Morgunblaðið - 18.07.2004, Side 42

Morgunblaðið - 18.07.2004, Side 42
DAGBÓK 42 SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ  6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 klunni, 8 hlunn- indum, 9 ljóskera, 10 rölt, 11 harmi, 13 nytjalönd, 15 fjöturs, 18 grenjar, 21 álít, 22 týna, 23 falla, 24 ör- lagagyðja. Lóðrétt | 2 gerast oft, 3 víðri, 4 sjóða, 5 urmull, 6 ótta, 7 óþokki, 12 op, 14 ílát, 15 blýkúlur, 16 reik, 17 deila, 18 gömul, 19 passar, 20 kyrrir. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 belgs, 4 kinda, 7 tossi, 8 ósköp, 9 gær, 11 rösk, 13 ónar, 14 aflát, 15 stál, 17 tala, 20 úði, 22 tekin, 23 læðan, 24 narra, 25 nárar. Lóðrétt | 1 bitur, 2 losts, 3 seig, 4 klór, 5 nakin, 6 Alpar, 10 æxlið, 12 kal, 13 ótt,15 sætin, 16 álkur, 18 arður, 19 Agnar, 20 únsa, 21 ilin. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki ganga of langt í skemmtanalífinu í dag. Það er hætt við að dómgreind þín sé í veikara lagi. Farðu sérlega varlega í fjármálunum og við barnagæslu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ættir kannski að endurskoða afstöðu þína til málefna sem tengjast heimilinu og fjölskyldunni. Farðu varlega í að treysta fyrstu viðbrögðum þínum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er ekki allt sem sýnist í dag. Ein- hver mun hugsanlega reyna að blekkja þig eða þá að þú reynir að blekkja aðra. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Farðu vel yfir allt sem þú gerir í fjár- málunum í dag og hugsaðu þig tvisvar um áður en þú ræðst í einhvers konar útgjöld. Það eru mestar líkur á að þú hafir ekki nógu góða yfirsýn yfir hlut- ina. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er hætt við að samskipti þín við aðra gangi ekki sem skyldi í dag. Reyndu að ganga úr skugga um að fólk komi hreint fram við þig. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það hentar þér best að vinna ein/n í dag því aðrir munu bara tefja þig og jafnvel eyðileggja fyrir þér. Reyndu bara að láta sem minnst fyrir þér fara. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Einhver gæti reynt að telja þig ofan af einhverju og þar sem þú vilt gera öllum til hæfis í dag er hætt við að þú hunsir þína innri rödd. Reyndu að staldra við og hlusta á sjálfa/n þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Vertu viss um að þú vitir hvað þú ert að gera áður en þú grípur til aðgerða. Þú ert mjög metnaðarfull/ur þessa dag- ana en á sama tíma er hætt við að draugar úr fortíð þinni skjóti upp koll- inum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gættu þess að halda þig við sannleik- ann í dag. Löngun þín til að hafa betur í rökræðum getur leitt til þess að þú freistist til að hagræða sannleikanum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þetta er ekki rétti dagurinn til að skipta hlutum á milli fólks. Það liggur einhver ruglingur í loftinu og því ætt- irðu að bíða með það í einn til tvo daga. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samskipti þín við maka þinn og nán- ustu vini ganga ekki sem best í dag. Það er mikil hætta á misskilningi, reiði og vantrausti. Reyndu að halda aftur af þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ef þú færð það á tilfinninguna að það sé eitthvað skrýtið á seyði í vinnunni þá er það sennilega rétt hjá þér. Þér er óhætt að treysta innsæi þínu þessa dagana. Stjörnuspá Frances Drake Krabbi Afmælisbörn dagsins: Eru óvenju hugrökk og láta einskis ófreistað til að uppfylla drauma sína. Vinnuharka þeirra kemur þó stundum niður á einkalífinu. Uppskerutími ætti að hefjast í lífi þeirra árið 2005. