Morgunblaðið - 30.11.2004, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
„ÞETTA voru
frábærir tón-
leikar og er
óhætt að bjóða
Ara Þór velkom-
inn í fremstu röð
íslenskra hljóð-
færaleikara.“
Með þessum orð-
um lýkur Jónas
Sen umsögn sinni
í blaðinu í dag
um tónleika ungs fiðluleikara, Ara
Þórs Vilhjálmssonar, sem þreytti
frumraun sína í Salnum í Kópavogi
á laugardaginn var. „Nánast strax
á upphafstónunum var auðheyrt að
Ari Þór er framúrskarandi fiðlu-
leikari; hver hending var vandlega
ígrunduð og tæknileg atriði voru
aðdáunarverð,“ heldur Jónas
áfram. „Hröð hlaup voru hnífjöfn
og skýr og inntónunin nákvæm.“
Boðinn
velkominn í
fremstu röð
Velkominn/23
Ari Þór
Vilhjálmsson
ALLIR sem einhvern tíma á starfs-
ævinni hafa greitt til Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins (LSR) eða til
Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga
(LH) eiga rétt á láni úr sjóðunum
með 4,15% vöxtum samkvæmt þeim
almennu reglum sem um lánin gilda.
Samkvæmt upplýsingum sjóðanna
eru þetta alls um 70 þúsund manns,
en þetta eru mun rýmri reglur en al-
mennt eru í gildi hjá öðrum lífeyr-
issjóðum í þessum efnum. Þá kynnti
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitar-
félaga (LSS) nýverið rýmri reglur
um lánveitingar og stendur nú öllum
starfsmönnum sveitarfélaga til boða
lán með 4,30% föstum vöxtum óháð
stéttarfélagsaðild.
LSR, sem er stærsti lífeyrissjóður
landsins, lækkaði fasta vexti sína í
gær úr 4,30% í 4,15% og fór þar í fót-
spor bankanna og Lífeyrissjóðs
verslunarmanna sem lækkuðu vexti
sína í 4,15% í kjölfar þess að Íbúða-
lánasjóður lækkaði íbúðalánavexti
sína í 4,15% fyrir rúmri viku.
Almennt er sú regla í gildi hjá líf-
eyrissjóðunum að þeir einir eru
gjaldgengir lánþegar sem eru virkir
sjóðfélagar í sjóðunum eins og það er
orðað, þ.e.a.s. að þeir séu núverandi
iðgjaldagreiðendur til sjóðanna. Það
er skilgreint með mismunandi hætti
frá einum sjóði til annars hversu
lengi fólk þarf að hafa greitt til sjóðs-
ins til að geta tekið lán. Þannig þurfa
menn að hafa greitt til Lífeyrissjóðs
verslunarmanna, sem er næst-
stærsti lífeyrissjóður landsins, í
fjóra af síðustu sex mánuðum til að
vera gjaldgengir lánþegar hjá sjóðn-
um og hjá Framsýn, þriðja stærsta
lífeyrissjóði landsins, þarf fólk að
hafa greitt til sjóðsins í sex mánuði af
síðustu tólf til að geta tekið þar lán.
Hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda,
þarf fólk að hafa greitt til sjóðsins
síðustu tólf mánuði, auk annarra
skilyrða fyrir lánveitingu.
Almennt má segja að þessi skil-
yrði lífeyrissjóðanna fyrir lántöku
hafi verið rýmkuð að undanförnu í
kjölfar aukinnar samkeppni á þessu
sviði með tilkomu íbúðalána bank-
anna. Fæstir sjóðanna hafa þó þá
reglu að veita öllum lán sem ein-
hvern tíma hafa greitt til sjóðsins
eins og gildir hjá LSR og LH, en það
er þó tilfellið hjá 1–2 meðalstórum og
fáeinum mjög litlum lífeyrissjóðum á
almennum markaði samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins.
Góð ávöxtun fyrir sjóðinn
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri LSR, sagði að þessar
reglur varðandi lánveitingar hjá
sjóðnum hefðu verið í gildi í nokkuð
mörg ár og tengdust ekki þróuninni
á lánamarkaði hér að undanförnu.
„Annars vegar lítum við bara á þetta
sem þjónustu við sjóðfélagana, en á
sama tíma er þetta góð ávöxtun fyrir
lífeyrissjóðinn,“ sagði Haukur.
Ekkert þak er á hámarksfjárhæð
lána LSR, en lán getur ekki farið
umfram 65% af markaðsvirði eignar.
