Morgunblaðið - 18.07.2004, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
A
lltaf eitthvað að
gerast úti í hinum
stóra heimi og
reglulegar upp-
stokkanir gilda
að eiga sér stað.
Á jafnt við um
hinn almenna markað og listir, um
náttúrulögmál að ræða sem ill-
kleift er að koma böndum á, gerist
það er um tímabundið fyrirbæri að
ræða, dæmt til að ganga yfir líkt
og veðrabrigðin. Hvað myndlist
snertir er seinni helmingur síðustu
aldar glöggt dæmi hér um, breyt-
ingarnar í listheiminum með ólík-
indum, hamast var við að ryðja
eldri gildum út af borðinu, fletja út
myndlist-
arhugtakið,
helst leysa
upp í agnir
sínar. Hóp-
eflið og út-
jöfnunin
aftur komið í sviðsljósið, lifði
blómaskeið sitt fyrir þrjátíu árum
með kommúnum, vímuefnum, opnu
og óheftu kynlífi. Menn gripu nýj-
ar hugmyndir á lofti, sem eftir fá
ár reyndust svo alls ekki nýjar í
grunni sínum, láta þó ekki segjast
og eru aftur á fullu. Hið nýjasta er
að endaskipti hefur verið haft á
listgeira, sem fram til þessa
greindist helst fyrir langt og hægt
þroskaferli, þannig að iðkendur
voru yfirleitt komnir um og yfir
miðjan aldur þá helst mátti vænta
úrskerandi árangurs af þeim, sum-
ir í hámarki á gamals aldri. Lista-
mönnum vart sprottin grön á vett-
vanginum fyrr en þeir voru komnir
langt á fertugsaldurinn, eins og
æskulýðstvíæringar fyrri ára voru
til vitnis um, gefur auga leið að há-
marksaldurinn miðaðist þá hvar-
vetna við 36 og í sumum tilvikum
37 ár. Nú þykja myndlistarmenn
við þessi aldursmörk tilheyra eldri
kynslóð og sjálft þroskaferlið úrelt,
jafnframt er máttur markaðs-
setningarinnar slíkur að ævagömul
viðtekin gildi aldanna eru burt-
kústuð, si sona.
En einstaklingseðlið og þjóðern-
istilfinninguna er ekki hægt að
úrelda, um náttúrulögmál að ræða
og náttúran á stöðugri hreyfingu,
aðall hennar er fjölbreytnin, hið
smáa jafn lítið smátt og hið stóra
er stórt, eins og skáldið orðaði það.
Ekki mögulegt að steypa allt í eina
heild, þjóðabrot jafn mikilvæg og
stórþjóðir, í báðum tilvikum er
metnaður og stórhugur undir-
staðan. Þjóðernistilfinningin rudd-
ist inn í stofur manna um allan
heim í nýafstaðinni Evrópukeppni í
knattspyrnu, og í lokin gáfu minni
og fátækari þjóðir hinum stóru og
ríku langt nef, skildu þær eftir úti
í kuldanum. Í alla kanta afar lær-
dómsríkt og hví skyldi ekki sama
gilda um listir, en þar er sýnu
verra að eiga við markaðsöflin og
óheft fjármagnið, einkum vegna
þess að áhuginn er dreifðari meðal
almennings, þó engu minni þegar
allt kemur til alls líkt og aðsókn á
listasöfn og stórviðburði ytra eru
til vitnis.
Borðleggjandi að samtíma-listamenn sem eru meðbáða fæturna á jörðinnispyrja ekki um það heit-
asta á markaðnum hverju sinni,
eru öllu frekar niðursokknir í
rannsóknir sínar á möguleikum
þess sem þeir lögðu út af og kemst
þar fátt annað að. Frábært dæmi
er ameríski málarinn, graf-
íklistamaðurinn, myndhöggvarinn,
skáldið og leikmyndahönnuðurinn
Jim Dine, f. í Cincinnati 1935.
Hann telst til poppkynslóðarinnar
og vel þekktur fyrir uppákomur/
gjörninga, blandaða tækni og hluti
(objects) sem hann útfærði að
hluta í samvinnu við Claes Olden-
burg. En Dine hefur farið sínar
eigin leiðir og skapað sér sérstöðu,
er myndrænni, malerískari, og
ekki síður þekktur fyrir riss sín.
Er óhræddur við að grípa til sí-
gildra meðala og þræða hlutlæg
myndefni, jafnt hversdagsleg verk-
færi sem klassískar myndastyttur,
naglbíturinn hér jafn mikilvægt
myndefni og Miklugljúfur.
Mál er að aðalsýningarsalir eldri
byggingar Þjóðlistasafnsins í
Washington eru undirlagðir fjöl-
þættum rissum listamannsins, hef-
ur staðið yfir frá 21. mars og lýkur
1. ágúst. Drjúgur hluti sýning-
arinnar eru kolteikningar sem
hann útfærði í sölum Glyptoteksins
á H.C. Andersens Boulevard í
Kaupmannahöfn1987–88. Vissi af
honum þar vegna þess að hann
hugðist gera steinþrykk á verk-
stæði Hostrup Pedersen og Jo-
Eitt af rissum Jim Dines frá Glyptotekinu í Kaupmannahöfn, 1987–88, kol-
teikning og blönduð tækni.
