Morgunblaðið - 03.08.2004, Blaðsíða 26
MINNINGAR
26 ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Jón Pálmi Karls-son fæddist á Mos-
felli í A-Hún. 9. jan.
1922. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Seli á Akureyri
sunnudaginn 25. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar Pálma voru Karl
Jónsson og Guðrún
Sigurðardóttir. Systk-
ini Pálma eru; Hall-
dóra, f. 1906, látin,
Anna, f. 1908, Katrín,
f. 1909, látin, Jón, f.
1912, látinn, Herdís, f.
1915, látin, Björn, f.
1917, látinn, Ingibjörg, f. 1919,
Guðni, f. 1920, og Júlíus, f. 1923,
látinn. Sambýliskona Pálma var
Bryndís Baldvinsdóttir, f. 1918, d.
1978. Börn þeirra eru: a) Baldrún,
f. 1943, d. 1968, maki Matthías Þor-
bergsson og áttu þau tvo drengi,
báðir látnir. b) Bára, f. 1945, maki
Eggert Bollason og eiga þau fjögur
börn. c) Guðmundur Halldór, f.
1946, d. 1953, d) Bára Guðrún, f.
1948, fv. maki Róbert Sverrisson
og eiga þau fjögur börn, e) Dag-
björt Alda, f. 1949, maki Viðar Þór-
arinsson og eiga þau tvær dætur, f)
Pétur Valgeir, f. 1950, maki Sigríð-
ur Víkingsdóttir og eiga þau eina
dóttur en fyrir á hann fimm börn.
Pálmi átti dóttur með Helgu
Kristinsdóttur, Guðnýju Kristínu,
f. 1948, maki Gunther Freshman
og eiga þau tvær dætur.
Eftirlifandi eigin-
kona hans er Elsa
Halldórsdóttir, f.
1932. Foreldrar
hennar voru hjónin
Halldór Jónsson og
Elísabet Jónsdóttir.
Börn Pálma og Elsu
eru: a) Birgir, f.
1950, f.k. Magnea
Steingrímsdóttir og
eiga þau tvö börn,
s.k. Sigurbjörg Sig-
fúsdóttir og eiga þau
tvö börn. b) Elísabet,
f. 1952, maki Pétur
Pétursson, látinn, og
eiga þau þrjár dætur, sambýlis-
maður Ketill Tryggvason. c) Ásta,
f. 1953, maki Jón Gestsson og eiga
þau tvö börn. d) Hjördís, f. 1955,
maki Pétur Haraldsson og eiga
þau tvö börn. e) Elsa, f. 1958, maki
Valmundur Einarsson og eiga þau
fjögur börn. f) Hreinn, f. 1959,
maki Þórunn Sigurðardóttir og
eiga þau þrjú börn. g) Jón, f. 1960,
maki Kolbrún Jónasdóttir og eiga
þau þrjú börn. h) Viðar, f. 1963,
maki Kamilla Hansen og eiga þau
þrjú börn.
Pálmi fluttist til Akureyrar
1937, þá 15 ára gamall. Vann ýmiss
konar störf, en lengst af sem bif-
reiðastjóri hjá Akureyrarbæ og
Bifreiðastöð Oddeyrar.
Pálmi verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Ó, elsku pabbi.
Það er með sorg og söknuði í hjört-
um sem við skrifum þessi fátæklegu
orð.
Nú hefur þú kvatt okkur – varst
kallaður burtu til starfa á æðri vett-
vangi, þar sem ást og kærleikur ráða
ríkjum.
Við erum þess alveg fullviss að þar
hefur þín verið beðið, bæði af þínum
nánustu ættingjum, sem farnir eru í
gegnum tíðina og ekki síður vegna
þeirra miklu mannkosta sem þú hafð-
ir til að bera; vinnusemi þinnar og
þrautseigju, hlýju þinnar og ástúðar,
svo fátt eitt sé talið.
Elsku vinur, þú hafðir svo stórt
hjarta, varst svo yndislega hlýr og þú
elskaðir okkur öll út af lífinu. Þú mátt-
ir ekkert bágt sjá, þá leið þér ekki vel
en varst glaðastur allra ef eitthvað
gekk vel hjá einhverju okkar. Og
húmorinn, hann var til staðar allt til
hinstu stundar, þú gantaðist við allt
og alla, nánast hvernig sem þér leið,
svo eftir var tekið. Það gladdi okkur
öll.
Já, elsku pabbi, það voru sko for-
réttindi að fá að vera þín börn, þú
varst svo stórkostlegur maður, stór
og sterkur.
Við vitum að þér líður vel núna og
þjáningum þínum er lokið. Það er
huggun sárum hjörtum.
En það er komið stórt skarð í fjöl-
skylduna, sem aldrei verður fyllt, og
eftir stendur stór, hryggur hópur að-
standenda, sem öll elskuðu þig af ein-
lægni og gera enn, en sakna þín jafn-
framt óendanlega mikið.
Elsku hjartans pabbi, far þú í friði.
Við þökkum þér samfylgdina og fyrir
allt sem þú varst okkur, börnunum
þínum, og megir þú ganga á Drottins
vegum, þar til við hittumst á ný.
Stórbrotinn maður er fallinn frá.
Elsku mamma og aðrir aðstand-
endur; við biðjum guð almáttugan um
að umvefja ykkur með kærleika sín-
um á þessum erfiðu stundum. Með
ástarkveðju,
barnahópurinn stóri.
Afi bjó á Akureyri en við í Keflavík,
þannig að venjulega hittumst við ekki
nema nokkra daga á ári og þá oftast á
Akureyri. Þrátt fyrir það hefur alla tíð
verið mjög einlægt og hlýtt samband
á milli okkar. Alltaf þegar fjölskyldan
fór til Akureyrar var það forgangsmál
okkar systkinanna að komast til afa
og ömmu. Það var svo gott að koma
heim til þeirra og finna hvað þeim
þótti vænt um að sjá okkur og tóku vel
á móti okkur. Amma stjanaði kring-
um okkur og var stöðugt að bjóða
okkur ýmiskonar góðgæti. Afi hafði
þannig persónuleika að maður hlaut
að laðast að honum og verða vinur
hans. Hann talaði við okkur eins og
jafningja, hafði alltaf tíma til að hlusta
og hann hlustaði með fullri athygli og
áhuga á það sem okkur lá á hjarta.
Hann var líka ætíð áhugasamur um
hagi okkar og spurði mikið um hvern-
ig gengi í skólanum, hvaða áhugamál
við hefðum og um vini okkar. Maður
fann svo vel að þetta var ekki bara
kurteisishjal hjá afa, heldur einlæg
umhyggja. Við fundum alltaf pláss hjá
honum og soguðumst þannig að hon-
um þótt hann væri ekki með hama-
gang eða læti. Í einni heimsókninni til
hans fór hann með okkur í golf. Við
höfðum aldrei komið nálægt svoleiðis
áður og kunnum ekkert. Með sínu ró-
lega fasi og aðdáunarverðu þolinmæði
sýndi afi okkur réttu handtökin og
tæknina við að koma kúlunum á leið-
arenda. Tíminn var fljótur að líða og
þessi dagspartur er ein af þeim kæru
minningum um afa sem munu fylgja
okkur um ókomna tíð. Afi keyrði líka
leigubíl lengi og var bíladellukall.
Hann vissi hvernig bíla allir áttu og
gat jafnvel rakið bílaeign hvers og
eins aftur í tímann. Hann var í essinu
sínu þegar talið barst að bílum og við
gátum kannski tekið svolítið undir þar
sem bíladellan virðist hafa skilað sér
að einhverju leyti í blóðið. Hann fór
stundum með okkur systkinin í bíltúr
í einhverjum af fínu bílunum sem
hann átti. Hann kippti sér ekki upp
við það að lítil hendi laumaðist í
brjóstvasann hans og fiskaði þar upp
sólgleraugu, þótt þeim yrði ekki skil-
að fyrr en löngu seinna og þá útbíuð-
um í matarleifum og puttaförum. Það
var allt í lagi, fegurðardrottningin
hans mátti alveg punta sig með sól-
gleraugunum. Afi átti mörg barna-
börn og þau hafa örugglega öll átt
sama athvarf hjá honum og við. Við
tókum til dæmis eftir því þegar við
vorum að skoða myndir sem teknar
voru á áttræðisafmælinu hans, að á
öllum myndunum var hann með eitt-
hvert barnabarnið í kjöltunni eða hjá
sér. Við sáum afa aldrei skipta skapi
og oft heyrðist hann flauta lagstúf.
Hann var líka ,,flottur“ kall, snyrti-
legur og með mjóa skeggrönd sem
var eins konar einkennismerki fyrir
hann. Við munum því muna hann sem
reffilegt glæsimenni.
Afi átti við heilsubrest að stríða síð-
ustu árin og var erfitt að horfa upp á
veikindi hans. Það er nokkur huggun
harmi gegn að örlögin höguðu málum
þannig að við fjölskyldan fengum að
hitta hann daginn fyrir andlátið. Og
hvað gerði hann þá? Hann flautaði
lagstúf.....
