Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 40

Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Risaeðlugrín © DARGAUD SLÆMUR VEFDAGUR OG VERÐUR VERRI HÉR KEM ÉG EFTIR AÐ HAFA BORÐAÐ MEÐ FLUG- FREYJUNUM ÞETTA VAR YNDILEGUR MATUR... SÍÐAN SAGÐI ÉG ÞEIM FRÁ ÞVÍ ÞEGAR ÉG AÐ BARÐIST Í FYRRA STRÍÐINU... HANN ER REIÐUR ÞVÍ HANN FÉKK EKKI AÐ KOMA MEÐ FLUGFREYJUR HAFA EKKI ÁHUGA Á ÞEIM SEM FLJÚGA ALLTAF Á KVOLFI HOBBES, HVAÐ HELDUR ÞÚ AÐ GERIST ÞEGAR VIÐ DEYJUM? ÉG HELD AÐ VIÐ SPILUM Á SAXAFÓN FYRIR FULLUM SAL AF STELPUM ÞÚ TRÚIR ÞÁ Á HIMNARÍKI? ÞAÐ MÁ SEGJA ÞAÐ... HVAÐ Á ÞETTA EIGINLEGA AÐ ÞÝÐA? HVERNIG EIGUM VIÐ AÐ HANDSAMA MORÐINGJANN EF FÓRNARLAMBIÐ ER RISIÐ UPP FRÁ DAUÐUM? ÞETTA ER ALVEG HREINT SKAMMARLEGT! ÞAÐ ER RÉTT! HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ ÞÚ VARST DAUÐUR FYRIR FIMM MÍNÚTUM SÍÐAN EN ERT LIFANDI NÚNA? Ö... ÉG SKIL EKKI ALVEG HVAÐ ÞÚ ERT AÐ FARA. ÉG KOM HINGAÐ Í MORGUN TIL ÞESS AÐ VEIÐA BJELEMIT VEIÐA HVAÐ? BJELEMIT ERU SKELJAR SEM ÉG NOTA OFT Í SALAT EÐA SÚPU. ÉG HEF AÐ ÖLLUM LÍKINDUM BORÐAÐ OF MIKIÐ AF ÞEIM, ÞVÍ MÉR VARÐ ILLT Í MAGANUM OG ÞESS VEGNA LAGÐI ÉG MIG OG ÞETTA! HVAÐ ER ÞETTA?! ÞETTA ER SKELIN UTAN AF BJELEMINUM. ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ BORÐA HANA ANSANS! ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ ÞÚ ERT... FÓRNARLÖMIN Í ÞESSU MÁLI ERU GREINI- LEGA SKELFISKARNIR. ÞAÐ HEFUR VERIÐ FRAMIÐ FJÖLDAMORÐ! OG MORÐINGINN ER... HANN!! HVAÐ?!? BEINA LEIÐ Í STEININN MEÐ ÞIG! STJÓRI, GÆTIRÐU NOKKUÐ KALLAÐ Á LIÐSAUKA TIL ÞESS AÐ GERA ÚTLÍNUR Í KRINGUM ÖLL FÓRNARLÖMBIN Dagbók Í dag er þriðjudagur 9. nóvember, 314. dagur ársins 2004 Víkverji horfir sjald-an á glæpaþætti í sjónvarpi. Hefur raun- ar ekki haldið þræði í þáttum af því tagi síð- an Derrick og Hunter voru og hétu. Það voru kempur í lagi. Kannski er þetta að breytast, alla vega hefur Vík- verji horft í haust nokkrum sinnum á ágætan glæpaþátt á Skjá einum sem nefn- ist CSI: Miami. Þátt- urinn er frumsýndur á fimmtudagskvöldum og endursýndur a.m.k. tvisvar sinnum yfir vikuna. Það er ágætur siður hjá Skjásurum. CSI: Miami fjallar um réttarrann- sóknadeild lögreglunnar í sam- nefndri borg í Bandaríkjunum sem tínir spörð og leysir gátur af fag- mennsku og fumleysi. Fyrir liðinu fer Horatio nokkur Caine sem leikinn er af David Car- uso. Hann er með svölustu mönnum í sjónvarpi. Talar í stuttum, hnitmið- uðum setningum – hvert orð hefur til- gang – og er ávallt með undirtökin í samskiptum sínum við meinta glæpa- menn. Afvopnar þá jafnt í orði sem á borði. Er öryggið uppmálað. x x x David Caruso eróvenjuleg sjón- varpsstjarna – hann er rauðhærður. Karlkyns sjónvarpsstjörnur eru að öllu jöfnu ekki rauð- hærðar, hvað þá kvik- myndastjörnur. Vík- verji er sjálfur rauðhærður og hefur löngum furðað sig á þessu, einkum í upp- vextinum. Þegar Vík- verji var að vaxa úr grasi var Bjarni Fel. eini rauðhærði mað- urinn í sjónvarpi og hann er fyrir margt löngu tekinn að grána. Það segir líka sína sögu að Bjarni haslaði sér völl á dögum svart- hvíta sjónvarpsins. Það var ekki fyrr en síðar að „Rauða ljónið“ kom í ljós. Snörp innkoma Carusos í sjónvarp á síðustu árum er því geypilega mik- ilvæg fyrir þessa afskiptu ljós- vakategund, rauðhærða manninn. Framganga hans gefur öðrum von. Rauðhærðir menn eiga erindi í sjón- varp og jafnvel alla leið á hvíta tjald- ið! Fullyrðing sem þótt hefði fjar- stæðukennd fyrir fáeinum árum en er nú sett fram í fúlustu alvöru. Tím- arnir breytast og mennirnir með. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is             Rauðagerði | Íslenskir hljómlistarmenn fögnuðu vel um helgina þegar nýtt hús var tekið í notkun að Rauðagerði 27, þar sem Félag íslenskra hljómlist- armanna hefur skrifstofur sínar, skóla og aðra vinnuaðstöðu. Nú eru alls þrjú hús á lóð FÍH, en nýjasta húsið er um 500 ferm. og hýsir nú skrifstofur, upp- tökuhljóðver og æfingaaðstöðu, ásamt kaffistofu fyrir félagsmenn og nem- endur skóla FÍH. Þeir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson tóku lag- ið fyrir félaga sína af þessu ánægjulega tilefni. Morgunblaðið/Sverrir Áfanga fagnað MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Vitið þér ekki, að ef þér bjóðið öðrum sjálfa yður fyrir þjóna og hlýðið honum, þá eruð þér þjónar þess, sem þér hlýðið, hvort heldur er syndar til dauða eða hlýðni til réttlætis? (Rómv. 6, 16.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.