Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 17. júlí 1994: „Neytenda- samtökin komu á fót starfs- hópi í lok síðasta árs til þess að fjalla um fjölmiðla og aug- lýsingar og hefur þessi starfs- hópur nýlega sent frá sér greinargerð um nauðsyn þess, að skörp skil séu á milli aug- lýsinga og annars efnis fjöl- miðla. Telur starfshópur Neytendasamtakanna, að í þessu sé fólgin mikilvæg neyt- endavernd og að notendur fjölmiðla eigi ekki að þurfa að vera í vafa um, hvort að þeim beinist boðskapur auglýsenda eða efni frá fjölmiðlum. Þetta er bæði ánægjulegt og mikilvægt framtak hjá Neytendasamtökunum. Fjöl- miðlar eru orðnir ríkur þáttur í daglegu lífi fólks og eiga mikinn þátt í að skapa and- rúmið í þjóðfélaginu. Það er löngu tímabært að fjölmiðlum og starfsfólki þeirra verði veitt aðhald. Slíks er þörf á fleiri sviðum en þeim, sem fjallað er um í greinargerð starfshóps Neytendasamtak- anna um fjölmiðla og auglýs- ingar.“ . . . . . . . . . . 15. júlí 1984: „Þessa dagana er stödd hér á landi bandarísk sendinefnd, skipuð nokkrum embættismönnum til þess að ræða við íslenzka aðila um siglingar með flutninga á veg- um varnarliðsins til og frá Bandaríkjunum. Það er út af fyrir sig ástæða til að fagna því, að bandarísk stjórnvöld sýni þó þann vilja til þess að finna lausn á málinu að senda fulltrúa sína hingað. Á hitt er þó að líta, að nú þegar hafa miklar umræður farið fram um málið milli íslenzkra og bandarískra stjórnvalda og efnisleg rök málsins ættu að vera ljós öllum aðilum. Með þetta í huga hljótum við Ís- lendingar að vona að koma hinna bandarísku sendimanna sé til þess að flýta fyrir af- greiðslu málsins, en ekki svið- setning til þess að telja okkur trú um, að kappsamlega sé unnið að málinu.“ . . . . . . . . . . 14. júlí 1974: „Þetta er tíma- mótadagur í sögu lands og þjóðar. Í dag verður hring- vegurinn opnaður. Eitt mesta afrek, sem unnið hefur verið í samgöngumálum hér á landi. Tæpast gerum við okkur þess fulla grein í dag, hversu mikl- ar breytingar munu á næstu árum og áratugum fylgja í kjölfar þess, að 36 km veg- arspotti yfir Skeiðarársand hefur verið opnaður. Hug- sjónir hafa rætzt. Landið hef- ur stækkað og breytzt. Bætt- ar samgöngur munu gerbylta stöðu Austurlands í okkar litla samfélagi. Sveitir, sem verið hafa einangraðar um aldir, eru skyndilega komnar í þjóð- leið. “ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. H vern andskotann eruð þér að hugsa?! er setning, sem allnokkrir af þeim 4.560 stúdentum, sem Guðni Guðmundsson útskrifaði frá Menntaskólanum í Reykjavík í rektorstíð sinni, fengu að heyra á kontór rektors ef þeir stóðu sig ekki sem skyldi – höfðu til dæmis fengið slaka einkunn á jólaprófum eða mættu illa. Á bak við heldur hranalega fram- setningu bjó einlæg umhyggja fyrir velferð þess unga fólks, sem Guðni taldi sig bera nokkra ábyrgð á. Langflestir í þessum stóra hópi munu líka hugsa með virðingu, hlýju og væntumþykju til rektors síns, sem andaðist 8. júlí síðastliðinn og verður jarðsunginn á mánudag. Sjálfur lýsti Guðni sér þannig í samtalsbókinni Guðni rektor: Enga mélkisuhegðun, takk!, sem Ómar Valdimarsson skráði: „Mér finnst óhugsandi að vinna nokkurt verk án þess að stefna að því að ná eins góðum árangri og ég mögulega get. Þess vegna hef ég kannski stundum verið talinn af sum- um svolítið kröfuharður – meinyrtur, illyrtur og hið versta fól – en það er ekki endilega vegna þess að ég sé svona djöfullega af guði gerður, heldur vegna hins að ég þoli ekki að horfa upp á það að menn sem ég gruna um að hafa gáfur noti þær ekki og sinni ekki því sem þeir eiga að gera. Þegar ég verð var við slíka menn skamma ég þá. Þá sem ég reikna með að geti ekki betur en þeir gera skamma ég yfirleitt ekki. Hinir, sem af einhverri undarlegri ástæðu leggja sig ekki fram, hafa fengið það óþvegið.