Morgunblaðið - 12.08.2004, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 12.08.2004, Qupperneq 42
42 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 15.30 kl. 6, 8.30 og 11. „Öðruvísi og spennandi skemmtun“  SV MBL „Öðruvísi og spennandi skemmtun“  SV MBL 40 þúsund gestir Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára. „Hasarinn er góður.“  ÓÖH DV „Hasarinn er góður.“  ÓÖH DV Kr. 500 Mjáumst í bíó! Mjáumst í bíó! Uppáhalds köttur allrar fjölskyldunnar er kominn í bíó! Sýnd kl. 6 og 8. ísl tal. Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta, latasta og feitasta kött í heimi! Magnaður spennutryllir frá Luc Besson T o p p myndin á íslandi T o p p myndin á íslandi Uppáhalds köttur allrar fjölskyldunnar er kominn í bíó! Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta, latasta og feitasta kött í heimi! Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. Sýnd kl. 6. ísl tal. ÞAÐ VAR greinilegt á öllu að tón- leikagestir í Laugardalshöllinni voru staðráðnir í að skemmta sér hið besta og stuttu eftir opnun hússins hafði myndast röð í blíðviðrinu fyrir utan Höllina. Í svörtum fötum sá um upp- hitun. Hljómsveitin er kraftmikil á sviði og hafa einstaklega líflega sviðs- framkomu. Jónsi ber þar af félögum sínum með hoppum, stökkum og kraftmikilli rödd. Sveitin hefur alla burði til að verða ein besta ballhljóm- sveit landsins, að einu undanskildu. Lagasmíðar hjómsveitarinnar eru að mínu mati heldur bágbornar og flat- neskjuleg lögin henta illa hinni kröft- ugu og skemmtilegu sviðsframkomu. Um klukkan 21 steig stjarna kvölds- ins svo á svið. Biðin var á enda! Hljómsveitin stillti sér upp og hóf að leika „Don’t Let Me Get Me“ og Pink söng hástöfum en var þó engum sýni- leg. Skyndilega steig þó smávaxin töffaraleg Pink upp frá trommusett- inu og tók sitt pláss, fremst á sviðinu. Pink var töffaraímyndin uppmál- uð, klædd eins og skvísulegur trukkabílstjóri og með munninn fyrir neðan nefið. Hið miður kurteisa F- orð fylgdi með í hverri setningu og ruddaleg fingramerki voru send í gríð og erg. Alvöru rokk og ról! Mannasiði hefur stúlkan þó lært því hún þakkaði pent fyrir sig að loknu hverju lagi. Pink sagði Íslendinga mjög kynþokkafulla og sagðist hafa séð ótrúlegan fjölda f*** fallegra Ís- lendinga. Hún lýsti jafnframt yfir að- dáun sinni á fatamerkinu Dead sem kemur úr smiðju Jóns Sæmundar Auðarsonar. Pink er með ofsalega sterka söngrödd sem naut sín vel í Höllinni. Með góðum stuðningi bak- raddanna náði hún að halda uppi eins og hálfs tíma kröftugum rokktónleik- um, það er meira en að segja það og fær Pink hrós fyrir að leysa það verk- efni með sómabrag. Gleði undirrit- aðrar varð enn meiri þar sem hún sótti á dögunum tónleika með Brit- ney Spears sem söng ekki eitt einasta lag sjálf á tónleikunum sínum heldur dansaði bara og hreyfði varirnar. Pink lék lög af öllum þremur plötum sínum og þar á meðal flestöll sín þekktustu lög. Hún tók jafnframt gamla 4 None Blondes slagar- ann „What’s Going On“ við góðar undirtektir viðstaddra. Pink sagð- ist einu sinni hafa verið handtekin fyrir óspekt- ir á almannafæri þegar hún kyrjaði lagið. Hún bað því áhorf- endur að hjálpa sér við að endurtaka