Morgunblaðið - 07.12.2004, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
góður og elskulegur félagi, kastaði
gjarnan fram stökum og svaraði
hnyttilega.
Við kveðjum Sigurð með söknuði
og vottum Ólöfu og börnum hans
samúð okkar.
Sigrún Magnúsdóttir
og Páll Pétursson.
Kveðja frá bæjarstjórum
Eitt af því sem er svo töfrandi við
lífið er hve það er duttlungafullt. Það
kviknar, framvinda þess verður ekki
séð fyrir, og það slokknar. Í senn er
lífið upphaf og endir okkar sem ein-
staklinga og algerlega óháð per-
sónum – eilíft.
Eitt af því sem var svo töfrandi
duttlungafullt við Sigurð Geirdal var
hve lifandi hann var. Hann kom og
fór í senn en var þó með okkur. Í
senn ákafur og snar, stilltur og stað-
fastur. Í senn fullur af fjöri og gáska,
alvörugefinn og einlægur. Í senn
fjölskrúðugt eintak og heill persónu-
leiki.
Bæjarstjórar landsins og makar
þeirra mynda nokkuð töfrandi sam-
félag á sinn duttlungafulla hátt.
Samheldinn hópur hvar ríkir vinátta
og traust. Árlegir samráðsfundir
bera sterkan svip ættarmóta. Þetta
fyrirbæri er þeim mun merkilegra
fyrir þá sök að jafnan verða nokkrar
breytingar á hópnum við hverjar
sveitarstjórnarkosningar.
Sigurður og Ólafía komu inn í
þetta samfélag árið 1990 þegar Sig-
urður varð bæjarstjóri í Kópavogi.
Og undarlegir eru duttlungar lífsins.
Ekki óraði mig fyrir því, þegar ég
ungur drengur stóð á Höfðanum við
Húsavík og sá útvörð norðlenskra
byggða – Grímsey – hilla uppi við
hafsbrún í ljóma hnígandi miðnæt-
ursólar, að þar væri fæddur Sigurð-
ur Geirdal. Maður sem ég átti eftir
að kynnast mörgum árum síðar.
Maður sem ég leit upp til og lærði
margt af í starfi sem bæjarstjóri.
Þótt ég hafi vitað af Sigga úr fjar-
lægð þá hófust kynni okkar ekki fyr-
ir alvöru fyrr en þann bjarta dag er
við hittumst í hópi bæjarstjóra árið
1990. Síðan hefur þróast vinátta með
okkur og eiginkonum okkar.
Sigurður kom inn í hóp bæjar-
stjóra með mikla og fjölbreytta
reynslu úr fyrri störfum, m.a. 16 ár
að baki sem framkvæmdastjóri
UMFÍ. Sigurður var fagmaður í fé-
lagsmálum, hafði ferðast um gjörv-
allt Ísland og þekkti fólk og átti vini
nánast hvar sem var á byggðu bóli.
Hann markaði sér snarlega svæði í
hópnum, ljúfmannlega og án átaka,
og naut þar yfirgripsmikillar þekk-
ingar á mönnum og málefnum. Hann
var kallaður til ráða í okkar hópi,
setti mál sitt fram í léttum búningi,
lét aldrei smámuni trufla sig. Við
fyrstu sýn virkaði framsetningin
stundum dálítið grallaraleg en þegar
nánar var að gáð hafði Siggi komist
að kjarna málsins á einfaldan og
skýran hátt. Siggi var ekki hæddur
við að hugsa á nýjum brautum eða
velta málum fyrir sér frá algerlega
nýjum hliðum. Siggi var maður sem
sífellt leitaði lausna, maður sem
fékkst við verkefni en ekki vanda-
mál, maður sem náði árangri. Og svo
var hann skemmtilegur maður.
Eitt af því sem er svo dapurlegt
við lífið er hve duttlungafullt það er.
Líf þessa bjarthærða drengs sem
kom í heiminn undir miðnætursól
norður við heimskautsbaug hefur nú
slokknað. Miðnætursólin sefur, sæt-
ið er autt og við syrgjum, félagar og
vinir. En við vitum að „Sólin heim úr
suðri snýr“ og minningar um góðan
dreng mun hilla uppi í geislum henn-
ar við sjóndeildarhring. Þannig vilj-
um við bæjarstjórar og makar okkar
kveðja Sigurð Geirdal og votta Ólaf-
íu og fjölskyldunni allri okkar dýpstu
samúð.
