Morgunblaðið - 07.12.2004, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurður Ásgrím-ur Geirdal Gísla-
son fæddist í Grímsey
4. júlí árið 1939.
Hann lést á Landspít-
alanum 28. nóvember
síðastliðinn. Foreldar
hans voru Gísli Sig-
urðsson sjómaður og
Freyja Steinólfsdóttir
Geirdal húsmóðir.
Systkini Sigurðar eru
Örn, f. 1940, Steinólf-
ur, f. 1941, d. 1942,
Eygló, f. 1944, Ægir,
f. 1946, Steinólfur
Sævar, f. 1948, d.
1993, og Jóhann, f. 1952. Auk
þess á Sigurður hálfbróður, sam-
mæðra, Svan, f. 1935.
Eftirlifandi eiginkona Sigurð-
ar er Ólafía Ragnarsdóttir versl-
unarmaður og áttu þau fimm
börn; Ragnheiði f. 1968, Hólm-
fríði, f. 15.9. 1969, d. 21.10. 1969,
Gísla, f. 1970, Ragnar, f. 1974, og
Jóhann Örn, f. 1976. Stjúpsonur
hans og sonur Ólafíu er Rúnar
Þór, f. 1963. Áður átti Sigurður
soninn Sigurjón Birgi, f. 1962.
Sigurður lauk gagnfræðaprófi
Á yngri árum keppti Sigurður
í frjálsum íþróttum, glímu, sundi
og júdó og gegndi síðar fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
íþróttahreyfinguna, auk fram-
kvæmdastjórastarfs hjá UMFÍ.
Fyrir Framsóknarflokkinn
gegndi Sigurður einnig mörgum
störfum. Hann var um tíma for-
maður Félags ungra framsókn-
armanna í Kópavogi, formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna og átti sæti í miðstjórn
Framsóknarflokksins til fjölda
ára.
Áður en Sigurður gerðist bæj-
arstjóri átti hann sæti í nefndum
á vegum Kópavogsbæjar og var
varabæjarfulltrúi fyrir Fram-
sóknarflokkinn kjörtímabilið
1970–1974.
Fyrir störf sín í þágu íþrótta-
og æskulýðsmála fékk Sigurður
fjölda viðurkenninga, m.a. heið-
ursfélagakross UMFÍ, gullmerki
Íþróttasambands Íslands og
Frjálsíþróttasambands Íslands
og silfurmerki Glímusambands
Íslands og Júdósambands Ís-
lands. Einnig fékk hann ýmsar
viðurkenningar fyrir félagsstörf
frá ungmennafélögum hér á
landi og víðar á Norðurlöndun-
um.
Útför Sigurðar verður gerð
frá Hallgrímskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
frá Reykholtsskóla
árið 1956, sam-
vinnuskólaprófi frá
Bifröst 1959, stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum í
Hamrahlíð árið
1980 og útskrifað-
ist frá Háskóla Ís-
lands 1985 sem við-
skiptafræðingur.
Starfsnám stundaði
hann í Hamborg ár-
ið 1959 og Kaup-
mannahöfn 1961.
Hann hóf störf hjá
Kaupfélagi V-Hún-
vetninga árið 1960 sem verslun-
arstjóri og gegndi sömu stöðu
hjá KRON árin 1962–1968.
Frá 1970 til 1986 var hann
framkvæmdastjóri Ungmenna-
félags Íslands. Næstu fjögur ár,
til 1990, var Sigurður fram-
kvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins. Frá þeim tíma til dán-
ardægurs var hann bæjarstjóri í
Kópavogi og oddviti Framsókn-
arflokksins í bæjarstjórn, eða í
fjórtán ár, og var á sínu fjórða
kjörtímabili.
Nú er kveðjustundin runnin upp
og ég set þessar hugleiðingar á blað
fyrir hönd okkar systkinanna svo
þær verða í bland okkar allra, og
mínar eigin hugleiðingar.
Það má með sanni segja að þú sért
engum líkur. Allt sem þú gerðir
gerðir þú með miklum krafti. Þú
varst alltaf snöggur í hreyfingum,
fljótur til þegar eitthvað átti að gera,
lést þér fátt mannlegt óviðkomandi
og lagðir þig allan í það sem þú gerð-
ir. Það er því ekki að undra að það
komi margt fram í hugann þegar litið
er yfir farinn veg. Þegar þú æfðir
eða kepptir í íþróttum var það ekki
bara „til að vera með því nóg var til
af keppnisskapinu.