leikinn. Pink hefur ósjaldan lýst því yfir að hennar helsti áhrifavaldur í tónlistinni sé Janis heitin Joplin. Hún vottaði henni virðingu með því að taka syrpu þriggja laga sem voru vin- sæl með Joplin á sínum tíma og gerði það með glæsibrag. Kraftmikil rödd- in naut sín vel við undirleik kassagít- ars. Það er gaman að sjá tónlistarfólk blómstra á sviði. Lög og tónlistar- myndbönd geta oftar en ekki gefið skakka mynd af því hvaða hæfileik- um söngvarar eru búnir. Það var mjög ánægjulegt að sjá og heyra að Pink stendur vel undir því að vera á þeim stjörnustalli sem hún er komin á. Viðstaddir áttu sinn þátt í þeirri góðu stemningu sem myndaðist í höllinni. Meirihluti gesta var undir tvítugu og voru afar þakklátir tón- leikagestir, alls óhræddir við að láta í ljós ánægju sína. Lítið fór þó fyrir auglýstum skjám sem áttu að auðvelda gestum að fylgjast með gangi mála. Ekki varð maður heldur var við þá laser-sýn- ingu sem áætluð var. Þó söknuðurinn hafi ekki verið mikill eftir þessum hlutum er alltaf frekar ódýrt að aug- lýsa eitthvað sem ekki er svo boðið uppá. Tónleikar Pink í Laugardalshöll- inni voru á heildina litið mjög góðir og var um að þakka kröftugri spila- mennsku sveitarinnar, magnaðri rödd og hressilegri sviðsframkomu Pink og tónleikagestum, sem voru vel með á nótunum. Tónlist Kjaftfor og kraftmikil TÓNLEIKAR Laugardalshöll PINK Tónleikar Pink í Laugardalshöllinni 10. ágúst. Í svörtum fötum hitaði upp. Birta Björnsdóttir „Það var mjög ánægjulegt að sjá og heyra að Pink stend- ur vel undir því að vera á þeim stjörnu- stalli sem hún er komin á.“ Morgunblaðið/ÞÖK „ERTU stressuð,“ spyr Young Buck. „Nei, ég er ekki stressuð,“ segi ég. „Þú ættir að vera það,“ heldur hann áfram þar sem ég sest niður til að spjalla við hann og Lloyd Banks á Hótel Sögu síðdegis í gær. Þeir félagar eru hluti af hinni vinsælu hipp hopp sveit G-Unit ásamt goðinu 50 Cent og spiluðu á tónleikum í Höll- inni í gær. Þeir eru áreiðanlega einu mennirnir sem eru ekki sáttir við hitabylgjuna sem gengur nú yfir Reykjavík. „Það er engin loftræsting hérna. Þið virðist ekki trúa á loftræstingu,“ segir Banks. „Þið þurfið ekkert að nota hana venju- lega er það nokkuð? Við hefðum allavega þurft eina á hótelið í dag því það var steikjandi hiti í herberginu mínu,“ segir Young Buck og þeir hlæja báðir. Eminem Íslands „Við sáum myndband með hljómsveit sem er ábyggilega Eminem Íslands, umfjöllunarefnið var umdeilanlegt og myndbandið flott,“ segir Banks aðspurður að því hvort þeir þekki ein- hverjar íslenskar rapphljómsveitir. Við nánari samræður kemur í ljós að hann á við hljóm- sveitina Quarashi og myndbandið „Stun Gun“. Ég upplýsi þá um að Quarashi hiti upp fyrir tónleikana í kvöld og eru þeir ánægðir með það. „Við erum ánægðir með öll tækfæri sem gef- ast til að fá að fara til aðdáenda okkar,“ segir Young Buck um Íslandsförina en þeir lýsa báð- ir yfir eftirvæntingu vegna tónleikanna. Ég vitna í lagið „Ain’t No Click“ með Banks, upphafslag frumraunar hans Hunger for More, sem hefur hlotið góða dóma og viðtökur og spyr um gildi þess að tilheyra sterkum hópi í rappheiminum. Young Buck segir að þeir séu allir bræður og Banks ítrekar að það sé enn meira