Morgunblaðið - 30.11.2004, Side 16

Morgunblaðið - 30.11.2004, Side 16
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu Aðsókn að Smá-munasafninu íSólgarði í Eyja- fjarðarsveit vex ár frá ári, en alls sóttu um 4.400 manns safnið á liðnu sumri. Gestir voru um 3000 talsins í fyrrasumar. Nú í sumar líkt og í fyrrasumar efndi safnið til getraunar, þar sem gestum gafst kostur á að geta til um fjölda hluta í glerkrukku og reyndu fjölmargir fyrir sér með mismunandi aðferðum og árangri að því er fram kemur á vef Eyjafjarð- arsveitar. Rétta svarið var 268 stykki og var einn gestur, Ásgeir Eiríksson, Reykjavík með þá tölu ná- kvæmlega rétta. Hann fær viðurkenningu frá Smámunasafninu. Getspakur Átta kvennafélög í Snæfellsbæ stóðu saman að þvínú um helgina að safna peningum til að kaupasjálfvirkan blóðflokkateljara fyrir Heilsugæslu- stöðina í Snæfellsbæ. Konurnar héldu jólabasar í Fé- lagsheimilinu Röst á Hellissandi á laugardaginn og í tengslum við basarinn voru þær með veitingasölu þar sem boðið var upp á súkkulaði og kaffi með veglegu jólabakkelsi, smákökum, vöfflum o.fl. Allt var þetta myndarlegt og söfnunarátakið tókst vel. Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Jólabasar í Röst Leifur Eiríksson ersísprækur, orðinn97 ára. Hann segir vel hugsað um sig á Hrafnistu og andrúms- loftið oft eins og hann lýs- ir góðlátlega í meðfylgj- andi vísum. Þær eru ortar í baðgáska, sú fyrsta til Særúnar, sem hann kall- aði þá „Sæperlu“: „Sæperla“, þú ert sæt og fögur, síkát og ásjáleg. ekki feit og ekki mögur, alveg dásamleg. Og vísurnar urðu fleiri: Ykkur þakka ég blessað baðið, brosin og hjálpina í kringum það. Vel finnst mér hér að verki staðið, og viðkunnanlegt á þessum stað. Og enn orti Leifur: Í baðinu ég bulla oft, bulla og sulla stundum. Gleði haldið hátt á loft með hjartagóðum sprundum. Ort í baði pebl@mbl.is Mývatnssveit | Hópur Banda- ríkjamanna frá samtökum sem nefna sig Santas Goodwill heim- sótti Dimmuborgir á sunnudag, þar sem hann heilsaði upp á mý- vetnsk leikskólabörn og sjálfan jólasveininn, sem eins og kunn- ugt er á höfuðstöðvar í Dimmu- borgum. Þarna urðu fagnaðar- fundir þegar jólasveinar svo langt að komnir heilsuðu íslensk- um sveinum. Þar sungu hvorir fyrir aðra jólalög og nutu góða veðursins og útsýnis. Eftir góða samverustund var öllum við- stöddum boðið í Skjólbrekku þar sem Sel Hótel veitti kakó og kaffi með tertum og kökum svo sem hver vildi þiggja. Sel Hótel hefur aðstoðað jólasveininn nú fyrir nokkur jól og er vaxandi aðsókn að þeirri uppákomu. Um hverja helgi hér frá og til jóla verða jóla- sveinarnir með móttöku í Dimmuborgum. Í Skjólbrekku er jafnframt barnaland og jóla- markaður þar sem í boði eru alls kyns jólavörur. Ennfremur er handverksfélagið Dyngjan þar með sölu á munum félagskvenna og Sel Hótel er þar með kaffiveit- ingar. Það er því úr mörgu að moða í Mývatnssveit á næstunni. Morgunblaðið/BFH Jólastemning í Dimmuborgum Aðventa Vesturbyggð | Bæjarstjórn Vesturbyggð- ar hefur vísað til bæjarráðs tillögu þar sem lagt er til að ráðnir verði sameig- inlegir atvinnu- og ferðamálafulltrúar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Það voru bæjarfulltrúarnir Þuríður Ingimundardóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Nanna Á. Jónsdóttir sem lögðu fram á fundi bæjarstjórnar Vesturbyggðar svo- hljóðandi tillögu: „Í vor sem leið sam- þykktu bæjarstjórn Vesturbyggðar og sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps At- vinnumálastefnu fyrir Vestur-Barða- strandarsýslu 2004–2008, sem voru til- lögur og samstarfsverkefni atvinnu- málanefnda beggja sveitarfélaganna. Í nefndum tillögum er talað um að ráða ferðamálafulltrúa og atvinnuráðgjafa. Því komum við með þá tillögu að rætt verði við Tálknfirðinga og sveitarfélögin um að bæði ráði sameiginlega ferðamálafulltrúa í 100% starf og atvinnumálafulltrúa einn- ig í 100% starf. Það er trú okkar og vissa að slíkt eigi eftir að verða báðum sveit- arfélögum giftudrjúgt til framtíðar litið og sá kostnaður sem verði í byrjun komi jafnvel margfalt til baka er fram líða stundir.“ Sameiginlegir atvinnu- og ferðamála- fulltrúar ♦♦♦ Dalabyggð | Á fyrsta sunnudegi í að- ventu fyrir 100 árum var Hjarðar- holtskirkja í Dölum vígð. Vígsluaf- mælisins er minnst með ýmsum hætti og hófst afmælishaldið með guðsþjónustu síðastliðinn sunnudag. Mjög góð mæting var í kirkjuna og tók söfnuðurinn fullan þátt, nýr kór Hjarðarholtsprestakalls söng undir stjórn Haraldar Bragasonar organista og nemendur Tónlistar- skólans í Dalasýslu voru með tónlist- aratriði og fermingarbörn lásu. Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, prédikaði og Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur messaði. Í Hjarðarholti hefur verið kirkja frá því snemma eftir kristnitöku og er kirkjan helguð Jóhannesi skírara. Hjarðarholtskirkja hefur bygginga- sögulegt gildi. Hún er teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni, fyrsta íslenska arkitektinum, og var hún fyrsta verkefni hans. Hún er krosskirkja úr járnvörðu timbri með háan fer- hyrndan turn og er fyrst en jafn- framt minnst hinna þriggja kross- kirkna er Rögnvaldur teiknaði. Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir Minnast aldarafmælis Hjarðarholtskirkju Vestfirðir | Eimskip innanlands og Sæ- skip ehf., sem rekur flutningaskipið Jaxl- inn, hafa gert með sér samkomulag um sjóflutninga til og frá Vestfjörðum, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísa- firði. Jaxlinn flytur vörur fyrir Eimskip milli höfuðborgarsvæðisins og Vestfjarða. Eimskip er að hætta strandsiglingum, eins og fram hefur komið, og kom Mána- foss við á Ísafirði á laugardag í sinni síð- ustu ferð. Hafnarstjórinn afhenti skip- stjóranum minningarplatta af þessu tilefni. Jaxlinn mun áfram sigla tvær áætlunar- ferðir milli Vestfjarða og Hafnarfjarðar en breyting verður á áætlun milli daga. Haft er eftir framkvæmdastjóra Sæskipa að skynsemin hafi ráðið því að félögin tóku upp samstarf um flutningana. Jaxlinn hefur eins og áður viðkomu á sex höfnum á Vestfjörðum, Patreksfirði, Tálknafirði, Bíldudal, Ísafirði, Bolungar- vík, Súðavík, Flateyri og Þingeyri. Jaxlinn flytur fyrir Eimskip Jólasvipur er farinn að færast yfir Sauð- árkrók og stóri ljósakrossinn hefur verið tendraður á Nöfunum við kirkjugarðinn. Með hverju árinu sem líður lengist aðfara- tími jóla, jólavörurnar koma fyrr í verslanir og engum virðist finnast það tiltökumál þó auglýsingar um jólavörurnar séu farnar að flæða yfir landsmenn í byrjun nóvember. En ekki eru á því líkur að Sauðkrækingar fái þessu breytt, enda vandséð hvort þeir eru nokkrir eftirbátar annarra í því að espa sig upp í jólaæsinginn.    Aðfaranótt síðastliðins sunnudags, rétt upp úr klukkan sex að morgni, sigldi m.s. Múlafoss ljósum prýddur út Skagafjörð í síð- asta sinn, en þegar þessum þætti í flutn- ingaþjónustu við landsbyggðina er lokið hafa skip Eimskipafélagsins þjónustað Skagfirð- inga og Sauðárkróksbúa í níutíu ár, en það mun hafa verið árið 1914, sem fyrsta skip fé- lagsins kom til Sauðárkróks með vörur. Hinn 6. nóvember 1938 kom Es. Goðafoss og lagð- ist í fyrsta sinn að núverandi bryggju á Sauð- árkróki, og allt frá þeim tíma hafa skip fé- lagsins verið að minnsta kosti vikulegir gestir í höfninni. Það er því með verulegri eftirsjá sem Skagfirðingar horfðu á eftir þessum glæsta farkosti sem ekki virðist munu eiga afturkvæmt til hafnar hér.    Mörgum er í fersku minni þegar þáverandi samgöngumálaráðherra seldi Skipaútgerð ríkisins og staðhæft var að landsbyggðin mundi á engan hátt líða fyrir þær breytingar sem mundu verða á þjónustunni. Nú hefur hins vegar málum verið skipað á þann veg að allur sá flutningur sem áður fór með skipum á hinar dreifðu hafnir hringinn í kringum landið, er fluttur með bílum, á vegakerfi sem er talið, af þeim sem dómbærir teljast vera, á engan hátt gert fyrir slíka þungaflutninga og sýnist líka að ekki auki þessi fjöldi stórra ökutækja umferðaröryggi á þjóðvegi eitt.    Þriðja hefti af Byggðasögu Skagafjarðar er að koma út þessa dagana, en hér er um að ræða eitt mesta rit sinnar gerðar sem ráðist hefur verið í útgáfu á. Það er Hjalti Pálsson frá Hofi sem annast ritstjórn byggðasög- unnar og fjallar sá hluti sögunnar sem nú kemur út um Lýtingsstaðahrepp hinn forna. Í byggðasögunni fjallar Hjalti um allar bú- jarðir í hreppunum bæði að fornu og nýju, og nýmæli er í bókum þessum að settar eru inn í gps-staðsetningar á flest eða öll býlin þann- ig að þeir sem yfir slíkum staðsetningar- tækjum ráða geta mjög auðveldlega fundið alla þá staði sem um er fjallað þótt fátt sjáist af ummerkjum í landslagi. EFTIR BJÖRN BJÖRNSSON FRÉTTARITARA SAUÐÁRKRÓKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.