Morgunblaðið - 18.07.2004, Page 40

Morgunblaðið - 18.07.2004, Page 40
Grettir Grettir Smáfólk ÉG ER MEÐ GÓÐA HUGMYND GRETTIR... KOMUM Í SKEMMTILEGAN LEIK! HANN HEITIR FINNUM MEINDÝRIN! ER ÞETTA EINN AF ÞESSUM KALDHÆÐNU LEIKJUM ÞÍNUM ÞÚ ERT FEITUR HVAÐA RUGL VIÐ FEMINSTAR VILJUM BREYTAST ÆTLARÐU SAMT AÐ BROSA OG SEGJA HÆ? JÁ JÁ! EF EINHVER ER AÐ FARA OG ÞAÐ ER RIGNING, ÆTLARÐU SAMT AÐ FAÐMA HANN OG SEGJA BLESS JÁ JÁ! EN ÞÚ VILT SAMT EKKI SPILA HAFNABOLTA? NEI, ÞAÐ ER AUÐMÝKJANDI HMM! Risaeðlugrín AAAAAAAAAA! © DARGAUD DÍNÓ! EKKI FARA ÞANGAÐ ... ÞAÐ ER ELDFJALL AÐ FARA AÐ GJÓSA ... ERTU VISS? JÁ, JÁ ... ÞAÐ FER ÖRUGGLEGA AÐ GJÓSA Á HVERRI STUNDU VARAÐU ÞIG ... ÉG ÆTLA AÐ KÍKJA NEI, EKKI GERA ÞAÐ! ERTU BRJÁLAÐUR? KOMDU!! ÓÓÓÓ! ... ER ÞETTA ELDFJALLIÐ ÞITT? ÞAÐ ER KÓLNAÐ FYRIR AÐ MINNSTA KOSTI MÖRGUM MILJÓNUM ÁRA BJÁNINN ÞINN!! HVAÐ! SJÁÐU, ÞETTA ER STEINGERÐUR REYKUR! KANNSKI EKKI VITLAUS EN EKKI SÉRLEGA EFTIRTEKTAR- SAMUR ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ ÉG SÁ REYK UPP ÚR ÞVÍ, ÉG ER EKKI SVO VITLAUS ... Í SKJÓL! Dagbók Í dag er sunnudagur 18. júlí, 200. dagur ársins 2004 Skjár einn ætlar aðsýna frá enska boltanum í vetur en Víkverji vonar heitt og innilega að hin frá- bæra dagskrá stöðv- arinnar muni hafa vinninginn í barátt- unni við boltann og að fótboltaleikirnir verði sýndir á annarri rás stöðvarinnar. Víkverji telur að áhorfendur Skjás eins séu upp til hópa ánægðir með að engar íþróttir eru sýndar á Skjánum. x x x Auglýsing Umferðarstofu, þarsem ökumenn eru hvattir til að hægja á sér, eru að mati Víkverja alveg magnaðar og listilega vel út- færðar. Víkverji fær gæsahúð í hvert skipti sem hann sér auglýs- inguna og hefur tekið boðskap hennar til sín. Víkverji veit að aug- lýsingin hefur höfðað til ungs fólks því á spjallsíðum eru margir ung- lingar að velta fyrir sér hver syngi lagið sem leikið er í auglýsingunni. Það upplýsist hér með að það er Ragnheiður Gröndal sem þar syng- ur Vísur Vatnsenda-Rósu. Þá eru unglingarnir einnig að velta fyrir sér hvort myndirnar af fólkinu séu raun- verulegar, þ.e. hvort þetta sé í raun látið fólk. Svar við þeirri spurningu er í raun óþarft, boðskapurinn er það sem máli skiptir og þarna hef- ur Umferðarstofu tekist vel upp. x x x Hið dularfullamannshvarf sem kennt er við Stórholt hefur eins og við mátti búast orðið til þess að ýmsar furðulegar kjaftasög- ur hafa komist á kreik. Víkverji heyrði eina alveg magnaða hjá vin- konu sinni í vikunni. Sú var á þá leið að margir nýbúar og útlendingar hyrfu sporlaust á Íslandi og væru jafnvel myrtir en það væri alltaf þaggað niður! Víkverji var fljótur að stoppa vinkonuna af og spyrja hvað- an upplýsingarnar kæmu en þessi saga hafði þá í það minnsta farið milli þriggja aðila og uppruninn óljós. Það er mjög varasamt að bera svona sögur á milli en Víkverji hefði nú haldið að enginn myndi trúa svona vitleysu en þar hafði hann rangt fyrir sér. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Leiklist | Þessa dagana standa Draumasmiðjan og Borgarleikhúsið fyrir leiklistarnámskeiði fyrir börn og unglinga. Endar námskeiðið á að foreldrum er boðið að koma og sjá aftraksturinn. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit inn á samkomu af því tagi sl. föstudag er óhætt að segja að handagangur hafi verið í öskjunni. Næsta námskeið verður í næstu viku og er fyrir börn á aldrinum 11–13 ára. Morgunblaðið/Árni Torfason Leikið af lífi og sál MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir og styrkir. Allt sé hjá yður í kærleika gjört. Náðin Drottins Jesú sé með yð- ur. (1.Kor. 16, 13–14.23 ).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.