Morgunblaðið - 18.07.2004, Qupperneq 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 33
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGVELDUR (Inga) INGVARSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn
20. júlí kl. 13.00
Einar Ingvar Egilsson, Halla Svanþórsdóttir,
Þorgerður Egilsdóttir, Einar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma, systir og mágkona,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Aðalgötu 1,
Keflavík,
áður Túngötu 15,
Sandgerði,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðju-
daginn 20. júlí kl. 14.00.
Jarðsett verður í Hvalsneskirkjugarði.
Finnur Þorvaldsson,
Guðmundur Finnsson, Sigríður Aradóttir,
Þorvaldur Finnsson,
Ævar Már Finnsson, Guðrún Einarsdóttir,
Guðbjörg Sigríður Finnsdóttir, Kjartan Haukur Kjartansson
og barnabörn,
Ólafur Guðmundsson, Guðlaug Bárðardóttir,
Jón Guðmundsson.
Okkar kæri,
TORFI SVEINSSON
frá Hóli í Svartárdal,
síðast til heimilis
í Aðalgötu 12, Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks þriðju-
daginn 13. júlí.
Jarðsett verður frá Sauðárkrókskirkju föstu-
daginn 23. júlí kl. 14.00.
Ágústa Ingólfsdóttir,
María Víglundsdóttir,
Gísli Víglundsson,
Vilborg Guðrún Víglundsdóttir.
Ástkær faðir okkar,
KARL JÓHANNESSON
kjötiðnaðarmaður,
Æsufelli 4,
áður til heimilis í Ásgarði 17,
lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum mánu-
daginn 12. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helgi Steinar Karlsson, Bára Lárusdóttir,
Jóna Karlsdóttir,
Sigrún Karlsdóttir, Jón Bóasson,
Karl Jóhannes Karlsson, Kristín Þórisdóttir,
Sigurjón Már Karlsson, Marit Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HARALDUR AXEL EINARSSON
húsasmíðameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ
fimmtudaginn 15. júlí síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Ebba Kristinsdóttir,
Kristján Haraldsson, Halldóra S. Magnúsdóttir,
Eysteinn Haraldsson, Finnborg L. Jónsdóttir,
Sigurbjörn K. Haraldsson, Ingibjörg Sigurbergsdóttir,
Einar Haraldsson, Jóhanna K. Guðbjartsdóttir,
Haraldur A. Haraldsson, Sigrún Á. Gunnarsdóttir,
Hrafnhildur Haraldsdóttir, Snorri Olsen,
Margrét Á. Haraldsdóttir, Hlynur Rúnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ég horfi í ljóssins loga
sem lýsir í hugskot mitt
og sé á björtum loga
brosandi andlit þitt.
(Höf. ók.)
Ég ligg í grasinu og horfi upp í
himininn, sólin skín framan í mig,
ég hlusta á lækjarniðinn og hugsa
um liðinn tíma. Ég verð döpur, tár-
in renna niður kinnarnar og ég fyll-
ist söknuði. Ég horfi upp í tré, þar
situr lítill fugl og syngur og fylgist
með. Ég tísti á hann, og allt í einu,
eftir nokkra stund, flýgur hann til
mín og lendir á maganum á mér.
Ég sé að hann er með eitthvað í
gogginum, litli fuglinm sleppir því
og flýgur burt. Ég tek það upp, það
er lítið bréf, ég opna það og þar
stendur: „Varðveittu minningarnar
ég verð alltaf hjá ykkur, Atli“.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Guð geymi þig.
Berglind Elva og Kristófer
Máni.
Þeir segja þig látinn, þú lifir samt
og í ljósinu færð þú að dafna
því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá ljúfu hjarta berst lítil rós
því lífið þú þurftir að kveðja
í sorg og í gleði ég senda mun ljós
sem elskan þig mun gleðja.
Elsku sonur ég sakna þín
nú englar hafa yfir þér sýn
á drottins vegum elskan gengur
og alltaf verður mömmudrengur.
(Höf. ókunnur.)
Kveðja
Mamma og systkinin.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
(Sigurður Kristófer Pétursson.)
Minning þín, vinur, er mótuð í
sál svo megi hún rótgróin standa.
Hulda Pálsdóttir.
Á kveðjustundu, vekur hugurinn
án afláts upp góðar minningar um
þig, kæri ömmudrengur. Verður
seint fullsaddur. Af nógu að taka
og þær sannarlega ylja og verma.
Veita hugsvölun á erfiðum stund-
um þegar horfst er í augu við orð-
inn hlut. Fögur jurt þessarar jarð-
ar hefur lagt niður blöð sín og fallið
til foldar á miðju sumri.
Á dýrðlegasta tíma ársins þegar
litskrúð lífsins leikur við fjöll og
dali, er sem dregið fyrir sólu.
Söknuður og sár viðskilnaður
myrkvar vit og vægðarlaust kveður
dyra.
ATLI BENEDIKT
HILMARSSON
✝ Atli BenediktHilmarsson
fæddist 24. júní 1978.
Hann lést 5. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Anna Sig-
rún Benediktsdóttir,
f. 30. mars 1958 og
Hilmar Stefán Karls-
son, f. 18. júlí 1957, d.
12. ágúst 1987.
Systkini Atla eru
Abba Elísabeth, Ída
Margrét, Daði
Dodou, og Sylvíanna.
Sonur Atla og
Berglindar Elvu Jó-
hannsdóttur er Kristófer Máni, f.
16. janúar 2001.
Atli var jarðsunginn frá Sval-
barðskirkju í Þistilfirði 10. júlí.
