Morgunblaðið - 07.12.2004, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 25
MENNING
DEAN Ferrell, einn sex kontra-
bassaleikara Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, kom mér vitandi fyrst fram
sem sólisti á Listahátíð 2002. Flutti
hann þá einleiks-
verk fyrir kontra-
bassa eftir
Childs, Turetzky
og Johnson og
eigin útsetningar
á verkum eftir
Satie og Bach í
Ráðhúskjall-
aranum, og
fylgdu ýmsar
smellnar at-
hugasemdir af munni fram.
Það var því sniðugt uppátæki hjá
Dean (hvort sem einþáttungur Pat-
ricks Süsskind, „Kontrabassinn“, sé
meðal fyrirmynda eða ekki) að
ganga skrefi lengra og gera eins
manns tónskemmtiþátt kringum
flórgígjuna. Alltjent var að þessu
sinni sýnu meira lagt upp úr hinu
tal- og sjónræna en fyrir fimm miss-
erum þegar tónlistin var aðalatriðið.
Bassaleikarinn kom fram á sjóræn-
ingjabúningi sveipaður svartpúðurs-
reyk, er helgaðist af skrautlegum
ferli tónskálds dagsins, Tobias
Hume (d. 1645), kaptuga í brezka
hernum og einnig fríbýttara, en vesl-
aðist síðar upp á fátækrahæli. Þótt
sjálfur ku ekki hafa metið tónsmíðar
sínar mikils, hefur enginn verri en
Jordi Savall tekið gömbuverk hans
upp á sína arma. Má m.a. finna tit-
ilinn „Captaine Humes Musicall
Humors“, er leiðir ósjálfrátt hugann
að „C.P.E. Bachs Empfindungen“
120 árum síðar.
Dean Ferrell lék af töluverðri
leikni nokkrar umritanir sínar á
gömbustykkjum Humes er óhjá-
kvæmilega breyttu um karakter átt-
und neðar, þó að kontrabassinn sé
kominn af gömbufjölskyldunni í ann-
an trélegg. Inn á milli las hann upp
úr bréfum og bænarskrám Humes,
stundum með melódramatískum
undirleik, og þrátt fyrir að allt væri
á ensku mátti greina margt skondið
ef ekki tragíkómískt. Þá var einnig
sungið, m.a. þekktasta lag Humes,
Fain would I change that Note, með
sannfærandi mal canto sjóræn-
ingjarödd. Því miður var framan af
veruleg truflun af þrálátum ljósa-
gangi vegna tæknibilunar. Það var
synd, enda hætt við að hafi riðið
baggamuninn á að öðrum kosti
hnyttnu eða a.m.k. sérkennilegu
uppistandi í tónum, tali og effektum.
Músíkalski
sjóræninginn
TÓNLIST
Borgarleikhúsið
Verk eftir Tobias Hume. Dean Ferrell
kontrabassi / söngur / upplestur. Laug-
ardaginn 4. desember kl. 15.15.
Einleikstónleikar
Dean Ferrell
Ríkarður Ö. Pálsson
Fréttir
í tölvupósti
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar