Morgunblaðið - 18.07.2004, Síða 25

Morgunblaðið - 18.07.2004, Síða 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 25 www.baendaferdir.is s: 570 2790 K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A K Ö -H Ö N N U N /P M C Tekist hefur að gera Lappland að vinsælasta ferðamannasvæði Finnlands. Hvað er það sem þrjár miljónir manna koma til að sjá og upplifa yfir vetrarmánuðina? Við bjóðum ykkur að kynnast þessari sérstæðu þjóð að eigin raun. Ferðin er kjörin fyrir áhugafólk um ferðaþjónustu og alla þá sem vilja heimsækja þetta skemmtilega land. Fararstjóri er Sigurbjörg Árnadóttir – sem bjó í Finnlandi í 15 ár og hefur m.a. unnið við ferðaþjónustu í Lapplandi. 24. sept. - 1. okt. 2004 staður ævintýra við heimskautsbaug Lappland Kynntu þér tilboð okkar á bílaleigubílum Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Við erum í 170 löndum 5000 stöðum T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Milano, Alicante ... AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is Minnum á Visa afsláttinn Í AFGANISTAN er nú staddur hópur íslenskra vopnaðra manna á vegum utanríkisráðu- neytisins. Yfirlýst verkefni hópsins er að hafa umsjón með flug- vellinum í Kabúl, höf- uðborg landsins. Hóp- urinn er hluti að fjölþjóða hernámi Afg- anistans, undir stjórn NATÓ og Bandaríkj- anna. Ein grundvallarregla í þjóðarétti er sjálfs- ákvörðunarréttur þjóða. Hernám Afgan- istans er samkvæmt því brot á sjálfsákvörðunarrétti Afgana. Afganar hafa ekki beðið um árás á land sitt og hernám þess. Því má ætla að Afganar hafi rétt til þess að beita valdi gegn hernámsaðilum og leppum þeirra. Láti einhver þeirra Íslendinga sem starfa í Afganistan á vegum her- námsliðsins lífið í árás afganskra skæruliða, væri það að vísu mikill harmleikur, en ekki væri við skæruliðana að sakast. Þeir hafa óvéfengjanlegan rétt til þess að frelsa land sitt undan erlendu her- námi. Sumir gætu spurt: Eru ekki Afg- anar sælir að hafa verið frelsaðir undan oki Talíbana? Eru þeir ekki sáttir við hernámið? Eru það ekki aðeins fáeinir öfgahópar sem ógna hernámsliðinu? Þeir sem fylgst hafa með fréttum frá Afganistan vita að erlendar „friðargæslusveitir“ halda sig inn- an víggirtra svæða vegna ótta um að verða fyrir árásum afganskra skæruliða. Svokallaður forseti Afg- anistan, Hamid Karzai, fyrrverandi ráðgjafi bandaríska auðhringsins UNOCAL, getur ekki ferðast um eigið land nema undir öflugri vernd erlendra hermanna, jafnvel í höf- uðborginni sjálfri. Væri hann rétt- mætur leiðtogi þjóðar sinnar, þyrfti hann ekki á vernd erlendra her- manna að halda þegar hann ferðast meðal eigin þegna. Í viðtali við Friðrik Guð- mundsson, sem birtist í Fréttablaðinu föstu- daginn 2. júlí sl. lýsir hann dvöl sinni í Ka- búl við að gera heim- ildarmynd um „ís- lensku friðargæsluna“. Friðrik segir m.a. frá því þegar hann fór með íslensku „strák- unum“ í fyrstu ferð þeirra út fyrir flugvallarsvæðið: „Þegar komið var inn í borgina blasti mannlífið við, niðurnídd húsin og eymd hvert sem litið var. Allt í einu var stór trukk- ur stopp fyrir framan bílinn. Það þyngdist enn andrúmsloftið þegar annar trukkur, risastór, var kom- inn fyrir aftan okkur og við vorum innikróaðir. Það sagði enginn neitt en þögnin sagði allt því að yfirleitt var létt yfir strákunum og margt masað. Allt í einu dró um átta ára strákur sig út úr hópnum og stað- næmdist til hliðar við bílinn. Hann lyfti hendinni og bjó til byssu úr henni og beindi ’hlaupinu’, vísi- fingrinum, að Guðjóni og hleypti af. Þessi mynd festist í huga manna … Þessi strákur hafði einhvern veg- inn sýnt hvaða hug margir bera til friðargæsluliðanna og þeirrar hættu sem getur beðið þeirra.