Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 16

Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT BANDARÍSKIR og íraskir her- menn hófu stórsókn inn í Fallujah í Írak í fyrrinótt og náðu aðalsjúkra- húsi borgarinnar á sitt vald. Ayad Allawi, forsætisráðherra írösku bráðabirgðastjórnarinnar, kvaðst hafa heimilað hernaðinn og sagði að markmiðið væri að uppræta upp- reisnarmenn í borginni. Fallujah er álitin öflugasta vígi uppreisnarmanna úr röðum íraskra súnníta. „Við erum staðráðnir í því að hreinsa borgina af hryðjuverka- mönnum,“ sagði Allawi. Fyrsta markmið hersveitanna var að ná aðalsjúkrahúsi borgarinnar á sitt vald. Allawi og yfirmenn Banda- ríkjahers sögðu að sjúkrahúsið hefði verið á valdi uppreisnarmanna. Íraski forsætisráðherrann sagði að 38 manns hefðu beðið bana í árás- inni á sjúkrahúsið. „Við vitum ekki hvort þeir sem féllu voru Írakar. Þeir voru í sjúkrahúsinu til að fremja hryðjuverk,“ sagði Allawi. Hermennirnir sprengdu upp hurðir og drógu sjúklinga í hand- járnum fram á ganga þegar þeir leit- uðu að vopnuðum mönnum í bygg- ingunni. Allawi sagði að fjórir útlendingar, þeirra á meðal tveir Marokkómenn, hefðu verið hand- teknir. Stórskotalið og flugvélar gerðu harðar sprengjuárásir á skotmörk í Fallujah og nágrenni og bandarísk herþota skaut flugskeytum á vígi uppreisnarmanna. Fjórum 225 kíló- gramma sprengjum var varpað á borgina. Um 5.000 hermenn tóku þátt í hernaðinum í gær. Mesti borgarhernaður frá Víetnamstríðinu? Hersveitirnar náðu einnig á sitt vald tveimur brúm yfir Efrat-fljót í útjaðri borgarinnar. Yfirmenn hers- ins sögðu að erfiðasti hluti sóknar- innar væri enn eftir: þegar hermenn- irnir færu yfir á austurbakka Efrat og réðust inn í aðalborgarhlutann, meðal annars Jolan-hverfið þar sem varnir uppreisnarmanna eru taldar öflugastar. Yfirmenn hersins sögðu að sóknin gæti orðið að mesta borgarhernaðin- um frá Víetnamstríðinu. Um 10.000 bandarískir og íraskir hermenn eru í grennd við Fallujah og áætlað er að um 3.000 uppreisnarmenn séu í borginni. Íbúar hennar eru um 300.000 og talið er að um helmingur þeirra hafi þegar flúið hana. Íraska bráðabirgðastjórnin og Bandaríkjaher hafa heitið því að uppræta uppreisnarmenn úr röðum súnníta í Fallujah og fleiri borgum norðan og vestan við Bagdad fyrir kosningar sem ráðgerðar eru í Írak í janúar. Neyðarlög sett Allawi sagði að neyðarlög hefðu verið sett í Fallujah og nálægri borg, Ramadi. Vegum og opinberum bygg- ingum í borgunum tveimur var lokað og vopn voru bönnuð. Þá var alþjóða- flugvellinum í Bagdad lokað í tvo sól- arhringa og landamærin að Sýrlandi og Jórdaníu voru lokuð. Klerkar súnníta í Fallujah for- dæmdu þátttöku íraskra hermanna í sókninni. „Við sverjum við nafn guðs að við munum veita ykkur mót- spyrnu á götunum, fara inn í hús ykkar og slátra ykkur eins og sauðfé,“ sagði í yfirlýsingu frá klerk- unum. Hernaðurinn fordæmdur Bandaríkjaher sagði að uppreisn- armennirnir hefðu neytt lækna sjúkrahússins í Fallujah til að „veita rangar upplýsingar í áróðursskyni“. Herinn lagði áherslu á að sjúkrahús nytu ekki verndar ef þau væru notuð í hernaðarlegum tilgangi. Þegar bandarískar hersveitir sátu um Fallujah í apríl sögðu læknar sjúkrahússins að hundruð óbreyttra borgara hefðu beðið bana. Hörð við- brögð almennings í Írak og grann- ríkjunum urðu til þess að Banda- ríkjastjórn ákvað að fresta sókninni inn í Fallujah. Bandarískir embætt- ismenn sögðu að mannfallið í borg- inni hefði verið ýkt. Yfirmaður aðalsjúkrahússins í Fallujah fordæmdi árásina á það og neitaði því að það hefði verið á valdi uppreisnarmanna. Hann sakaði einnig Bandaríkjaher um að hafa meinað læknum og sjúkrabílum að fara inn í aðalborgarhlutann til að hjálpa þeim sem hafa særst í átök- unum. Áhrifamikil hreyfing klerka úr röðum íraskra súnníta fordæmdi hernaðinn í Fallujah í gær og sagði hann beinast gegn saklausu fólki. Hreyfingin hefur hótað að sniðganga kosningarnar. