Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kristín Steinsdóttir hefurekki legið á liði sínu þettaárið því í haust koma út eftir hana tvær bækur, önnur fyr- ir börn og hin fyrir fullorðna. Nefnist barnabókin Vítahringur – Helgusonasaga – en hin heitir Sólin sest að morgni. Frá því fyrsta bókin hennar kom út árið 1987 eru bækurnar orðnar tutt- ugu en ef titlarnir eru allir taldir þá eru þeir 31. „Þetta skiptir nú engu máli,“ segir hún þegar ég inni hana eftir þessum afköstum. „Sumt af þessu eru stuttar sögur og aðr- ar lengri eins og gengur og ég hef ekki verið að velta þessu mikið fyrir mér.“ Sólin sest að morgni er titill bókarinnar sem ætluð er full- orðnum lesendum og er fyrsta bók Kristínar fyrir þann les- endahóp. „Þetta eru minningar mínar frá æskuárum á Seyðisfirði en þó ekki skrifaðar eins og ævisaga. Þrátt fyrir að ritferill minn sé ekki nema sautján ár byrjaði ég að hugsa um efni þessarar bókar fyrir einum fjörutíu árum. En ég fór ekki skrifa hana fyrr en löngu síðar og hún hefur verið í smíðum í þó nokkur ár.“    Sagan er byggðupp með stuttum köflum, jafnvel máls- greinum þar sem eru afskaplega tær- ar og skarpar lýs- ingar og yfir öllu ríkir andrúmsloft angurværðar að ekki sé sagt sorg- ar. En kátínan er heldur aldrei langt undan. „Hvort sem fólk kýs að kalla þetta skáldsögu eða prósaljóð er mér eiginlega slétt sama svo fram- arlega sem bókin er lesin. Þarna fer ég á vit atburða sem ég man eftir og persónur sögunnar voru margar raunveru- legar. Sumar eiga sér fleiri en eina fyrirmynd en aðrar eina. Bókinni skipti ég í fjóra megin- hluta, auk inngangs og niður- lags.“ Það gefur bókinni skemmti- legan svip að í henni eru birtar myndir af fjölskyldu Krístínar frá bernskuárum hennar. En mynda- textar eru engir. „Ég vildi ekki hafa neina myndatexta til að gefa mynd- unum almennari skírskotun. Á öftustu síðu bókarinnar má þó sjá hverja um ræðir. Þetta eru mynd- ir sem eru eins og svo margar myndir í svo mörgum fjöl- skyldualbúmum frá þessum tíma. Margir hafa einmitt sagt við mig að minningarnar og myndirnar drægju fram stemningar úr þeirra eigin fjölskyldulífi. Það þótti mér skemmtilegt.“    Frásagnaraðferð Kristínar er ífyrstu persónu þess er stadd- ur er í sögunni á þeim tíma en inn á milli stingur annar sögumaður sér inn í frásögnina. „Það er full- orðin kona sem er stödd í Reykja- vík í deginum í dag.“ Er það Kristín sjálf? „Það getur vel hugsast.“ Hvaða saga er þetta? „Þetta er saga mín án þess að ég sé í forgrunni. Þetta er saga fólks sem ólst upp á þessum tíma, sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Mig langaði til að setja þetta í þannig búning að ætti við fleiri en mig og væri lýsing á tíð- aranda ekki síður en persónu- saga. Saga sem fólk af minni kyn- slóð og aðrir gætu fundið sig í. Af viðbrögðum fólks að dæma þá er ég að vona að þetta hafi tekist.“ Vítahringur – Helgusonasaga – er í rauninni ekkert dæmigerð bók eftir þig heldur, þótt hún sé ætluð börnum. „Það er rétt. Ég ákvað að velja mér Íslendingasögu og skrifa bók fyrir börn eftir henni. Fyrir val- inu varð Harðar saga Hólmverja og aðalpersóna sögu minnar er sonur hans Grímkell sem er tólf ára gamall þegar sögunni lýkur. Ég held mig að öðru leyti við at- burðarás Harðarsögu en allar lýs- ingar á persónunum eru mínar og allt sem er í kringum söguþráðinn er frá mér komið. Harðarsaga segir frá erjum og illdeilum sem Hörður lendir í og lýkur með því að hann tekur sér bólfestu í Geirshólma (Harðarhólma) innst í Hvalfirði. Þar í grenndinni er Hörður felldur en Helga jarls- dóttir kona hans syndir til lands með Grímkel og Björn, yngri bróður hans, á bakinu. Saga mín endar á því að þau komast upp á land og flýja yfir í Skorradal. Eft- irmáli sögunnar er öllu harð- neskjulegri og ég ætla ekki að greina frá honum hér til að spilla ekki fyrir væntan- legum lesendum.“ Kristín segist lengi hafa verið hrifin af Harðarsögu og hugsa til hennar í hvert sinn er hún fari um Hvalfjörð. „Ég bjó lengi á Akranesi og ók því Hvalfjörðinn oft. Ég er alltaf að bíða eftir því að einhver geri kvik- mynd eftir þessari sögu með þetta stórkostlega landslag Hval- fjarðarins að bak- grunni.