“ Af þessari lýsingu má draga þá ályktun að almennir borgarar séu ósáttir við hernámið, að skæruliðar njóti samúðar og verulegs stuðn- ings meðal þjóðarinnar og að stjórn Afganistans sé lítið annað en leppstjórn erlendra hernámsaðila. Þessi andstaða virðist talsvert meiri en sú sem mætti sovéska hernum í ríkjum Austur-Evrópu áður fyrr. Andstaða við hernám Vesturlanda er keimlík í Afganist- an, Írak og Palestínu. Í Írak og Afganistan er það m.a. aðgangur að olíulindum og landfræðilegri að- stöðu sem knýr hernámsstefnuna áfram. Í Palestínu er það hug- myndafræði síonista um sérréttindi gyðinga, sem virðist gegnsýra ut- anríkisstefnu NATÓ-ríkja, einkum Bandaríkjanna. Þess ber að geta að hvergi, nema í Ísrael, hafa stjórn- völd leitað umboðs almennings við hernámsstefnu sína. Efnislegur stuðningur Íslands við hernám (Afganistan) og stuðningur stjórn- valda við árásarstríð (Afganistan, Írak, Serbía) og við stríðsglæpi (Serbía), var ekki einu sinni borinn undir Alþingi, Þetta segir talsvert um virðingu ráðamanna við lýð- ræðið. Og nú hefur forsætisráðherra Ís- lands borið Bandaríkjaforseta þau skilaboð að íslenska þjóðin styðji árásarstríð Bandaríkjanna á Írak. Gísli Helgason fjallar um íslenska friðargæslu ’Eru ekki Afganar sæl-ir að hafa verið frelsaðir undan oki Talíbana?‘ Gísli Helgason Höfundur rekur hljóðbókagerð. Er utanríkisráðherra að leika sér að lífi íslenskra friðargæsluliða? EYJAN fagra í norðurhöfum, þar sem heimsskautsbaugur liggur um miðja eyjuna, skartaði sínu feg- ursta þegar ég kom þangað í liðinni viku, sól og logn, mannlífið á iði og allir eitthvað að sýsla. Mæður með börnin sín úti að ganga, og sjómenn að dytta að bátunum sínum. Ferðamenn koma og fara. Þennan um- rædda dag komu sjö flugvélar til Gríms- eyjar með ferða- menn, ég gaf mig á tal við nokkra af þeim, sumir voru að spyrja til vegar, eins ótrúlegt og það er, og aðrir vildu fræðast um líf og tilveru fólks- ins. Þar sem ég er ekki heimamaður, gat ég að sjálf- sögðu ekki leyst úr spurningum allra. Eitt áttu allir sameiginlegt, sem ég talaði við, það var „hávað- inn“ sem barst frá húsi ofan við bryggjuna, þar inni voru vélar að hamast við að búa til rafmagn fyrir íbúana og fyrirtækin. Það var svo skrítið að um leið og ég kom á staðinn í þessu yndislega veðri, þá fór þetta í taugarnar á mér, ég hafði verið uppi í Kárahnjúkum áður en raf- strengurinn var lagður upp á virkjunarsvæðið, þar var allt raf- magn framleitt með dísilvélum og enginn var hávaðinn frá þeim vél- um. Þegar betur var að gáð og ég fór að kynna mér hvernig á þessu stæði, þá eru hljóðkútar á vél- unum eða réttara sagt hljóð- kútaleysið á vélunum skýringin. Þarna blása þær afgasinu út og hávaðanum með. Kannski er þetta haft svona svo rafveitustjórinn Sigurður Bjarnason, verði var við ef vélarnar hætta að ganga, en sú skýring er sennilega ekki rétt, ef eitthvað fer úrskeiðis í vélbún- aði, þá eru send boð í GSM-símann hjá Sig- urði. Því í Grímsey er GSM-síminn virkur. Mig langar að leggja það á Rarik að gera úrbætur í raf- stöðinni, þannig að há- vaðamengun spilli ekki rólegu og yf- irveguðu lífi þeirra sem búa í Grímsey, og pirri ekki gesti þeirra og fuglalífið. Þess má geta að meðalaldur íbúanna er um 30 ár það er engin ástæða að gera þá sem eru að vaxa úr grasi þannig að þeir geti ekki sofnað nema við vélagný, það er til vansa þegar maður situr á pallinum hjá yndislegum konunum í Gullsól að þurfa að segja „ha“ þegar talað er við mann. „Hávaði er líka mengun.