Morgunblaðið - 07.12.2004, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 49
DAGBÓK
„Frábært“ tilboð Símans
HVAÐ þarf til að sjá Skjá einn á
Austurlandi?
Aðrar stöðvar sem menn verða að
taka inn á stafrænu tilboði Símans:
Skjár einn, RÚV*, DR1, BBC Prime,
Discovery Channel, Sky News,
Cartoon Network, MTV, Eurosport
og enski boltinn (fleiri beinar útsend-
ingar).
Kostnaður: *Afnotagjald fyrir
RÚV er innheimt óháð tilboði Sím-
ans. Thomson SpeedTouch 580 þráð-
laus beinir kr. 12.000. ADSL 1000-
nettenging 3.820 pr mánuð. Mán-
aðargjald fyrir „TOPP 10“ 1.695 pr
mánuð. Samtals 5.515 pr mánuð án
stofnkostnaðar fyrir sjónvarps-
stöðvar sem eiga að vera fríar. Engar
af þessum stöðvum rukka fyrir
áskrift í Evrópu og Skjár einn er
ókeypis annars staðar á landinu. Má
virkilega mismuna fólki svona eftir
búsetu? Mikið afskaplega er nú gott
að eiga svona góða að eins og blessað
ríkisfyrirtækið okkar Símann. Íbúar í
ofangreindum bæjarfélögum geta
fengið aðgang að dagskrá Skjás eins
og RÚV og séð enska boltann sér að
kostnaðarlausu skrái þeir sig fyrir 15.
desember 2004. Hvernig er hægt að
auglýsa að þetta sé þeim að kostn-
aðarlausu þegar menn þurfa að taka
inn adsl og borga fyrir beininn og af-
notagjald af adsl? Má þetta?
Bergmann Guðmundsson.
Kápa tekin í misgripum
áVínbarnum
SÁ SEM tók kápuna mína í misgrip-
um á Vínbarnum föstudagskvöldið 3.
des. er vinsamlega beðinn að hafa
samband við mig í 896 5119 eða við
Gunnar Pál á Vínbarnum, til að
skipta aftur. Kápan er svört kamel-
ullarkápa með hettu og svörtum kan-
ínufóðruðum leðurhönskum í vasa.
Ein jólakápulaus.
Svartur köttur týndur
FRESSINN minn er búinn að vera
týndur lengi. Hann er alveg svartur,
geldur, eyrnamerktur R70015 og
týndist frá heimilinu í Árbæ. Ef ein-
hver hefur orðið var við svartan kött
þá vinsamlega hafið samband í síma
587 1966 eða 866 0701.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Ný reglugerð, Aðgerðir gegn einelti ávinnustað er að líta dagsins ljós.Markmiðið með reglugerðinni er aðstuðlað að forvörnum og aðgerðum
gegn einelti á vinnustöðum. Reglugerðin verður
kynnt á morgunverðarfundi í fyrramálið kl. 8.30
til 10.00 á Grand hóteli Reykjavík.
Á fundinum verður auk þess kynnt ný rann-
sókn um einelti á vinnustað, vinnuskipulag og líð-
an starfsmanna. Svava Jónsdóttir er sérfræð-
ingur á rannsókna- og heilbrigðisdeild
Vinnueftirlitsins.“
Hver eru markmið nýju reglugerðarinnar?
„Litið hefur verið svo á að andlegt og fé-
lagslegt vinnuumhverfi falli undir markmið
vinnuverndarlaganna. Með setningu reglugerðar
um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum er verið
að leggja áherslu á að innan vinnustaðanna verði
stuðlað að forvörnum gegn einelti og ótilhlýði-
legri háttsemi.
Flestar skilgreiningar á því hvað telst einelti á
vinnustað vísa til neikvæðrar háttsemi sem beint
er að einstaklingi eða einstaklingum á vinnustað,
hvort sem háttsemin er líkamleg, orðbundin eða
táknræn. Þá er áhersla lögð á að um sé að ræða
kerfisbundna eða síendurtekna háttsemi sem er
til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga,
særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá
þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og
annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur undir
skilgreininguna.“
Hvaða áherslubreytingar eru í nýju reglunum?
„Í reglugerðinni kemur fram að atvinnurek-
andi skal skipuleggja vinnu þannig að dregið sé
úr hættu á að þær aðstæður skapist í vinnuum-
hverfi, sem leitt geti til eineltis eða annarrar ótil-
hlýðilegrar háttsemi. Skýrar kröfur og markmið
eru forsenda þess að ábyrgð og verksvið starfs-
manna og stjórnenda geti verið ljós. Óljósar
væntingar um vinnuframlag geta leitt til ágrein-
ings milli starfsfólks og jafnvel til niðurlægjandi
framkomu og hegðunar. Þegar verkefnum er
deilt á marga starfsmenn er mikilvægt að ábyrgð
og verksvið hvers og eins sé ljóst til að koma í
veg fyrir misskilning og óvissu í samskiptum.“
Hvaða ráð hrífa best gegn vinnustaðaeinelti?