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og fleiri höfðu varað við því að hernaður í Fallujah gæti komið af stað hrinu átaka sem stefndu kosningunum í janúar í hættu. Bandaríkja- her blæs til stórsóknar í Fallujah AP Uppreisnarmenn í Fallujah í Írak gera árás á bandaríska hermenn sem hófu mikla sókn inn í borgina í gær. Fallujah. AP. BRÉFIÐ sem Bobby Fischer, fyrr- verandi heimsmeistari í skák, sendi Þórði Ægi Óskarssyni, sendi- herra Íslands í Japan, og sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær, er handskrifað og dagsett 27. októ- ber. Bréfritari kynnir sig sem „Ro- bert James Fischer, fórnarlamb mannráns, sem haldið er ólöglega í varðhaldi í Austur-Japan, Ushiku, Ibaraki-héraði í Japan, klefa núm- er 202“. Í frétt Morgunblaðsins í gær kom fram að ekki væri til alvar- legrar skoðunar hjá íslenskum stjórnvöldum að veita Fischer hæli. Vekur athygli að á heimasíðu sem nefnd er í bréfi Fischers segir nú að „Bobby“ hafi „komið Íslandi á kortið árið 1972“. „Nú virðist sem Íslendingar vilji ekki hreyfa litlaputta til að bjarga lífi Bobbys undan hinu svívirðilega samsæri Bandaríkjanna og Japans um að drepa hann,“ segir þar síðan. Bréf Fischers er annars svo- hljóðandi: „Kæri herra Óskarsson. Í fram- haldi af símasamtali okkar frá því fyrr í dag skrifa ég þér nú með formlegum hætti í því skyni að biðja um pólitískt hæli á Íslandi. Til að fá heildstæða sýn á bak- grunn málsins farðu vinsamlegast á vefsíðuna http://home.att.ne.jp/ moon/fischer og hladdu niður og prentaðu út greinina „Staðreyndir málsins“ [e. Statement of facts]. Það er sérstaklega mikilvægt að þið veitið mér pólitískt hæli án taf- ar því geislavirk efni leka nú úr kjarnorkuverinu í Tokaimura og hafa raunar verið að gera stöðugt síðustu fimm ár- in. 30. sept- ember 1999 varð afar stórt kjarn- orkuslys þar og tveir starfsmenn versins létust og a.m.k. 660 íbúar bæjarins urðu fyrir geislun. Sjá grein í „The Daily Yomiuri“ dagsetta 2. októ- ber 2004 sem nefnist „Kjarn- orkufyrirtæki breyta öryggis- hegðun“, eftir Toshiaki Sato, Tatsuo Nanjima og Isaku Modera, blaðamenn á Yomiuri Shimbun (sem kann að vera á vefsíðunni sem nefnt er hér að ofan). Við þetta bætast þær nýlegu fréttir að annað „minni háttar“ slys hafi orðið 14. október 2004 en þá slapp út í andrúmsloftið umtals- vert magn af „lítið“ geislavirkum efnum. Sjá grein á japönsku í dag- blaðinu „Nikkei“ frá 17. október 2004 og enska þýðingu þess (sem einnig kann að vera á áðurnefndri vefsíðu). Ég hef grátbeðið (skriflega) um að fá að vera fluttur í aðrar inn- flytjendabúðir í Japan en yfirvöld/ mannræningjarnir hérna neita því hreint út og segja að japanska heilbrigðisráðuneytið hafi sagt að engin heilsufarsleg hætta stafi af kjarnorkuverinu í Tokaimura. Þessi „loforð“ valda því að mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds (eða kannski heitt eins og ef um geislavirkt efni væri að ræða?). Bandarísku/japönsku stjórnvöldin/glæpalýðurinn hafa því gefið mér þessa kosti: að vera áfram hér í hinni geislavirku Ushiku og deyja af völdum geislaeitr- unar eða gefa þennan slag upp á bátinn og samþykkja hina ólöglegu „brottvikn- ingu“ úr landi og til Banda- ríkjanna þar sem ég yrði fangelsaður, pyntaður og myrtur. Það er allt eins lík- legt að tilneydd nálægð mín við geislavirk efni frá Tokaimura-kjarnorkuverinu þýði að dauði verði hvort eð er ekki umflúinn og að ég deyi hörmuleg- um dauða af völdum krabbameins. En jafnvel þó að það væri stað- reynd þá myndi ég vilja deyja frjáls maður í vinsamlegu þriðja ríki.