Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AFTUR VERKFALL
Kennarar kolfelldu miðlunar-
tillögu sáttasemjara og enginn ár-
angur varð af fundi kennara og
sveitarfélaga hjá sáttasemjara í
gærkvöldi. Þar lagði launanefnd
fram tilboð sem kennarar höfnuðu.
Þá hafnaði launanefndin móttilboði
kennara. Verkfall hófst því á mið-
nætti. Hefur næsti fundur verið boð-
aður á morgun, miðvikudag.
Hægist um í Abidjan
Heldur var kyrrara í Abidjan, höf-
uðborg Fílabeinsstrandarinnar, í
gær en þá tóku franskir hermenn á
brynvörðum bílum sér stöðu
skammt frá aðsetri forseta landsins.
Hafa Frakkar tortímt herflugvélum
stjórnarhersins en síðastliðinn laug-
ardag réðust þær á stöðvar Frakka
og féllu þá níu franskir hermenn og
einn bandarískur borgari. Sumir
ráðamenn, sem höfðu stór orð um
nýtt „Víetnam“ fyrir Frakka, skora
nú á landsmenn að halda friðinn.
Viðgerð fór ekki fram
FOKKER-flugvél Landhelg-
isgæslunnar TF-SYN hefur verið
óflughæf frá því atvikið í Færeyjum
henti 1. október sl. Þegar hluti lend-
ingarbúnaðarins sem Gæslan sendi í
viðgerð til Bandaríkjanna kom til
landsins uppgötvaðist að viðgerð
hafði alls ekki farið fram eins og til
var ætlast heldur hafði búnaðurinn
einungis verið málaður.
Árás á Fallujah
Um 12.000 bandarískir og íraskir
hermenn réðust í gær á borgina
Fallujah vestur af Bagdad en talið
er, að þar séu um 2.000 uppreisn-
armenn til varnar. Um 90% íbúanna
eru flúin og miðað við það eru enn
um 30.000 óbreyttra borgara í bæn-
um.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Viðhorf 28
Úr verinu 12 Umræðan 28/31
Viðskipti 13 Bréf 31
Byggðamál 14/15 Minningar 32/37
Erlent 16/18 Skák 39
Minn staður 20 Myndasögur 40
Höfuðborgin 21 Dagbók 40/43
Austurland 21 Víkverji 40
Akureyri 22 Staður og stund 42
Landið 22 Leikhús 44
Daglegt líf 23 Bíó 46/49
Menning 24-25/43-49 Ljósvakar 50
Af listum 24 Veður 51
Forystugrein 26 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
edda.is
Flétta sem
nálgast fullkomnun
Hörkuspennandi og
snilldarlega vel samin
skáldsaga eftir einn
vinsælasta spennusagna-
höfund heims, Michael
Connelly.
1. sæti
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
27. okt. – 2. nóv.
Skáldverk - kiljur
MJÖG ákveðið viðbúnaðarkerfi fer í
gang þegar eitthvað bregður útaf í
fluginu og hefur Flugfélagið Atlanta
samið ákveðna viðbragðsáætlun
sem notuð er þegar atvik koma upp.
Þegar fraktþota félagsins fór út af
braut í Sharjah, skammt frá Dubai,
síðdegis á sunnudag fékk flugum-
sjón fyrirtækisins á Íslandi fyrst
fréttir af atvikinu og brást við sam-
kvæmt starfsreglum flugmálayfir-
valda og þessari fyrirfram gerðu
áætlun.
Þar sem enginn úr fjögurra
manna áhöfninni slasaðist höfðu
þeir sjálfir samband við flugumsjón
Atlanta á Íslandi og tilkynntu um
atburðinn nokkrum mínútum eftir
að þeir voru komnir út úr vélinni
heilir á húfi. Starfsmenn flugum-
sjónar hringdu í Einar Óskarsson,
flugöryggisfulltrúa Atlanta, sem var
þá staddur í Dubai. Einar hafði
strax samband við Rannsóknar-
nefnd flugslysa á Íslandi þar sem
vélin er skráð á Íslandi. Þá voru ein-
ungis liðnar rúmlega 20 mínútur frá
atburðinum. Flugstjórnarmenn á
flugvellinum í Sharjah höfðu þegar
tilkynnt rannsóknarnefndinni í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um um málið en hún hefur með
höndum forræði rannsóknarinnar.