á leiðinni. „Ain’t no click like the one I’m with /If the drama gets thick it’s the guns I get,“ byrjar Young Buck að rappa og Banks tekur undir. Það hefur lést á þeim brúnin þó þeir haldi að sjálfsögðu kúlinu. Þeir klæðast að hefð- bundnum hætti þeirra sem hafa náð langt í hipp hoppinu, hvítagull, demantar og víð föt. Þeir svara öllum spurningum skýrt og skil- merkilega og eru greinilega mjög ástríðufullir fyrir tónlistinni. Þarft ekki að vera úr gettóinu „Það er gaman að sjá að tónlistin brýtur tungumálamúra,“ segir Young Buck. „Ég held að fólk geti tengst tónlistinni og því sem við er- um gera, sama hvaðan það er. Þú þarft ekki að vera úr gettóinu til að skilja manneskju sem er úr gettóinu. Það er eitthvað í textunum okkar sem fólk getur tengt við. Þrátt fyrir að við séum allir frá stöðum þar sem rán, morð og vændi eru daglegt brauð er eitthvað í tónlist- inni sem allir geta tengt við.“ Banks bætir við: „Fólk skilur hvað við erum að segja þó það deili ekki lífsstílnum. Við lesum öll sömu blöðin. Fólk skilur textana þó það geti ekki alltaf samsamað sig þeim.“ Þeir neita því að þetta snúist allt um pen- ingana. „Þú verður að hafa ást á tónlistinni. Ef þú gerir eitthvað bara fyrir peningana, þá sést það. Til þess að vera góður í því sem þú gerir þarftu að hafa ást á tónlistinni. Ég myndi samt gera þetta þó ég fengi enga peninga fyrir og sjá fyrir mér með öðrum leiðum,“ segir Young. „Mikið af tónlistarfólki hefur ekki enn komið hingað af ýmsum mismunandi ástæðum. En ég vona að einhverjir feti í fótspor okkar og komi hingað, viti að það er hægt að koma til Íslands,“ segir Banks og aldrei að vita hvort það kemur bylgja af rappsveitum til landsins í kjölfar tón- leikanna. Dr. Dre studdi við bakið á Eminem og sömu- leiðis kom Eminem G-Unit á framfæri. Þeir segja að þetta skjólstæðingakerfi sé mjög mik- ilvægt. „Það er mikilvægt til þess að byggja upp framtíðina. Það er sjaldgæft að það komi upp svona margir á sama tíma úr sama hópi. En ef þú vilt halda ferli þínum gangandi þá get- urðu ekki rappað sjálfur endalaust heldur verð- ur að kynna heiminum einhvern annan. Við er- um mjög heppnir hvað þetta hefur gengið vel,“ segir Young Buck um allt G-Unit ævintýrið en platan Straight outta Ca$hville er væntanleg frá honum í enda þessa mánaðar. Titillinn er orðaleikur en Buck ólst upp í Nashville, Tennessee. Rapp hefur verið söluhæsta tónlistin í Bandaríkjunum undanfarin ár, ekki síst fyrir tilstilli Eminem og nú G-Unit. Plata 50 Cent, Get Rich Or Die Tryin’, sem út kom í fyrra seldist í 800.000 eintökum fyrstu fjóra dagana sem hún var í sölu sem er met. „50 Cent kom með hipp hoppið-aftur til fólksins, á götuna. Um tíma var þróunin frá fólkinu, frá götunni, og það er slæmt fyrir hipp hoppið og tónlistin var að útvatnast,“ segir Young Buck. „Það er ekkert að því að hafa froðukenndari tónlist inn á milli en hipp hoppið þarf líka að hafa harðari hlið. Hipp hoppið þarf að standa föstum fótum í raunveruleikanum.“ Tónlist | Lloyd Banks og Young Buck eru liðsmenn G-Unit Einn fyrir alla … … og allir fyrir einn. Lloyd Banks, 50 Cent og Young Buck eru traustir vinir. ingarun@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.