Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 51 MENNING VETRARMESSA er óformlegt framhald sýningarinnar Draumar Dystópíu sem haldin var í Klink og Bank sl. sumar. Norræna húsið virðist vera að vakna til nýrrar vit- undar sem sýningarsalur ungra og upprennandi listamanna og það er gaman að því. Nú um stundir er því mikið úrval íslenskrar sam- tímalistar í boði í sýningarsölum bæjarins, verk tuttuga lengra kom- inna í Listasafni Íslands og hér verk sextán listamanna með styttri starfsreynslu. Listamennirnir hafa allir lagt mikið í verk sín hér og sýningin er fjölbreytt. Það er þó eins og einhver dularfullur jöfn- uður sé í gangi og rétt eins og í Listasafni Íslands er enginn einn sem sker sig úr. Kannski er líka ómögulegt að skera sig úr þegar allir eru svona ólíkir. Hvað gerist þá? Verður til einhvers konar eins- leitni margbreytileikans? Er eitt- hvað slíkt mögulega til? Hljómar neikvætt en er ekki hugsað þannig heldur sem spurning um einkenni samtímalistarinnar. Ef samsýning- arformið er borið saman við önnur listræn framsetningarform, smá- sagnasöfn t.d. eða tónleikakvöld, má merkja hér einhvern mun á nálgun þeirra sem hlut eiga að máli. Ef ætlunin er að vekja áhuga lesenda á smásagnasafni getur margbreytileiki vissulega verið einn þáttur þar í en oftar en ekki er e.t.v. reynt að finna einhvern flöt sem gæti höfðað til almenn- ings, eitthvert þema eða umfjöll- unarefni sem vakið gæti forvitni. Eins veljast hljómsveitir sem halda saman tónleika oft saman vegna þess að eitthvað tengir þær, tón- listarlega eða hugmyndafræðilega. Að mínu mati er fjölbreytnin ein ekki áhugaverð nema upp að vissu marki, sama gildir um þá stað- reynd að ný verk listamanna eru, eins og líka kemur fram í sýning- arskrá, e.t.v. ekki lýsandi fyrir eldri verk þeirra. En þrátt fyrir þetta má finna fyrir ákveðnum andblæ á þessari sýningu, andblæ sem e.t.v. skapast vegna nálægðar í aldri listamannanna, afstöðu og hugsanlega tilvistar Klinks og Banks. Manneskjan er í fyrirrúmi, með áherslu á persónulega reynslu, og samspil við áhorfandann er þáttur í nokkrum verkanna, t.d. í hljóðverki Gunnhildar Hauksdóttur sem er áleitið og fyndið. Húmor er í fleiri verkum, spilað er á hið aumkunarverða í teikningum og texta Ragnars Kjartanssonar, en húmorískt háð ríkir í málverki Hafsteins Michaels. Aftari salurinn í Norræna húsinu er heldur sterk- ari en sá fremri, þar myndast meira samspil verka. Stílhreint út- lit frakka og veggmyndar Jóns Sæ- mundar kemur vel út og skúlptúr Páls Banine spilar vel með verki Jóns, hér skapast dularfull sam- skipti sem geta kveikt í ímynd- unaraflinu. Loðboltar Bryndísar Ragnarsdóttur leggja líka orð í belg en verk hennar er fjörlegt til- brigði við skúlptúrhefðina. Dökkir, loðnir boltarnir skapa fallegt mót- vægi við myndbandið og bjóða áhorfendum af yngri kynslóðinni upp á leik. Sýningin í Norræna húsinu er fjörleg og forvitnileg og upplagt að skoða hana í samhengi við sýn- inguna í Listasafni Íslands. En eins og sýningin þar vekur hún margar spurningar um stöðu og eðli samtímalistar, ein sú áleitnasta er hvort misræmi sé milli fram- sækni við sköpun listaverka og framsetningarmáta þeirra? Enn er fyrirbærið sýning í þar til gerðu sýningarrými ef til vill of sjálfsagt framsetningarform og spurning hvort ekki þurfi að klæðskera- sauma sýningar meira í anda verka. Manneskjan í fyrirrúmi á Vetrarmessu Morgunblaðið/Þorkell Málverk eftir Markús Þór Andrésson á sýningunni í Norræna húsinu. MYNDLIST Norræna húsið Fram í janúar 2005. Sýningarsalir eru opnir þri.–sun. frá kl. 12–17. Vetrarmessa, samsýning 16 íslenskra listamanna Ragna Sigurðardóttir ÓSKAR Árni Óskarsson hefur sent frá sér nýja bók sem heitir því frum- lega nafni Truflanir í Vetrarbraut- inni. Óskar hóf feril sinn sem ljóð- skáld en hefur í seinni tíð lagt sig eftir prósaforminu og þessi nýja bók inniheldur stutta texta sem flokkast undir laust mál. Erfitt er að flokka slíka texta reyndar, eru þetta prósa- ljóð eða e.t.v. það sem hefur verið kallað örsögur? Textar Óskars Árna hafa margir dálítinn frásagnarkjarna og eru því nær sögu en ljóði en þetta er auðvitað ekki einhlítt því í sumum textum er ljóðrænan áberandi þátt- ur, reynt er á þanþol tungumálsins og vakin hugrenningatengsl eða grunur eins og gert er