„Atvinnurekandi skal gera starfsfólki það ljóst
að einelti og önnur ótilhlýðileg háttsemi er
óheimil á vinnustað og honum ber skylda til að
láta slíka háttsemi á vinnustað ekki viðgangast.
Mikilvægt er að atvinnurekandi, í samráði við
vinnuverndarfulltrúa vinnustaðarins og jafnvel
starfsfólkið, móti stefnu og viðbragðsáætlun um
aðgerðir gegn einelti á vinnustað. Starfsfólkið
skal vera upplýst um hana og leitast skal við að
hafa opna umræðu um samskipti og mismunandi
starfsanda á vinnustöðum.“
Vinnuvernd | Ný reglugerð um einelti á vinnustöðum
Vinnuveitandi ber ábyrgð á að
einelti sé ekki liðið á vinnustað
Svava Jónsdóttir er
menntuð hjúkr-
unarfræðingur frá
Hjúkrunarskóla Íslands
og með sérmenntun í
starfsmannaheilsu-
vernd frá Arbetslivs-
institudet í Svíþjóð.
Hún hefur unnið sem
eftirlitsmaður hjá
Vinnueftirlitinu en
starfar nú á rannsókna-
og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins við verk-
efni er varða heilsuvernd á vinnustað.
RÚNA K. Tetzschn-
er sýnir ljóðaskreyt-
ingar á gjafakort og
myndir og hand-
skreyttar ljóðabæk-
ur á handverks-
markaði í Hús-
dýragarðinum kl.
13.30–17 fram til 12. desember
næstkomandi. Listakonan verður á
staðnum.
Ljóðaskreytingar á kort
Skáldaspírukvöld
verður haldið á
Kaffi Reykjavík kl.
21 í kvöld. Flosi
Ólafsson, Kristín
Ómarsdóttir, Bald-
ur Óskarsson, Ágúst
Borgþór Sverrisson,
Óskar Árni Ósk-
arsson og Haukur
Ingvarsson lesa úr bókum sínum.
Skáldaspírur lesa
Kristín
Ómarsdóttir
Sértilboð til e-kortshafa
50%AFSLÁTTUR
ALLT A‹
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Langar þig í nýtt
heimili?
Skipholti 29A
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili.is
opið mánudaga
til föstudaga 9-17 sími 530 6500
Heimili er öflug og fersk fasteignasala í eigu
þriggja fasteignasala sem allir starfa hjá
fyrirtækinu og hafa áralanga reynslu af
fasteignaviðskiptum
Við leggjum sérstaka áherslu á vönduð og
traust vinnubrögð og úrvals þjónustu.
Metnaður okkar er að allir viðskiptavinir
finni heimili við sitt hæfi og verði sáttir og
ánægðir með samskiptin við okkur.
Einar Guðmundsson, Finnbogi Hilmarsson, Bogi Pétursson, löggiltir fasteignasalar
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Jóga kl. 10, línudans
kl. 11, postulínsmálun kl. 13, baðþjón-
usta þriðju-, fimmtu- og föstudaga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, Handa-
vinna kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia
kl. 9.45, smíði/útskurður kl.13–16.30.
Aðventukaffi á morgun, miðvikudag-
inn 8. desember.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al-
menn handavinna, böðun, vefnaður,
leikfimi,línudans, boccia, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–14 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslan opin, kl. 11.15–12.15
matur, kl. 14–15 söngstund, kl. 15–
15.45 kaffi.
FEBÁ, Álftanesi | Miðvikudaginn
8.desember verður farið að Gljúfra-
steini, safni um Halldór Kiljan Lax-
ness og síðan í Mosfellskirkju. Endað
verður á kaffihlaðborði á veit-
ingastaðnum Draumakaffi í Mos-
fellsbæ. Farið frá Haukshúsum kl. 13,
áætluð heimkoma um kl. 17.30.
Skráning hjá Gunnari, Stefáni eða
Guðrúnu.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13. Miðvikudagur: Göngu–Hrólfar
ganga frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Af-
mælis– og aðventukaffi í Gullsmára,
miðvikudaginn 8. desember kl. 14.
Séra Gunnar Sigurjónsson flytur hug-
vekju. Þórunn Elín Pétursdóttir syng-
ur. Upplestur. Súkkulaðihlaðborð.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Hall-
grímur Helgason rithöfundur og
myndlistarmaður verður gestahöf-
undur Leshóps FEBK Gullsmára
þriðjudaginn 7. desember kl. 20.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Mál-
un kl. 9.30, karlaleikfimi og búta-
saumur kl. 13. Vatnsleikfimi í Mýrinni
kl. 9.10, upplestur úr nýútkomnum
bókum á Bókasafni í tengslum við
leshringinn kl. 10.30, opið hús í safn-
aðarheimili á vegum kirkjunnar kl. 13,
kóræfing FEBG á sama stað kl. 17.
