Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 29
UMRÆÐAN
þú þekkir
Canon A400
Fullkomin vasamyndavél
Hentar afar vel byrjendum en hún er með 3.2
milljón punkta/pixla myndflögu þannig að þú
getur prentað út myndir í allt að A4 stærð.
• 2,2x aðdráttarlinsa.
• 3,2 milljón punktar/pixlar.
• Allt að 3 mín. myndskeið með hljóði.
• Direct Print.
Verð 22.900 kr.
Canon PowerShot A75
Auðveld en öflug
Canon PowerShot A75 er auðveld í notkun en
þó fullbúin til að takast á við krefjandi
myndatökur. Með 3.2 milljón punkta/pixla
myndflögu þannig að þú getur prentað út
myndir í allt að A4 stærð.
• 3x aðdráttarlinsa.
• 3,2 milljón punktar/pixlar.
• Fjölmargar tökustillingar.
• Allt að 3 mín. myndskeið með hljóði.
• Direct Print.
Verð 29.900 kr.
Canon Ixus 500
Ber af í öllum skilningi
Ixus 500 er glæsilega hönnuð fimm milljón
punkta/pixla vél sem býr yfir háþróaðri tækni.
Um er að ræða yfirburða stafræna myndavél
þar sem Digic myndflagan frá Canon skilar
frábærum myndgæðum.
• 3x aðdráttarlinsa og 9-punkta AiAF
sjálfvirkt fókuskerfi.
• 5 milljón punktar/pixlar.
• Skynjari sem nemur hvernig vélin snýr og
birtir myndirnar réttar við endurspilun.
• Allt að 3 mín. myndskeið með hljóði.
• Direct print.
Verð 49.900 kr.
Canon ip2000
Flottur, hraðvirkur og auðveldur
Canon ip2000 er með tveggja hylkja kerfi og
prentar allt að 20 bls. á mín. í sv/hv og 15 bls.
á mín. í lit. Hann er með allt að 4800x1200
punkta upplausn og býður upp á rammalausa
prentun – blæðing.
• Arkamatari fyrir 150 bls.
• Kemur með tveimur pappírsbökkum.
• Microfine Droplet tækni sem stuðlar að
lægri rekstrarkostnaði og meiri gæðum.
Verð 10.900 kr.
Canon ip4000R
Þráðlaus og hraðvirkur fyrir heimilið
Canon ip4000R er hraðvirkur og auðveldur
prentari fyrir heimilið sem gerir þér kleift að
prenta þráðlaust með 802.11g/b WiFi
tengingu eða yfir staðarnetið með 10/100
ethernet í glæsilegum ljósmyndagæðum.
• Innbyggð ,,duplex" tækni og CDR/DVD
diskaprentun.
• 4800x1200 dpi upplausn og 2pl
prentstútar.
• Prentar allt að 25 bls. á mín. í sv/hv og
17 bls. í lit.
• Fjögurra hylkja Single Ink kerfi sem
gerir hann mjög sparneytinn.
Verð 36.900 kr.
Söluaðilar
um land allt
www.nyherji.is/canon
Af hverju átt þú að
kaupa Canon stafræna
myndavél og prentara?
Canon hefur í yfir 60 ár verið
leiðandi í heiminum á sviði mynd-
og prentlausna.
Mikil þekking og reynsla þar sem
gæði eru ávallt í fyrirrúmi.
Mikið af hugbúnaði fylgir með
myndavélum og prenturum.
Með Direct Print er hægt að
prenta beint úr stafrænni myndavél
án þess að nota tölvu.
N
Ý
H
E
R
J
I
/
2
0
2
ÞEIM tveimur mönnum sem
margir halda að öllu ráði hér á
landi um þessar mundir þótti
tryggara eða kannski ábatasamara
að koma sér fyrir við hlið vænt-
anlegra sigurvegara í krossferð
klerkastjórnarinnar í Washington
gegn Saddam Hussein. Það kann
að vera mannlegt að hugsa þannig
en er þó fyrst og fremst lítilmann-
legt. Þá mætti minna á orð Steph-
ans G. Stephanssonar úr því magn-
aða kvæði Vopnahlé sem hann orti
á fyrstu mánuðum heimsstyrjald-
arinnar fyrri:
Sigur! vinur mér er sama um sigra!
Sigur ríkja er fall á næstu grösum.
Sigruð þjóð, sem lofað er að lifa,
lifir til að hefna – því að valdið
fellur æ á sínum eigin sigrum
samt að lokum. Þeir eru hefndargjafir.
(Vígslóði 22–23, Andvökur 144–145.)
