Morgunblaðið - 18.07.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.07.2004, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ L jósmyndasýningin Minningar er haldin í tilefni þess að í dag hefði Ágúst heitinn Sigurðsson forstjóri orðið sjötugur. Sýningin er til húsa á skrifstofu Sigurðar Ágústssonar ehf. í Stykk- ishólmi og verður opin almenningi á laug- ardögum, milli kl. 13.00 og 17.00, til 8. ágúst næstkomandi. Auk þess að standa að uppsetningu sýningarinnar gefur Sigurður Ágústsson ehf. út bókina Minningar með ljós- myndum þeirra feðga. Ellert Kristinsson framkvæmdastjóri skrifar formála. Þar gerir hann grein fyrir mikilvægi þess að athafnamenn á borð við þá feðga Sigurð og Ágúst leggi hönd á plóginn í fámennum byggðarlögum landsins. Þeir hafi alið allan sinn aldur í Stykkishólmi og veðjað óhik- að á að byggja þar upp öflugt atvinnulíf. Ólíkir athafnamenn Sigurður Ágústsson (1897– 1976) var dugmikill athafna- maður og einnig þingmaður Snæfellinga og Vesturlands í 19 ár samfellt. Sigurður var af gamla skólanum og vildi fara hefðbundnar leiðir í at- vinnurekstri. Útgerð, frysti- hús og verslun voru stoð- irnar í rekstri hans en einnig rak hann bakarí, stundaði loðdýraeldi, gerði út bíla og saltaði síld svo nokkuð sé nefnt. Ágúst Sigurðsson var fæddur 18. júlí 1934 og and- aðist 8. mars 1993, tæplega 59 ára gamall. Hann fór ung- ur að vinna við fyrirtæki föð- ur síns og tók þar við stjórn 1958. Honum fylgdu ferskir vindar og fór Ágúst ótroðnar slóðir, án þess að vanrækja grundvöll fyrirtækisins. Hann var óþreytandi í að leita nýrra möguleika og markaða. Ágúst breytti rótgróinni verslun Sigurðar Ágústssonar í nýmóðins kjörbúð, byggði veitingahúsið Tehús- ið. Þá var hann frumkvöðull í nýtingu hörpudisks úr Breiða- firði, sem skilað hefur ómældum verðmætum á land. Ágúst var einnig ötull í félagsstarfi og var m.a. félagsforingi skátafélagsins Væringja í Stykkishólmi um árabil. Það var einmitt á skátamóti á Úlfljótsvatni sem Ágúst kynntist Rakel Olsen sem varð eiginkona hans. Rakel er nú forstjóri Sigurðar Ágústssonar ehf. Mikilvægar heimildir Sigurður og Ágúst voru báðir áhugasamir ljósmyndarar. Myndefnið var fyrst og fremst Stykkishólmur og mannlífið þar. Myndirnar bera þess merki að þeir hafa verið góðir ljós- myndarar. Augað næmt og gott vald á tækninni. Ágúst var mjög afkastamikill ljósmyndari og framkallaði lengi vel mynd- ir sínar sjálfur. Oft var hann beðinn um að taka myndir við ýmis tækifæri og um skeið tók ljósmyndun stóran hluta af tíma hans. Víst er að myndasafnið sem liggur eftir þá feðga er mikill fjársjóður og góð heimild um lífið í Stykkishólmi á þeirra tíð. Ljósmynd/Ágúst Sigurðsson Frá höfninni í Stykkishólmi. Myndin er tekin í kringum 1957–8. Ljósmynd/Sigurður Ágústsson Ingibjörg Helgadóttir, kona Sigurðar Ágústssonar, er á hestbaki, til vinstri á myndinni. Ljósmynd/Ágúst Sigurðsson Skátar róa á Sauravatni í Helgafellssveit. Ágúst Sigurðsson var lengi félagsforingi í skátafélaginu Væringjum í Stykkishólmi. Ljósmynd/Ágúst Sigurðsson Bræðurnir Jón Ólafsson og Þorkell Ólafsson á Felix SH. Ljósmynd/Sigurður Ágústsson Bóndi með nautgrip við sláturhúsið sem Sigurður Ágústsson rak í Stykkishólmi. Ljósmynd/Ágúst Sigurðsson Hjörtur kokkur brýnir kutann í frystihúsi Sigurðar Ágústs- sonar í Stykkishólmi. Myndin er tekin í kringum 1957. Minningar úr Hólminum Athafnamennirnir, feðgarnir Sigurður Ágústsson og Ágúst Sigurðsson, í Stykkishólmi voru af- kastamiklir ljósmyndarar. Valdar myndir úr safni þeirra eru nú til sýnis í Stykkishólmi auk þess að prýða nýja ljósmyndabók, Minningar. gudni@mbl.is Sigurður Ágústsson Ágúst Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.