálamanna og
opinberra starfsmanna á að njóta
verndar gagnvart fjölmiðlaumfjöllun
samkvæmt 8. grein Sáttmálans.
Samt sem áður má koma á framfæri
upplýsingum um einkalíf þeirra þeg-
ar þær varða almenning og snerta
beinlínis opinbera framgöngu
þeirra, að teknu tilliti til nauðsynjar
þess að forðast að valda óviðkomandi
óþarfa sársauka. Þegar stjórnmála-
menn og opinberir starfsmenn hafa
vakið athygli almennings á þáttum í
einkalífi sínu, eiga fjölmiðlar rétt á
að fara í saumana á þeim atriðum.
Ekki hefur reynt á réttarstöðuna
gagnvart fólki sem sækist eftir sviðs-
ljósinu án þess að teljast stjórnmála-
menn eða opinberir starfsmenn svo
sem poppstjörnum eða leikurum.
Enn er mögulegt að dómi þessum
verði áfrýjað til yfirdeildar Mann-
réttindadómstólsins. Ef hann reyn-
ist hins vegar endanlegur þurfa öll
aðildarríki Evrópuráðsins, þar með
talið Ísland, að huga að löggjöf sinni
og framkvæmd á þessu sviði. Má
geta þess að breskir dómstólar virð-
ast hafa leyft fjölmiðlum meira svig-
rúm á þessu sviði, sbr. mál fyrirsæt-
unnar Naomi Campbell, sem þurfti
að sætta sig við myndbirtingu þar
sem hún var að koma út úr meðferð-
arheimili.
Myndir úr daglega lífinu úr sögunni?
Ekki er endilega þörf á lagasetn-
ingu um þetta efni, ef sýnt er fram á
að siðareglur blaðamanna veiti ein-
staklingum fullnægjandi vernd og ef
dómstólar gæta þess að skýra laga-
ákvæði í samræmi við kröfur mann-
réttindasáttmálans og mannrétt-
indadómstólsins.
Það virðist blasa við að eftirleiðis
verði fjölmiðlar að óska leyfis ein-
staklinga áður en af þeim eru birtar
myndir nema ef þær geta talist eðli-
legur hluti af fréttnæmri frásögn. Til
dæmis er stórlega vafasamt að það
stæðist að birta myndir af börnum að
leik í sandkassa nema hugsanlega ef
fyrir lægi samþykki foreldra. Og nú
verður líklega að spyrja sóldýrkend-
ur í Nauthólsvík leyfis áður en birtar
eru af þeim myndir.
Hins vegar mætti færa rök fyrir
því að birta megi myndir af þátttak-
endum á útifundum þar sem ein-
hvers konar pólitískri afstöðu er lýst
án þess að afla samþykkis hvers og
eins. Þá þurfa ljósmyndarar og
fréttastjórar að spyrja sig hvort ein-
hver lögmætur tilgangur búi að baki
áður en birtar eru myndir af frægu
fólki sem leggur leið sína til Íslands –
og má jafnvel spyrja hvort það sé
réttlætanlegt að geta ferða þeirra yf-
irleitt þegar það kemur hingað í
einkaerindum!
gulu pressunni?
Höfundur starfar sem lögfræðingur hjá
Evrópuráðinu. Skoðanir sem birtast í
pistlinum eru alfarið á ábyrgð höf-
undar og endurspegla ekki nauðsynlega
viðhorf Evrópuráðsins. Vinsamlega
sendið ábendingar um efni til pall.t-
horhallsson@free.fr.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 13
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
53
50
0
7/
20
04
www.urvalutsyn.is
Fáðu ferðatilhö
gun, nánari upp
lýsingar
um gististaðina
og reiknaðu út
ferðakostnaðin
n á netinu!
*Bókunarafsláttur gildir í brottfarir 17., 19., 22. og 29. des.
og í brottfarir 5. jan. til og með 7. apríl 2005.
Verð er staðgreiðsluverð á mann m.v. að bókað sé á netinu.
Almennt verð 5% hærra. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu
bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann.
Vinsælustu gististaðirnir á Kanarí, ný og
endurbætt íbúðahótel sem sameina gæði og
góða staðsetningu. Bókaðu strax og tryggðu
þér gistingu á þínu hóteli!
Úrvalsfólk
Jóla- og áramótaferðirnar að seljast upp!
5.000 kr. aukaafsláttur í ferðir 5. og 12. janúar,
23. feb. og 2. mars, ef gist er á Las Camelias
eða Teneguia.
Vegna gífurlegrar spurnar eftir jólaferðum
til Kanarí höfum við bætt við 15 daga ferð
21. des. til 5. janúar 2005. Bókaðu strax!
Montemar - NÝUNG
Stórglæsilegt, algjörlega
endurnýjað og vel staðsett
íbúðahótel á Ensku ströndinni.
Las Camelias
Allar íbúðir endurnýjaðar
Allra vinsælasta Íslendingahótelið
undanfarin ár. Ennþá betra en áður.
Teneguia
Vel staðsett og stendur alltaf
fyrir sínu.
Barbacan Sol
Stórglæsilegt og frábærlega
staðsett á Ensku ströndinni.
Santa Barbara
Sívinsælt og vinalegt.
Carolina
Sló í gegn síðasta vetur.
Cay Beach Princess
Fallegu smáhýsin í Maspalomas.
Cay Beach Meloneras
Nýleg og notaleg smáhýsi
í Meloneras.
Bahia Meloneras
Stórglæsileg, nýleg smáhýsi með
2 svefnherbergjum í Meloneras.
Aukaferð um jólin
21. desember. - 5. janúar
Vikulegt morgunflug í janúar,
febrúar, mars og apríl.
17. des. - Örfá sæti laus 22. des. - Uppselt
19. des. - Uppselt 29. des. - Örfá sæti laus
21. des. - Aukaferð
þegar við getum haft gott samráð við
viðkomandi.“
Kristján segir að blaðið forðist að
birta slæmar myndir af fólki, þar sem
það er illa fyrirkallað eða drukkið, svo
dæmi séu nefnd. „Þótt fólk teljist
frægt er það ekki gangandi skotskífa.
Engu að síður finnst mér þessi dómur
ganga of langt. Ég rökstyð það meðal
annars með því að opinberar persónur
nota oft fjölmiðla sér í hag, til dæmis
til að kynna sig, nýtt leikrit eða sjón-
varpsþátt eða til að afla atkvæða. Þær
sýna landsmönnum inn í svefn-
herbergi sín einn daginn, en tala um
innrás í einkalífið þann næsta. Hvar
eru mörkin? Fjölmiðlar mega ekki láta
misnota sig sem tæki fræga fólksins,“
segir Kristján.
Hann játar því að blaðinu hafi borist
kvartanir vegna umfjöllunar um
þekkta einstaklinga, en þá sé iðulega
um að ræða fólk sem hafi opnað dyrn-
ar á slíka umfjöllun þegar því hafi
hentað. Meginregla blaðsins sé sú að
sýna tillitssemi.
aith@mbl.is