Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
HJÁLP!
MÚS!
HVAÐ? HANN Á
AFMÆLI Í DAG
HJÁPAR
ÞAÐ ÞÉR
EITTHVAÐ?
ÞAÐ ER ÓHOLLT FYRIR ÞIG! ÞÚ ERT BARA AÐ LJÚGA AÐ SJÁLFUM ÞÉR!
ÞAÐ GAGNRÝNA ALLIR
NÝJA ARMBANDIÐ MITT
VAKNAÐU KALVIN, ÞÚ
ÞARFT AÐ MÆTA Í
SKÓLANN
ÉG ER HÆTTUR Í
SKÓLANUM!
ÞÚ MÁTT EKKI
HÆTTA Í
SKÓLANUM!
HVAÐ MEÐ
HOBBES? AF
HVERJU ÞARF
HANN ALDREI
AÐ FARA Í
SKÓLANN
HANN
ER
TÍGUR
AF HVERJU ÞURFA
TÍGRISDÝR EKKI AÐ
FARA Í SKÓLA?
VEGNA ÞESS AÐ
VIÐ BORÐUM FÓLK
Risaeðlugrín
NEI SKO! HÆNUEGG ... VIÐ SJÁUM
BRÁÐUM HÆNUUNGA Á SVÆÐINU!
ÞETTA? ÞETTA ER EKKI HÆNUEGG,
HELDUR RISAÞÓRSEÐLUEGG!
JÁ, JÁ. LÁTTU EINS OG ÉG SÉ FIFL! ÞETTA SMÁ
SNITTI RISAÞÓRSEÐLUEGG? HA HA HA!
DREPFYNDIÐ!!
FINNST
ÞÉR ÞAÐ
JÁ?
ÞÚ ÆTTIR AÐ VITA AÐ ÞAÐ AÐ SKOÐA BARA SMÁ
ATRIÐIN OG EKKI HEILDINA LEIÐIR OFT TIL
MISSKILNINGS. ÞÚ HEFÐIR ÁTT AÐ RANNSAKA
ÞETTA NÁNAR ...
JÁ ... ÉG VORKENNI
AUMINGJA MÓÐURINNI
SEM ÞURFTI AÐ VERPA
ÞESSU!
... OG ÞÁ HEFÐIR ÞÚ
SÉÐ EGGIÐ Í ÖLLU
SÍNU VELDI.
© DARGAUD
HVAÐ FINNST
ÞÉR UM ÞETTA?
HVAÐ
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 7. desember, 342. dagur ársins 2004
Víkverji hefur sagtupp áskrift að
sjónvarpsstöðinni
Sýn. Dagskrá Sýnar
hverfist um íþróttir og
það var reiðarslag fyr-
ir stöðina þegar hún
missti sýningarréttinn
á ensku knattspyrn-
unni fyrir yfirstand-
andi sparktíð. Hefur
Sýn reynt að milda
áfallið með því að taka
upp útsendingar frá
spænsku og ítölsku
knattspyrnunni í stað-
inn. Það er auðvitað
eins og að bjóða
mönnum upp á tekex í staðinn fyrir
nautalundir. Það á einkum við um
ítölsku knattspyrnuna sem er með
leiðinlegasta sjónvarpsefni sem um
getur. Þátturinn Maður er nefndur
yrði skilgreindur sem „ofsaspenna“ í
þeim samanburði.
x x x
Eigi að síður hefur Víkverji haldiðtryggð við Sýn, einkum vegna
útsendinga stöðvarinnar frá meist-
aradeild Evrópu en þar hafa ensku
liðin haft skilyrðislausan forgang.
En nú er svo komið að Víkverji get-
ur ekki meira. Ástæðan er Logi
Ólafsson, svokallaður „sérfræð-
ingur“ við lýsingar frá
leikjum meistaradeild-
arinnar. Það er dap-
urlegt að þjálfari ís-
lenska landsliðsins
hafi ekkert faglegt til
málanna að leggja, að-
eins aulabrandara.
Leik eftir leik segir
hann ekkert sem máli
skiptir en reytir af sér
aulabrandara, oft í
tugatali í hverjum leik.
Í stað þess að auðga
útsendinguna með fag-
legu innsæi dregur
hann hana niður og
gerir þegar verst læt-
ur nánast óbærilega.
Þetta er ennþá pínlegra fyrir Sýn
eftir að Skjár 1 hóf að senda út leiki
með enskum lýsingum. Þar kunna
sérfræðingar á borð við Andy Gray,
Paul Walsh og Robbie Earle sitt fag.
Grípa inn í lýsinguna þegar það á við
með faglegum hætti en rembast ekki
eins og rjúpan við staurinn að segja
brandara í tíma og ótíma.
Af þessum sökum þykir Víkverja
nóg komið. Framvegis mun hann
horfa á útsendingar frá meistara-
deildinni á næstu knæpu, á enskum,
dönskum, hollenskum eða finnskum
stöðvum. Allt er betra en aulabrand-
ararnir hans Loga.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Gjörist ekki sljóir. Breytið heldur eftir þeim, sem vegna trúar og stöð-
uglyndis erfa fyrirheitin. (Hebr. 6, 12.)
Fíladelfía | Gospelkór Fíladelfíu var á strangri æfingu í gær enda komið að
hinum vinsælu jólatónleikum Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, sem haldnir
eru árlega við fögnuð unnenda gospeltónlistar. Haldnir verða fernir tónleik-
ar, hinir fyrstu í kvöld kl. 20, og er fyrir löngu orðið uppselt á þá alla. Sem er
vel því allur ágóði af tónleikunum mun renna til þeirra sem „minna mega sín“
eins og orðað er á heimasíðu Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi. Sérstakir gest-
ir kórsins verða söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Egill Ólafsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Æft fyrir jólatónleika