Þegar þú tókst við starfi fram-
kvæmdastjóra UMFÍ var tímabil
ykkar Hafsteins Þorvaldssonar eitt
mesta uppgangstímabil í sögu fé-
lagsins. Þú tókst að þér að leiða lista
framsóknarmanna í Kópavogi og
hófst þá uppvaxtarskeið flokksins
þar.
Á sama tíma byggðir þú húsið
ykkar, tókst stúdentspróf úr öld-
ungadeild og kláraðir viðskiptafræði
í HÍ. Svona strákur væri sennilega á
rítalíni í dag.
Kópavogur var þér mikið hjartans
mál. Vöxtur Kópavogs þann tíma
sem þú hefur verið bæjarstjóri er
með ólíkindum. Slíkur vöxtur á eng-
an sinn líka hér á landi. Það kom
sjaldan fyrir að við rifumst um póli-
tík. Við ræddum oft um pólitík. Vor-
um báðir í sveitarstjórnarmálum.
Sennilega bárum við nógu mikla
virðingu hvor fyrir öðrum til að
hlusta. Við bjuggum stundum til að-
stæður þar sem við gátum hist. Í
Bláa lóninu sem þú sóttir oft og í há-
deginu þegar ég var í Reykjavík.
Þannig áttum við margar góðar
stundir. Við ræddum um ólíkustu
málefni, leystum lífsgátuna, helstu
vandamál heimsins á hverjum tíma,
fjölluðum um helstu atburði í lands-
og sveitarstjórnarmálum, listir og
skáldskap og svo skiptumst við í lok-
in á helstu fréttum af fjölskyldunni.
Fjölskylda okkar er fjölmenn og
því var oft mikið fjör þegar hún kom
saman. Sennilega eigum við systk-
inin það sameiginlegt að hafa skoð-
anir á flestum hlutum og vilja gjarn-
an koma þeim á framfæri.
Þegar hópurinn stækkaði, kom
hann sjaldnar saman, hver og einn
varð uppteknari af fjölskyldu sinni.
Það voru hins vegar skemmtilegar
stundir þegar hópurinn kom saman
eins og t.d. í Grímsey sumarið 1996.
Mamma ólst þar upp og þar bjuggu
foreldrar okkar sín fyrstu búskap-
arár. Þar fæddist þú. Ekki var síður
skemmtilegt þegar við fórum í
Málmey tveimur árum síðar. Pabbi
og Jói bróðir hans voru með í Málm-
ey en þar ólust þeir að miklu leyti
upp.
Eyjar heilluðu þig alltaf og voruð
þið Ólafía dugleg við að ferðast til
eyja víðsvegar um heiminn.
Kæri bróðir, nú verða samveru-
stundirnar ekki fleiri. Þú ert farinn.
Það gerðir þú með sama krafti og
annað. Öllum að óvörum fékkst þú
hjartaáfall á sunnudagskvöldi og
komst aldrei aftur til meðvitundar.
Þessa helgi hafðir þú verið á fullu í
starfi þínu.
Skömmu áður sagðir þú okkur
Huldu frá því að þú hefðir spilað fót-
boltaleik í tilefni af tíu ára afmæli
Smárans. Þú hafðir gaman af því að
það hefði ekkert verið hægt að sjá að
þú værir þeirra elstur. Þol þitt var
síst minna. Þá datt engum í hug að
svona stutt væri eftir.
Í haust vorum við Hulda eina helgi
hjá ykkur Ólafíu á Kirkjubæjar-
klaustri. Þá ræddum við m.a. um
hvað tæki við þegar þú hættir sem
bæjarstjóri. Það var margt sem við
vildum gera, m.a. ætluðum við að
ferðast eitthvað saman. Nú verður
ekkert af því. Þetta staðfestir enn að
það er ekki rétt að fresta of miklu
þar til betri tími gefst, þegar við er-
um hætt að vinna. Við vitum aldrei
hve mikill tími gefst. Því er ástæða
til að nýta hann meðan hann er til
staðar.