Einar Njálsson,
bæjarstjóri í Árborg.
Snarpur, brosmildur og ráðagóð-
ur; maður sem vildi leysa málin.
Þannig var hann.
Það var gaman að vinna með Sig-
urði Geirdal. Mér hlotnaðist sú
reynsla að starfa með honum að
hagsmunamálum íbúa höfuðborgar-
svæðisins nú í tæp tvö ár. Við hitt-
umst reglulega við tvö borð. Sigurð-
ur var formaður Sambands sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu og ég
gegndi slíkri stöðu hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins. Við borðin
tvö sat sama fólkið, bæjarstjórar
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu. Og Sigurður var leiðtoginn.
Með sinni snerpu og afgerandi fasi
mótaði hann hið jákvæða starf og
efldi samkennd okkar. Ekkert kjaft-
æði, heyrðist stundum. Þá var stutt í
ákvarðanir. Ákvarðanir sem hlutu
brautargengi í okkar góða hópi.
Það er mikil gæfa þegar til starfa í
almannaþágu velst fólk sem metur
starfið ofar sjálfu sér. Sem hugsar
ekki um eigin frama heldur vinnur
vel og ötullega að framfaramálum
síns byggðarlags án þess að bera
sjálft sig á torg. Slíkan mann fengu
Kópavogsbúar og nærsveitarmenn í
Sigurði Geirdal. Því er það þyngra
en tárum taki að nú, þegar Sigurður
hafði gert ráðstafanir til að hægja á
og njóta þess að minnka við sig í
starfi, skuli vera klippt á þráðinn.
Megi það verða okkur öllum áminn-
ing um að gæta að okkur, staldra við
og njóta þeirrar stundar sem okkur
er gefin hér á jörðu.
Ég bið Sigurði Guðs blessunar,
Ólafíu eiginkonu hans, börnum og
öðrum aðstandendum æðruleysis.
Þórólfur Árnason.
Þey, þey og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó.
Sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þú njóta skalt.
Þey, þey og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
(Jóhann Jónsson.)
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri er
látinn langt fyrir aldur fram. Sigurð-
ur var mikill áhugamaður um íþrótt-
ir í Kópavogi en fáir vita að þegar
HK, í frumbernsku sinni árið 1970,
var að knýja á um að fá aðild að sam-
tökum íþróttahreyfingarinnar var
það Sigurður sem gekk framfyrir
skjöldu og beitti sér, sem fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, fyrir því að
HK fékk aðild að UMSK. Þar með
var framtíð þessa litla peyjafélags í
vesturbæ Kópavogs tryggð í sam-
félagi íþróttanna. HK gat keppt á Ís-
lands- og héraðsmótum. Eftir að Sig-
urður varð bæjarstjóri beitti hann
sér af alefli fyrir uppbyggingu á
íþróttaaðstöðu fyrir félögin í Kópa-
vogi, studdi þau með ráðum og dáð.
Ég átti því láni að fagna að kynn-
ast Sigurði 1991 þegar ég réðst til
Kópavogsbæjar sem starfsmanna-
stjóri bæjarins. Allar götur síðan átt-
um við náið og gott samstarf vegna
þess málaflokks sem mér var falin
ábyrgð á.
Sigurður var einstaklega fjölgef-
inn maður og hann hafði brennandi
áhuga og skoðanir á flestum þeim
álitaefnum sem fylgja líðandi stund.
Menning og listir, trúarbrögð og
stjórnmál, álfar og huldufólk, íþrótt-
ir og saga, þróun manna og þjóð-
félaga, allt voru þetta umræðuefni
okkar eftir að erindin daglegu voru
afgreidd. Sigurður var skemmtileg-
ur ræðumaður og ótaldar eru tæki-
færisvísur hans, margar hverjar
hreinasta snilld að formi og efni, en
hann var einnig gott ljóðskáld. Ég
átti þeim forréttindum að fagna að
ræða skáldskap við Sigurð.
Sigurður var vinur vina sinna og
reyndist undirmönnum sínum vel.
Með alþýðleik sínum og glaðlyndi
ávann hann sér virðingu og vinsældir
bæjarbúa. Bæjarstjóraferill hans
var farsæll og mun verða minnst sem
mikils framfaraskeiðs í sögu Kópa-
vogs.