Lánið þarf ekki að vera á 1. veðrétti,
en sé það umfram fimm milljónir
þarf að skila inn greiðslumati.
70 þúsund manns eiga
rétt á láni frá LSR
Öllum starfsmönnum sveitar-
félaga stendur til boða lán frá LSS
óháð stéttarfélagsaðild
MÖGULEIKAR á framleiðslu líf-
massa í tilraunaskyni hafa verið
kannaðir ítarlega af Íslenska líf-
massafélaginu og iðnaðarráðuneyt-
inu, með það fyrir augum að slík verk-
smiðja rísi í Mývatnssveit. Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra upp-
lýsti starfsmenn Kísiliðjunnar um
þetta í gær, er hún fundaði með
starfsfólki, sem nú er að missa vinn-
una við lokun verksmiðjunnar í dag.
Valgerður sagði við Morgunblaðið
að óskastaðan hefði verið sú að bæði
lífmassaverksmiðja og kísilduftverk-
smiðja risi í Mývatnssveit, en mikil
óvissa er um síðari kostinn eins og
fram kom í blaðinu í gær. Valgerður
sagði lífmassaverksmiðju geta skapað
um tíu störf en lífmassi er ætlaður til
framleiðslu á lífrænu etanóli, til
blöndunar við hreint bensín. Úr 20
þúsund tonnum af lífmassa, m.a. úr-
gangspappír, afgangsheyi og hálmi,
má framleiða um 5 þúsund tonn af et-
anóli.
Valgerður sagði að vegna lokunar
Kísiliðjunnar myndu stjórnvöld fara í
samstarf með heimamönnum að
skapa einhver atvinnutækifæri í Mý-
vatnssveit, m.a. með aðstoð Byggða-
stofnunar og Vinnumálastofnunar.
Tíu störf gætu skapast
í lífmassaverksmiðju
Kísiliðjunni lokað/Miðopna
MIKILVÆGT er að góð yfirsýn sé yfir íslenskt
atvinnu- og fjármálalíf hjá Kauphöll Íslands.
Þessi gluggahreinsunarmaður var í óða önn að
hvítþvo glervegg Kauphallarinnar þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins átti þar leið hjá í
gær.
Þaðan ætti því að sjást vel, hvort sem fylgst
er með atvinnu- og fjármálalífinu, eða horft er
yfir Sundin eða á Esjuna.
Morgunblaðið/RAX
Kauphöllin hvítþvegin
PÉTUR Blöndal alþingismaður hef-
ur tekið við sem formaður stjórnar
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn-
is eftir að Óskar Magnússon hætti í
stjórninni sl. föstudag að eigin ósk.
Stjórn SPRON mun væntanlega
ræða á næstu dögum um hvenær
ákveðið verði að halda fund með
stofnfjárfjárfestum að sögn Péturs.
Hann segir viðbúið að stjórn
SPRON muni taka breytingum eigi
síðar en á næsta aðalfundi, í febrúar
eða mars næstkomandi.
Pétur Blöndal
stjórnar-
formaður
SPRON
Viðbúið/14
DÓMUR þess efnis að kvikmyndin
Trúlofunin langa geti ekki talist
frönsk gæti haft áhrif víðar í kvik-
myndaheiminum. Myndin var dæmd
á þeim forsendum að hún hefði verið
gerð að megninu til fyrir bandarískt
fé.
Að sögn Laufeyjar Guðjóns-
dóttur, forstöðumanns Kvikmynda-
miðstöðvar Íslands, hefur samfram-
leiðsla á kvikmyndum aukist í
áranna rás sem hefur valdið því að
oft er erfitt að úrskurða hvaðan
kvikmyndir eru. Margar íslenskar
kvikmyndir hafa verið gerðar í sam-
vinnu við erlenda aðila en Laufey á
þó ekki von á því að franski dóm-
urinn muni hafa djúpstæð áhrif
hérlendis.
Atriði úr Trúlofuninni löngu.
Íslenskar
myndir
„óíslenskar“?
Og frá/49
♦♦♦
EKIÐ var á unga konu við Vestur-
götu í Sandgerði um fimmleytið í
gær. Ökumaður bifreiðarinnar ók á
brott án þess að huga að líðan kon-
unnar, að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík, og er hans leitað. Sjúkrabifreið
og lögregla komu á staðinn til þess
að huga að konunni, sem var rænu-
lítil þegar komið var að henni. Hún
var flutt á sjúkrahús þar sem í ljós
kom að hún var lærbrotin.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um mál þetta eru beðnir um að hafa
samband við lögregluna í Keflavík.
Ók á konu
og stakk af