Hvernig er hægt að sætta sig við
það þegar svona gerist? Auðvitað
vantar mikið þegar þú ert ekki leng-
ur til staðar. Sérstaklega á það við
um nánustu fjölskyldu þína, Ólafíu,
börnin ykkar og barnabörnin öll. Það
á líka við um okkur systkini þín og
fjölskyldur okkar, tengdaforeldra
þína og tengdafjölskyldu. Það eru
líka margir aðrir að missa af góðum
samstarfsmanni og vini. Kópavogs-
búar, íþrótthreyfingin, listamenn,
börn og margir fleiri missa góðan
samherja og velgjörðarmann.
Auðvitað er söknuðurinn mikill, en
hvað felst í því. Erum við þá ekki að
leggja megináherslu á það sem við
nutum ekki með þér. Felst ekki í því
að við söknum þess að geta ekki not-
ið nærveru þinnar lengur og þinna
góðu verka? Ég tel réttara að beina
huga okkar nú á þessari döpru
stundu að öllu því sem við nutum
með þér? Eigum við ekki frekar að
vera þakklát fyrir allt það sem þú
gafst okkur?
Ég vil fyrir hönd okkar systkina
þinna og fjölskyldna okkar votta
Ólafíu og börnunum okkar innileg-
ustu samúð. Á sama hátt vil ég votta
öllum þeim sem eiga nú um sárt að
binda vegna þessa skyndilega brott-
hvarfs þíns samúðar okkar. Ég óska
jafnframt eftir því að hver og einn
reyni að láta söknuðinn ekki ná of
sterkum tökum á sér, heldur hugsi
frekar til alls þess sem Siggi var okk-
ur, með þakklæti í huga. Það er svo
margt sem ástæða er til að þakka
fyrir.
Ég sendi þér kveðju frá okkur
systkinum og mökum okkar, börnum
og barnabörnum, með þakklæti fyrir
allt sem þú hefur gefið okkur. Þinn
yngsti bróðir,
Jóhann.
Nú er hinn glaði og góði drengur,
Sigurður Geirdal, horfinn úr þessu
jarðlífi og verður til moldar borinn í
dag.
Það er mikil eftirsjá að svo ágæt-
um manni sem Sigurður var og mikið
verður tilveran grárri fyrir alla þá
sem nutu samvista við hann, bæði til
lengri og skemmri tíma.
Þegar dóttir mín Ásgerður
Júníusdóttir hóf búskap og giftist
syni hans Sigurjóni Birgi bundumst
við Sigurður tengdaböndum sem
reyndust mér og mínum afar traust
og ánægjuleg. Það fór frá fyrstu
stundu vel á með mér og Sigurði og
hinni mætu konu hans Ólafíu Ragn-
arsdóttur. Bakgrunni Sigurðar
kynntist ég og nokkuð þegar ég tók á
sínum tíma viðtal við föður hans
Gísla Sigurðsson fyrir Morgunblað-
ið. Þá vitraðist mér hvaðan Sigurður
hefði hina björtu návist sem ein-
kenndi hann í svo ríkum mæli og sem
einnig sér stað í afkomendum hans,
Ég hitti Sigurð ekki aðeins á fjöl-
skylduvettvangi heldur líka við ýmis
tækifæri sem snerti hans starf sem
bæjarstjóra Kópavogs – og á stund-
um bar fundum okkar saman í
tengslum við Ritlistarhóp Kópavogs
sem hann studdi dyggilega. Það var
sama hvar ég hitti hann fyrir, hlýja
hans og lífsgleði gerðu það að verk-
um að alltaf fór ég glaðari af hans
fundi. Það er ábyggilegt að hann hef-
ur verið mörgum traustur bakhjarl
með mannkærleika sínum og rækt-
arsemi. Sigurður var raungóður
maður og farsæll í starfi svo sem sjá
má á öllu því sem hann fékk áorkað
bæði sem bæjarstjóri í Kópavogi og í
þágu ungmenna- og íþróttahreyfing-
arinnar, svo eitthvað sé talið. En
fyrst og síðast er hann eftirminnileg-
ur maður fyrir sakir leiftrandi lífs-
gleði, lifandi áhuga á öllu í kringum
sig og ekki síst sinnar óborganlegu
náttúrufyndni. Vandfundinn er
skemmtilegri maður en Sigurður
Geirdal var, gamanyrði hans og
fundvísi á spaugilegar hliðar tilver-
unnar yljuðu, því þau voru svo
græskulaus. Fyndni hans var aldrei
á annarra kostnað, hún særði ekki né
niðurlægði neinn, hún gladdi og
græddi og varpaði hlýju ljósi á lífs-
leiðina sem hann gekk svo djarflega
og óhikað – og gjarnan í forystu fyrir
sínum samferðamönnum.