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Staðurogstund idag@mbl.is Árnaðheilla dagbók@mbl.is Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund á forsíðu mbl.is. Meira á mbl.is Börn Brúðubíllinn | verður á morgun kl. 14 við Hamravík. Félagsstarf Ásgarður | Glæsibæ. Farþegar í 5 daga ferð 21.-25. júlí, Laugarfell, Flateyjardalur, Askja, fundur með fararstjóra í Ásgarði á morgun, mánudag 19. júlí kl. 17. Bólstaðarhlíð 43 | Þingvallaferð þriðju- daginn 27. júlí. Keyrt í kringum vatnið og farið kaffihlaðborð á Valhöll. Lagt af stað kl. 13. 30. Skráning og greiðsla ekki síðar en kl. 10, 26. júlí. Fréttir Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2–4 í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum mánudaga kl. 13–17. Úthlutun á vörum þriðjudaga kl. 14–17. Netfang dalros@isl- andia.is. Kirkjustarf Hallgrímskirkja | Sumarkvöld við orgelið kl. 20. Háteigskirkja | Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Grafarvogskirkja | Bænahópur kl. 20. Tek- ið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17. Þorlákskirkja | TTT-starf kl. 19.30. Myndlist Klink & Bank | Lokahóf sýningarinnar SÝND & HLJÓÐ klukkan 16. Á þessari sýn- ingu má sjá verk unnin með hinum ýmsu miðlum eftir fjölda listamanna. Eden | Davíð Art Sigurðsson sýnir olíu- málverk til 25. júlí. Þrastarlundur: Myndlistarsýning Auðar Ingu Ingvarsdóttur stendur yfir til 7. ágúst. Söfn Árbæjarsafn | Harmóníkuhátíð kl. 13–17. Innlendir og erlendir harmónikuspilarar leika. Í Listmunahorni sýnir Kristín Sig- fríður Garðarsdóttir drykkjarílát úr postu- líni og gleri. Tónlist Skútustaðakirkja | Kvartettinn Dísurnar leikur tónlist eftir W.A.Mozart, Nino Rota og Jean Francaix. Kvartettinn skipa:Eydís Franzdóttir, óbó, Bryndís Pálsdóttir, fiðla, Herdís Jónsdóttir, viola, Bryndís Björgvins- dóttir, selló. Tónleikarnir hefjast kl. 21. Akureyrarkirkja | Þriðju tónleikar í tón- leikaröðinni Sumartónleikar í Akureyr- arkirkju verða haldnir í dag kl. 17. Flytj- endur að þessu sinni verða þau Nicole Vala Cariglia sellóleikari og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari og þau leika verk eftir Johan Sebastian Bach, Vincent Lübeck, Camille Saint-Saëns og Sofia Gubaidulina. Aðgang- ur að tónleikunum er ókeypis. Nicole Vala og Eyþór Ingi munu einnig leika í morg- unmessu í Akureyrarkirkju kl. 11 árdegis. Útivist Útivist | Gengur verður frá Dímoni að Skef- ilfjalli þar sem gengið verður yfir að Klukkuskarði. Farið með Hrossadalsbrún að Hrossadal og að Laugarvatnsvöllum. Verð 2.400/2.900 kr. Brottför kl. 9 frá BSÍ. Evrópumótið í Málmey. Norður ♠Á1085 ♥D1062 ♦765 ♣ÁD Vestur Austur ♠KG92 ♠D763 ♥K53 ♥Á9 ♦K98 ♦Á1032 ♣843 ♣KG2 Suður ♠4 ♥G874 ♦DG4 ♣109765 „Norskir tveir“ er heiti á skaðræðis sagnvenju, sem náði miklu flugi fyrir um það bil áratug og gafst mörgum pörum vel á meðan engin mótefni voru þekkt. Þetta er veik hindrunaropnun á tveimur laufum (eða tveimur tíglum) til að sýna hálitina, jafnvel 4-4. Nú til dags eru til góð lyf gegn þessari óværu, sem gerir hana skaðlausa að mestu, og raunar stórhættulega fyrir notendurna sjálfa. Á EM í Svíþjóð voru ekki mörg pör með norska tvo, en þess sá þó stað. Suður gefur; allir á hættu. Vestur Norður Austur Suður Magnús Sablic Matthías Kikic -- -- -- Pass Pass 2 lauf * Dobl 2 hjörtu Dobl Pass Pass Pass Ísland