Morgunblaðið - 30.11.2004, Side 12

Morgunblaðið - 30.11.2004, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Alla dreymir á morgun  draumspakur breskur miðill í daglegu lífi… ÚR VERINU HLUTUR sjávarútvegs af heildar- viðskiptum með hlutabréf og heild- arvirði hlutabréfa skráðra fyrir- tækja í Kauphöll Íslands hefur hrapað á síðustu árum og er orðinn óverulegur. Hlutdeild sjávarútvegs í heildarmarkaðsvirði hefur dregist saman úr 40% frá 1997 í 6% nú; þar af er hefðbundin útgerð og vinnsla með um 4% hlutdeild, að því er fram kemur í greiningu Friðriks Más Baldurssonar, prófessors við við- skipta- og hagfræðideild Háskóla Ís- lands, á þróun viðskipta með sjáv- arútvegsfyrirtæki í Kauphöll Ís- lands. Friðrik kynnir greiningu sína á ráðstefnu Kauphallar Íslands um sjávarútveg sem ber yfirskriftina „Er hlutabréfamarkaðurinn vannýtt auðlind?“ Ráðstefnan fer fram á Nordica hóteli í dag og hefst kl. 13.00. Í greiningu Friðriks er sérstök áhersla lögð á að kanna hugsanlegar ástæður fækkunar skráðra sjávarút- vegsfélaga. Í henni kemur fram að fyrirtækjum í sjávarútvegi, sem skráð eru í Kauphöll Íslands, hefur fækkað verulega á síðustu fimm ár- um. Hins vegar beri að líta til þess að fyrirtækjum í heild hafi fækkað hlutfallslega álíka mikið. Því sé fækkun skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni að einhverju leyti al- menn þróun sem ekki sé eingöngu bundin við sjávarútveg. Fækkun fyr- irtækja utan sjávarútvegs sé þó að hluta til af öðrum meiði. Í sjávar- útvegi hafi fækkunin átt sér stað með þeim hætti að rekstrareiningar hafi horfið úr Kauphöllinni. Slíkt hafi gerst í minni mæli í öðrum geirum. Fram kemur að fjöldi sjávarút- vegsfyrirtækja hafi náð hámarki árið 1999 en þá voru 24 slík fyrirtæki skráð í Kauphöllinni. Upp frá því hefur fjöldi skráðra félaga í sjávar- útvegi minnkað verulega, en í októ- ber sl. voru einungis tíu slík skráð. Friðrik segir að færa megi fyrir því góð rök að of mörg og of lítil sjáv- arútvegsfyrirtæki hafi verið á mark- aði. Fyrirtækin hafi nýtt sér hag- stæðar markaðsaðstæður til skrán- ingar sjávarútvegsfyrirtækja á árunum 1997–1999. „Mörg þessara fyrirtækja voru lítil, með þröngt eignarhald og áttu í raun aldrei er- indi í Kauphöllina. Því verður að telja eðlilega þróun að mörg þessara fyrirtækja hafi verið afskráð,“ segir í greiningu Friðriks. Vægi sjávarútvegs í Kauphöllinni óverulegt MIKIL síldveiði hefur verið í nóv- ember. Þannig er aflinn nú kominn í 44.902 tonn í mánuðinum, sam- kvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Síldaraflinn í nóvember í fyrra var sá mesti í sögunni eða 49.164 tonn. Það virðist líklegt að það met verði slegið í ár. Auk þess hafa ekki bor- ist til Fiskistofu upplýsingar um all- ar landanir það sem af er nóv- ember. Síldarafli fiskveiðiársins er því orðinn rúm 76 þúsund tonn og tæp 39 þúsund tonn eftir af kvót- anum. Morgunblaðið/Sigurgeir Stefnir í metsíldarafla NORRÆNA ráðherranefndin hefur boðað til samkeppni um námsefni í neytendafræðslu og nemur verð- launaféð 100 þúsund dönskum krón- um eða rúmri milljón íslenskra króna. Nefndin hefur auglýst eftir tillögum að námsefni til kennslu í neytenda- fræðslu í grunn- eða framhalds- skólum, og á námsefnið að henta til kennslu á öllum Norðurlöndunum. Námsefnið á að samsvara að lág- marki um 30 kennslustundum og þarf kennsluáætlun að fylgja með tillög- unni. Allir Norðurlandabúar geta tekið þátt í samkeppninni, hvort sem um einstaklinga, hópa, stofnanir, samtök o.s.frv. er að ræða. Keppnin er haldin í tengslum við formennskuáætlun Íslands í norrænu samstarfi 2004. Verðlaunaafhending fer fram