Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 49

Morgunblaðið - 09.11.2004, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2004 49 Hljómsveitin Travis sendifrá sér plötu, sem inni-heldur öll smáskífulögsveitarinnar fá upphafi, í síðustu viku. Þessi skoska sveit hefur sannarlega innistæðu fyrir svona safndisk en sveitin hefur gefið út fjór- ar plötur sem komist hafa á topp tíu í Bretlandi, unnið til fjölda verðlauna, þ.á m. þriggja Brit-verðlauna, og selt átta milljónir platna á heimsvísu. Sveitin er sem stendur að vinna að næstu plötu og tók gítarleikarinn Andy Dunlop því fagnandi að taka smáhlé til að ræða um safnplötuna, sem heitir því gegnsæja nafni Singl- es. „Þetta er stórt skref fyrir okkur. Það er skrýtið að geta sent frá okkur plötu með smáskífum. Þetta er sér- stök tilfinning. Þegar maður er í hljómsveit verður maður sífellt að stíga skref áfram og fara á næsta stig. Það var því gaman að fá tæki- færi til að líta til baka,“ segir Andy. Eldast eins og gott vín „Það var sérstaklega gaman að skoða gamlar myndbandsupptökur. Ég sá hvað við höfum elst mikið. En auðvitað vel, eins og gott vín,“ grínast Andy. Samhliða útgáfunni á disknum kemur út mynddiskur, sem inniheld- ur myndbönd við smáskífurnar í tímaröð, upptökur frá tónleikum Travis á Glastonbury, tökur frá Top of the Pops, fyrstu tónleikaútgáfuna af „Baby One More Time“ og margt fleira. „Það var virkilega gaman að horfa á gamlar myndbandsupptökur af okkur að spila á fyrstu tónleikunum og þannig. Fyrsta ferðin okkar til Ameríku er þarna og mikið af upp- tökum í gegnum árin.“ Hann segist ekki hafa getað ímyndað sér þegar hljómsveitin skrifaði undir samning árið 1996 að átta árum síðar kæmi út safndiskur af þessu tagi. „Í fyrsta lagi var maður bara feginn að geta gefið út eina plötu. Við vorum búnir að vera í hljómsveit í sex ár á undan því. Og þegar næsta plata á eftir kom út og henni gekk vel þá hugsaði maður, vá – það er kannski eitthvað eftir í þessu. Við trúðum því sjálfir að við værum góðir en vissum ekki hvort einhverjir aðrir væru sammála okk- ur,“ segir hann og er ánægður með þróunina. Andy og hinir strákarnir í hljóm- sveitinni, Fran Healy söngvari, Neil Primrose trommari og bassaleik- arinn Dougie Payne, hafa haft gaman af því að líta til fortíðar. „Það er búið að vera frábært og það er gaman að velta því fyrir sér hvernig við kom- umst hingað. Maður er hálfpartinn búinn að gleyma sumu sem við höfum gert. Það var frábært að hlusta á all- ar smáskífurnar og sjá að við höfum áorkað ýmsu,“ segir hann. „Þetta hefur verið gott tækifæri til að horfa til baka og gleðjast,“ segir hann. Eitt nýtt lag er á plötunni, „Walk- ing in the Sun“ en það er nýja smá- skífan þeirra. Aukalag á smáskífunni er „The Distance“ sem er samið og sungið af bassaleikaranum Dougie en annars er söngvarinn Fran Healy aðallagasmiður sveitarinnar. Sneið af poppköku „Walking in the Sun“ lýsir Andy sem „ekta popplagi, sneið af popp- köku“. „Síðasta plata var frekar dimm en núna þegar við fórum í hljóðver ákváðum við að gera eitt- hvað bjart. Þetta er lag sem lætur manni líða vel,“ segir Andy. Hann segist ekki geta sagt til um hvort lagið gefi góða mynd af næstu plötu. „Það er of snemmt að segja til um það. Við erum búnir að vera að æfa ný lög. Platan er á skemmtilegu stigi og við erum að prófa okkur áfram í ýmsar áttir,“ segir Andy en upptökur fara fram í London. Það kemur ekki á óvart svarið við því hvað sé það erfiðasta sem hljóm- sveitin hafi gengið í gegnum saman. „Það var slysið sem Neil lenti í,“ seg- ir hann en trommarinn stakk sér til sunds í grunna enda sundlaugar og slasaðist alvarlega en hafði það af og hljómsveitin hélt áfram. „Þetta var erfitt en