Morgunblaðið - 18.07.2004, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2004 49
Með hinum eina sanna og ofursvala
Vin Diesel. Geggjaður hasar og
magnaðar tæknibrellur.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.30
V I N D I E S E L
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 3, 5.30, 8 og 10.30.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.10
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3 og 5.30 Ísl tal. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 enskt tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 3 og 5.30. Ísl tal.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
KL. 3.30, 4.45. 8 OG 10.30..
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.30.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Íslenskt tal.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás2
DV
HL Mbl
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„RUNAWAY BRIDE“ OG
„PRINCESS DIARIES“
Frábær rómantísk gamanmynd
með Kate Hudson úr How to lose
a guy in 10 days og John Corbett
úr My big fat Greek wedding
Í GAMANMYND
Frá leikstjóra Pretty Woman
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„RUNAWAY BRIDE“ OG
„PRINCESS DIARIES“
Frábær rómantísk gamanmynd
með Kate Hudson úr How to lose
a guy in 10 days og John Corbett
úr My big fat Greek wedding
Í GAMANMYND
Frá leikstjóra Pretty Woman
STÆRSTA
MYND ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM.
STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA.
STÆRSTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA.
STÆRSTA
MYND ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM.
STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA.
STÆRSTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA.
STÆRSTA
MYND ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM.
STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA.
STÆRSTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA.
AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. / kl. 6, 8 og 10. Enskt tal.
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Frumsýning Frumsýning
Kvikmyndir.is
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.30.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2, 4.30, 8 og 10.30.
Sýnd með íslensku
og ensku tali.
19 þúsund gestir á 5 dögum
Allt er vænt
sem vel er grænt.
KD. Fréttablaðið.
Allt er vænt
sem vel er grænt.
KD. Fréttablaðið.
AKUREYRI
Sýnd kl. 1.45. Ísl tal
SV.MBL SV.MBL
UM síðustu helgi var haldin glæsi-
leg djasshátíð að Skógum undir
Austur-Eyjafjöllum. Hófst hún á
föstudegi og lauk á sunnudegi. Tón-
leikar voru bæði í veitingasal
byggðasafnsins og í stóru tjaldi er
reist hafði verið við Hótel Skóga en
staðarhaldarar þar í samvinnu við
flokk djassleikara undir forystu Sig-
urðar Flosasonar stóðu að hátíðinni.
Var hún slíkur sómi fyrir Rang-
æinga að vonandi verður framhald á
og að sýsluyfirvöld sem einkaaðilar
styðji sem myndarlegast við bak
þeirra er að henni standa í framtíð-
inni. Aðsókn var feikigóð og á þriðja
hundrað manns komu á laugardags-
kvöld í tjaldið þar sem Þórir Bald-
ursson sat við hammondorgelið
einsog kóngur í ríki sínu og þurfti
að opna tjaldið fjöldans vegna. Ríkti
sannkölluð útihátíðarstemning í
orðsins jákvæðustu merkingu á
staðnum. Þessir tónlistarmenn
þekkja hver annan ansi vel og
djammsessjónandinn og spilagleðin
allsráðandi – þarna var enginn að
spila eða syngja af skyldurækni og
því síður bara í vinnunni.
Af auglýstum dagskráratriðum
vakti einn sérstaka athygli djass-
unnenda. Tónleikar er hinn ungi
trompetleikari Snorri Sigurðarson
hafði unnið að í minningu Viðars Al-
freðssonar. Viðar er óefað fremsti
málmblástursleikari og sá fjölhæf-
asti er Íslendingar hafa átt. Hann
var jafnvígur á djass og klassík og
lék um langt árabil í Englandi: fyrst
með hljómsveit Sadler Wells óp-
erunnar og síðar með stórsveit
BBC, en fátt var erfiðara erlendum
tónlistarmönnum á þeim árum en
að fá atvinnuleyfi í Bretlandi. Viðar
gaf út eina sólóplötu meðan hann
lifði, en hann lést árið 1999 aðeins
63ja ára gamall. Á þessari plötu,
Viðar Alfreðsson spilar og spilar,
blæs hann í aðalhljóðfæri sín,
trompet og valdhorn, auk þess flyg-
ilhorn, takkabásúnu og túbu. Það
þótti undrum sæta í stórsveit BBC
hversu snöggur Viðar var að skipta
milli málmblásturshljóðfæranna,
enda slíkt ekki heiglum hent. Eftir
að Viðar flutti aftur til Íslands lék
hann lengi með Sinfóníuhljómsveit
Íslands og djassaði hvar sem því
varð við komið, og þá oftar en ekki
með félaga sínum Gunnari Ormslev.
