Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞRÆLSKEMMTILEGUR KVEÐSKAPUR“ M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN „Andræði er sérstök ljóðabók þar sem gömlu og nýju formi er blandað saman svo úr verður nýr og ferskur kveðskapur sem baunar á nútímann.“ – Soffía Bjarnadóttir, Víðsjá Rás 1 SIGFÚS BJARTMARSSON: ANDRÆÐI ALLT tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins var kallað út síðdegis í gær vegna reyks og hitalyktar sem barst frá Lauga- vegi 22a. Flestum var þó fljótlega snúið við þar sem enginn eldur kviknaði. Samkvæmt upplýsingum frá slökkvilið- inu var brugðist skjótt við þar sem mikið er um gömul timburhús á þessu svæði og því mikill eldsmatur í nágrenninu. Um leið og fyrsti bíll kom á vettvang varð ljóst að um minniháttar mál var að ræða. Bílstjórum slökkviliðsbíla var því sagt að hægja ferð- ina og fljótlega var þeim snúið við. Hitalykt og reykur en enginn eldur UM MIÐNÆTTI á sunnudagskvöld var lögreglan í Reykjavík kölluð til vegna þjófnaðar úr hjálpartækjaverslun sem rekin er á skemmtistað í miðborginni. Þar hafði kona verið gómuð fyrir að stela margs konar tækjum til ástarleikja fyrir rúmar 40 þúsund krónur, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni í Reykjavík. Maðurinn sem var með henni hafði á hinn bóginn ekki tekið neitt ófrjálsri hendi. Ágirntist hjálpartæki LÖGREGLAN í Keflavík grunar einn mann um að hafa ekið á konu í Sandgerði mánudaginn 30. nóvember og síðan stung- ið af frá slysstað. Að sögn Jóhannesar Jenssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hef- ur maðurinn verið yfirheyrður og bíll hans rannsakaður. Kvað Jóhannes málið enn vera í rannsókn og vildi hann því ekki gefa nánari upplýsingar um það að svo stöddu. Einn maður grun- aður um ákeyrslu TVÍTUGUR karlmaður framdi rán í tveim- ur söluturnum í vesturbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í fyrrakvöld, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík. Fyrra atvikið átti sér stað á Vesturgötu. Þar vatt maðurinn sér inn í söluturn með krikketkylfu í hönd og krafðist þess að starfsfólk léti sig hafa peninga. Fór maðurinn á brott úr versluninni með nokkra tugi þúsunda. Þaðan hélt hann beint í annan söluturn í Ánanaustum og bar sig eins að þar og í fyrri versluninni. Þar var hann handtekinn skömmu síðar. Maðurinn var fluttur á Vog þar sem hann hóf vímuefnameðferð. Fluttur í meðferð eftir tvö rán ÖKUMAÐUR jeppa slapp ómeiddur þegar jeppi hans valt á Melrakkasléttu skammt frá Hraunhafnartanga, nyrsta tanga landsins, eldsnemma í gærmorgun. Mikil hálka var á veginum þegar óhappið varð, að sögn lögreglunnar á Þórhöfn. Hálka átti einnig sinn þátt í því að annar jeppi valt út af rétt fyrir hádegi, að þessu sinni í Þistilfirði, skammt frá brúnni yfir Hölkná. Kona sem ók bílnum slapp með minniháttar meiðsli. Bílvelta við nyrsta tanga LÖGREGLAN í Reykjavík hefur yfirheyrt nokkra aðila í tengslum við húsbrot og lík- amsárás í Fossvogi aðfaranótt laugardags. Eftir er að yfirheyra fleiri aðila vegna málsins. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu þarf að fá nánari upplýsingar um ýmislegt sem lýtur að rannsókn málsins. Fleiri verða yfirheyrðir. Yfirheyrðir vegna húsbrots í Fossvogi MENNTAMÁLARÁÐHERRA mun á næstunni skipa starfshóp sem á að meta tillögur um fram- tíðarstaðsetningu á Listaháskóla Íslands. Hún telur koma til greina að auka samvinnu skólans við aðra háskóla, t.d. Kenn- araháskóla Íslands. „Það hefur verið kannað und- anfarið hver þörfin sé fyrir listaháskóla og ég held að nú sé komið að því að kanna hvaða svæði hentar best, og hvar hugs- anleg samlegðaráhrif og sam- vinna háskóla geti leitt til þess að við sjáum enn öflugri listahá- skóla,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra. Hún segir að með þessu sé hún ekki að leggja til að Listaháskóli Íslands sameinist öðrum háskóla þótt ýmsar góðar hugmyndir um samvinnu skóla hafi komið upp. „Ég get til dæmis séð fyrir mér að Kennarahá- skóli Íslands og Listahá- skóli Íslands ættu eitt og annað sam- eiginlegt. Ég held ég vilji einfaldlega leyfa vinnuhópnum að meta þessi mál þannig að við getum komið Listaháskólanum fyrir á góðu svæði með það hús- næði sem hann geti blómstrað í.“ Ráðherra vill sam- vinnu Listaháskólans við aðra skóla Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir MENNIRNIR tveir sem voru handteknir með fíkniefni innvortis á laugardag komu með sömu flugvél frá Kaupmannahöfn á laugardag. Lögreglan á Keflavíkur- flugvelli rannsakar nú hvort tengsl hafi verið á milli mannanna. Báðir mennirnir eru erlendir ríkisborg- arar. Ekki fékkst gefið upp hversu miklu magni mennirnir smygluðu og í gær höfðu fíkniefnin ekki verið efnagreind. Fleiri höfðu heldur ekki verið handteknir vegna rannsóknarinnar. Komu með sömu flugvél „VIÐ vorum að gera markaðsrannsókn [í síð- ustu viku] og skoðuðum því 24 sjálfsafgreiðslu- stöðvar á höfuðborgarsvæðinu,“ útskýrir Ingi Þór Hermannsson, deildarstjóri markaðsdeild- ar Olíufélagsins Essó. „Við skráðum fjölda öku- tækja, kyn og um það bil aldur viðskiptavina stöðvanna.“ Hann segir að rannsóknin hafi náð til sjálfsafgreiðslustöðva ÓB, sem rekið er af Olís, Orkunnar og Atlantsolíu. „Engar upplýs- ingar voru skráðar sem hægt er að rekja til ein- staklinga eða bifreiða; engin bílnúmer voru t.d. skráð,“ upplýsir hann. Persónuvernd hefur fengið nokkrar fyrir- spurnir vegna þessarar rannsóknar að sögn Sigrúnar Jóhannesdóttur, forstjóra Persónu- verndar. Hún segir að skv. sínum upplýsingum sé ekki verið að safna persónuupplýsingum í skilningi laga um persónuvernd. „Í þeim símtöl- um sem við höfum fengið hafa lýsingarnar allar verið á svipaðan hátt, þ.e. að verið væri að telja viðskiptavini. Hvergi hefur komið fram að verið væri að skrá niður bílnúmer.“ Hún segir heldur engar kærur hafa komið fram. Segir margt óeðlilegt Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, segir margt óeðlilegt við vinnubrögð Essó í þessu máli. Til dæmis hafi starfsmenn Essó, Gunnar Skaptason, framkvæmdastjóri Ork- unnar, tekur í sama streng. „Þetta er eðli sam- keppninnar,“ segir hann. „Ef við fylgjumst ekki með og vitum hvað við erum að keppa við, þá er engin samkeppni.“ Ingi Þór, hjá Essó, segir rannsóknina gerða til að átta sig á samkeppnisumhverfinu. „Við viljum þekkja þennan markað og sjá hvernig hann lítur út; við viljum þekkja okkar sam- keppnisumhverfi.“ Hann segir aðferðina sem Essó hafi notað mjög þekkta og beinlínis kennda í kennslubók- um um markaðsrannsóknir. „Þetta er aðferð sem fyrirtæki beita, ekki bara olíufélögin, held- ur aðrir sem vilja afla sér upplýsinga um stöðu sína á markaði.“ Hann segir starfsmenn fyr- irtækisins hafa framkvæmt rannsóknina dag- ana 29. október til 5. desember. Þeir hafi verið á sínum eigin bílum. „Við sögðum okkar fólki að staðsetja sig þar sem það væri ekki fyrir nein- um. Enginn var í felum og átti ekki að vera í neinum felum.