Morgunblaðið - 07.12.2004, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍSLAND Í 13.–17. SÆTI
Stúlkur í 10. bekk eru áberandi
betri í stærðfræði en drengir og er
Ísland eina landið í OECD þar sem
svo mikill munur mælist á stærð-
fræðikunnáttu kynjanna, að því er
fram kemur í rannsókn sem náði til
OECD-ríkja og 11 annarra landa. Ís-
lensk ungmenni eru í 13.–17. sæti
miðað við hinar þjóðirnar þegar
stærðfræðikunnátta er mæld.
Breytingar á stjórnarskrá
Forsætisráðherra skrifaði í gær
formönnum stjórnmálaflokka sem
sæti eiga á Alþingi og óskaði eftir til-
nefningum frá þeim í stjórnar-
skrárnefnd sem hafi það hlutverk að
vinna að breytingum á stjórnarskrá
íslenska lýðveldisins. Halldór skýrði
frá þessu í ræðu í Þjóðmenning-
arhúsinu í gær vegna loka heima-
stjórnarafmælis.
Fischer vill búa á Íslandi
Utanríkisráðuneytinu hefur borist
bréf frá Bobby Fischer, fyrrum
heimsmeistara í skák, þar sem hann
biður um að fá að búa hérlendis. Er
beiðni Fischers nú til skoðunar hjá
ráðuneytinu að sögn Illuga Gunn-
arssonar, aðstoðarmanns utanrík-
isráðherra.
Blóðug átök í Jeddah
Minnst átta menn biðu bana þegar
vopnaðir menn réðust á bandarísku
ræðismannsskrifstofuna í Jeddah í
Sádi-Arabíu í gær. Talið er að árás-
armennirnir tengist al-Qaeda.
Fatah hótar Barghuti
Marwan Barghuti, einn af leiðtog-
um Fatah-hreyfingarinnar, verður
rekinn úr henni hætti hann ekki við
að bjóða sig fram í forsetakosning-
um Palestínumanna 9. janúar. Nýr
formaður hreyfingarinnar, Faruq
Qaddumi, lýsti þessu yfir í gær.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 30
Úr verinu 12 Viðhorf 32
Viðskipti 16/17 Minningar 35/44
Erlent 18/19 Skák 45
Minn staður 20 Dagbók 48/50
Landið 21 Myndasögur 48
Akureyri 22 Staður og stund 49
Austurland 23 Fólk 54/57
Listir 24/25, 51/53 Bíó 54/57
Daglegt líf 26/27 Ljósvakar 58
Umræðan 28/34 Veður 59
Bréf 34 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
ÞAÐ þykir nánast öruggt að eldur-
inn í húsinu við Bárustíg á Sauðár-
króki, sem brann á laugardagsmorg-
un, hafi kviknað í austurhluta stofu á
neðri hæð en þar var eldurinn mest-
ur. Upptökin eru að öðru leyti óljós.
Litlar líkur þykja þó á að kviknað
hafi í út frá rafmagni.
Tæknideild lögreglunnar í
Reykjavík og menn frá ríkislög-
reglustjóra hafa aðstoðað lögregluna
á Sauðárkróki við rannsóknina.
Eldurinn var mjög mikill
Að sögn Björns Mikaelssonar, yf-
irlögregluþjóns á Sauðárkróki, eru
allar hugsanlegar vísbendingar um
eldsupptök kannaðar og ekkert úti-
lokað í þeim efnum.
Ljóst er að eldurinn í stofunni var
gríðarmikill því nánast öll húsgögn
þar inni brunnu til ösku.
Auk rannsóknar tæknideildar lög-
reglunnar í Reykjavík hafa skýrslur
verið teknar af fjölda manns, í þeirri
von að hægt verði að varpa ljósi á
eldsupptökin; bæði þeim sem urðu
vitni að eldsvoðanum á laugardags-
morgun og einnig þeim sem voru í
samkvæmi sem haldið var í húsinu
um nóttina. Tveir lögreglumenn frá
ríkislögreglustjóra hafa aðstoðað við
skýrslutökur.
Aðspurður segir Björn Mikaels-
son yfirlögregluþjónn að reykskynj-
ari hafi átt að vera í húsinu en hann
hafi þó ekki fundist innandyra. Þá er
ljóst að ekkert heyrðist frá reyk-
skynjara á laugardagmorgun.
Ekki verður greint frá nafni hins
látna fyrr en kennslanefnd ríkislög-
reglustjóra hefur lokið rannsókn
sinni, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Sauðárkróki.
Eldsvoðinn
á Sauðárkróki
Kviknaði
í austur-
hluta stofu
á neðri hæð
„SKÚLI, það er líklega skynsamlegast að laga þetta með
skurðaðgerð, miðað við hversu ástand þitt er alvarlegt og
til að ná góðum bata sem fljótast. Ertu til í það?“ sagði
Aron Björnsson, heila- og taugaskurðlæknir, við sjúkling
sinn, Skúla K. Skúlason, sem leitaði til hans upp úr há-
degi á miðvikudag í síðustu viku vegna kvala í baki sem
leiddu niður í fót og leiddu einnig til máttleysis. Skúli
sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði um-
svifalaust játað þessu enda hefði hann verið svo kvalinn.
Aðgerðin fór fram kl. 17.30 þann dag. Mætti Skúli síðan í
vinnu sína beint af spítalanum morguninn eftir en hann
er framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Toyota umboðinu, P.
Samúelssyni.
Skúli sagði að ekki hefði verið efi í sínum huga að fara
í þessa aðgerð, sér hefði litist mjög vel á viðhorf starfs-
fólks deildarinnar til málsins, viðmót þess væri traust-
vekjandi og allir hefðu komið fram af röggsemi enda
hefði hann komist á mettíma aftur til starfa.