Plata hans hefur verið endurútgefin
á tvöföldum geisladiski ásamt plöt-
unni Jazzvöku með bandaríska
bassaleikaranum Bob Magnusson
þarsem Viðar blés í trompet og
flygilhorn, og fyrstu plötu Guð-
mundar Ingólfssonar og nefnist út-
gáfan Jazzvaka Guðmundar og Við-
ars.
Á yngri árum var Viðar nemandi
við Skógaskóla, en hann var ætt-
aður undan Fjöllunum og safnvörð-
urinn þjóðþekkti á þeim stað, Þórð-
ur Tómasson, frændi hans. Það var
gaman að sitja á þessum laugar-
dagstónleikum með fyrrverandi
herbergisfélaga Viðars á heimavist
Skógaskóla, þeim góðkunna djass-
unnanda Þóri Guðmundssyni. Þrjú
hljóðfæra Viðars, tveir trompetar
og eitt valdhorn, eru nú varðveitt á
byggðasafninu.
Snorri Sigurðarson blés í Benge-
trompet Viðars á minningartónleik-
unum, en Choninn fékk að hvíla í
sýningarskáp – auk þess blés Snorri
í eigið flygilhorn. Hrynsveitina skip-
uðu Þórir Baldursson rafpíanó,
Gunnar Hrafnsson bassa og Erik
Qvick trommur.Auk þess blésu þeir
Sigurður Flosason og Jóel Pálsson
með þeim eftir hlé. Snorri hóf tón-
leikana á „Be my love“ eftir Sammy
Chan, sem er á sólóplötu Viðars, og
blés í flygilhorn. Næst kom kynn-
ingarlag Tommy Dorseys: „I’m
gettin sentimental over you“ blásið í
trompet. Snorri var dálítið hikandi í
þessum lögum en hann blés hina
fallegu ballöðu Viðars, „Völu“,
firnavel í flygilhornið og síðan
„Lauru“ á trompetinn. Sagði hana
eina uppáhaldsballöðu sína með
uppáhaldstrompetleikara sínum
Clifford Brown. Þó að smávegis feil-
ar væru í melódíublæstrinum fyrir
sóló tókst spuninn vel og meldódían
mjög vel spiluð í framhaldinu. Það
þarf góða ljóðræna gáfu til að blása
„Lauru“ vel og hafa fáir gert það
betur á Norðurlöndum en Gunnar
Ormslev, en það er önnur saga.
„Meditation“ Jobims fylgdi í kjöl-
farið, en þá sömbu blés Viðar með
Bob Magnusson og var danskur
hreimur í ágætum sóló kollega
Bobs, Gunnars Hrafnssonar. Fyrra
settið endaði á laginu sem leikið var
á öllum djammsessjónum á Íslandi
á síðustu öld: „Theréll never be
another you“ og var þá farið að
hitna í mannskapnum bæði á sviði
og í sal.
Eftir hlé var byrjað á „For once
in my life“, sem Stevie Wonder
gerði vinsælt, en Snorri var mun
hæverskari í leik sínum en Viðar
var á sólóplötu sinni. Þarna blés Jó-
el með honum í tenórinn af öryggi,
en í næsta ópusi, „Blue Daniel“ eftir
Frank Rossolino, sem Viðar hljóð-
ritaði með Ormslev 1960, var Sig-
urður Flosason þá kominn á altóinn.
