Morgunblaðið - 30.11.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 30.11.2004, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 33 MINNINGAR Tengdafaðir minn, Guðjón Magn- ússon, lést hinn 14. nóvember sl. Hann var Strandamaður að ætt og uppruna, fæddur á Hlíð við Kolla- fjörð í Strandasýslu 21. júlí 1911, en flutti ungur að árum með foreldrum sínum að Arnkötludal í Tungusveit við Steingrímsfjörð og ólst þar upp fram á unglingsárin, en síðan lá leiðin til næsta þéttbýliskjarna, Hólmavíkur. Árið 1935 gekk Guðjón að eiga Elínu Jónsdóttur frá Broddanesi við Kollafjörð og bjuggu þau á Hólmavík fyrstu búskaparárin en síðan um tíma á Broddanesi. Árið 1943 fluttu þau að Miðhúsum í Kollafirði og bjuggu þar í ellefu ár en brugðu þá búi og fluttu á mölina sem kallað var. Ekki verður Guðjóns minnst án þess að Elínar sé getið, en hún lést árið 2001. Ég var svo lánsöm að tengjast fjölskyldu þeirra er ég giftist Gunn- ari syni þeirra árið 1971. Ég held að betri tengdaforeldrar en Elín og Guðjón voru séu vandfundnir. Þau voru alltaf boðin og búin að hjálpa okkur, hvort sem um var að ræða barnapössun eða aðstoð við lagfær- ingar á húsakynnum, svosem múr- verk, flísalögn og annað slíkt. Börnum okkar voru þau ómet- anleg. Við bjuggum í nágrenni við þau er börnin voru lítil og ósjaldan var trítlað til ömmu og afa til að spila á spil, gæða sér á pönnukök- um og brúntertu eða bara til að spjalla. Amma hafði alltaf tíma og eftir að afi hætti að vinna, sem var ekki fyrr en undir áttrætt, hafði hann líka tíma til að spila og tefla. Hann eignaðist aldrei bíl en fór allra sinna ferða gangandi, hjólandi eða í strætó. Hjólið lét hann þó flakka er hann var kominn yfir átt- rætt, hann var þá farinn að kenna svima og hafði að eigin sögn dottið af hjólinu hinum megin er hann var að stíga á bak. Eins og áður sagði stundaði Guð- jón búskap í Miðhúsum í rúman áratug fram á árið 1954 er hann brá búi og fluttist til Reykjavíkur. Vafa- laust hefur þar margt komið til, ekki síst þær miklu þjóðfélags- breytingar sem urðu á þeim árum með vaxandi tæknivæðingu og þeim breytingum á atvinnutækifærum sem fylgdu í kjölfarið. Ljóst var að hvorugur sonanna myndi hyggja á sveitabúskap í framtíðinni, hugur þeirra stefndi í aðrar áttir. Elín og Guðjón gátu ekki hugsað sér að verða eftir í sveitinni þegar þeir væru farnir. Ekki er mér grunlaust um að það hafi verið erfið ákvörðun fyrir Guð- jón að bregða búi á besta aldri enda lá búskapur á hans áhugasviði og ljóst er að á efri árum leitaði hugur hans æ oftar á fornar slóðir og síð- ustu árin dvaldi hann löngum stundum við minningar um víðáttur fjallanna og gat hann kallað fram í hugann myndir frá löngu liðinni tíð. Gengin spor, já glöggt það dæmin sanna geislar bjartir lýstu morgunstund. Aftangeisla endurminninganna er unaðslegt að muna litla stund. Svipur minn þótt fölni og fækki hárum fótur stirðni og dvíni þrótturinn, minningar frá löngu liðnum árum líða rótt í gegnum huga minn. Svo kvað Guðjón eitt sinn á efri árum en kveðskapur, ásamt kímni og glettni, var aðal hans alla tíð. Eftir hann liggur fjöldinn allur af vísum og ferskeytlum, ort við hin ýmsu tækifæri. Hann var til margra ára virkur félagi í Kvæða- mannafélagi Reykjavíkur, eignaðist þar marga kvæðabræður og -systur og sótti fundi og skemmtanir fé- lagsins. Fróns að grundu fellur rós fölnar æskudraumur, senn að lífs míns lækjarós líður ævistraumur. Svo kvað Guðjón einhverju sinni