Nú að leiðarlokum kveð ég Sigurð
Geirdal með söknuði og mikilli eft-
irsjá.
Úr því að fráfall hans veldur mér
slíkum sárindum, sem aðeins tengd-
ist honum þó lauslega, hvílíkur hlýt-
ur þá harmur þeirra og sorg að vera
sem næstir honum stóðu, konu hans
og börnum, tengdabörnum og barna-
börnum. Ég bið Guð að milda þeirra
mikla söknuð og kveð Sigurð Geirdal
Gíslason með þakklæti fyrir glaðar
og góðar stundir og þau vináttu-
brögð sem hann sýndi mér og mínum
frá fyrstu tíð og fram til þess síðasta.
Megi minning hans lifa svo sem vert
er.
Guðrún Guðlaugsdóttir.
Sigurður Geirdal bæjastjóri
Kópavogs lést 28. nóvember 65 ára
að aldri. Ég ætla ekki að rekja hér
lífshlaup Sigurðar, það munu aðrir
gera. Ég ætla að fara í fáum orðum
yfir störf Sigurðar fyrir Kópavog.
Sigurður tók við starfi bæjar-
stjóra hér í Kópavogi 1990 þegar
myndaður var nýr meirihluti í bæj-
arstjórn Kópavogs af fimm bæjar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Sig-
urði Geirdal bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflokks. Þessir flokkar hafa
myndað meirihluta í bæjarstjórn
Kópavogs allar götur síðan og Sig-
urður verið bæjarstjóri þar til hann
lést. Það er öllum ljóst að meiri upp-
bygging hefur átt sér stað í Kópa-
vogi á þessu tímabili en annars stað-
ar hér á landi og bærinn tekið meiri
stakkaskiptum en dæmi eru um frá
öðrum tíma. Sigurður hefur leitt
þessa miklu uppbyggingu og ber
ábyrgð á henni ásamt öðrum bæj-
arfulltrúum meirihlutans. Frá því að
sá meirihluti var myndaður 1990 hef-
ur íbúum bæjarins fjölgað um hátt í
helming og mörg ný stór verkefni
eru á döfinni. Það er því ljóst að í
mörgu hefur verið að snúast og
vinnudagur Sigurðar því oft verið
langur.
Sigurður var ákaflega vel liðinn af
samstarfsmönnum sínum í stjórn-
málum. Hann gat verið fastur fyrir
og lét ekki stundarhagsmuni slá sig
út af laginu. Hann var traustur og
stóð ávallt við alla samninga sem
gerðir voru, því orð skyldu standa.
Nú þegar Sigurður hverfur af braut
er hans sárt saknað af samstarfs-
mönnum bæði úr stjórnmálunum og
eins vinnufélögum en þar naut hann
bæði virðingar og vinaáttu. Auk
þeirrar miklu vinnu sem Sigurður
tók að sér fyrir bæjarfélag sitt vann
hann að ýmsum öðrum málum bæði
fyrir framsóknarmenn og sat í ýms-
um stjórnum og ráðum.
Ég vil fyrir hönd bæjarstjórnar
Kópavogs þakka Sigurði samstarfið.
Eiginkonu Sigurðar, Ólafíu Ragn-
arsdóttur, og fjölskyldu færi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Gunnsteinn Sigurðsson,
forseti bæjarstjórnar Kópavogs.
Kveðja frá
Framsóknarflokknum
Aðdragandi jólanna er tími gleði
og tilhlökkunar um frið og helgi
jólanna. En þessi tími er jafnframt
tími áfalla, sorgar og saknaðar eins
og aðrar stundir í lífinu.
Vinur okkar og félagi Sigurður
Geirdal hefur nú verið kvaddur á
braut í blóma lífsins. Kallaður frá
stórri fjölskyldu, ábyrgðarmiklu
starfi og öllu því góða fólki sem trúði
á hann og treysti í störfum sínum.
Við sem urðum þess aðnjótandi að
kynnast honum þekktum ekki já-
kvæðari eða lífsglaðari mann. Mann
sem naut þess í ríkum mæli að vera
til, gera gagn og leysa úr erfiðum og
vandasömum viðfangsefnum.