Lokalagið á tónleikunum var einnig
frá þeirri upptöku Viðars og Orms-
levs: „Big ,,P““ eftir Jimmy Heath
og var það mikil sýning; bæði Sig-
urður og Jóel blésu með, Þórir lék
söngrödd á rafpíanóið og Gunnar
söng með bassasóló sínum. Þeir
léku líka „Killer Joe“, sem Sigurður
hafði leikið ungur með Viðari og
„You are so nice to come home to“
eftir Cole Porter. Þar blés Snorri
glæsilega í flygilhornið – tónhend-
ingarnar í sólónum voru bæði lag-
rænar og vel mótaðar og flæðið ein-
staklega gott. Sigurður var
skemmtileg andstæða í einleikskafla
sínum þarsem undiraldan var
ástríðufull. Þórir lék sína sólóa óað-
finnanlega þótt skemmtilegra hefði
verið að hafa flygil á staðnum og
hrynsveitin var góð þótt hún gyldi
þess hve hátt er til lofts og vítt til
veggja í veitingasalnum þarsem út-
saumur skreytir veggi og flugvél
hangir úr lofti.
Þetta eru fyrstu tónleikar Snorra
Sigurðarsonar sem ég heyri eftir að
hann kom heim frá námi, hafði að-
eins heyrt hann með Stórsveit
Reykjavíkur þarsem þarf Harry
Edinsona og Dizzya til að koma
hlutunum til skila í einum kórusi.
Ég varð sannarlega ekki fyrir von-
brigðum með þessa tónleika og kom
mér skemmtilega á óvart hversu
mjúkur og ljóðrænn blástur Snorra
er.
Fyrir utan Reykjavík hafa aðeins
tvær djasshátíðir náð að festa sig í
sessi: sú elsta á Egilsstöðum og
Vestmannaeyjahátíðin. Megi hátíðin
að Skógum lifa sem lengst. Ég efa
ekki að þeir sem lögðu leið sína
þangað nú koma aftur að ári.
TÓNLIST
Djasshátíð að Skógum
Þriggja daga djasshátíð að Skógum undir
Austur-Eyjafjöllum. Fram komu Sigurður
Flosason, Jóel Pálsson, Snorri Sigurð-
arson, Þórir Baldursson, Guðmundur Pét-
ursson, Gunnar Hrafnsson, Pétur Grét-
arsson, Erik Qvick, Andrea Gylfadóttir og
Kristjana Stefánsdóttir.
Helgin 9. –11. júlí.
DJASSTÓNLEIKAR
Ljósmynd/ABK
Sigurður Flosason, Snorri Sigurðarson og Jóel Pálsson blása af list, Viðari
heitnum Alfreðssyni til heiðurs.
Vernharður Linnet
STEFÁN Hjörleifsson tónlistar-
maður er einn aðstandenda James
Brown-tónleikanna í Laugardalshöll
28. ágúst næstkomandi. Aðspurður
um tildrög komu
Guðföður sálar-
tónlistarinnar seg-
ir hann: „Und-
anfarin tvö ár hef
ég verið að þreifa
aðeins fyrir mér í
tónleikainnflutn-
ingi, hvort hann sé
yfir höfuð snið-
ugur, og komst í
samband við umboðsskrifstofu er-
lendis. Upp úr því tók reyndar annað
við hjá mér, reksturinn á tonlist.is
meðal annars. Svo hitti ég fulltrúa
skrifstofunnar í janúar, á Midem-
tónlistarráðstefnunni, og þeir sögðu
að þetta væri möguleiki. Upphaflega
stóð til að Brown kæmi til landsins í
vor, en það gekk ekki upp. Í síðustu
viku höfðu þeir svo samband og
spurðu hvort við treystum okkur til
að gera þetta á átta vikum. Við kýld-
um á það.“
Stefán segir að þá hafi beinast leg-
ið við að tonlist.is tæki þátt í tónleika-
haldinu, en þar fer miðasalan fram.
Einnig eru seldir miðar á Hard Rock
og í Pennanum á Akureyri.
Ekki smeykur
Spurður hvort hann sé ekkert
hræddur við að illa gangi, með tilliti
til fjölda annarra tónleika í sumar,
segir Stefán svo ekki vera. „Sér-
staða James Browns er það mikil.
Aðdáendahópurinn er svo breiður;
við sjáum strax að miðakaupendur
eru allt frá átján ára aldri til rúm-
lega sjötugs. Svoleiðis listamenn eru
ekki á hverju strái.“
Þegar hafa selst nokkur hundruð
miðar, að sögn Stefáns.
Tónleikar | Stefán Hjör-
leifsson stendur fyrir
tónleikum Guðföðurins
Kýldum
á það
Stefán
Hjörleifsson