Morgunblaðið - 18.07.2004, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 18.07.2004, Qupperneq 35
heiminum með rúmlega 100 þús. félaga í yfir 100 löndum. Ingibjörg kynntist þessum fé- lagsskap á ferðum sínum erlendis með eiginmanni sínum er hann var þar í erindum Rótarýhreyfingar- innar. Hún starfaði alla tíð af mik- illi samviskusemi að málefnum hreyfingarinnar og sat alla fundi meðan heilsan leyfði. Fjölskyldu hennar eru sendar innilegar samúðarkveðjur. F.h. Inner Wheel Reykjavík, Ingibjörg J. Gísladóttir. Kveðja frá Zontaklúbbi Reykjavíkur Ingibjörg Guðmundsdóttir gerð- ist félagi í Zontaklúbbi Reykjavík- ur árið 1966 en það ár varð klúbb- urinn 25 ára. Klúbburinn var stofnaður 16. nóvember 1941 á fæðingardegi sr. Jóns Sveinssonar, Nonna, en minningu hans hefur Zontaklúbbur Akureyrar haldið í heiðri. Það var mikill fengur fyrir klúbbinn að fá Ingibjörgu sem fé- laga. Ingibjörg var drengur góður. Hún lagði öllum góðum málum lið og reyndist styrkur vinur og gegn félagi. Hún var hógvær kona og fremur hlédræg, en alltaf mátti treysta á liðsinni hennar og höfð- ingsskap. Þeir voru ófáir hátíða- fundir og jólafagnaðir, sem klúbb- urinn hélt á Hótel Holti og alltaf var Ingibjörg þar húsfreyjan, hót- elstjórinn, sem sá um undirbúning og stjórnaði með ákveðinni mildi. Hún sýndi og mikinn rausnarskap er klúbburinn safnaði fé til styrkt- ar heyrnarskertum, en það hefur verið eitt af aðalverkefnum klúbbsins frá fyrstu tíð. Eitt af markmiðum Zontahreyf- ingarinnar er að styrkja stöðu kvenna um heim allan með tilliti til lagasetningar, stjórnmála, efna- hags og menntunar. Þetta voru áhugamál Ingibjargar. Hún barð- ist alla tíð fyrir sjálfstæði kvenna, aukinni menntun þeirra og betri lífsskilyrðum. Sjálf hafði hún hlot- ið góða menntum, sem hún mat mikils og er yfir lauk átti hún merkilegt ævistarf að baki. Undanfarin ár hefur kerling Elli kveðið dyra hjá Ingibjörgu og hún ekki átt þess kost að sækja fundi í klúbbnum. En Zontakona var hún sem fyrr og setti metnað sinn í að styrkja klúbb sinn og verkefni hans til hinstu stundar. Það trygg- lyndi ber að þakka að leiðarlokum. Zontaklúbbur Reykjavíkur kveð- ur félaga sinn Ingibjörgu Guð- mundsdóttur með þakklæti og virðingu og óskar henni heilla – á nýjum slóðum. Aðstandendum Ingibjargar senda Zontasystur hlýjar kveðjur. Ingibjörg R. Magnúsdóttir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 35 ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, SNORRI RÖGNVALDSSON, Kríuhólum 2, Reykjavík, sem lést föstudaginn 9. júlí, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. júlí kl. 10.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda, Guðni Þ. Snorrason, Inga Dröfn Jónsdóttir, Guðný H. Jakobsdóttir, Guðjón Jóhannesson. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI GUÐMUNDSSON fyrrverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík, Kleppsvegi 142, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánu- daginn 19. júlí kl. 13.30. Guðmundur Helgi Guðnason, Lilja I. Jónatansdóttir, Guðrún Guðnadóttir, Jóhann S. Hauksson, Ólafur Bjarni Guðnason, Anna G. Sigurðardóttir, Hildur Nikólína Guðnadóttir, Friðrik Jóhannsson, Anna Sigríður Guðnadóttir, Gylfi Dýrmundsson, Sveinn Guðni Guðnason, Erna Jensen, Sigurður Sverrir Guðnason, Sigurborg Þ. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR MAGNÚSSON fyrrverandi kennari og sveitarstjóri á Egilsstöðum, sem lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum þriðju- daginn 13. júlí sl., verður jarðsunginn frá Egils- staðakirkju þriðjudaginn 20. júlí nk. kl. 14.00. Aðaldís Pálsdóttir, Ólöf Magna Guðmundsdóttir, Bjarni G. Björgvinsson, Anna Heiður Guðmundsdóttir, Reynir Sigurðsson, Guðmundur Gylfi Guðmundsson, Anna María Ögmundsdóttir, Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir, Gissur Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, REYNHEIÐUR A. RUNÓLFSDÓTTIR, lést sunnudaginn 11. júlí 2004. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigurósk H. Svanhólm, Magnús Jón Pétursson, Snorri Halldórsson, Sigurgeir Halldórsson, Sigurdór Halldórsson, Kristín Ásgeirsdóttir, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Guðmundur Arnarsson, Erla Björk Sigmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar og bróðir, DAVÍÐ ÖRN ÞORSTEINSSON, Fosshóli, Vesturárdal, V-Húnavatnssýslu, sem lést af slysförum sunnudaginn 11. júlí, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 20. júlí kl. 13.30. Ásta Sveinsdóttir, Þorsteinn Baldur Helgason, Jóhannes Gunnar Þorsteinsson, Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir. Okkur systkinin langar hér með nokkr- um orðum að minnast þess ágæta heiðurs- manns Hjálmars Finnssonar. Við höf- um þekkt Hjálmar frá okkar fyrstu tíð og frá fyrstu kynnum skipaði hann fastan sess í hjörtum okkar, þann sess er ömmur og afar ein eiga. Hjálmar var alþekkt barnagæla og fengum við systkinin að njóta þess í ríkum mæli. Ávallt var hann til staðar fyrir okkur og hefir því alla tíð verið tengdur okkur órjúfanlegum „hjarta- böndum“. Fyrstu minningar okkar um Hjálmar tengjast hesthúsunum í Gufunesi. Þar voru þeir félagar, Hjálmar og afi, með hesta. Við verð- um bæði Hjálmari og afa ávallt þakk- lát fyrir allar stundirnar í hesthúsun- um. Það að fá að kynnast „sveitalífinu“ í Gufunesinu er og verð- ur ómetanlegt. Sumrin í heyskapnum og girðingarvinnunni, veturnir við fóðrun hrossana, útreiðartúrarnir og öll ævintýrin í Gufunesinu. Öll þau handtök, verklagni og viðhorf til vinnu er höfð voru fyrir okkur hafa síðar í lífinu komið okkur að góðum notum. Reynsla öldunganna er skutu okkur oftar en ekki ref fyrir rass, því óreynt ungviðið hefur oft óreyndar hugmyndir um framkvæmd vinnunn- ar. Hljóma þá orðin hennar Dorisar heitinnar oft í hugum okkar: „There HJÁLMAR FINNSSON ✝ Hjálmar Finns-son, fyrrv. for- stjóri Áburðarverk- smiðjunnar, fæddist á Hvilft í Önundar- firði 15. janúar 1915. Hann lést á Líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 10. júlí síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Foss- vogskirkju 15. júlí. are two ways of doing things, the wrong way and then Hjálmar’s way.“ Það reyndust oft orð að sönnu. Er við rifjum upp minningarnar úr Gufu- nesinu, minnumst við þess einnig að aldrei var nein kvöð að hjálpa til í hesthúsinu, því þeim fé- lögum, Hjálmari og afa, tókst ávallt að gera verkefnin spennandi, ábyrgðarfull og skemmtileg. Ekki spillti að öll vinnuhlé ein- kenndust af ýmiss konar góðgæti. Bar þar hæst allur lakkrísinn og gos- ið, í ótæmandi magni. Já, það var passað upp á að ávallt væri nóg til fyr- ir unga „vinnufólkið“. Við bræður gleymum seint niður- rifi fyrsta mótorsins. Hjálmar og afi fengu gamlan mótor er rífa átti í vara- hluti. Ákveðið var að leyfa okkur að takast á við mótorinn, okkur fengin verkfæri í hendur og sleppt lausum. Í lok dags sátum við drulluskítugir, skælbrosandi í glampandi sólskini með mótorinn í öreindum, öldungun- um til mikillar skemmtunar. Við systur verðum Hjálmari ávallt þakklátar fyrir hans hlut í að teyma okkur fyrstu sporin í hestamennsk- unni. Kenna okkur réttu handbrögðin jafnhliða fræðslu um ýmiss konar sér- afbrigði, eins og forláta bandabeisli gerð úr baggaböndum. Nú hefur „höfðinginn“ kvatt okkur. Með því er heimurinn einum „orginal- inum“ fátækari. Það er sárt að kveðja í hinsta sinn. Elsku Hjálmar, takk fyrir allt.Við munum aldrei gleyma þér. Við vottum Edward og Kathrine og öðrum ástvinum dýpstu samúð okkar. Dísanna, Jón Finnur, Vignir Örn og Íris Dögg. Elskuleg eiginkona mín AÐALHEIÐUR JÓNA SIGURGRÍMSDÓTTIR Miðstræti 3, Vestmannaeyjum andaðist að heimili sínu föstudaginn 16. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda. Halldór Haraldsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.