Morgunblaðið - 30.11.2004, Side 34

Morgunblaðið - 30.11.2004, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Kæri Jonni. Það var svo sárt að sjá prestinn og heyra fréttirnar, að þú værir far- inn á fund feðranna. En óskaplega hefur amma verið glöð að hitta hann Sissa sinn, eins og hún kallaði þig alltaf. Örugglega bakað pönsur þegar von var á komu þinni. SIGURJÓN PÉTURSSON ✝ Sigurjón Péturs-son sjómaður fæddist 11. apríl 1964. Hann lést 22. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Pétur J. Dan- íelsson vélstjóri, f. 16.9. 1938, d. 26.5. 1979, og Guðrún H. Pálsdóttir, f. 1.5. 1944. Systkini Sigur- jóns eru Harpa, f. 22.9. 1962, og Daníel J., f. 17.3. 1971. Sig- urjón á tvær dætur, Önnu Söru, f. 3.3. 1993 og Kristínu Ósk, f. 27.4. 1995. Sambýlismaður Guðrúnar er Valur Pálsson, f. 4.12. 1944. Sigurjón verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Það er svo margt sem ég á í minning- unni um þig. Megi englar himins gefa þér ljós og frið frá þínum illvíga sjúkdómi. „Sá yðar sem synd- laus er, kasti fyrsta steininum.“ Þín systir. Ástkæri bróðir og starfsbróðir. Þakka þér fyrir fylgdina og samveruna sem við höfum átt saman í þessu lífi. Þú varst oftast ráðagóður, hress og með ljúflingsskap. Þú átt alltaf líf í hjarta mér. Guð varðveiti þig og veri með þér að eilífu. Þinn bróðir.  Fleiri minningargreinar um Sig- urjón Pétursson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Valur, Hildur Björk og Eggert Jón Magnússon. ✝ Jóhanna Símon-ardóttir fæddist í Reykjavík 6. október 1923 og ólst þar upp. Hún lést á Landspít- alanum 20. nóvember síðastliðinn. Foreldr- ar Jóhönnu voru Sím- on Jónsson kaupmað- ur frá Bakka í Ölfusi, f. 25.8. 1893. d. 22.2. 1942, og Ása Jó- hannsdóttir húsfrú frá Hofi á Eyrar- bakka Ölfusi, f. 24.5. 1900, d. 9.5. 1949. Systkini Jóhönnu eru: Grétar, f. 18.2. 1920, látinn; Herdís, f. 23.6. 1921, látin; Sigríð- ur, f. 29.7. 1925; Jóna, f. 10.11. 1932. Uppeldissystir þeirra er Kristín Guðmundsdóttir, f. 6.3. 1937. Hinn 24. maí 1943 giftist Jó- hanna Páli Þorsteinssyni, f. á Reyðarfirði 22.11. 1921. Foreldr- ar hans eru Þorsteinn Pálsson og Áslaug Katrín Pétursdóttir. Börn Jóhönnu og Páls eru: 1) Vigdís, f. 27. nóv. 1943, maki Vilhjálmur Gríms- son og eiga þau fjög- ur börn. 2) Símon, f. 30. apríl 1948, d. 10. des. 2000, maki Þur- íður Vilhjálmsdóttir, þau eiga tvo syni. Fyrri kona var Anna María Hilmarsdóttir og eiga þau eina dóttur. 3) Áslaug Katrín, f. 15. júní 1950, fyrrverandi eiginmaður er Har- aldur Dungal og þau eiga þrjú börn. 4) Þorsteinn, f. 11. apríl 1954, maki Kristín Árnadóttir og eiga þau fimm börn. 5) Páll Ásgeir, f. 9. des. 1955, maki Sigríður Halldóra Þorsteinsdóttir og eiga þau fjögur börn. 6) Gylfi Þór, f. 6. apríl 1960, maki Grisell Cabero Pálsson. Gylfi á son úr fyrri sambúð með Sigrúnu Stefánsdóttur. Jóhanna verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Það eru að koma jól og aftur leggur langan skugga yfir fjölskylduna okk- ar. Ég á svo bágt með að trúa því að þú sért farin. Þú varst svo falleg að utan sem inn- an. Þú varst svo sterk, þú varst klett- urinn í stórfjölskyldunni sem stóð af sér öll veður. Þú varst mér svo góð og kenndir mér svo ótalmargt og ég á eftir að halda áfram að leita til þín. Elsku Páll, þú hefur misst