Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FORSETI palestínska þingsins
krafðist þess í gær að eiginkona
Yassers Arafats, forseta Palestínu-
manna, bæðist afsökunar á ummæl-
um um að palestínskir embættis-
menn hygðust „grafa hann lifandi“.
„Örfáir menn, sem reyna að erfa
völdin, ætla að koma til Parísar til að
reyna að grafa Abu Ammar [Arafat]
lifandi. Ég bið ykkur að athuga um-
fang þessa samsæris,“ sagði eigin-
kona palestínska forsetans, Suha
Arafat, í stuttu viðtali við arabíska
gervihnattasjónvarpið Al-Jazeera í
fyrrakvöld.
Suha Arafat skírskotaði til
Mahmuds Abbas, starfandi leiðtoga
Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO), Ahmeds Qureis forsætisráð-
herra og Nabils Shaath utanríkis-
ráðherra.
Embættismennirnir þrír höfðu
ákveðið að heimsækja Arafat á
sjúkrahús í París og fyrstu viðbrögð
þeirra við ummælum eiginkonunnar
voru þau að hætta við ferðina. Þeir
ákváðu þó síðar að heimsækja Arafat
í gær ásamt forseta palestínska
þingsins, Rawhi Fattuh.
Fimm æðstu embættismenn Pal-
estínumanna voru því erlendis í gær.
Palestínski utanríkisráðherrann
sagði að þeir vildu hitta Arafat til að
fá „raunverulegar upplýsingar“ um
ástand hans.
„Ekki eign lítillar fjölskyldu“
Tayeb Abdelrahim, skrifstofu-
stjóri í höfuðstöðvum Arafats í
Ramallah, sagði að palestínsku emb-
ættismennirnir væru „forviða“ á
þeirri ásökun eiginkonu Arafats að
þeir færu til Parísar í því skyni að
„grafa hann lifandi“.
„Arafat er ekki eign lítillar fjöl-
skyldu,“ sagði hann. „Hann starfar
fyrir alla palestínsku þjóðina og við
biðjum til Guðs að hann komi aftur
heill heilsu til að láta draum sinn um
Palestínuríki rætast. Enginn getur
komið í veg fyrir að leiðtogarnir afli
sér upplýsinga um heilsu forsetans.“
Forseti þingsins krafðist þess að
Suha Arafat bæði palestínsku þjóð-
ina afsökunar á ummælunum. „Það
er óviðunandi að Suha ráði því ein
hvaða upplýsingar eru veittar [um
ástand Arafats],“ sagði Fattuh.
Palestínskir embættismenn, fjöl-
miðlar í Ísrael og fréttaskýrendur
hafa gagnrýnt Suha Arafat fyrir að
hafa ekki veitt nægar upplýsingar
um ástand forsetans. Þeir segja að
þögn hennar hafi orðið til þess að
fjölmargar kviksögur hafi komist á
kreik.
Sögð styðja harðlínumenn
Fregnir herma að Suha Arafat
hafi á síðustu dögum skipað sér við
hlið palestínskra embættismanna
sem eru andvígir núverandi forystu-
mönnum Palestínumanna.
Hún er sögð hafa tekið afstöðu
með harðlínumönnum í PLO sem
lögðust gegn friðarsamningunum við
Palestínumenn 1993. Svo virðist sem
þeir séu að reyna að ná völdunum í
PLO.
Suha Arafat hefur búið í París síð-
ustu árin og fengið rausnarlegt
framfærslufé frá eiginmanni sínum.
Frönsk yfirvöld eru að rannsaka
ásakanir um að palestínskir embætt-
ismenn hafi lagt sem svarar tæpum
800 milljónum króna inn á banka-
reikninga hennar með ólöglegum
hætti.
„Þetta virðist vera einhvers konar
ágreiningur um peninga og eignir,
vegna þess að Suha hefur ekki neina
pólitíska stöðu í palestínska kerf-
inu,“ sagði Hani Masri, palestínskur
fréttaskýrandi. Hann bætti þó við að
einnig væri hugsanlegt að Suha Ara-
fat sæktist eftir pólitískum völdum.
AP
Ungir Palestínumenn á mótmælafundi til stuðnings Yasser Arafat í bænum Nablus á Vesturbakkanum.
Krefjast afsökunar-
beiðni frá Suha Arafat
Sagði embættismenn ætla að „grafa Arafat lifandi“
Ramallah. AFP, AP.
MARGIR Palestínumenn hafa litið á eiginkonu Yassers
Arafats, Suha, sem spillta yfirstéttarkonu er kosið hafi
að lifa í munaði í París í stað þess að vera við hlið eig-
inmanns síns í Ramallah þegar ísraelskar hersveitir
sátu um höfuðstöðvar hans. Svo virðist sem hún sé nú
ein af helstu þátttakendunum í valdabaráttu sem fram
hefur farið á bak við tjöldin frá því að Arafat veiktist
alvarlega.
Suha Arafat fæddist í Nablus og var ritari Arafats
þegar hann var í útlegð í Túnis. Hún var kristin en
snerist til íslamskrar trúar og giftist palestínska leið-
toganum 1991.
Hún var 28 ára og 34 árum yngri en Arafat þegar
þau gengu í hjónaband. Hún varð strax mjög óvinsæl
meðal Palestínumanna.
Fram komu samsæriskenningar um að móðir Suha,
Ramonda Tawil, þekkt palestínsk blaðakona, hefði
skipulagt ráðahaginn í því skyni að ná tökum á Arafat.
Óvildin í garð Suha jókst þegar hún fór á Gaza-
svæðið árið 1994 og neitaði að hylja sítt og ljóst hárið
með hefðbundinni íslamskri höfuðslæðu. Dýr klæðn-
aður hennar og glæsibifreið, sem hún ók um götur
Gaza, vöktu einnig reiði margra fátækra Palest-
ínumanna.
Suha Arafat olli einnig gremju meðal palestískra
embættismanna með yfirlýsingum sem stönguðust á við
stefnu þeirra. Eitt sinn lét hún til að mynda í ljósi sam-
úð með herskáum hreyfingum þegar palestínska
heimastjórnin reyndi að hafa hemil á þeim.
Árið 1999 kom Suha Hillary Rodham Clinton, þáver-
andi forsetafrú Bandaríkjanna, í vandræði með því að
saka Ísraela um að beita eiturgasi gegn Palest-
ínumönnum og valda þannig krabbameini á meðal
þeirra. Suha hafði faðmað og kysst Hillary Clinton, sem
lýsti fundi þeirra sem „verstu mistökum“ sínum í bar-
áttunni fyrir kosningarnar til öldungadeildarinnar árið
2000.
Eftir að Arafat fordæmdi „öll hryðjuverk sem bein-
ast að óbreyttum borgurum“ árið 2002 sagði Suha í við-
tali við arabískt dagblað að ef hún ætti son myndi henni
þykja „mesti heiður að því að fórna honum fyrir palest-
ínska málstaðinn“ og skírskotaði til sjálfsmorðsárása.
Þegar átök Ísraela og Palestínumanna hófust árið
2000 flúði Suha með dóttur sinni til Parísar. Hún fór
ekki aftur til Ramallah fyrr en í síðasta mánuði þegar
Arafat veiktist alvarlega.
Óvinsæl forsetafrú
AP
Yasser Arafat með eiginkonu sinni, Suha, þegar þau
fóru frá höfuðstöðvum hans í Ramallah 29. október.