það kom eitthvað gott útúr þessu. Við vorum farnir að verða of andvaralausir. Við vorum búnir að vera endalaust á tónleikaferðalagi og allir orðnir þreyttir. Við vorum mjög áhyggjufullir vegna Neil og héldum að þetta yrðu endalok hljómsveit- arinnar. Þegar Neil batnaði hugs- uðum við allir að hjómsveitin væri mikilvæg fyrir okkur og tökum þessu ekki lengur sem sjálfsögðum hlut. Sem betur fer gekk allt upp núna og Neil er í frábæru formi,“ segir Andy. Hann segir þá vera orðna þrosk- aðari og skynsamari en alveg eins metnaðarfullla. Hann segist ekki geta beðið eftir því að klára nýju plöt- una „og komast á tónleikaferðalag og spila fyrir fólk. Það er skemmtileg- asti hlutinn“. Vinna við plötuna heldur áfram fram á næsta ár og býst Andy við að platan komi út snemmsumars. Nágrannar í norðri Andy segir að Travis hugsi fallega til Íslands eftir að hafa haldið tón- leika hér í júlí 2002, rétt áður en Neil lenti í slysinu. „Við fórum á hestbak og á snjósleða og keyrðum um að skoða landið. Ég held að allar hljóm- sveitir sem koma til Íslands tali vel um landið. Og tónleikarnir voru frá- bærir. Fólk virtist kunna að meta tónlistina okkar.“ Andy segir að Skotar og Íslend- ingar séu ekki svo ósvipaðar þjóðir. Hann bendir á að þetta séu báðar skapandi þjóðir og heldur að veðrið spili sinn þátt í því. „Þegar það er kalt úti þarftu að fara inn og gera eitthvað annað. Það er alltaf rigning í Skot- landi og fólk leitar skjóls og tekur upp hljóðfærin eða fær sér drykk saman. Fólk verður að vera skapandi og hafa ofan af fyrir sér í litlu rými. Ég held að þetta sé ástæðan fyrir því að það koma margar frábærar hljóm- sveitir og listamenn frá Skotlandi en ekki svo margir góðir fótboltamenn!“ Andy endar á því að lofa annarri Íslandsheimsókn. „Við eigum pott- þétt eftir að koma aftur til Íslands. Þið eigið ekki eftir að geta haldið okkur í burtu. Næst komum við í viku!“ Tónlist | Hljómsveitin Travis sendir frá sér Singles – safn smáskífna á plötu og mynddiski Skapandi Skotar Glasgow-strákarnir Fran Healy, Dougie Payne, Andy Dunlop og Neil Primrose skipa geðþekku hljómsveitina Travis. „Síðasta plata var frekar dimm en núna þegar við fórum í hljóðver ákváðum við að gera eitthvað bjart. Þetta er lag sem lætur manni líða vel,“ segir Andy um nýju smáskífuna „Walking in the Sun“. ingarun@mbl.is Geðþekku Skotarnir í Travis voru að senda frá sér smáskífusafn og mynddisk. Inga Rún Sigurðardóttir leit til fortíðar og forvitnaðist um framtíðina hjá gítarleikaranum Andy Dunlop. ’Það var sérstaklegagaman að skoða gamlar myndbandsupptökur. Ég sá hvað við höfum elst mikið. En auðvitað vel, eins og gott vín.‘ H.L.Mbl.  ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.50 og 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.20. HIÐ ILLA ÁTTI SÉR UPPHAF KRINGLAN Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. KRINGLAN Sýnd kl. 8.10. Shall we Dance? Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon Það er aldrei of seint að setja tónlist í lífið aftur Frábær rómantísk gamanmynd með Richard Gere, Jennifer Lopez og Susan Sarandon í aðalhlutverki. AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. AKUREYRI Sýnd kl. 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 6. LAND LEIKSTJÓRN FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON Ó. H. T. Rá s 2 Einu sinni var... Getur gerst hvenær sem er. HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY Einu sinni var... Getur gerst hvenær sem er. HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.15. VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 4507-4300-0029-4578 4507-4500-0033-0693 4543-3700-0047-8167 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.