“ Guðni rektor hafði þannig á 44 ára kennsluferli, þar af 25 ár sem rektor, mikil persónuleg áhrif á þúsundir MR-inga. En hann hafði ekki síður mik- ilvæg áhrif á þróun menntamála á Íslandi. Í viðtali við Morgunblaðið árið 1995, þegar hann lét af starfi rektors fyrir aldurs sakir, orðaði Guðni það svo að einna ánægðastur væri hann með að hafa átt sinn þátt í að viðhalda bekkjakerfinu og stand- ast atlöguna að Menntaskólanum. Sú atlaga hófst um það leyti sem Guðni varð rektor og stóð árum eða áratugum saman; jafnvel má halda því fram að hún standi enn. Hún er fólgin annars vegar í þeirri áráttu að vilja steypa alla framhaldsskóla í sama mót áfanga- og punktakerfis, hins vegar í viðleitni til að draga úr kröfum í skólanum. Guðni rektor barðist manna einarðlegast gegn meðalmennskunni og einsleitninni. Í áðurnefndri viðtalsbók sagði hann m.a. um þá baráttu sína: „… aðalrökin voru kannski þau að sú stefna að skylda öll börn, sem æsktu framhaldsnáms, til að sækja sams konar skóla þar sem þau ættu ekkert val um skólagerð, bekkjakerfi eða áfangakerfi, væri röng og skerti í raun mannréttindi. En þar að auki taldi ég, og tel enn, að það sé hollt hverjum nemanda að venjast því að taka yfirlitspróf úr verulegu námsefni innan ákveðinna tímamarka. Það er þetta sem nemendur þurfa að gera þegar þeir koma í háskóla og þjálfunin því nauðsynleg öllum þeim sem í háskóla fara. Það er verulegur munur á því að taka stúdentspróf og að verða stúd- ent þegar punktafjölda er náð.“ Barátta Guðna bar árangur og honum tókst að standa vörð um Menntaskólann í Reykjavík, þessa elztu menntastofnun landsins, og hinar gömlu hefð- ir, festu og aga sem hafa einkennt skólastarfið þar. Eftirmenn hans í embætti hafa haldið sömu stefnu. Og íslenzk börn eiga enn val um mismunandi skóla- gerðir þegar þau velja sér framhaldsskóla. Guðni Guðmundsson gagnrýndi oft að grunnskól- inn væri orðinn eins konar dagvist, í stað þess að þar væri reynt að kenna börnum eins mikið og hægt væri, á meðan þau væru sem móttækilegust. „Mér sýnist liggja ljóst fyrir að í íslenzkum skólum, sér- staklega grunnskólum, beinist kraftarnir fyrst og fremst að því að sjá lökustu nemendunum og miðl- ungsnemendunum fyrir þeirri fræðslu sem þeir eru móttækilegir fyrir, eða öllu heldur fræðslu sem kennararnir telja þeim nægjanlega. Hinum betur gefnu er varla sinnt, hvað þá að þeir fái hvatningu til átaka eða reynt sé að laða fram í þeim þann sjálf- sagða metnað að læra meira í dag en í gær. Í mis- skilinni góðmennsku kerfisins gleymast þeir hrein- lega, hljóta jafnvel svipaða meðferð og óhreinu börnin hennar Evu. Það virðist nefnilega vera að verða álíka mikið feimnismál á Íslandi að krakki sé betur gefinn en hann Jón í næsta húsi og að eiga ríf- lega til hnífs og skeiðar,“ sagði Guðni í viðtalsbók Ómars Valdimarssonar. „Afleiðingin af öllu þessu er sú, að í grunnskóla er ekki annað kennt en sjálfsagð- ir hlutir. Greinar, sem eitthvað reyna á nemendur, og ekki sízt kennara, eru hreinlega látnar lönd og leið á þeirri forsendu að þær séu einskis nýtar af því að allir geti ekki lært þær … Ef það er ekki mark- mið skóla að koma öllum til mesta mögulegs þroska, þá sýnist mér dekrið við letina og getuleysið komið á það stig að rétt væri að leggja skóla niður.“ Skoðanir og baráttumál Guðna Guðmundssonar eiga fullt erindi í umræður um menntamál á Ís- landi eftir hans dag. Margir gamlir nemendur Menntaskólans í Reykjavík munu geta gert þessi sjónarmið að sínum, vegna þess að veganestið af kontór rektors hefur reynzt þeim vel; að vinna ekki nokkurt verk án þess að stefna að því að ná eins góðum árangri og mögulegt er. Dreifbýlislausn í þéttbýli Framkvæmdir við nýja Hringbraut standa nú sem hæst og eins og fram hefur komið í fréttum eru þær þegar farnar að hamla nokkuð flæði umferðar um svæðið. Framkvæmd- irnar eru mjög umfangsmiklar og eins og umræða síðustu daga ber með sér virðist sem borgarbúar séu fyrst nú að vakna almennilega til vitundar um kosti þeirra og galla. Í grein sem birtist í miðopnu í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, kom fram að bæði þingmenn og fagfólk hafa efasemdir um þörf á sex akreina hraðbraut á þessum stutta spotta á milli Rauðarárstígs og Sæmundargötu, enda einungis möguleiki á fjórum akreinum báðum megin við framkvæmdirnar. Þar að auki sjá margir ofsjón- um yfir því landsvæði sem tapast í kringum braut- ina þar sem helgunarsvæði framkvæmdarinnar er mjög umfangsmikið, ekki síst ef tekið er tillit til þess að þarna er um miðborgarsvæði að ræða en ekki hraðbrautatengingu í úthverfi eða úti á landi. Sú lausn sem nú er verið að vinna að við gatna- mót Snorrabrautar/Bústaðavegar og Miklubraut- ar/Hringbrautar og fjallað er ítarlega um í Morg- unblaðinu í dag, laugardag, er að margra mati ekki í samræmi við það sem gengur og gerist í miðborgum annarra landa. Slaufur og sex akreina hraðbraut á borð við þá sem þarna er fyrirhuguð eru að þeirra sögn dreifbýlislausn sem ekki er boðleg í þéttbýli, hvað þá í miðborg. Til að mynda var haft eftir Hrund Skarphéðinsdóttur í blaðinu á fimmtudag að „svona stór umferðarmannvirki, mislæg gatnamót, breiðar hraðbrautir og hljóð- manir [eigi] ekki heima inni í borgarumhverfi“. Í Reykjavíkurbréfi 14. febrúar sl. var farið ofan í saumana á þeim hugmyndum sem þá höfðu kom- ið fram um að setja Hringbrautina í stokk, og var þá vitnað til umfjöllunar sem var í blaðinu þá sömu helgi undir fyrirsögninni „Ný Hringbraut undir/á yfirborði jarðar?“ Þar lýsti Hrund sig sammála Erni Sigurðssyni, talsmanni Höfuð- borgarsamtakanna, um að eðlilegast væri að setja brautina í stokk á umræddum kafla. Jafnframt tók hún þó fram að ef brautin yrði að vera á yf- irborðinu þá væri eðlilegast að tengja saman byggðina beggja vegna við með breiðgötu, og blandaðri byggð þétt upp að henni. Þetta sjón- armið endurtekur hún í blaðinu sl. fimmtudag en þar kemur fram að samkvæmt hennar mati færi betur á því að byggja á framkvæmdasvæðinu hefðbundna borgarbreiðgötu er félli betur inn í miðborgarlandslagið sem óhjákvæmilega mun stækka til suðurs er fram líða stundir. Hrund hefur óneitanlega mikið til síns máls og bendir til að mynda á að breiðgata, þar sem bygg- ingar með margvíslegri starfsemi skermi umferð- arhávaða af, þjóni öllum þeim sem eru á ferðinni, ekki síst gangandi vegfarendum, því „þar er að- gengið ekki aðeins miðað út frá þeim sem keyrir“, öfugt við hraðbraut á borð við þá sem nú er verið að byggja og skermuð er af með hljóðmönum. Þess má geta að haft var eftir Eiði Haraldssyni, framkvæmdastjóra Háfells, í blaðinu í gær að hljóðmanirnar við nýja Hringbraut gætu orðið um þriggja metra háar. Þær munu því óhjá- kvæmilega verða áberandi og spilla sjónrænni tengingu beggja vegna brautarinnar. Hraðbrautir hafa að mati Hrundar jafnframt þann ókost að í kringum þær myndast breitt strik af óbyggðu svæði – væntanlega að hluta til vegna hljóðmananna. Hún segir „erfitt að ímynda sér íbúðabyggð nálægt þessum götum [á borð við fyr- irhugaða Hringbraut]. Þær eru þannig einungis til að fara fram hjá og hvetja fólk til að gefa í. […] Breiðgatan hefur hins vega sólarhringsstarfssemi og er ætluð öllum vegfarendum. Í umræðunni kemur oft upp að þéttu umferðarmettuðu stað- irnir séu eitthvert vandamál. Umferðin fer t.d. mun hægar á götum eins og Lækjargötu og Laugavegi en Sæbrautinni og Vesturlandsvegi. En umferðin fer einungis hægt ef hún er mæld í kílómetrum á klukkustund. Hins vegar má spyrja sig hversu miklum byggingarmassa og þjónustu er farið framhjá á ákveðnum tíma. Þar hefur breiðgatan vinninginn, þar ertu í raun kominn í þjónustuna sem þú ert að sækja mun fyrr“. Gamla