Einnig var Lufthansa, sem þotan
var í fraktflugi fyrir, tilkynnt atvik-
ið. Þormóður Þormóðsson rann-
sóknarstjóri hélt síðdegis sama dag
af stað til Dubai og var kominn
þangað í gærmorgun, tæpum sólar-
hring eftir atburðinn. RNF tilkynnti
einnig samgönguráðuneytinu um at-
vikið og auk þess fá flugmálayfir-
völd í framleiðslulandi þotunnar til-
kynningu um atvik sem þessi.
Einar Óskarsson hóf þegar að afla
frekari upplýsinga um atburðinn og
hvort áhöfnin væri heil á húfi. Einn-
ig hóf hann að samræma aðgerðir
um leið og hann hélt á vettvang. Þar
hitti hann áhöfnina og fulltrúa Luft-
hansa sem sjá um hleðslu og af-
greiðslu vélarinnar. Skoðuðu þeir
verksummerki og ræddu við fulltrúa
rannsóknarnefndarinnar en eftir
það hélt áhöfnin í læknisskoðun til
öryggis. Hjá Atlanta er opnað svo-
kallað Crisis Management Center,
sem er miðstöð fyrir stjórn aðgerða
í neyðarástandi, þegar slíkt ástand
kemur upp og eftir að Einar Ósk-
arsson hafði séð hversu alvarlegur
atburðurinn var lét hann opna mið-
stöðina strax. Hana manna ákveðnir
lykilmenn og er hlutverk þeirra að
safna öllum upplýsingum sem fáan-
legar eru um atvikið, svara fyrir-
spurnum rannsakenda og yfirvalda.
Segir Einar það mjög brýnt að geta
virkjað viðbragðsáætlun sem þessa
en hún var samin fyrir fáum miss-
erum. Í framhaldi af því voru haldin
námskeið og áætlunin æfð.
Viðbúnaður samkvæmt
viðbragðsáætlun Atlanta
BROTIST var inn í eina af þremur
tölvustofum Menntaskólans við
Sund um helgina, að öllum líkindum í
fyrrinótt, og þaðan stolið 16 nýjum
tölvuskjám. Verðmæti þeirra er um
500.000 krónur og situr skólinn uppi
með tjónið enda er hann ótryggður
fyrir slíku, líkt og aðrir menntaskól-
ar ríkisins, að sögn rektors MS. Við-
gerð á skemmdum mun líklega kosta
200.000 krónur til viðbótar.
Stofan var tekin í notkun í haust
með spánnýjum búnaði, þ.m.t. 16
flötum tölvuskjám frá IBM. Þjófa-
varnakerfi er í skólanum en Már Vil-
hjálmsson, rektor MS, segir að af
einhverjum orsökum hafi láðst að
tengja hreyfiskynjara inni í stofunni
þó að lagnir væru til staðar. Már
vissi á hinn bóginn ekki betur en að
þjófavarnakerfið inni í stofunni væri
komið í gagnið þegar brotist var inn
um helgina. Fundað verður með ör-
yggisþjónustufyrirtæki skólans og
rafvirkjum vegna málsins í dag.
Már segir líklegt að innbrotsþjóf-
arnir hafi verið 2–3, einn hafi hugs-
anlega beðið fyrir utan gluggann og
hinir rétt þýfið til hans. Allt bendi til
að þeir hafi kannað aðstæður áður en
þeir létu til skarar skríða.
Upplýsingar um raðnúmer og
gerð tölvuskjánna hafa verið settar á
vef skólans og jafnframt sendar til
tölvufyrirtækja og verkstæða.
Í stofunni voru að auki 16 nýjar
tölvur og dýr prentari en þjófarnir
virtust ekki hafa áhuga á þeim.
16 nýjum tölvuskjám stolið úr MS
Tjón skólans nemur
um 700.000 krónum
ÞORSKELDIÐ hjá Hraðfrystihúsinu – Gunnvöru hf. í
Hnífsdal (HG) fer vel af stað. Farið er að slátra og selja
vænan fisk á markaði á meginlandi Evrópu. Á þessu ári
er HG að slátra um 150 tonnum af eldisþorski og áætl-
að er að framleiðslan haustið 2005 verði um 400 tonn.