svo mik- ið, megi góður Guð gefa þér styrk til að halda áfram veginn. Ég veit að Símon okkar hefur tekið á móti þér og umvafið þig sínum hlýja faðmi. Berðu honum kveðju mína. Vertu sæl að sinni elsku Jóhanna mín, minningin um þig mun ávallt vera ljós í lífi okkar um ókomna fram- tíð. Þín tengdadóttir, Þuríður Vilhjálmsdóttir. Mín elskulega tengdamóðir Jó- hanna Símonardóttir er fallin frá. Við horfum döpur á það stóra skarð sem hefur myndast í fjölskyldunni, en tím- inn og lífið mun að lokum græða og fylla upp í það skarð, þar sem hring- rás lífsins heldur áfram. Þú elsku tengdamóðir ert nú komin í guðs paradís þar sem allar þjáningar og þrautir eru á enda, þar sem þinn elsti sonur hefur tekið á móti þér ásamt systkinum, foreldrum og fleiri góðum vinum, og ég trúi því að þér líði þar vel. Hugsanir mínar þjóta í gegnum þau 32 ár sem ég hef þekkt þig, og verð ég að segja að það hefði verið mikil synd að missa af þeim árum sem við höfum átt saman, því þau hafa svo sannarlega þroskað mig og börnin mín og er ég mjög þakklát fyrir það. Mér er það minnisstætt hvað ég bar mikla lotningu fyrir þér í fyrstu, þú varst svo „elegant“ eins og hann Páll tengdafaðir minn segir oft, og virðuleg að ég var ótrúlega feimin við þig, unga sveitastúlkan, þar til ég fann að bak við þennan mikla virðu- leika bjó einstaklega hjartahlý og góð kona sem vildi öllum vel, fylgdist sér- staklega með öllu í fjölskyldunni, börnum, tengdabörnum og ekki síst barnabörnum og barnabarnabörnum. Það var þér mikið hjartans mál að hlutirnir væru í lagi hjá þínu fólki, og tókstu það mjög nærri þér ef eitthvað bjátaði á hjá einhverjum í fjölskyld- unni, þá reyndir þú sem þú gast að sinna því til hinstu stundar. Síðustu ár þín voru mjög erfið vegna veikinda, en þú barst þig alltaf eins og hetja, þar til síðasta mánuðinn í lífi þínu voru þjáningarnar orðnar miklar, líkaminn við það að gefast upp, þú hefur sennilega séð þetta fyr- ir, elsku Jóhanna mín, að endalokin yrðu svona, og þá væri bara að taka því eins og öðru, með þinni hógværð og látleysi sem einkenndi þig í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Ég mun aldrei gleyma þeirri hjartahlýju sem streymdi frá þér þau tvö síðustu skipti sem ég heimsótti þig, rétt fyrir andlát þitt, þá hvarflaði það ekki að mér að þau orð sem þú talaðir til mín yrðu þau síðustu, og mun ég geyma þau í hjarta mínu að eilífu. Ég er afar þakklát guði fyrir að hafa fengið að fylgja þér síðasta spöl- inn, þar sem fjölskyldan þín, elskuleg- ur eiginmaður þinn og öll eftirlifandi börnin þín og makar sameinuðumst í eitt við að hjálpa sálu þinni inn í eilífð- ina miklu, þar sem við trúum að allur sársauki og þrautir séu á bak og burt. Kæra fjölskylda og elsku Páll tengdafaðir, við höldum áfram að lifa, með fallegar og ljúfar minningar, um fallega konu, hana Jóhönnu Símonar- dóttur, mína elskulegu tengdamóður. Guð gefið þér frið að eilífu, elsku Jóhanna mín. Þín tengdadóttir, Kristín Árnadóttir. Eitt sinn við eldhúsborðið á Snorrabraut var rætt um búsetu er- lendis og hvort ekki væri erfitt að búa fjarri heimahögum. „Heimili manns er þar sem maður býr,“ sagði amma og lyfti augabrúnum í undrun yfir því að þurfa að benda fólki á jafn augljóst mál. Sjálf bjó hún allan sinn aldur í Reykjavík, utan fáein ár í