er halla tók ævi. Guðjón var vel að sér og las mik- ið, ekki síst kveðskap og þjóðlegan fróðleik, kunni feiknin öll af kvæð- um og vísum. Hann gerði ekki víðreist um æv- ina, fór einu sinni til Kulusuk á Grænlandi með syni sínum. Ég held að hann hafi litið á ferðalög sem tímaeyðslu. En eftir að hann minnkaði við sig vinnu gaf hann sér tíma til að ferðast um Ísland ásamt Elínu, sem hafði yndi af ferðalög- um. Þau ferðuðust með félagi eldri borgara og nutu þeirra ferða ríku- lega. Síðustu árin bjuggu þau á dval- arheimilinu Seljahlíð. Þar nutu þau frábærrar umönnunar og undu hag sínum vel miðað við þær hömlur sem ellin hafði á þau lagt. Við frá- fall Elínar missti Guðjón lífsföru- naut sinn til sextíu og sex ára. Við skynjuðum söknuð hans. Hann gat orðið lítið lesið, stytti sér stundir við hljóðbækur, undi sér við minn- ingarnar, sagðist sjá fullt af mynd- um úr fortíðinni. Það voru fallegar minningar úr sveitinni, gönguferðir á fjöllum, Elín að sýsla við bústörfin, fjalla- lækur í Miðhúsadal þar sem rennur tærasta og svalasta vatn sem fyr- irfinnst, fjárleitir að hausti. Blærinn strýkur blítt um kinn bros í sinni laðar, alltaf heilla huga minn haustsins björtu dagar. Guðjón var nokkur ákafamaður um dagana og kunni illa að fara sér hægt. Þegar hann var farþegi í bíl sem nálgaðist ákvörðunarstað hafði hann ævinlega opnað hurðina áður en bíllinn stöðvaðist og virtist nokk- ur hætta á að missa hann fyrir borð. Undir lokin þegar sýnt var að skurðaðgerð yrði ekki umflúin var læknirinn að skýra út fyrir honum að aðgerðin væri ekki með öllu áhættulaus. Þá svaraði Guðjón: „Drífið bara í þessu, ég er þá búinn að lifa nógu lengi.“ Aðgerðin heppnaðist vel en líkamsþróttur Guðjóns dugði hon- um ekki til að ná sér á strik, hann lést þremur dögum síðar og hélt meðvitund fram undir það síðasta og náði að skynja nærveru ástvina sinna sem voru saman komnir við sjúkrabeð hans til að kveðja. Blessuð sé minning hans. Aðalheiður Sigvaldadóttir. Elsku afi minn er dáinn. Afi minn var yndislegur afi. Afi sem safnaði skeggi á veturna og leyfði mér að toga í það eins og ég vildi þegar ég var lítil. Afi með stóra, rauða tóbaksnefið sitt. Afi sem hjólaði út um allt á bláa, forna reiðhjólinu fram eftir öllum aldri. Afi sem labbaði út í kjötbúð þegar ég kom í heimsókn og keypti salt- kjöt handa mér því mér þykir það svo gott. Amma sauð það og svo borðuðum við öll saman við litla eldhúsborðið þeirra. Afi hirti alla fituna af disknum mínum og borð- aði hana því honum þótti hún svo góð, það fannst mér mjög einkenni- legt. Afi með litlu bangsakörfuna á herbergishillunni sinni með kand- ísnum í sem ég laumaðist í við hvert tækifæri. Ég mun alltaf sakna hans, sakna öryggisins hjá honum, sakna lykt- arinnar af honum, sakna háu hnerr- anna hans eftir að hann fékk sér rækilega í nefið, sakna rólegheit- anna í kringum hann, sakna óend- anlegrar góðmennsku hans og gull- hjarta, sakna hans. En það er samt svo gott að hann fékk loksins að fara og fyrir það er ég svo þakklát því að það var orðið svo tímabært. Nú er hann loksins þar sem hann á að vera, hjá ömmu. Elín Heiður. Nú hefur Guðjón Magnússon, fyrrverandi bóndi í Miðhúsum á Ströndum, safnast til feðra sinna á 94. aldursári og veit ég að hann var hvíldinni feginn. Mín fyrstu kynni af Guðjóni voru í sextugsafmæli hans en yngsta systir mín, Aðalheiður, og Gunnar sonur hans voru þá að byrja að draga sig saman. Mér er minnis- stætt hve Sigríði