Þú varst fyrsta
ömmubarnið. Og í níu
ár hafði þig einan og
um árabil gekk þér í
móðurstað. Í Hvammi
undir þú hag þínum
vel. Varst yndi mitt og
sólargeisli lífsins.
Fullhuga í æsku og
fullorðinn í hugsun.
Hæfileikarík og
heillandi persóna. Í
spilum og skák oft
vinningur vís, en verst
að tapa. Viðkvæm sál,
sem vildir leggja þig
fram um að gera þitt
besta og öllum vel. Ekki alltaf ljóst
það lag sem til þurfti.
Vor þinnar ungu ævi leið og
sumraði. Í fjarlægu landi flaug
hugurinn oft yfir hafið í Hvamm og
til þeirra, sem bundust þér traust-
ustu böndum. Já, báru birtu þinnar
tilveru í hjörtum.
En stundin leið hratt og í huga
þínum syrti að og húmaði. Harðir
vindar blésu og ljóst að hretin
stríðu þola öll blóm ekki. Því er
minningasjóður lífs þíns saðning og
sól á harmanna degi. Ég trúi því að
þegar faðmur umvafði í æsku áttir
þú frelsi og frið. Trúi því að hlýr
náðarfaðmur frelsarans megni það
sem þér var ekki auðið.
Við hlið afa þíns vitja ég þín. Og
jafnskjótt og vetraði í hjarta mínu,
ástvina og vina, – þá vorar aftur.
Það segir vonin og bænar beðið að
brostin strengur, – bættur verði.
Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga,
en sér í lagi þau, sem tárin lauga,
og sýndu miskunn öllu því, sem andar,
en einkum því, sem böl og voði grandar.
(Matthías Jochumson.)
Guð blessi þig, ömmudrengurinn
minn, og hugljúfa minningu þína.
Kveðja
Amma.
Fá orð geta lýst tilfinningum
mínum, sorg og söknuði þegar ég
nú horfi á bak eina barnabarninu
mínu, Atla Benedikt Hilmarssyni.
Á hugann leita ótal spurningar en
engin svör blasa við. Fallegar
minningar um góðan og viðkvæm-
an dreng geymi ég hins vegar að
eilífu í hjarta mínu og treysti því að
þær muni á endanum milda sökn-
uðinn.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Megi góður Guð blessa drenginn
minn og veita honum eilífan frið.
Þórdís amma.
Ástkæri frændi og vinur.
Þú hefur verið elskaður alveg frá
byrjun, það er ekki til sá dagur
sem ekki er hugsað til þín, þú ert
bjartasta stjarnan mín.
Í andartaki bernskunnar
bastu mér blóm
leiftrandi ljós
þar varst þú
auga mitt þáði snertingu
örlátra handa þinna
í vorsólinni
þar varst þú
fákur spretti úr spori
í ærslafengnu fjöri
dag og nótt
þar varst þú
í langri ferð
horfi ég til himins
sorg og söknuður
þar varst þú
(Hólmfríður Þorgrímsdóttir.)
Saknaðarkveðja
Sylvía frænka og synir.
Atli Benedikt Hilmarsson
Eitt andartak og þú ert farinn
inn í eilífðina í óvissuferð.
Sál þín var orðin þó nokkuð mar-
in
þú gafst upp á því að berjast og
lagðir frá þér sverð.
Nú veistu svarið sem margir þrá
að vita
þó það hafi kostað þig tár og
svita.
Vitjaðu mín í draumi
kíktu á mig í laumi.
Mig langar svo að hlæja með þér
Hafa þig lengur hérna hjá mér.
Hvíl þú í friði, vinur minn,
fljúgðu burt á vængjum þínum.
Opnist nú fyrir þér himinninn
Guð blási í þig anda sinn.
Guð geymi þig, Atli minn,
þín vinkona
Ingunn Mýrdal.
Dyrnar að þessu lífi hafa lokast –.
Mín von er sú að nýjar dyr
hafi lokist upp fyrir þér.
Kæri Atli, hvílík örvænting. Því-
lík vanlíðan, sem þú hlýtur að hafa
barist við.
Mig langar að segja þér að ég
skil þig. Ég hef von um að þér líði
vel þar sem þú ert núna og ég óska
þess að þér gefist ný og endurbætt
tækifæri í einhvers konar betri til-
veru. Ég veit ég get ekki náð sam-
bandi núna, en mig langar til að
koma þessum orðum á blað til að
heiðra minningu þína. Hjálpin kom
of seint, kæra sál. Megi þér líða
sem best á nýjum stað. Ég bið Guð
þig að geyma.
Þetta líf, þessi tilvera,
þvílík barátta getur verið.
Þú fæddist í heiminn,
svo fallegur engill.
Þú hófst þína göngu,
sem reyndist svo torveld.
Mótvindur mikill
honum aldrei linnti.
Þú yfirgafst heiminn,
með lærdóm mikinn.
Þú fallegi engill,
Guð blessi þig.
Andrea Ólafs.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Hafnarkirkju, miðviku-
daginn 21. júlí kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir að
láta dvalar- og hjúkrunarheimilið Skjólgarð
njóta þess.
Ingólfur Ásgrímsson, Siggerður Aðalsteinsdóttir,
Halldór Ásgrímsson, Sigurjóna Sigurðardóttir,
Anna Guðný Ásgrímsdóttir, Þráinn Ársælsson,
Elín Ásgrímsdóttir, Björgvin Valdimarsson,
Katrín Ásgrímsdóttir, Gísli Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.