“    Það er HallaSólveig Þorgeirsdóttir sem myndskreytir bókina á sinn ein- stæða hátt en samvinna þeirra Kristínar hefur áður borið góðan ávöxt í bókinni Engill í vestur- bænum sem hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin á síðasta ári og Vestnorrænu barnabókaverð- launin í ár. „Halla er hreint fanta- góður myndskreytir og mynd- irnar hennar bæta svo sannarlega við söguna. Sigrún Sigvaldadóttir sér um grafíska hönnun eins og í Englinum og er mikill fengur að henni.“ Kristín bendir að lokum á skemmtilega lausn fyrir unga les- endur bókarinnar til að átta sig á þeim fjölda persóna sem kemur við sögu: „Halla Sólveig hefur teiknað kort og allar persónurnar fremst í bókina svo krakkarnir geti hent reiður á þeim.“ Lýsing á tíðaranda AF LISTUM Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is „Fer á vit atburða sem ég man eftir og persónur sögunnar voru margar raunverulegar,“ segir Kristín Steinsdóttir rithöfundur. ’Þrátt fyrir að ritferillminn sé ekki nema sautján ár byrjaði ég að hugsa um efni þessarar bókar fyrir einum fjöru- tíu árum.‘ HÉRI HÉRASON Fyndið - fjörugt - ferskt - farsakennt Stóra svið Nýja svið og Litla svið BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Fö 10/12 kl 20, Su 12/12 kl 20, Mi 29/12 kl 20 AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar Frumsýning fö 7/1 kl 20 - UPPSELT Lau 8/1 kl 20 - GUL KORT Su 9/1 kl 20 - AUKASÝNING Lau 15/1 kl 20 - RAUÐ KORT Su 16/1 kl 20 - GRÆN KORT Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT Lau 22/1 kl 20 GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ - GILDIR ENDALAUST Gjafakort fyrir einn kr. 2.700 - gjafkort fyrir tvo kr. 5.400 Gjafakort á Línu Langsokk fyrir einn kr. 2.000, fyrir tvo kr. 4.000 VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU - pantið í síma 568 8000 eða á midasala@borgarleikhus.is Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 2/1 kl 14, Su 9/1 kl 14, Su 16/1 kl 14 Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20 SÖNGLIST - NEMENDASÝNING Í kvöld kl 20, SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Mi 29/12 kl 20, Su 2/1 kl 20 Fö 14/1, Fi 20/1 AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR eftir Ionesco Í samstarfi við LA Frumsýning þri 28/12 - UPPSELT Fi 30/12 kl 20, Su 2/1 kl 20, Fö 7/1 kl 20, Lau 8/1 kl 20 BROT AF ÞVÍ BESTA - BÓKAKYNNING Kringlusafns, Kringlunnar og Borgarleikhúss: Birna Anna Björnsdóttir, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson, Gerður Kristný, Njörður P. Njarðvík, Stefán Máni Fi 9/12 kl 20 - Aðgangur ókeypis Ljúfir tónar og léttar veitingar ☎ 552 3000 EKKI MISSA AF KÓNGINUM! AÐEINS TVÆR SÝNINGAR EFTIR: • Sunnudag 12/12 kl 20 NOKKUR SÆTI • Sunnudag 26/12 kl 20 LOKASÝNING eftir LEE HALL Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is TVEIR FYRIR EINN á netinu Kíktu á loftkastalinn.is og tryggðu þér tvo miða á verði eins. 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími ÓLIVER! Frumsýnd 28. des Óliver! Eftir Lionel Bart Þri 28/12 kl 20 UPPSELT Frums. Mið 29/12 kl 20 UPPSELT Fim 30/12 kl 16 UPPSELT Fim 30/12 kl 21 UPPSELT Sun 2/1 kl 14 örfá sæti Sun 2/1 kl 20 örfá sæti Fim 6/1 kl 20 örfá sæti Lau 8/1 kl 20 UPPSELT Sun 9/1 kl 20 nokkur sæti Fim 13/1 kl 20 nokkur sæti Lau 15/1 kl 20 nokkur sæti Sun 16/1 kl 20 nokkur sæti Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir Lau . 11 .12 20 .00 ÖRFÁ SÆTI F im. 30 .12 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Miðasa lan e r op in f rá k l . 14 -18 Lokað á sunnudögum ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR ALNÆMI er stórt vandamál í Taílandi þar sem meira en ein milljón manna hefur smitast af HIV-veirunni á undangengnum tveimur áratugum. Þessi skúlptúr, sem gerður er úr beinum alnæmissjúklinga, er hluti af sýningu sem nú stendur yfir í búddíska hofinu Wat Phra Baat Namphu í Lopburi-héraði, sem er 150 km norður af Bang- kok. Tilgangur sýningarinnar er að vekja athygli á vandanum. Reuters Áminning um alnæmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.