“ Gefur Fischer síðan upp tengilið sinn í Japan, Miyoko Watai, og þar á eftir kemur svo undirskrift hans. Neðst hefur hann svo bætt þessu við: „P.s. ef bandarísk stjórnvöld segja þér (eins og ég er viss um að þau muni gera) að það „væri ekki gott fyrir samband Bandaríkjanna og Íslands“ ef þið veittuð mér póli- tískt hæli þá ættirðu að segja þeim þau tíðindi að: „Nei, það séu glæp- ir ykkar gagnvart hr. Fischer sem eru skaðleg fyrir samskipti Banda- ríkjanna og Íslands.“ Ég myndi svo gjarnan vilja sjá hvernig þeir brygðust við því!“ Bréf Bobbys Fischers til sendiherra Íslands í Japan Vill deyja frjáls maður í vinsamlegu ríki Bobby Fischer MOHAMED ElBaradei, yfirmað- ur Alþjóðakjarnorkumálastofnun- arinnar (IAEA), segir veröldina í „kapphlaupi við tímann“ um að fyrirbyggja að kjarnorkuvopn berist í hendur hryðjuverka- manna. Grípa þurfi til ráðstafana þegar í stað ætli menn ekki að vakna upp við það einn daginn að framið hafi verið hryðjuverk í lík- ingu við árásina 11. september 2001 með kjarnorkuvopnum. ElBaradei var að ávarpa tveggja daga ráðstefnu sem hald- in er í Sydney í Ástralíu um bar- áttuna gegn frekari útbreiðslu kjarnorkuvopna. Sagði hann að veröldin væri ekki í stakk búin til að takast á við kjarnorkuvopna- eða geislaárás hryðjuverkamanna og því yrði að efla varnir gegn út- breiðslu slíkra vopna þegar í stað. ElBaradei sagði að nýtt hugar- far þyrfti að koma til. Fyrir 11. september 2001 hefðu menn aldr- ei gert sér í hugarlund að hryðju- verkamenn kynnu vísvitandi að nota kjarnorku- eða geislavopn eða að þeir myndu reynast viljugir til að fórna eigin lífi. Árásin á Bandaríkin og aukin, ólögleg verslun með geislaefni ylli því hins vegar að áður álitin sannindi um öryggi í kjarnorkumálum ættu ekki lengur við. „Við þurfum að grípa til fyrir- byggjandi aðgerða áður en við stöndum frammi fyrir kjarnorku- eða geislavopna- vá. Við eigum ekki að bíða þess að 11. septem- ber endurtaki sig eða atburður eins og kjarn- orkuslysið í Tsjernóbyl eigi sér stað,“ sagði ElBaradei. „Hættan er alls staðar fyrir hendi. Hún er raunveruleg, hún blasir við okkur og hún er alls staðar. Við verðum að biðja þess heitt að ekkert gerist.“ Fleiri ríki auðga úran ElBaradei ræddi Íran sérstak- lega og sagði bráðabirgðasam- komulag sem náðist fyrir tilstilli Frakka, Þjóðverja og Breta í síð- ustu viku skref í rétta átt, en Ír- anir eru grunaðir um að vilja koma sér upp kjarnorkuvopnum. Vakti ElBaradei athygli á því að ríki sem búið væri að koma sér upp auðguðu úrani eða plútoni gæti framleitt kjarnorkuvopn á aðeins nokkrum mánuðum. Ekki væri gaman til þess að hugsa að eftir 10-30 ár ættu 40-50 ríki auðg- að úran eða plúton. „Við þær að- stæður sem ríkja eftir 11. sept- ember veldur það miklum áhyggjum að horfa upp á stöðuga fjölgun þeirra ríkja sem vinna að auðgun úrans,“ sagði hann. Baráttan gegn útbreiðslu kjarna- vopna sögð „kapphlaup við tímann“ Óttast að hryðju- verkamenn beiti kjarnavopnum Sydney. AP, AFP. Mohamed ElBaradei

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.