Hann kom frá útverðinum í norðri,
Grímsey, þar sem sólin sést allan sól-
arhringinn á ákveðnum tíma ársins.
Já, hann var sólargeisli í lífi margra
og nú kveðjum við hann í svartasta
skammdeginu.
Sigurður Geirdal var óvenju fé-
lagslyndur og gott dæmi um mann
sem var uppalinn í mikilli nálægð við
náttúruna og einangrun frá öðrum
byggðum. Þar læra menn hvað sam-
staðan skiptir mikli máli og það var
ríkt í hans eðli að skapa samstöðu og
standa og falla með verkum sínum
Fyrir um það bil mánuði fór ég í
heimsókn til Sigurðar í Kópavog á
bæjarskrifstofurnar. Þetta var eitt
af mínum fyrstu opinberu verkum í
nýju embætti og í heimsókn sem stóð
í nokkrar klukkustundir áttum við
spjall og stundir sem ég mun ætíð
minnast. Bæjarstjórinn fór með mig
um meðal starfsfólksins og ég fékk
að kynnast því sem hann og allt hans
fólk var að gera. Ég fann mikla sam-
heldni, brennandi áhuga og bjart-
sýni. Mér varð ljós á þessum stutta
tíma sú gífurlega uppbygging sem er
í Kópavogi og hvernig hún er drifin
áfram af einbeittum hug. Það var
greinilegt að þar var valinn maður í
hverju rúmi og mikið vinnuálag á öll-
um. Hann henti gaman að því að fólk
fengi ekki síst greidd laun með því að
fá að vera í þessum skemmtilegu
verkefnum. Það fór ekki milli mála
að hann naut mikillar hylli og vin-
sælda meðal starfsfólksins og honum
var umhugað um velferð þess. Hann
var stoltur fyrir hönd Kópavogs og
íbúa hans. Hann talaði um fólkið með
hlýju og nærgætni eins og hann var
vanur að tala um fæðingarbyggðina
sína í Grímsey.
Það er mikill söknuður í Kópavogi
og hann nær ekki síst til okkar fram-
sóknarmanna sem sem höfum misst
mikilhæfan foringja.
Sigurður Geirdal var um langt
árabil einn af altraustustu liðsmönn-
um Framsóknarflokksins sem ávallt
var tilbúinn til að hlýða kalli. Hann
starfaði nánast alla ævi innan flokks-
ins, fyrst sem forystumaður ungra
framsóknarmanna m.a. í gegnum
mikla umbrotatíma í starfi SUF. Í
gegnum hin síðari ár lagði hann
flokknum ávallt lið eftir megni og ár-
ið 1986 var leitað til hans að gerast
framkvæmdastjóri flokksins. Það er
erfitt verk að vera framkvæmda-
stjóri stjórnmálaflokks með lítil fjár-
ráð. Sigurður gegndi því starfi um
nokkurra ára skeið. Þar dró hann
ekki af sér frekar en annars staðar.
Þar naut glaðværð hans og kraftur
sín vel og hann var ötull talsmaður
og sáttasemjari í málum. Hann
stýrði rekstri flokksins á tímum mik-
illa breytinga í starfi hans og fórst
það ákaflega vel úr hendi. Ung-
mennafélag Íslands naut jafnframt
krafta hans um árabil og þar tókst
honum að skapa sama liðsanda sem
er ein aðalástæðan fyrir vexti þeirr-
ar mikilvægu hreyfingar. Þessi fé-
lagsmálastörf voru honum mikill
skóli og það er enginn vafi á því að
honum tókst að skapa sama andann í
kringum síg í Kópavogi.
Það þurfti kjark og framsýni til að
hefja Kópavog til þeirrar uppbygg-
ingar og stærðar sem hann hefur náð
í dag. Þar lyftu menn Grettistaki í
samstarfi Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. Sigurður naut
ekki einungis trausts innan þessara
flokka heldur meðal allra íbúa í
Kópavogi Hann fór ekki í mann-
greinarálit og var tilbúinn að starfa
með öllum og hlusta á sjónarmið úr
öllum áttum. Hann hikaði ekki við að
taka af skarið en gerði það með sín-
um glaðværa hætti. Hann var tilbú-
inn að sætta sig við málamiðlanir en
hann var lítt gefinn fyrir það að
vinna með fólki sem vildi ekki koma
SIGURÐUR
GEIRDAL
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is