Garðabæ, en átti ekki erfitt með að skilja þá sem hleyptu heimdraganum og héldu heimili vestanhafs eða austan. Í sam- ræðum notaði hún ekki mörg orð en kom sér jafnan beint að efninu. Oft þurfti hún ekki að segja aukatekið orð því svipurinn tíundaði það sem þurfti. Virðuleg reisn einkenndi ömmu sem kom fram í látleysi og hæglátum þokka jafnvel þegar gustaði. Ég man fyrst eftir henni á Laugarásveginum þegar öll börnin hennar og afa bjuggu heima, utan mamma sem er elst. Myndin sem kemur í huga er af ömmu í nælonsloppi, einkennisklæðn- aði húsmæðra í þá daga, þar sem hún stjórnaði umferðinni á þremur hæð- um og sá um heimilisbraginn. Sama á hverju gekk var amma á staðnum með leiðbeiningar og hlýleg orð eða umvandanir, þegar það átti við. Dótt- ursonurinn vandist því fljótt að þegar hún kallaði hann fullu nafni var hann farinn yfir strikið og eins gott að hafa hægt um sig í bili. Eins og mörgum af hennar kynslóð var ömmu í blóð borið að fara vel með peninga. Þegar þau afi áttu heima á Hrefnugötu fór ég stundum með Gylfa út í mjólkurbúðina á Rauðarár- stíg. Amma taldi peningana ofan í buddu með gylltri smellu. Hún lét frændurna hafa rétta fjárhæð í leið- JÓHANNA SÍMONARDÓTTIR Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdadóttir, systir og mágkona, GUÐLAUG SVEINSDÓTTIR, Urriðakvísl 23, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 28. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. desember kl. 15.00. Benedikt Hauksson, Sveinn Viðarsson, Haukur Benediktsson, María Bryndís Benediktsdóttir, Herdís Sigurðardóttir, Haukur Benediktsson, Herdís Sveinsdóttir, Rolf Hansson, Jóhann Sveinsson, Guðný Hafsteinsdóttir, Finnur Sveinsson, Þórdís Hrafnkelsdóttir. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 10% afsláttur af legsteinum til 10. desember Englasteinar www.englasteinar.is Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNS STEFÁNSSONAR, Götu, Hrunamannahreppi. Ólöf Guðnadóttir, börn, tengdabörn, barnabarn og foreldrar. Sonur minn, SIGURJÓN PÉTURSSON, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 30. nóvember kl. 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Forvarnastarf Samhjálpar. Guðrún H. Pálsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, ömmu og langömmu, ÓLÍNU HELGU KRISTÓFERSDÓTTUR, Akraseli 17, Reykjavík, (Helga frá Bjarmalandi). Gísli Júlíusson, John Francis Zalewski, Kristín Helga Zalewski, Haukur Engilbertsson, Kristófer O. Zalewski, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Þuríður Gísladóttir, Ólafur Gíslason, Salvör Gunnarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Við þökkum af alhug þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og kærleiksríka vináttu við andlát og útför BJARKA HEIÐARS HARALDSSONAR, Laugatúni 6, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til Friðbjörns Sigurðssonar læknis og starfsfólks á 11E á Landspítala Hringbraut, og starfsfólks á Heilbrigðisstofnun- inni á Sauðárkróki fyrir góða umönnun. Rósa Dóra Viðarsdóttir, Sigríður Heiða Bjarkadóttir, Haraldur Viðar Bjarkason, Hólmar Sindri Bjarkason, Karen Ýr Nínudóttir, Bára Garðarsdóttir, Haraldur B. Pétursson, Sigríður Kristjánsdóttir, Hrannar Birkir Haraldsson, Borghildur Heiðrún Haraldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.