“ Fylgst hafi verið með bensínstöðvunum á ákveðnum tímum dagsins. „Þannig fáum við ákveðna sviðsmynd af þessu umhverfi,“ segir hann. „Þetta er nokkuð sem við höfum gert áður og munum örugglega gera aftur.“ sem fylgdust með bensínstöðvum Atlantsolíu alla síðustu viku, verið í ómerktum bílum. „Við þurftum að grafast fyrir um það fyrir hverja þeir störfuðu. Ekki sögðu þeir okkur það að fyrra bragði. Við fórum einnig fram á það að þeir sýndu okkur þau gögn sem þeir voru að búa til, en þeir neituðu því. Við vissum ekki hvort þeir voru að telja viðskiptavini okkar eða hvort þeir voru að skrá niður bílnúmer þeirra. Okkur fannst þetta líka einkennilegt gagnvart okkar viðskiptavinum, þ.e. að starfsmenn Essó skyldu vakta þá á þennan hátt.“ Hugi segir að fyrirtækið muni fara yfir þessi mál. „Við ætlum að fara yfir þessi mál með okk- ar lögfræðingum og hugsanlega óska eftir því að fá að sjá þau gögn sem voru búin til á þessu tímabili.“ Hann kveðst einnig velta því fyrir sér hvort Essó eigi jafnvel að biðja viðskiptavini Atlantsolíu afsökunar. Gera engar athugasemdir Talsmenn Olís og Orkunnar gera á hinn bóg- inn engar athugasemdir við þessa rannsókn Essó. Guðrún Erla Leifsdóttir, starfsmaður á skrifstofu Olís, segir ekkert óeðlilegt að fylgst sé með samkeppnisaðilum. „Okkur finnst ekk- ert óeðlilegt við þessa svokölluðu markaðsrann- sókn.“ Persónuvernd fær fyrirspurn- ir vegna rannsóknar Essó ALLT að sjö ára biðtími er eftir Rolex-úrum og dæmi eru um að útlendingar komi gagn- gert til landsins til að kaupa slík úr þar sem eftirspurnin er minni. Að sögn Franks Úlf- ars Michelsen, úrsmíðameistara á Lauga- vegi, hefur sala á Rolex-úrum verið með ein- dæmum góð í ár og sömu sögu er að segja af árinu á undan. Salan sé jöfn yfir árið en sala fyrir innanlandsmarkað sé meiri í jóla- mánuðinum. „Menn koma hingað sérstaklega til að kaupa úr og fara út aftur og fá ferðirnar til Íslands fríar fyrir mismuninn og meira en það,“ segir hann, en ferðamenn fá 15% af kaupverði greidd tilbaka. „Ég trúi þessu ekki“ Ein eftirsóttustu úr heims í dag eru að sögn Franks Rolex Daytona, sem kosta 890 þúsund krónur. Frank flytur að meðaltali 6– 10 slík úr til landsins á ári og á aðeins eitt eftir sem stendur í versluninni. Á þriðjudag í síðustu viku gekk Dani inn í verslunina en sá hafði falast eftir Rolex Daytona um all- nokkurt skeið án árangurs. „Hann gekk fram hjá glugganum hjá mér á þriðjudaginn og sá tvö úr. Hann kom strax inn og sagði: „Veistu, ég trúi þessu ekki, ég er á biðlistum í Dan- mörku og er búinn að leita að þessu út um allan heim og svo kem ég til Íslands og þá bíða tvö úr í glugganum.“ Daninn gekk frá kaupunum sl. föstudag. En hvað er það við Rolex-úrin sem gerir þau svona eftirsótt? „Úr er skartgripur karl- mjög vel.“ Til dæmis um nafntogaðan ein- stakling sem hefur keypt Rolex af Frank er breski gítarsnillingurinn Eric Clapton sem staddur var hér á landi fyrir nokkru, en son- ur Franks afgreiddi hann. „Því miður missti ég af honum,“ segir Frank. mannsins, karlmaður getur ekki skreytt sig eins og kvenmaður,“ segir Frank. Að sögn hans afþakkaði hann umboðið þráfaldlega í fyrstu þar sem hann bjóst ekki við að hægt yrði að selja úrin hér á landi en hann hefur haft umboð fyrir Rolex frá 1981. Hann hafi byrjað með nokkur úr en í dag gangi salan Allt að sjö ára biðtími eftir úrum sem sjá má í útstillingu á Laugavegi Rolex lokkar ferðamenn til landsins Morgunblaðið/Sverrir Frank Michelsen yngri og eldri með Rolex Daytona-úr, sem er eitt það eftirsóttasta í heimi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.