Morgunblaðið - 09.11.2004, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 09.11.2004, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 45 06.11. 2004 Sexfaldur 1. vinningur í næstu viku 7 9 4 0 5 6 6 7 6 4 8 16 17 27 33 4 03.11. 2004 1 5 6 11 13 14 2 16 4 410 4000 | landsbanki.is Banki allra námsmanna Tilboðið gildir á allar erlendar myndir í Smárabíói, Laugarásbíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri þegar þú greiðir með Námukortinu. Góða skemmtun! og kynþokkafullur einkaritari eða kvikmyndagoðsögn,“ sagði Kylie á kynningunni. Ekkert lát virðist vera á vinsæld- um þessarar 36 ára gömlu áströlsku söngkonu. Hún sendir frá sér plötu með vinsælustu lögum sínum síðar í mánuðinum og hefur tónleika- ferðalag um Bretland í mars. POPPPRINSESSAN Kylie Minogue er komin með nýja undirfatalínu í kjölfar mikilla vinsælda Love Kylie- nærfatanna. Kylie kynnti nýju línuna, LK legs, sem byggist upp á sokka- buxum, í London en þar mátti m.a. sjá netsokkabuxur og sokkabönd. „LK legs er fyrir allar konur, hvort sem þær stefna að því að líta út eins Tíska | Línan LK legs kynnt í London Reuters Kylie Minogue fagnar nýju sokkabuxnalínunni ásamt fyrirsætum. Kylie komin í sokkabuxurnar SUMARIÐ 2002 kom út skemmtileg plata með hljómsveit skipaðri frænd- um sem allir áttu ættir að rekja til bæjarins Syðri-Ár sem er norðvestan við Ólafsfjörð, í sveitinni Kleif- um. Það sem ein- kenndi þá plötu fyrst og fremst var taumlaus spilagleði og á þessari annarri plötu sveitarinnar er það sama upp á teningnum. Á þessari nýju plötu, ann- arri plötu sveitarinnar, sem kom út í sumar, er spilagleðin enn við völd, enda er hún skipuð fantafínum spil- urum sem klárlega hafa unun og yndi af því að spila saman og syngja al- þýðutónlist, hvaðanæva úr heiminum. Ef eitthvað – séu plöturnar á annað borð bornar saman – þá er þessi nýja plata betur heppnuð, því bæði lögin og spilamennskan eru í hærri gæða- flokki, eins og þeir félagar hafi lagt í hana meiri vinnu og ákveðið að fórn- að ofurlitlu af fjörinu fyrir vandaðri tónlist. Þar með er ekki sagt að létt- leikinn sé eitthvað minni. Þvert á móti er platan uppfull af bráð- skemmtilegum lögum, sérstaklega fyrir þá sem gaman hafa af alþýðlegri og dansvænni heimstónlist, áþekkri þeirri sem Spaðar hafa verið að leika. Þeir Syðri-Ár-menn semja sjálfir flest lög og texta og ferst í það heila prýðilega úr hendi; formin leika í höndunum á þeim, suðrænir dansar, djangódjass, sveitasöngvar, írskir dansar og hressilegir rælar. Inni- halda textanna hæfir lögunum. Fjalla um útþrána, eru dagdraumar í norð- lægu skammdeginu um suðræna vinda og sól í haga, bóhemalífið og glaum og gleði. Hún gerir sig ekki öll, platan. Þau ganga ekki eins vel upp gáskafyllri lögin; „Hef weri fyrir westan“, „Vaknaði í veröldinni“ og „Zansibar“. Soldið klaufaleg lög, húmorinn ekki allt of vel heppnaður. Lag Ólafs Þórðarsonar við texta Helga Þórs Ingasonar „Bí ba bum“ er hins vegar sérdeilis gott og gríp- andi, lag sem vafalaust er hin besta skemmtun að stíga suðræna sveiflu við á dansleik með sveitinni. Slav- neski tregasöngurinn „Ég geng í myrkri“ eftir Kormák Bragason, við texta Braga Sigurjónsson, er vel heppnaður og gæti verið eftir þá bræður Jónas og Jón Múla. Sama má segja um áhrifaríkt lag Matthíasar Stefánssonar „Í dögun“ við sögu- legan og vel heppnaðan texta Kor- máks, en tilkoma hins fjölhæfa og bráðsnjalla Matthíasar er mikill feng- ur fyrir bandið. Þá bera að geta áhugaverðs nýs lags á kúbönskum nótum eftir Ólaf Þórðar við ljóð Jóns Thoroddsens Vorið er komið. Talandi um kúbanskar nótur þá minnir perla plötunnar einna helst á Buena Vista gengið, svo einstök er hún. Það er lokalag plötunnar, einstaklega fal- legur og innilegur flutningur Jóns heitins Árnasonar, fyrrum liðsmanns í South River Band og bónda við Syðri-Á, á eigin ljóði „Nú ertu horf- in“, við erlent lag. En burtséð frá því þá er hér á ferð bráðskemmtileg plata sem ætti að gleðja alla þá sem gaman hafa af hressilegri og vel leikinni alþýðu- tónlist. TÓNLIST Íslenskar plötur South River Band – Maður gæti