“ Hvernig væri að leggja streng til Grímseyjar? Er ekki hægt að reikna það út, að sæstrengur er þjóðhagslega hagkvæmur, þegar til lengri tíma er litið, olíuverð er jú alltaf að hækka, sennilega er ekki selt rafmagn á stóriðjutaxta í Grímsey. Ég vona að Rarik taki þetta fyr- ir á fundi hjá sér og sendi nið- urstöðuna til hreppsnefndar Grímseyjar. Með bestu kveðju til allra fram í Grímsey. Grímsey og Rarik Bernhard Jóhannesson fjallar um raforkuframleiðslu Bernhard Jóhannesson ’Ég vona að Ra-rik taki þetta fyr- ir á fundi hjá sér og sendi nið- urstöðuna til hreppsnefndar Grímseyjar.‘ Höfundur er eftirlitsmaður. SKYNSEMIN mælir með því að sem flestir hjóli erinda sinna. Hjól- reiðar eru hagkvæmar fyrir budduna, góðar fyrir umhverfið og leiða af sér bætt heilsu- far (og stinnari rass). Hjólreiðar eru því já- kvæður valkostur í efnahags-, umhverfis- og samfélagslegu tilliti. Víðast hvar í heiminum má finna markvissar áætlanir hjá yfirvöld- um um að hvetja sem flesta til að hjóla. Sömu fyrirheit má finna hjá Reykjavíkurborg sem hefur ásamt sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að bæta samgöngur fyrir hjólreiðar. Með markvissri uppbygg- ingu hefur orðið til stígakerfi fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur sem tengir saman græn svæði borg- arinnar. Þó hefur ekki enn verið ráð- ist í það að leggja sérstakar hjóla- götur sem gera hjólreiðar að raunhæfum samgöngukosti. Skipu- lagsyfirvöld Kaupmannahafnar hafa í 50 ár byggt upp á markvissan hátt fyrirmyndarkerfi fyrir hjóla- samgöngur. En kerfið hefði orðið til einskis ef frændur okkar hefðu ekki tekið virkan þátt í því að nota það og stigið á sveif með fyr- irætlan yfirvalda. Því ættu Reykvíkingar að geta horft til hjólreiða sem alvöru valkosts í samgöngum og lagt þar með sitt af mörkum við gera borgina okkar um- hverfisvæna heilsuborg norðursins. Eftir nær áratugar uppbyggingu grænna stíga er orðið tímabært að skoða lagningu hjóla- gatna sem setja þarfir hjólreiðamanna í fyrsta sæti. Því hefur sam- göngunefnd Reykjavíkur ákveðið að skipa starfshóp sem fjalla á um hjól- reiðar, skoða hvernig megi auka þátt hjólreiða í samgöngum borgarbúa og setja fram tillögur um það sem betur má fara með tilliti til öryggis, styttri ferðatíma og þæginda. Ennfremur er hópnum falið að móta stefnu Reykja- víkurborgar í þessum málaflokki. Nú þegar hefur hugur borgarbúa til hjólreiða verið kannaður og er ljóst að mikill vilji er til að auka þátt þeirra í samgöngum en ekki jafnljóst hvað þarf að gerast til að svo geti orðið. Notkun reiðhjóla er í engu samræmi við mikla hjólaeign og fögur fyrirheit um að hjóla í vinnuna, skólann eða í ræktina. Því er mikilvægt að vita hvernig hægt er að auðvelda fólki val- ið milli bílsins og reiðhjólsins dag hvern! Eru allar vísbendingar vel þegnar og mega þær berast með tölvupósti til starfsmanns borg- arverkfræðings, Magnúsar Haralds- sonar, á magnus.haraldsson@rvk.is. Hjólað í Reykjavík Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar um hjólreiðar Óskar Dýrmundur Ólafsson ’Nú þegar hefur hugurborgarbúa til hjólreiða verið kannaður og er ljóst að mikill vilji er til að auka þátt þeirra í samgöngum en ekki jafnljóst hvað þarf að gerast til að svo geti orðið.‘ Höfundur er forstöðumaður og for- maður starfshóps um hjólreiðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.