Aron Björnsson, yfirlæknir heila- og taugaskurðlækn-
ingadeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss, tjáði Morg-
unblaðinu að auk þess sem aðgerðin hefði tekist vel væri
rétt að geta þess að batinn væri líka einstaklingsbundinn
og læknir og sjúklingur hefðu verið sammála um að láta
hlutina ganga fljótt og vel fyrir sig. Þess ber þó að geta
að langflest tilvik lagast án aðgerða á mislöngum tíma.
Aron sagði að unnið hefði verið markvisst að því á
skurðsviði spítalans að stytta biðlista enda væru þeir að
sínu mati tímaskekkja. Tekist hefði að fjölga aðgerðum
og draga úr rekstrarkostnaði sviðsins. Aron sagði þetta
hafa tekist með öflugu og hæfu starfsfólki þar sem allir
legðust á eitt um að ná þessum markmiðum. Hann kvaðst
sjálfur hafa áhuga á rekstrarhliðinni og stundaði fyrir
nokkrum árum nám í viðskiptafræði með fram starfi
sínu og var þar til í ágúst sl. staðgengill sviðsstjóra á
skurðsviði, Jónasar Magnússonar. „Við eigum að til-
einka okkur bestu kosti einkageirans í opinbera kerfinu
og sinna sjúklingum okkar fljótt og vel og þegar þeir
þurfa þess en ekki setja þá á biðlista enda eru þeir aðal-
atriðið og við erum í þjónustuhlutverki,“ segir Aron og
ítrekar að þetta sé ekki sér einum að þakka heldur öllum
sem koma við sögu í aðgerðum sem þessum. Hann ítrek-
ar einnig að vel heppnuð aðgerð eins og í tilviki Skúla sé
einstaklingsbundin.
Fljót og góð þjónusta
„Þarna fékk ég alveg sérstaklega fljóta og góða þjón-
ustu. Það er greinilegt að allt starfsfólkið leggur sig
fram um að veita slíka þjónustu og sinna sjúklingum sín-
um af alúð og koma þeim fljótt og vel til starfa á ný,“
segir Skúli og segir að þarna sé svipað að verki staðið og
hjá einkafyrirtæki í harðri samkeppni.
Jónas Magnússon, sviðsstjóri skurðlækningasviðs
LSH, segir að með nýrri tækni og nýju vinnuskipulagi
hafi tekist að stytta legutíma sem þýðir að hægt sé auka
afköst og í mörgum tilvikum að ná niður biðlistum. Segir
hann þetta einnig leiða til hagræðingar og yrði skurð-
sviðið rekið með 30 milljóna króna afgangi á árinu.
„Þetta tekst með samstilltu átaki allra starfsstétta enda
erum við með toppstarfslið,“ segir Jónas og bendir á að
alls staðar á spítalanum sé metnaður til þess að taka upp
nýjungar sem skili sér í betri meðferð og að alltaf væri
nokkur nýsköpun á spítalanum.
Í vinnu hálfum sólarhring
eftir brjóskaðgerð
Morgunblaðið/Árni Torfason
Skúli K. Skúlason kominn í vinnuna og segist vel brattur eftir aðgerðina, hann megi bara ekki sitja of lengi í einu.
SJALDGÆF vara er nú til sölu hjá
húsgagnaversluninni Míru í Kópa-
vogi en það er ekta ísbjarnarskinn af
grænlenskum birni. Skinnið kostar
600 þúsund krónur og er sútað og
saumað hér á landi, hjá Manúel
Arjona hamskera. Skinnið er selt í
umboðssölu og hafa margir sýnt því
áhuga.
Veiðar á ísbjörnum eru heimilaðar
á Grænlandi með takmörkunum og
er grænlenskum veiðimönnum heim-
ilt að veiða úr kvóta sem þeim er út-
hlutað. Heimilt er að flytja inn bjarn-
arfeldi til landsins, að fengnum
tilskyldum leyfum og vottorðum frá
yfirdýralækni. Miklu skiptir hvernig
skinn eru flegin af bjarnarbúkum og
ekki síður eftirvinnsla og verkun
skinnanna. Þá eru vetrarskinn verð-
mætari en sumarskinn og hvítur lit-
ur á skinni er eftirsóknarverður.
Einnig skiptir vandaður saumaskap-
ur á hausnum máli, svo eitthvað sé
nefnt. Tennur og gerviaugu úr gleri
eru flutt inn sérstaklega.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bjóða grænlenskt
ísbjarnarskinn
Heimilt að flytja inn feldi
RÁÐIST var á dyravörð á
skemmtistað í miðborginni aðfara-
nótt sunnudags. Stúlka hafði kom-
ið að staðnum og reynt að komast
inn á fölsuðum skilríkjum. Dyra-
verðir lögðu hald á skilríkin og hélt
stúlkan við svo búið á brott. Kom
hún stuttu seinna með tvo þrekna
menn með sér sem lömdu dyra-
vörðinn og náði hún skilríkjunum
af honum í kjölfarið. Dyravörður-
inn var með sprungna vör eftir
átökin. Sömu nótt gekk maður ber-
serksgang á skemmtistað í mið-
borginni og þurfti þrjá dyraverði
til að halda honum. Hafði hann m.a.
slegið til gesta á staðnum. Um
svipað leyti var tilkynnt um slas-
aðan mann á öðrum skemmtistað í
nágrenninu. Sá hafði fengið glas í
andlitið og hlotið skurð á vinstra
eyra. Hann fór sjálfur á slysadeild.
Náði í tvo beljaka