Morgunblaðið - 07.12.2004, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MÚSÍKTILRAUNIR 2003. Eftir
harða keppni er hljómsveitin Bú-
drýgindi krýnd sigurvegari keppn-
innar. Ekki voru allir á eitt sáttir
um þá niðurstöðu, frekar en fyrri
daginn, því ungæðislegt, kærulaust
og hrátt rokkið var algjörlega á
skjön við allt annað sem þar var í
boði. Svo ungæðislegt reyndar að
sumum þótti nóg um, einkum þeim
sem ekki voru hrifnir af bulltext-
unum, þessum meðvitaða „kúk og
piss“-húmor sem 15 ára gaurar
gjarnan fíla vel og skilja best. Já, 15
ára. Þessir fjórmenningar voru 15
ára þegar þeir unnu Músíktilraunir
og því klár efni þar á ferð. Þeir pilt-
ar uppfylltu líka allar væntingarnar
velgjörðarmanna með fyrstu plötu
sinni Kúbakóla
sem kom út fyrir
síðustu jól, þá ný-
orðnir 16 ára. Og
nú, þegar þeir
eru nýorðnir 17,
er önnur platan
komin út og nú hljóta þeir end-
anlega að vera búnir að kveða í kút-
inn allar þær efasemdaraddir sem
heyrðust fyrir tveimur árum. Rétt
eins og dómnefnd og meirihluti sal-
arins í úrslitunum 2002 sá og heyrði
þá er hér á ferð eitthvert mesta efni
sem fram hefur komið í íslensku
rokki. Og gleymum því ekki að enn
er hægt að tala um efni, því dreng-
irnir eru ekki nema 17 ára.
Þennan unga aldur er samt vart
hægt að greina á Juxtapos, nema ef
vera skyldi í textunum, sem enn eru
hið laglegasta bull og vitleys-
isgangur. Það er samt eins og mað-
ur greini á stöku stað „þroskaðra“
bull en áður sem hlýtur að teljast
spor í rétta átt.
Og músíkin heldur sannarlega
áfram að þróast, lagasmíðar, spila-
mennska og útsetningar. Sveitin er
hreint ótrúlega vel spilandi, hug-
myndaflæðið að virðist taumlaust og
lagasmíðar orðnar flóknari og
áhugaverðari. Tónlistarstefnan er
orðin markvissari áður, agaðri og
útpældari. Búdrýgindi búin að
skapa sitt eigið rokk; einhvers kon-
ar blöndu af fönkuðu og reiðu rokki
a la Rage Against The Machine
mínus reiðin, t.d. í „Köngulær í
KúngFú“ þar sem þeir njóta ríku-
legs stuðnings BlazRoca og Dóra
DNA, að viðbættum einkar áhuga-
verðum djassbræðingi, sem fróðlegt
verður að fylgjast með í framtíðinni
hvernig drengirnir geta unnið frek-
ar með.
En þótt sveitarmenn haldi áfram
að þróa tónlistina og taka greinilega
stórstígum og stöðugum tónlist-
arþroska þá er aðal Joxtapos hið
sama og á Kúbakóla, taumlaus
spilagleði, umfram allt skrambi
skemmtileg rokktónlist. Platan inni-
heldur tólf skemmtileg lög, misgóð
vissulega, en öll skemmtileg og upp-
full af taumlausri tilraunagleði og
dæmalausri dellu. Lög eins og
„Ósónlagið“, „Hólkryppi“ og „Gleði-
skapur“ sefa hungur þeirra sem
vildu meira af Kúbakóla-lögum á
meðan „Orgelínufrat“ – með geggj-
uðum kokteil-kafla – „Sundurskotið
rjúpnarassgat“ og „Sagan af Juxta-
pos“ kynna til sögunnar breytt, bil-
uð og betri Búdrýgindi. Eina vega-
nestið sem mætti gefa þeim, eina
pillan sem hægt er að læða að þeim,
er að reyna í framtíðinni að semja
fjölbreyttari lög og texta – suma
jafnvel með ögn meiri dýpt, en helst
ekki of því þá gæti sjarminn horfið.
Tuggan er sú að segja að eins góð
hljómsveit og Búdrýgindi sé löngu
hætt að vera efnileg, hún sé einfald-
lega orðinn að frábærri rokksveit,
en í þessu tilfelli er málið flóknara.
Búdrýgindi er ennþá gríðarlega
efnileg hljómsveit, mjög góð OG
efnileg hljómsveit, einfaldlega
vegna þess að hún á vafalaust eftir
að verða ennþá betri.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Maggi söngvari í Búdrýgindum hefur tekið út mikinn þroska.