Jim Dine: Sjálfsmynd 1989, vatnslitir, grafít og pastel.
SJÓNSPEGILL
Bragi
Ásgeirsson
bragi@internet.is
Endurreisn teikningari n
Kópurinn
2. sæti, Latex systur,
Latex p, Latex pl og Hulk
Latex-systur eru eftir Birgi Örn
Arnarson á Selfossi. Uppskrift fylgdi
ekki, en segir sig kannski sjálf ef
grannt er skoðað. Hins vegar er haft
eftir höfundi Latex-systra, „Þær
Latex-systur hafa reynst vel í urriða,
bleikju og sjóbirtingi síðustu ár. Lat-
ex p átti um 80% af fluguveiddum
fiski í Köldukvísl árið 2003. Hulk er
hins vegar sterkur í bleikju. Púpurn-
ar hafa gefið fiska svo vitað sé í
Brúará, Köldukvísl, Apavatni, Þing-
vallavatni og Soginu. Virknin telur
umfram skraut.“
3. sæti Pink
Silungapúpa eftir Hjörleif Stein-
arsson. Uppskriftin er þessi: 3 mm
kúla. Öngull er Tiemco eða Kamazan
grubber 10 til 16. Stél er nokkrar
fanir úr kóngablárri hanafjöður.
Búkur er flatt silfur-tinsel. Þekja er
nokkrar fanir úr síðufjöður af stokk-
önd (teal) og thorax eða frambúkur
er magenta bleikt míkró chenille.
4. sæti, Kópurinn
Höfundur Kópsins er Einar Sig-
urðsson í Reykjavík. Uppskriftin er
svohljóðandi: Öngull er grubber 8 til
14, þráður appelsínugulur, afturhluti
búks appelsínugult latex, frambúkur
páfuglsfjaðrir. Kúla og appelsínugul-
ur sjálflýsandi haus. Þessi púpa hef-
ur virkað mjög vel í Þingvallavatni
og víðar.
5. sæti, Ragga
Hér er loks komið annað en sil-
ungapúpa, því Ragga er laxafluga og
sýnd hér í tveimur útfærslum, venju-
legri og „long tail“. Höfundur Röggu
er Júlíus Guðmundsson í Reykjavík.
einfaldlega nýtt leynivopn,“ sagði
Bjarni.
Keppt var í einum flokki og að
þessu sinni skiluðu flestir inn sil-
ungapúpum, sem endurspeglar ef til
vill hversu öflugt agn þær eru. Við
rennum hér yfir fimm efstu flugurn-
ar.
1. sæti, Þorkell
Þorkell er eftir Þorkel D. Eiríks-
son í Reykjavík. Uppskriftin er
þessi: Öngull er púpuöngull (grub),
Bjarni Brynjólfsson, stjórnar-maður hjá Landssambandistangaveiðifélaga, segir aðþað hafi komið skemmtilega
á óvart hversu fúsir veiðimenn væru
að sýna leynivopnin. Í fyrra hefði
verið haldin keppni af þessu tagi í
fyrsta skipti og að þessu sinni væri
þátttakan enn meiri. „Og það
skemmtilega er, að þessir veiðimenn
gangast inná það að leynivopnin
þeirra séu fjöldaframleidd og seld í
Veiðihorninu. Mottóið er að finna
stærðir 10 til 14. Búkur er koparvír
eða girni. Vængstúfur er antron eða
ull, klippt stutt. Frambúkur er 3-4
fanir úr páfuglsstéli. Haus er svart-
ur.
Vírinn eða girnið er þrætt gegnum
auga öngulsins og er einn hnútur
hnýttur aftast á legg öngulsins.
Næsti hnútur er nær auga öngulsins
og snýr rangsælis á við fyrri hnútinn.
Þetta er endurtekið fram legginn,
frambúk flugunnar, (thorax). Fara
skal varlega með fínan koparvír því
hann slitnar auðveldlega. Girni er
skemmtilegt hnýtingarefni þar sem
búkurinn verður gegnsær líkt og um
náttúrulega púpu sé að ræða.
Að sögn Þorkels er veiðireynsla af
þessari flugu mjög góð, púpurnar
veiði bæði urriða og bleikju, rétt
undir yfirborði (með girni) og einnig
djúpt (með koparvír). Púpan virkar
bæði í stöðuvatni og straumvatni.
Leynivopnin afhjúpuð
Latex-systurÞorkell Pink
Það er ekki sjálfgefið að stangaveiðimenn opni fluguboxin
sín fyrir almenning og afhjúpi leynivopnin sín. Lands-
samband stangaveiðifélaga og verslunin Veiðihornið hafa
þó annað árið í röð skorað á veiðimenn að keppa um bestu
leynivopnin og þátttaka hefur verið góð.