Þetta er vítahringur ofbeldis sem
Stephan hefur skilgreint flestum
betur. Í hverju ofbeldisverki er fræ
hefndar. Í Írak hefur þessi víta-
hringur ásamt öðrum aðgerðum
bandarísku klerkastjórnarinnar, til
dæmis í fangabúðunum í Guant-
anamo, orðið til að magna hatur
margra múslíma gagnvart Vest-
urlöndum. Það er mælikvarði á sið-
ferði og raunverulegan styrk vald-
hafa að kunna að stilla valdi sínu í
hóf og kunna að rjúfa vítahring of-
beldis.
Eftir heimsstyrjöldina varð
Stephan G. Stephansson fyrir hat-
römmum árásum þegar kvæðin
sem hann orti gegn stríði komu út
á bók. Í einu svari sínu sagði hann:
„Ég gæti aldrei með sönnu sagt
að ég metnaðist af að vera til dæm-
is Íslendingur, eða breskur þegn,
sem sumir stagast á að þeir séu
„stoltir“ af. Ég var ekki til ráða
kvaddur um ið fyrra og lög um ið
síðara setti ég aldrei sjálfur. Ætti
það fyrir mér að liggja að stíga út
fyrir landsteina Kanada héldi ég
mér heldur ekki neinn háska búinn
þó ekki ætti ég neitt stórveldi að
bakhjarli. Mér er nærri ánægja að
í tilfinningunni sem fylgir því, að
vita sig þá engan eiga að, nema
mannúðina meðal vandalausra
þjóða. Svo er líka fyrir að þakka,
að henni má treysta nú á tímum
þegar engar óspektir ganga, sé
ferðalangurinn sjálfur fullvita og
hrekkja- og hrokalaus og eigi engri
óvild að mæta sökum þjóðar sinnar.
Og ég er svo heppinn, að í öðrum
löndum mun engan gruna, að þau
eigi neitt grátt að gjalda litlu þjóð-
inni sem ég hefi lengst verið við
kenndur.“ (Bréf og ritgerðir IV:
367.)
Stephan hafði farið heim til Ís-
lands árið 1917. Í þeirri ferð heill-
aðist hann af ofstækislausri mann-
úð og velvild landa sinna. Nú er
svo komið að ýmsir kunna að telja
sig eiga þessari litlu þjóð grátt að
gjalda. Þeir sem bera ábyrgð á hin-
um staðfasta ofbeldisvilja að baki
innrásinni í Írak hafa eyðilagt það
sem kannski var verðmætara en
flest annað í fari okkar og orðstír.
Hvað þeim gekk til, sem gengu
gegn vilja meginþorra þjóðarinnar,
langar mig ekki til þess að velta
fyrir mér að sinni.
Við getum sent þeim mikilvæg
skilaboð með því að styðja Þjóð-
arhreyfinguna (www.thjodarhreyf-
ingin.is) til að birta yfirlýsinguna
„Innrásin í Írak ekki í okkar nafni“
í New York Times. Hægt er að
hringja í síma 90 20000 og leggja
þannig til 1.000 kr. Einnig má
leggja frjáls framlög á bankareikn-
ing 1150-26-833 (kt. 640604-2390).
Verði afgangur af söfnunarfénu
rennur hann óskiptur til Rauða
kross Íslands til hjálpar stríðs-
hrjáðum borgurum í Írak.
Gegn staðföstum ofbeldisvilja
Viðar Hreinsson fjallar
um Íraksstríðið ’Þeir sem bera ábyrgðá hinum staðfasta of-
beldisvilja … hafa eyði-
lagt það sem kannski
var verðmætara en flest
annað í fari okkar og
orðstír.‘
Viðar Hreinsson
Höfundur er bókmenntafræðingur.
ÞJÓÐARHREYFINGIN
hefur hafið söfnun til birtingar
á auglýsingu í virtasta dagblaði
heims, New York Times, þar
sem heimurinn fær að vita að
aðeins tveir menn stóðu fyrir
þátttöku okkar í Íraksstríðinu.
Menn hafa spurt: Í hvers
nafni er verið að auglýsa? Telur
Þjóðarhreyfingin að hún geti
auglýst í nafni þjóðarinnar?
Varla mun meirihluti Íslend-
inga taka þátt í þessari söfnun?
Svarið við þessum spurning-
um er einfalt. Ekki þarf fleiri
en þrjá til að styðja auglýs-
inguna og þá eru þeir orðnir
fleiri en þeir sem stóðu fyrir
þátttöku okkar í stríðinu. Aug-
lýsingin í New York Times
mun því alltaf endurspegla
„vilja þjóðarinnar“ betur en
vera okkar á lista „hinna stað-
föstu“.
Það breytir því ekki að auð-
vitað er æskilegt að sem flestir
leggi málefninu lið. Ég hvet
fólk til að hringja í söfnunar-
símann: 90 20000.
Hallgrímur
Helgason
Auglýs-
ingin í
New York
Times
Höfundur er rithöfundur.