Það er erfitt að sætta sig við að þú
sért dáinn, afi minn, og að við eigum
aldrei eftir að heimsækja þig aftur.
Þakka þér fyrir alla vináttuna og þær
allt of fáu en góðu samverustundir
sem við áttum. Elsku afi, minningin
um þig er hlý og góð og við munum
varðveita hana meðan við lifum.
Bríet og Gauti Birgisbörn.
Elsku afi minn.
Það var á sunnudagsmorgun, 25.
júlí, að mér bárust þau sorgartíðindi
að þú værir látinn. Mér féllust hend-
ur, því mér fannst að ég ætti alveg eft-
ir að kveðja þig í hinsta sinn. En ég
veit að þú ert kominn á yndislegan
stað, þar sem öllum líður vel og þraut-
ir og þjáningar þekkjast ekki. Einnig
veit ég að þú ert hjá mér, þó að ég geti
ekki séð þig.
Ástarþakkir fyrir allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman í Lindar-
síðunni, þú, amma og ég – þeim mun
ég aldrei gleyma.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið það tækifæri að kynnast þér og
þekkja þig.
Elsku afi, þú varst einn af englum
þessa heims og ég mun ávallt sakna
þín.
Megi minning um góðan afa styrkja
okkur öll og styðja.
Hvíl þú í friði, afi minn.
Litla gullstelpan þín,
Eva Dögg.
JÓN PÁLMI
KARLSSON
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN VIGNIR JÓNSSON
framkvæmdastjóri,
Sævangi 15,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 4. ágúst kl. 15.00.
Soffía Jónsdóttir,
Jón Rúnar Jónsson, Dagbjörg Traustadóttir,
Kolbrún Jónsdóttir, Steingrímur Magnússon,
Bragi Vignir Jónsson, Rut Helgadóttir,
Sigurður Ól. Jónsson, Dagrún Guðlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bestu þakkir til allra, sem auðsýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og
útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
INGVELDAR DAGBJARTSDÓTTUR,
Melabraut 9,
Seltjarnarnesi.
Hjartans þakkir færum við læknum og starfs-
fólki hjúkrunarheimilisins Vífilsstaða fyrir frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll
Guðrún Einarsdóttir, Gottskálk Eggertsson,
Sigurður Einarsson, Kristín Jónsdóttir,
Guðbjartur Einarsson, Anna Sigurbrandsdóttir,
Stefán Einarsson, Kristrún Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Bróðir okkar,
ÞÓRIR GUÐMUNDSSON
frá Sámsstöðum,
Mímisvegi 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju í
Fljótshlíð, fimmtudaginn 5. ágúst kl. 14.00.
Nikulás Guðmundsson, Sigrún Jóhannsdóttir,
Árni Guðmundsson,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sigurður S. Sigurðsson,
Edda Klemensdóttir
og fjölskyldur
Faðir okkar og tengdafaðir,
SKÚLI HALLDÓRSSON
tónskáld,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. ágúst kl. 15.00.
Magnús Skúlason, Svava Björnsdóttir,
Unnur Skúladóttir, Kristján Sigurjónsson.
Móðir okkar,
HÓLMFRÍÐUR HALLDÓRA
BJÖRNSDÓTTIR
frá Dal,
sem andaðist fimmtudaginn 22. júlí, verður
jarðsungin frá Grenivíkurkirkju fimmtudaginn 5.
ágúst kl. 14.
Fyrir hönd vandamanna,
börnin.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
FINNUR NIKULÁS KARLSSON,
Reynivöllum 14,
Egilsstöðum,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 31. júlí sl., verður jarðsunginn frá
Egilsstaðakirkju, laugardaginn 7. ágúst nk. kl.
14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag nýrnasjúkra.
Rannveig Árnadóttir,
Gunnhildur Finnsdóttir, Miroslaw Luczynski,
Anna Berglind Finnsdóttir.
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7
Ástkær eiginkona mín, systir, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
FRIÐRIKA ELÍASDÓTTIR
(Fríða),
Sogavegi 168,
Reykjavík,
sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund 24. júlí sl. verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 5. júlí kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar láti Blindrafélagið njóta þess.
Leifur Sigurðsson,
Guðrún Kristófersdóttir,
Guðmundur Ingi Leifsson, Elín Einarsdóttir,
Sigurður Leifsson, Margrét Sigursteinsdóttir,
Elías Halldór Leifsson, Margrét Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.