mætti Serbíu/Svartfjallalandi í 7. umferð og Magnús Magnússon og Matthías Þorvaldsson komu upp í lesnu í þessu spili. Sablic vakti á tveim- ur laufum í norður, þrátt fyrir 12 punkta (!) og makker hans Kikic valdi hjartað. Dobl Matthíasar á tveimur laufum lofaði kerfisbundið 12+ punkt- um og jafnri skiptingu, a.m.k. fimm spilum í hálitunum. Og dobl Magnúsar var sektardobl. Tvö hjörtu er langt frá því að vera slæmur samningur, en vörnin var á tánum og Magnús kom út með tromp. Og eftir þrjár umferðir af hjarta í byrj- un gat sagnhafi engan veginn fengið meira en sex slagi. Tveir niður og 500 til Íslands. Það gaf 7 IMPa, því á hinu borðinu spilaði Þorlákur Jónsson tvö hjörtu ódobluð, tvo niður (-200). Þar opnaði Jón Baldursson í norður á ein- um tígli, Þorlákur svaraði með hjarta og var hækkaður í tvö. Eftir þessa byrjun er auðvitað útilokað fyrir AV að dobla til sektar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 80 ÁRA af-mæli. Í dag, sunnudaginn 18. júlí, verður átt- ræð Margaret Scheving Thor- steinsson, hjúkr- unarfræðingur, Hraunvangi 3, Hafnarfirði. Eig- inmaður hennar er Bent Scheving Thorsteinsson. Þau taka á móti gestum í dag, sunnudag, kl. 16–18 í Oddfellowhúsinu, Vonarstræti 10, Reykjavík. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni DOUGLAS A. Brotchie leikur tvo Leipzig- sálmforleiki eftir Bach og fjögur verk frá 20. öld, eftir Messiaën, Hafliða Hall- grímsson, James MacMillan og Kenneth Leighton í Hallgrímskirkju í kvöld. Tónleik- arnir hefjast kl. 20. Hafliði og Bach í Hallgrímskirkju Douglas A. Brotchie orgelleikari. RÖÐ hæstu fossa landsins kann að hafa breyst með mælingum sem gerðar voru 2002 á Hengifossi í Fljótsdal. Mældist fossinn 128 metrar og voru mælingar frá árinu 1955 þar með staðfestar, en fram að þeim tíma var hann talinn 118 metrar, eða nokkrum metrum lægri en sá foss sem talinn hefur verið annar hæsti foss landsins, Háifoss í Þjórsárdal, 122 metra hár. Steingrímur Pálsson mæl- ingamaður annaðist mælinguna 2002 en hann var einnig í mæl- ingaleiðangrinum 1955. Niðurstöð- um þeirra mælinga var hins vegar ekki flíkað einhverra hluta vegna. Glymur í Botnsdal, sem er 198 metra hár, heldur enn stöðu sinni sem hæsti foss landsins hvað sem öðrum mælingum líður. Hengifoss hærri en Háifoss UNGMENNAFÉLAG Íslands og Menningarsjóður Ís- landsbanka og Sjóvár-Almennra undirrituðu nýlega samkomulag um samstarf að verkefninu Blátt áfram, sem er forvarnarverkefni UMFÍ og er innlegg í barátt- una gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum og ung- lingum. Blátt áfram er forvarnarverkefni sem miðar að því að miðla upplýsingum og fræðslu um þetta við- kvæma mál. Helga Guðjónsdóttir, varaformaður UMFÍ, er formaður verkefnisstjórnar. UMFÍ hefur ráð- ið Svövu Björnsdóttur sem verkefnisstjóra Blátt áfram. Ásdís Helga Bjarnadóttir í verkefnisstjórn Blátt áfram og stjórnarmaður í Ungmennafélagi Íslands, Helga Guð- jónsdóttir í verkefnisstjórn Blátt áfram og varaformaður Ungmennafélag Íslands, Helga er einnig formaður Blátt áfram verkefnisstjórnar, Svava Björnsdóttir, verkefnisstjóri Blátt áfram, Sigríður Björnsdóttir í verkefnisstjórn Blátt áfram, Halldóra Traustadóttir, markaðsstjóri markaðsdeildar Íslandsbanka, Pálín Helgadóttir, fulltrúi markaðs- og kynningardeildar hjá Íslandsbanka, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdarstjóri UMFÍ. Samstarf að verkefninu Blátt áfram

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.