HG er stærsta sjávarútvegsfyrirtækið á Vestfjörðum
með um 250 manns í vinnu til sjós og lands.
„Við eygjum ákveðna möguleika í þorskeldinu fyrir
fyrirtækið til að vaxa,“ segir Kristján G. Jóakimsson,
framleiðslu- og markaðsstjóri HG, og framkvæmda-
stjórinn, Einar Valur Kristjánsson, segir að fyrirtækið
sé ekki að eyða peningum í eldið. „Við erum að fjár-
festa í þekkingu. Þannig horfum við á þetta.“
Að sögn Þórarins Ólafssonar, sem stýrir fiskeldis-
starfsemi HG, veltur framtíð þorskeldisins mikið á því
hvernig tekst að klekja út seiðunum. Eftir fimm ár
verði hægt að segja hvort fara eigi í þorskeldið fyrir al-
vöru eða ekki.
Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um norðanverða
Vestfirði, þar sem gætir aukinnar bjartsýni meðal íbúa.
Morgunblaðið/RAX
Kristján G. Jóakimsson, Þórarinn Ólafsson og Einar Valur Kristjánsson hjá HG í Hnífsdal með vænan eldisþorsk.
Þorskeldi í Hnífsdal lofar góðu
Frá bölmóði/14–15
TILLÖGUR um bann við botn-
vörpuveiðum á úthafinu náðu ekki
fram að ganga í tveggja mánaða
samningaviðræðum um texta álykt-
ana allsherjarþings SÞ um hafrétt-
ar- og fiskveiðimál. Íslendingar
beittu sér mjög gegn tillögunum.
Í samningaviðræðunum lagði
Kostaríka fram tillögu um hnattrænt
bráðabirgðabann við fiskveiðum með
botnvörpu á úthafinu og Noregur
lagði fram tillögu sem hneig í sömu
átt. Einungis nokkur ríki lýstu yfir
stuðningi við tillögurnar og lagðist
Ísland ásamt mörgum öðrum ríkjum
ákveðið gegn þeim og benti á að það
væri á valdi viðkomandi ríkja eða
svæðisbundinna fiskveiðistjórnunar-
stofnana að meta þörfina fyrir bann
við notkun botnvörpu á einstökum
hafsvæðum. Svo fór að tillögurnar
um hnattrænt botnvörpubann á út-
hafinu náðu ekki fram að ganga en
þess í stað tókst samkomulag um að
beina því til ríkja og svæðisbundinna
fiskveiðistjórnunarstofnana að bæta
stjórn á veiðum sem haft gætu skað-
leg áhrif á viðkvæm vistkerfi hafsins.
Banni við
botnvörpu-
veiðum afstýrt
REYKVÍKINGAR skiptast í tvær
jafnstórar fylkingar þegar spurt er
hvort Þórólfur Árnason eigi að sitja
áfram sem borgarstjóri eða segja af
sér. Rúmur helmingur (50,4%) telur
að Þórólfur eigi að sitja áfram en
tæpur helmingur (49,6%) telur að
hann eigi að segja af sér. Þetta er
niðurstaða könnunar IMG Gallup
sem gerð var dagana 5.–8. nóvember
2004 um viðhorf Reykvíkinga til Þór-
ólfs Árnasonar borgarstjóra. Nokk-
ur munur er á afstöðu svarenda eftir
aldri. Þannig telur meirihluti í
yngsta hópnum, 18–24 ára, og elsta
hópnum, 55–75 ára, að Þórólfur eigi
að sitja áfram, en meirihluti Reyk-
víkinga á aldrinum 35–54 ára telur
að Þórólfur eigi að segja af sér.
Jafnframt var spurt um ánægju
borgarbúa með störf borgarstjóra og
hefur ánægja með störf Þórólfs auk-
ist á síðustu mánuðum. Ánægja með
störf borgarstjóra er nú mæld í
þriðja sinn og hefur ánægjan aukist
frá tveimur fyrri mælingum. Þannig
segjast tæplega 77% Reykvíkinga nú
ánægð með störf hans en sama sögðu
69% í mars 2004 og rúmlega 61% í
september 2003. 36% þeirra sem eru
ánægð með störf Þórólfs telja þó að
hann eigi að segja af sér.
Ánægja með
störf borgar-
stjóra eykst
♦♦♦