gjarnan í ljóð- um. Hvað sem öllum skilgreiningum líður eru hér á ferðinni textar sem settir eru upp sem óbundið mál og Óskar nýtir sér annars vegar kosti prósaljóðsins þar sem ímyndunarafl hans og óbeislað hugarflug kemur að góðum notum og hins vegar nýtir hann sér einnig frásagnarkjarna ör- sögunnar sem snýst gjarna um eitt atvik eða atburð. Sem dæmi um vel heppnaðar fjar- stæður má taka texta sem ber heitið Bekkurinn. Upphafið er svohljóð- andi: „Þeir sem setjast á bekkinn verða þess fljótlega varir að úr póst- kassa handan við götuna berst lág- vær tónlist frá Nepal. Krossleggi þeir fæturna geta þeir umsvifalaust talað sjö tungumál. Fari þeir hins vegar úr skónum byrja kirkjuklukk- ur að hringja …“ Hinir jarðbundnu hrista eflaust hausinn eftir lestur svona texta en þeir sem kunna að meta hinn frjálsa leik orðanna og hin óvæntu tengsl sem fjarstæðurnar vekja gleðjast með skáldinu. Það eru margir fleiri fjarstæðutextar í Trufl- unum í Vetrarbrautinni sem koma skemmtilega á óvart. Nefna má: Á báðum áttum, Vindlar, Ég hef aldrei, Sending. Freistandi er að vitna hér í einn vel gerðan fjar- stæðutexta til við- bótar sem nefnist Sporin sem þú skildir aldrei eftir. Sá endar á mjög áleitinni fjar- stæðu og í raun þver- sögn: „Veistu hvernig það er að láta sem allt sé í stakasta lagi í vinnunni meðan bók- haldið verður sífellt fóknara, snjónum kyngir niður og sporin sem þú skildir aldrei eftir hverfa hægt og hægt.“ Það má finna texta sem ekki ná almennilega að lifna í huga lesandans en þeir eru til- tölulega fáir en nefna má Stutta lýs- ingu á heimsenda en þar segir að þangað geti „verið gott að skríða á vetrarkvöldum með vodkafleyg og sjálfvirkan og plaffa út á sjóinn“. Undarlegur er endirinn á Þegar ég varð kona sem annars er bráð- skemmtilegur texti og lýsir umbreyt- ingunni sem verður þegar karl breyt- ist í konu en endirinn er gróteskur í meira lagi því það eina sem mæland- inn segist ekki hafa „náð nógu góðum tökum á er bannsettur halinn“. Eins og áður kom fram er líka að finna texta í bókinni sem innihalda frásagnarkjarna, þar sem lögð er áhersla á að segja sögu. Í einum slík- um sem nefnist Á Guðs vegum er frá- sögnin lituð gáskafullri kímni og frá- sagnargleði. Hér er sögð saga manns sem kemur til borgarinnar að austan og gistir á Hjálpræðishernum og kynnist konu sem leiðir til mikilla umbreytinga á högum hans. Í lokin koma svo nýjar upplýsingar um for- tíð mannsins sem krydda söguna enn frekar. Bráðskemmtileg saga sem sýnir að Óskar Árni gæti alveg reynt fyrir sér sem sagnahöfundur þótt undirrituðum finnist ljóðlistin vera það listform sem hentar honum best. En auðvitað geta skáldsögur verið ljóðrænar eins og sannast hefur á Thor, Einari Má, Gyrði og Steinunni Sigurðardóttur og fleiri rithöfundum. Að öllu samanlögðu er þessi prósa- bók Óskars Árna bráð- skemmtileg aflestrar og hann sýnir meiri tilþrif í þessari bók en flestum fyrri bóka sinna. Les- andinn finnur að hann er með alvöruskáldskap milli handanna og marg- ir fjarstæðutextarnir nálgast að vera tær snilld. Dirfskan er ef til vill einn helsti kostur Óskars í Truflunum í Vetrarbrautinni, hér er á ferðinni nýjung í íslensk- um bókmenntum sem sýnir svo ekki verður um villst að smáprósar eru raunhæfur valkostur fyrir frumlega rithöfunda. Ekki spillir fyrir útgáf- unni hversu vönduð hún er, papp- írinn þykkur og góður og öll hönnun til fyrirmyndar. Bókarkápan er fal- leg, látlaus en smekkleg og hér fer saman gott útlit og innihald. Óhætt er því að mæla með þessari bók fyrir vandláta lesendur. Tilverunni snúið á haus BÆKUR Ljóð Óskar Árni Óskarsson. Útg. Bjartur. Reykjavík 2004, 73 bls. Truflanir í Vetrarbrautinni Óskar Árni Óskarsson Guðbjörn Sigurmundsson SÉRSTÖK menningar, lista- og félagsvísindaverðlaun Hol- berg-sjóðsins, alþjóðlegs minn- ingarsjóðs sem ber heiti norsk- danska fræðimannsins Ludvig Holberg voru veitt í fyrsta skipti í Bergen í Noregi á dög- unum. Fyrst til að hljóta verðlaunin var Julia Kristeva, forstjóri skjala- og textarannsókna- deildar Parísarháskóla en verð- launin, sem Hákon Noregs- prins afhenti, hlaut hún fyrir brautryðjandastarf í rann- sóknum á snertiflötum mál- fræði, menningar og bók- mennta. Kristeva hlýt- ur Holberg- verðlaunin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.