beðið um betra veður  South River Band: Grétar Ingi Grétarsson kontrabassi, söngur, Gunnar Reynir Þor- steinsson slagverk/söngur, Helgi Þór Ingason harmonika, söngur, Kormákur Þráinn Bragason gítar/söngur, Matthías Stefánsson fiðla/gítar/banjo, Ólafur Sig- urðsson mandólín/söngur, Ólafur Þórð- arson gítar/söngur. Allar útsetningar og flest lög eftir liðsmenn South River Band. Útgefandi Söngkvöldafélagið srb. Skarphéðinn Guðmundsson Spilagleði við völd HLJÓMSVEITIN BRaK er sam- starfsverkefni þeirra félaga Haf- þórs Ragnarssonar og Haraldar Gunnlaugssonar. Þeir félagar hafa verið lengi viðloð- andi tónlist, og hafa verið í slag- togi með ýmsum hljómsveitum; t.d. Hafþór með Son- um Raspútíns og Haraldur með Tennessee Trans. Hér koma þeir, undir nafninu BRaK, fram með sína fyrstu plötu, sem nefnist Silf- urkross og inniheldur þétt íslenskt popprokk. Platan byrjar mjög vel, á hinu kröftuga „Núna“ með býsna góð- um texta og mjög snyrtilegu und- irspili, þar sem orgelið setur punktinn yfir i-ið. Í kjölfarið kem- ur „Álfar“, sterkt lag með ansi Kashmir (Led Zeppelin) skotnum millikafla. Þrátt fyrir að þessi tvö lög lofi góðu um framhaldið er raunin því miður önnur. Strax í þriðja lagi, hinu einhæfa „Engill“, dettur allt niður í fen með- almennskunnar. Tónlistin fer að hljóma líkt og einhvers konar samblanda af Skítamóral og Six- ties, með fullri virðingu fyrir þess- um tveimur ágætu hljómsveitum. Þegar líður að seinni hluta plöt- unnar breytast hlutirnir þó aftur til batnaðar. Þeir ná að rífa sig upp í titillaginu „Silfurkross“, ágætis slagara, með nokkuð ávanabindandi melódíu, þó litaður af áðurnefndri blöndu. Lögin „Veröld veit“ og „Hugmynd“ eru mjög vel heppnuð popplög sem bera höfundum sínum gott vitni. Þessi plata geldur fyrir það að vera fyrsta plata hljómsveit- arinnar, hálfgerður byrjendabrag- ur er hér á ýmsu. Í því efni verður að nefna sérstaklega hljóðblönd- unina sem er einfaldlega ekki nógu góð, t.d. er söngur bæði of framarlega og hljómburður hans ekki góður. Þetta er reyndar mis- munandi milli laga, oftast nær þokkalegt en ekki alltaf. Verst er þetta í laginu „Vinur minn“ en þar er það arfaslæmt, ekkert sam- hengi milli söngs og undirleiks, svo átakanlegt verður á að hlýða. Byrjendamistök sem hefði mátt komast hjá hefði kunnáttumaður verið með í ráðum. Annað sem þessi plata geldur fyrir er að lögin koma dálítið hvert úr sinni áttinni og hafa ekki neinn ákveðinn sam- nefnara, en stílhallæri virðist hrjá hljómsveitina að einhverju marki. Þegar á heildina er litið er þessi plata nokkuð vel heppnuð frum- raun. Hún er langt frá því galla- laus, en þau lög sem uppúr standa sýna þó svo ekki verður um villst að hér fara snjallir lagasmiðir. Hljóðfæraleikur er allur til fyr- irmyndar á þessari plötu. Textarn- ir eru oftar en ekki spaugskotnir, og eru sumir hverjir nokkuð góðir, sérstaklega í lögunum „Núna“ og „Hugmynd“. Greinilegt er að þeir félagar eiga heilmikið inni, en eru kannski að spara sig fullmikið hér á þessari plötu. Er það miður því þeir virðast hafa alla burði til að gera eitt og annað, og verður spennandi að sjá hverju fram vindur. TÓNLIST Íslenskar plötur BRaK – Silfurkross  Hljómsveitin BRaK hefur sent frá sér sína fyrstu plötu, Silfurkross. BRaK skipa þeir Hafþór Ragnarsson (söngur/raddir/ hljómborð/aukahljóð) og Haraldur Gunn- laugsson (gítar/bassi/hljómborð/ raddir) og eru öll lög eftir þá félaga, en textar eftir Hafþór. Með þeim leika þeir Ingi S. Skúlason (bassi), Ólafur Þór Krist- jánsson (bassi) og Smári Sigurðsson (trommur), auk þess sem Geirmundur Valtýsson leikur á harmónikku í einu lagi. Um hljóðupptökur sáu Haraldur Gunn- laugsson, Hafþór Ragnarsson og Hjörtur Gunnlaugsson, um upptökustjórn, hljóð- og tónjöfnun sá Haraldur Gunnlaugsson. BRaK gefur út. 44.33 mínútur. Grétar Mar Hreggviðsson Brak en fáir brestir Vönduð ryðfrí húsaskilti Fjölbreytt myndaval HÚSASKILTI Klapparstíg 44, sími 562 3614 18. nóvember er síðasti pöntunar- dagur fyrir jól 4 Síðasti pöntunardagur fyrir jól 13. nóvember

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.