Ég syrgi góðan vin og yfirmann.
Við Soffía sendum Ólafíu og fjöl-
skyldu þeirra Sigurðar hugheilar
samúðarkveðjur.
Þorsteinn Einarsson, starfs-
mannastjóri og formaður HK.
Kveðja frá Rótarýklúbbi
Kópavogs
Við kveðjum vin okkar og félaga
Sigurð Geirdal á vegamótum, eftir
alltof stuttan spöl á vegi sem okkur
var ánægja að ganga með honum.
Síkvikur og árvakur var hann upp-
spretta ráða og rímna, ávallt
reiðubúinn að leggja gjörva hönd að
verki og þoka góðum málum í rétta
átt.
Einlægur og orðheppinn félagi,
sem ósjaldan kitlaði hláturtaugar fé-
laga sinna með bundnu og óbundnu
máli, en alvaran og bjartsýnin voru
skammt undan.
Hinn sanni ungmennafélagsandi
bjó með Sigurði eftir áratuga starf í
þágu Ungmennafélags Íslands og
virka þátttöku í íþróttum á yngri ár-
um, sem hann hlaut fyrir margar við-
urkenningar og að verðleikum.
Samvinnuhugsjónin var samofin
hugsjónum hans um betra líf og vax-
andi velferð í samfélaginu.
Það var mikið lán og liðstyrkur
fyrir okkur þegar Sigurður gekk til
liðs við Rótarýklúbb Kópavogs fyrir
rúmum sjö árum. Þrátt fyrir mikið
annríki við ævintýralega uppbygg-
ingu bæjarfélagsins var hann vel
virkur í klúbbnum með góða mæt-
ingu, en vís til að mæta í nágranna-
klúbbunum ef hann missti af fundi.
Við heimsókn félaga úr vinaklúbbi
okkar í Esher í Englandi sl. sumar
tók Sigurður sem bæjarstjóri á móti
þeim og vann hug þeirra og hjörtu,
sem áttu vart orð til að lýsa sam-
skiptum við hinn alþýðlega en fróða
bæjarstjóra Kópavogs.
Mennirnir áætla en Guð ræður.
Verkefnin svo mikil og mörg í önn
dagsins, en kallið er komið.
Að leiðarlokum kveðjum við góðan
félaga og biðjum Sigurði góðrar
heimkomu, að loknu miklu dagsverki
í þágu svo margra.
Eiginkonu hans og aðstandendum
vottum við dýpstu samúð. Megi
minningin um góðan dreng lifa og
ylja.
Hreinn Bergsveinsson, forseti.
Fallinn er nú frá Sigurður Geirdal,
bæjarstjóri Kópavogs. Sigurður var
farsæll leiðtogi, en hann gegndi
starfi bæjarstjóra í 14 ár, lengur en
nokkur annar í tæplega 50 ára sögu
bæjarins. Ég kynntist Sigurði fyrir
níu árum þegar undirbúningur hófst
að uppbyggingu verslunarsvæðisins
í Smáranum. Með okkur tókst gott
og árangursríkt samstarf sem
byggðist á trausti, markvissu skipu-
lagi og jákvæðni. Þetta samstarf var
ein forsenda þess að hægt var að
reisa þessa stærstu og flóknustu
byggingu á Íslandi á aðeins einu og
hálfu ári. Ég er sannfærður um að
þetta verkefni hefði hvergi á svo
skömmum tíma getað orðið að veru-
leika hér á landi nema í Kópavogi.
Mér varð fljótt ljóst hvers megnugur
Sigurður var. Hann talaði okkar máli
þegar á þurfti að halda, hvort heldur
var í bæjarkerfinu eða í fjölmiðlum.
Hann hvikaði aldrei frá þeirri sann-
færingu sinni að Kópavogsdalurinn
yrði í framtíðinni þungamiðja versl-
unar og þjónustu á höfuðborgar-
svæðinu. Sigurður Geirdal vann sín
störf af hógværð og í ungmenna-
félagsanda. Hann stjórnaði hröðum
vexti á bæjarfélagi sem í dag er
glæsilegur minnisvarði um störf
hans og hans samstarfsmanna. Sig-
urður hafði gaman af því að segja frá
og oft var húmorinn á sínum stað
þótt alvaran væri ekki langt undan.