Hvorki frat né
froðusnakk
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Önnur plata hljómsveitarinnar Búdrýg-
inda. Öll lög samin og útsett af Búdrýg-
indum, en hana skipa: Axel, trommur,
söngur og slagverk, Benni, gítar og söng-
ur, Maggi, söngur, og Viktor, bassi, söng-
ur og fiðla. Auk þess koma við sögu Páll
Palomares, Árni Harðarson, Erpur Eyvind-
arson, Halldór Halldórsson, Arnþór Jóns-
son og Mr. Cool. Upptökur fóru fram í
Stúdíói RYK í ágúst–október 2004. Upp-
tökur og hljóðblöndun Albert Ásvalds-
son. Útgefandi Zonet.
Búdrýgindi – Juxtapos
Skarphéðinn Guðmundsson
BRESKI tónlistarmaðurinn Phil
Collins, fyrrverandi söngvari og
trommuleikari Genesis, eignaðist
sitt fimmta barn á íslenska fullveld-
isdaginn, 1. desember, ásamt núver-
andi eiginkonu sinni, hinni svisnesku
Orianne. Þetta er annað barn þeirra
hjóna en þrjú börn á hann frá fyrri
hjónaböndunum tveimur. Nýi erf-
inginn er drengur og hefur verið
nefndur Mathew Thomas Clemence.
Þau hjón hafa búið í Sviss síðustu ár-
in, þar sem Collins starfar við tón-
smíðar.
Collins sá ástæðu til þess á dög-
unum að bera til baka sögusagnir
um að búið væri að endurreisa Gen-
esis með honum innanborðs. Collins
hætti í bandinu eftir útgáfu plöt-
unnar We Can’t Dance árið 1991 en
sveitin var síðan formlega lögð niður
1998. Ástæða sögusagnanna er sú að
þeir Genesis-menn munu koma sam-
an við nokkur tilefni til þess eins að
kynna The Platinum Collection, sem
er þreföld safnplata með hljóð- og
myndefni sem tekið var saman af
hljómsveitarmeðlimum sjálfum og
spannar allan feril Genesis, þrjá ára-
tugi. Ekkert verður þó af því að þeir
Collins, Tony Banks og Mike Ruth-
erford taki formlega upp þráðinn
aftur. Ástæðuna segir Collins þá að
hann sé of upptekinn af fjölskyldu-
hlutverkinu: „Klisjan er sú að hljóm-
sveitir hætti vegna þess að allir hati
alla, en okkur hefur hins vegar alltaf
komið mjög vel saman. Það er ekk-
ert sem stendur í vegi fyrir því að við
hittumst og höldum áfram að vera
vinir.“ Ekkert standi heldur í vegi
fyrir því að þeir semji saman efni, en
hann sé alltaf hálfhikandi þegar sú
hugmynd komi upp því hingað til
hafi slíkt haft í för með sér langar og
strangar tónleikaferðir sem hann sé
alls ekki tilbúinn til að leggja á fjöl-
skylduna lengur.
Tónlist | Phil Collins tekur fjölskylduna fram yfir Genesis
Reuters
Phil og Orianne Collins með Mathew Thomas Clemence á milli sín.
Enn góðir vinir en
ekkert nýtt efni
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
04.12. 2004
Tvöfaldur
1.vinningur
í næstu viku
11
7 5 5 1 4
0 2 9 6 2
15 18 27 30
16
01.12. 2004
1 8 9 23 30 32
39 48 15
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
Sýnd kl. 5.50 og 9.05.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
BLANCHARD RYAN DANIEL TRAVIS
Le Poulpe
(kolkrabbinn)
sýnd kl. 6.
Garde á Vue
(Í varðhaldi)
sýnd kl. 10.
Miðaverð 700 krónur. Allar
myndir m. enskum texta.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.10. Ísl. tal./
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Enskt tal.
Sýnd kl. 5 og 7. Ísl tal.
Shall we Dance?
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Jólamynd ársins sem kemur allri fjölskyldunni
í rétta jólaandann fyrir hátíðarnar! Gerð með
splunkunýrri, byltingarkenndri tölvutækni.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 8 og 10.
ÍSLENSKA
SVEITIN
RENEE ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH
Sama Bridget. Glæný dagbók.
H.J. Mbl.
M.M.J. Kvikmyndir.com
"Snilldarlega tekin og einstaklega
raunveruleg...hryllilega hrollvekjandi!"
- H.L., Mbl
"Hrikalega spennandi og skelfilega átakanleg!"
- E.Á., Fréttablaðið
Sama Bridget. Glæný dagbók.
M.M.J. Kvikmyndir.com
H.J. Mbl.
Kvikmyndir.is
ÁLFABAKKI
kl. 6, 8.20 og 10.30.
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 4, 6, 8 OG 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
H.L. Mbl.
S.V. mbl.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4507-4300-0029-4578
4507-4500-0033-0693
4543-3700-0047-8167
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.