mágkonu hans lágu þá vel orð til hans og við nán- ari kynni komst ég fljótlega að raun um að þar var ekkert ofsagt. Guð- jón var mjög hlýr og elskulegur maður með sérstaklega þægilega nærveru. Ég minnist þess þegar hann var að koma í heimsókn, oft á laugardagsmorgnum, alltaf á hjóli fram eftir öllu. Hann stóð aldrei lengi við, drakk einn kaffibolla, spjallaði við mig og svo var hann farinn en eftir var svo gott andrúm í sálu minni. Svona perlur í mann- hafinu eru fágætar og gleymast aldrei. Síðustu árin hafa verið Guð- jóni erfið. Hann var orðinn ellimóð- ur en frábær umhyggja barna hans og barnabarna léttu honum róður- inn. Eftir að Elín eiginkona hans lést fyrir 3 árum fannst mér lífsvilji hans þverra. Hún sem hann bar á höndum sér alla tíð þurfti ekki lengur á honum að halda hér og hann vildi losna við farinn líkama sem hélt sálu hans fanginni. Von- andi hittir hann Elínu og Ingimar, soninn sem lést á besta aldri, fyrir á ódáinsökrum eilífðarinnar. Megi blessun þess er öllu veldur fylgja honum og hans um alla tíð. Hrefna Sigvaldadóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningar- greinar Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning www.mosaik.is LEGSTEINAR sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960 Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HREGGVIÐUR EYFJÖRÐ GUÐGEIRSSON byggingameistari og fyrrv. byggingafulltrúi, Hlíðarhjalla 61, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 23. nóvember, verður jarðsung- inn frá Kópavogskirkju í dag, þriðjudaginn 30. nóvember, kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög. Ólafía S. Jensdóttir, Samúel Smári Hreggviðsson, Sigríður Kr. Jóhannsdóttir, Ólafur Magnús Hreggviðsson, Guðgeir Veigar Hreggviðsson, Sigrún Gestsdóttir, Margrét Dögg Hreggviðsdóttir, Hólmar Eyfjörð Hreggviðsson, Veiga Eyfjörð Hreggviðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, GÍSLI FRIÐRIK ÞÓRISSON læknir, Sóltúni 28, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju fimmtu- daginn 2. desember kl. 13.00. Helga Sigurjónsdóttir, Þórir Gíslason, Brynjólfur Þórisson, Herdís Þórisdóttir, Ingvi Kristján Guttormsson. Guttormur Arnar, Eva Írena, Áki Elí og Hilmir Már. Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS JÓNÍNA BALDVINSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 26. nóvember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 6. desember kl. 14.00. Brynja Einarsdóttir, Örnólfur Þorleifsson, Fanney Lára Einarsdóttir, Þórður Jónasson, Sólveig Einarsdóttir, Kjartan Rafnsson, Jakob Þór Einarsson, Valgerður Janusdóttir, Sonja Hulda Einarsdóttir, Gísli Bjarnason, barnabörn og langömmubörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR MAGNÚSSON frá Þórarinsstöðum, Seyðisfirði, áður til heimilis á Kirkjuvegi 57, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju laug- ardaginn 4. desember kl. 14.00. Þórunn Sigurðardóttir, Finnur Jónsson, Magnús Helgi Sigurðsson, Inger Helgadóttir, Ásdís Sigurðardóttir, Sveinn Valgeirsson, Ólafur Már Sigurðsson, Sigrún K. Ægisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, RAGNHEIÐUR FINNSDÓTTIR fyrrv. kennari og skólastjóri, verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtu- daginn 2. desember kl. 13.00. Geir Agnar Guðsteinsson, Sigurbjörg Gestsdóttir, Finnur Jakob Guðsteinsson, Fanney Sigurðardóttir, Guðlaug Guðsteinsdóttir, Örn Blævarr Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.