Félagsstarf Gerðubergs | Fjölbreytt
dagskrá og þjónusta virka daga kl. 9–
16.30 m.a.vinnustofur opnar, spila-
mennska, sungið og dansað. Upplýs-
ingar um starfsemina á staðnum,
sími 575 7720 og www.gerduberg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður og
hárgreiðsla, kl. 10, fótaaðgerð, kl. 12
hádegismatur, kl. 14 bingó, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13, boccia kl. 9.30–10.30, banka-
þjónusta kl. 9.45, helgistund kl. 13.30
í umsjón séra Ólafs. Böðun virka daga
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir–hársnyrt-
ing.
Hæðargarður 31 | Betri stofan og
Listasmiðjan opin 9–16, leikfimi 10–11,
bókabíll kl. 14.15–15, Bónus kl. 12.40.
Málverkasýning Gerðar Sigfúsdóttur,
síðasti sýningardagur 10. desember.
Miðar á Jólahlaðborðið komnir. 4
miðar óseldir á Vínarhljómleikana.
Upplýsingar í síma 568–3132. Allir
velkomnir.
Krabbameinsfélagið | Aðventukvöld
verður í Hafnarfjarðarkirkju 9. des-
ember kl. 20.30. Sigþrúður Ingimund-
ardóttir hjúkrunarforstjóri á Sólvangi
flytur hugvekju. Óperukór Hafn-
arfjarðar og Barna– og unglingakór
Hafnarfjarðarkirkju syngja. Séra Þór-
hallur Heimisson leiðir athöfnina.
Organisti Antonia Hevesi.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10
boccia.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Jólabingó í kvöld kl.
19.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl.
10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 há-
degisverður, kl 13–16 bútasaumur, kl.
13–16 frjáls spil, kl 13–14.30 leshringur,
kl 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótaaðgerðir kl.
9.30, félagsvist kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9. Fermingarfræðsla kl. 15, hópur 2.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í
dag, kaffi og spjall. Bænastund kl. 12.
Boðið upp á léttan hádegisverð. Allir
velkomnir.
Bústaðakirkja | TTT-fundirnir eru á
þriðjudögum kl. 17 í safnaðarheim-
ilinu. Sjáumst hress. Nánari upplýs-
ingar: www.kirkja.is.
Digraneskirkja | KFUM&KFUK, 10–12
ára, kl 17:00–18:15. Opið frá 16:30.
Alfa námskeið kl 20:00. Lokahóf.
(www.digraneskirkja.is).
Fella- og Hólakirkja | Strákastarf fyr-
ir stráka í 3.–7. bekk er í kirkjunni alla
þriðjudaga kl. 16:30–17:30. Síðasta
samvera fyrir jól er þriðjud. 7. des.
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl.
20.30. Allir eru hjartanlega velkomn-
ir.
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum alla þriðjudaga og föstudaga kl.
11–15. Súpa, leikfimi, kaffi og spjall.
Fyrirbænaguðsþjónusta alla þriðju-
daga kl. 10:30. Beðið fyrir sjúkum.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur
presta á þriðjudögum kl. 9.15–11 í
umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar,
héraðsprests. Bæna- og kyrrðarstund
þriðjudaga kl. 18.
KFUM og KFUK | Ad KFUK þriðju-
daginn 7. desember fellur inn í sam-
eiginlegan aðventufund með Ad
KFUM fimmtudaginn 9. desember nk.
Sjá auglýsingu þá.
Kópavogskirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund í kirkjunni þriðjudaginn 7.
desember kl. 12:10.
Laugarneskirkja | Kl. 19:45 Trú-
fræðsla. Bjarni Karlsson sóknar-
prestur flytur erindi um sorgina. Allt
fólk velkomið. Kl. 20:30 Kvöldsöngur
í kirkjunni. Að þessu sinni gefst syrgj-
endum kostur á að kveikja á bæna-
kerti í minningu látinna ástvina. Kl.
21:00 Fyrirbænaþjónusta og kaffi-
spjall í safnaðarheimilinu.
Selfosskirkja | Í kvöld kl. 20 verður
upplýsingafundur um málefni ekkla
haldinn á vegum Geisla, félags um
sorg og sorgarviðbrögð, og heldur sr.
Bragi Skúlason erindi í safnaðarheim-
ili Selfosskirkju. Erindið er einkum
ætlað ekkjumönnum. Á eftir er kaffi-
drykkja og umræður. Sr. Gunnar
Björnsson.
♦♦♦