þeg- ar þing Norðurlandaráðs verður haldið í Reykjavík í október á næsta ári. Markmið keppninnar er m.a. að safna öllu kennsluefni um neytenda- fræðslu saman og skal námsefnið uppfylla markmið sem norrænir neytendaráðherrar hafa markað sér. Engin skilyrði eru um að námsefnið sé nýtt og má það vera á hvaða formi sem er, þ.e. á bókarformi, margmiðl- unarverkefni, o.s.frv. Að sögn Þorláks H. Helgasonar, oddvita keppninnar, á námsefnið að falla að einhverjum þeirra markmiða sem lýst er í riti um neytendafræðslu, TemaNord 2000:595. Markmiðin falla undir sex titla en þeir eru: – Fjármál einstaklingsins – Réttindi og skyldur neytandans – Áhrif auglýsinga – Neytandi, umhverfi og siðferði – Matur – Öryggi vöru Æskilegt er að námsefnið veki at- hygli á stöðu Norðurlanda og styrk þeirra að sögn Þorláks. Auk hans standa að samkeppninni Tryggvi Ax- elsson, forstjóri Löggildingarstofu og fulltrúi Íslands í embættismanna- nefnd um neytendamál, og Brynhild- ur Briem sem er yfir samnorrænni og íslenskri dómnefnd. Neytendamál sífellt flóknari Tryggvi segir að neytendamál séu að verða sífellt flóknari og því sé nauðsynlegt að boðið sé upp á náms- efni þar sem börnum og unglingum séu kennd grundvallaratriði í neyt- endavernd, t.a.m. hvað varði upplýs- ingagjöf, lagalega vernd og efnahags- leg réttindi einstaklinga. Þannig eigi fólk auðveldara með að taka upp- lýstar ákvarðanir þegar kemur að neytendamálum. Brynhildur Briem segir Íslendinga standa mun aftar en aðrar Norður- landaþjóðir hvað neytendavitund varði, þeir láti leiðast með ýmiss kon- ar gylliboðum. Nauðsynlegt sé að sporna gegn því og ekki síður öllum þeim gylliboðum sem sé beint að börnum nú til dags. Ein tillaga verður tilnefnd frá hverju Norðurlandanna og mun sam- norræn dómnefnd meta tillögur allra landanna og velja eina til verðlauna. Tillögum ber að skila í síðasta lagi 31. desember 2004 en allar nánari upp- lýsingar er að finna á vef samkeppn- innar, http://vefir.khi.is/ney. Samkeppni um námsefni í neytendafræðslu Morgunblaðið/Jim Smart Brynhildur Briem, Tryggvi Axelsson og Þorlákur H. Helgason. GERA má ráð fyrir að hámarkshraði á íslenskum þjóðvegum myndi víðast hvar lækka úr 90 km/klst. í 80 km/ klst. og yrði sumstaðar takmarkaður enn frekar, ef reglur Norðmanna um leyfilegan hámarkshraða á tveggja akreina þjóðvegum yrðu teknar upp á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Línuhönnun vann fyrir Vegagerðina. Skoðaðir voru þrír vegkaflar á Ís- landi með hliðsjón af norskum reglum, þ.e. Vesturlandsvegur (Þingvallavegur – Borgarfjarðar- braut), Norðurlandsvegur (Blöndu- ós – Sauðárkróksbraut) og Vest- fjarðavegur um Bröttubrekku. Niðurstaðan var sú að leyfilegur há- markshraði á þessum þremur veg- köflum yrði lækkaður úr 90 km/klst. í 80 km/klst. með því að beita norsk- um aðferðum og til greina kæmi að lækka leyfilegan hámarkshraða um Bröttubrekku í 70 km/klst. Stuðst við legu og slitlagsbreidd Stuðst er einkum við legu dreif- býlisþjóðvega og slitlagsbreidd vega við ákvörðun á hámarkshraða, sam- kvæmt aðferð Norðmanna. Að sögn Óla H. Þórðarsonar, for- manns Umferðarráðs, eru niðurstöð- urnar í samræmi við þá skoðun hans að vegakerfi á Íslandi eigi að hraða- merkja miðað við gæði vegarins sem um ræðir hverju sinni. Hann hafi þó ekki séð skýrsluna enn sem komið er. „Út í hött“ sé að sami hámarks- hraði sé á öllum þjóðvegum með bundnu slitlagi enda geri hönnunar- hraði íslenskra vega nánast hvergi ráð fyrir 90 kílómetra há- markshraða. Hámarkshraði lækkaður á vegum með norskri aðferð Færi úr 90 í 80 km/klst. Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.