Ég minnist þess þegar hann sagði að
það væri aðeins eitt sem Reykvík-
ingar hefðu fram yfir Kópavogsbúa,
þeir ættu jú betri nágranna. Þegar
ég nefndi við hann eitt sinn að verk-
efnið hefði stækkað svo mjög að í
stefndi að fyrirtækið yrði stærsti
skuldarinn í Kópavogi var hann fljót-
ur til svara og sagði að ég kæmist
ekki lengi upp með það, bæjarsjóður
myndi ekki gefa eftir fyrsta sætið í
þessum efnum. Sigurður var tíður
gestur í Smáralind og naut þess að
hitta bæjarbúa og ræða við þá. Hann
naut þess einnig að geta á einum stað
í sínum bæ hitt kunnungja og vini ut-
an af landi sem hann þekkti frá fyrri
tíð. Minnig hans mun lifa um ókomin
ár. Fyrir hönd eigenda og starfsfólks
Smáralindar sendi ég eiginkonu Sig-
urðar, börnum hans og fjölskyldu
innilegar samúðarkveðjur.
Pálmi Kristinsson.
Fleiri minningargreinar um Sig-
urð Geirdal bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga. Höf-
undar eru: Ingimundur Ingimund-
arson; Ólafur Stefán Sveinsson; Óm-
ar Stefánsson; Jón G. Guðbjörnsson;
Stjórn Frjálsíþróttadeildar Breiða-
bliks; Auðunn Bragi Sveinsson;
Þórður Ingimarsson; Ritlistarhópur
Kópavogs; Sigurbjörg Vilmund-
ardóttir; Einar Bollason og fleiri;
Arnaldur Mar Bjarnason; Haukur
Logi Karlsson, formaður SUF; Mar-
grét S. Guðnadóttir; Björn og Sig-
urlaug; Guðrún Pálsdóttir; F.h.
Íbúasamtök gamla austurbæjarins í
Kópavogi, Rúna S. Geirsdóttir og
Helga R. Ármannsdóttir.
SIGURÐUR GEIRDAL
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÓLAFÍA JÓHANNESDÓTTIR,
Ölduslóð 46,
Hafnarfirði,
sem lést fimmtudaginn 25. nóvember á Hrafn-
istu í Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnar-
fjarðarkirkju fimmtudaginn 9. desember kl. 13.
Kári P. Þormar,
Jóhannes Þormar, Margrét Hilmisdóttir,
Páll Þormar, Elín Guðmundsdóttir,
Sigurveig Þormar, Njáll Jóhannsson,
Sigfríð Þormar, Svanur Stefánsson,
Kári Þormar, Sveinbjörg Halldórsdóttir,
barnabörn og langömmubarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUÐSTEINN ÞENGILSSON
læknir,
Grenimel 32,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn
9. desember kl. 13.00.
Jónína Stefánsdóttir,
Stefán Guðsteinsson, Auður F. Gunnarsdóttir,
Rósa Guðsteinsdóttir, Ólafur Guðmundsson,
Sigríður Guðsteinsdóttir, Geir Harðarson,
Hallgrímur Guðsteinsson,
Karl Jóhann Guðsteinsson, Brynja Scheving
og barnabörn.Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
MAGNÚS JÓNSSON
vélstjóri,
Tjarnarbraut 25,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 8. desember kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Elín Guðjónsdóttir,
Sveinn Magnússon, Kristín Bragadóttir,
Margrét Sesselja Magnúsdóttir, Ólafur Emilsson,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Einar Ólafsson,
Elín Magnúsdóttir, Garðar Briem,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Þjónustumiðstöð Ungmennafélags Íslands er lokuð í dag frá
kl. 12.00 vegna jarðarfarar SIGURÐAR GEIRDAL.
Ungmennafélag Íslands.
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegs sambýlismanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HREGGVIÐS EYFJÖRÐ GUÐGEIRSSONAR
byggingameistara
og fyrrv. byggingafulltrúa,
Hlíðarhjalla 61,
Kópavogi.
Ólafía S. Jensdóttir,
Samúel Smári Hreggviðsson, Sigríður Kr. Jóhannsdóttir,
Ólafur Magnús Hreggviðsson,
Guðgeir Veigar Hreggviðsson, Sigrún Gestsdóttir,
Margrét Dögg Hreggviðsdóttir,
Hólmar Eyfjörð Hreggviðsson,
Veiga Eyfjörð Hreggviðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.