Hring- brautin hverfur ekki Samkvæmt umhverf- ismati því sem unnið var vegna fram- kvæmdanna við nýju Hringbrautina er megintilgangur þeirra „að sameina Landspítalalóðina og færa megin- strauma umferðar frá Landspítalanum – háskóla- HÁSKÓLI Á VESTFJÖRÐUM Þegar Sverrir Hermannsson,þáverandi menntamálaráð-herra, beitti sér fyrir stofnun háskóla á Akureyri, þótti mörgum það fráleit hugmynd. Engar líkur væru á því, að raunveruleg háskóla- starfsemi gæti fest þar rætur og ís- lenzkt samfélag gæti ekki staðið und- ir fleiri háskólum en Háskóla Íslands. Allt reyndist þetta rangt. Háskól- inn á Akureyri hefur vaxið og dafnað og orðið að virtri menntastofnun og það sem meira er: skólinn hefur átt meiri þátt í því en flest, sem gert hef- ur verið á Eyjafjarðarsvæðinu að snúa þróun byggðar þar við, snúa vörn í sókn. Flestir ef ekki allir, sem hafa kynnt sér byggðaþróun fyrir norðan, hafa komizt að þeirri niður- stöðu, að starfsemi Háskólans á Ak- ureyri sé ein meginforsenda fyrir já- kvæðri þróun byggðar þar. Reynslan af Háskólanum á Akur- eyri varð til þess að minni efasemdir voru uppi, þegar Viðskiptaháskólinn á Bifröst tók til starfa og nú blasir við, að starfsemi hans og Landbún- aðarháskólans á Hvanneyri eru ein meginforsenda fyrir því, að byggð er aftur að blómgast í Borgarfirði. Í fyrradag tóku nokkur ungmenni sig til og vígðu „Háskóla Vestfjarða“ við hátíðlega athöfn á Ísafirði. Þetta var að sjálfsögðu táknræn athöfn til þess að minna á vilja vestfirzkra ung- menna til að stunda háskólanám í sinni heimabyggð en nú stunda á annað hundrað manns á Vestfjörðum fjarnám á háskólastigi. Þótt athöfnin hafi verið táknræn sýnir fengin reynsla að hugmyndin er raunsæ. Það er síður en svo frá- leitt að stofna Háskóla Vestfjarða. Og rétt, sem Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, sagði af þessu tilefni: „Þegar ég var strákur hér fyrir vestan þóttu það stór tíðindi, þegar ungt fólk fór í menntaskóla. Nú er hér stór og öflugur mennta- skóli í mikilli sókn. Það er mikilvægt að byggja upp háskólanám, sérstak- lega með nýjum möguleikum í upp- lýsingatækni. Ég er viss um að ef einhver hefði sagt, þegar ég var strákur, að hér ætti að stofna fram- sækinn menntaskóla hefði það þótt framandi hugsun.“ Háskóli Vestfjarða getur átt jafn mikinn þátt í að snúa við byggðaþró- uninni þar eins og Háskólinn á Ak- ureyri hefur gert á Eyjafjarðarsvæð- inu. Við athöfnina á Ísafirði voru flestir þingmenn Norðvesturkjör- dæmis staddir. Þeir eiga nú að taka höndum saman, taka unga fólkið á orðinu og vinna að stofnun Háskóla Vestfjarða. Það er mesta og bezta framlag til byggðaþróunar á Vest- fjörðum, sem hugsast getur. Fyrir nokkru var vikið að því í for- ystugrein hér í Morgunblaðinu í ljósi hinna miklu framkvæmda á Austur- landi, sem eru augljóslega að snúa byggðaþróuninni þar við, að tíma- bært væri að huga að eflingu byggð- ar á Vestfjörðum og Norðvestur- landi, sem segja má, að séu landshlutar, sem eftir sitja að ein- hverju leyti. Þótt margt komi vafalaust til greina á Vestfjörðum er ekki auðvelt að sjá sjálfsagðari og skjótvirkari leið en þá að byggja upp háskóla fyr- ir vestan. Í ljósi þeirrar þróunar, sem orðið hefur í uppbyggingu mennta- stofnana í landinu má segja, að æsku- fólk á Vestfjörðum eigi nokkra kröfu til þess að þar verði byggður upp há- skóli. Það þarf að vanda vel undir- búning og leggja vinnu í að kanna hver áherzluatriði slíks háskóla ættu að vera. Nú þegar er vísir að ákveð- inni vísinda- og rannsóknastarfsemi á Ísafirði, sem snýr að sjávarútveg- inum þar og gæti vafalaust orðið þáttur í háskólastarfsemi þar vestra. Nú verður horft til þingmanna þessa landshluta um að taka við því merki, sem vestfirzkt æskufólk hefur hafið á loft og bera það fram til sig- urs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.