Morgunblaðið - 02.04.2005, Qupperneq 22
Skorradalur | Fátt er betra en
að hvíla sig frá önnum dagsins,
bregða sér í sveitasæluna og eiga
nokkra góða daga í sumarbústað.
Við flesta slíka bústaði er búið að
setja upp potta þar sem hægt er
að láta þreytuna líða úr skrokkn-
um í snarpheitu vatninu.
Dagný Dögg Helgadóttir og
Sveinn Orri Helgason voru svo
heppin að fá að fara í sum-
arbústað í Skorradal á dögunum.
Þau notuðu tækifærið og tóku
með sér bolta sem vakti með
þeim kátínu.
Morgunblaðið/Eggert
Með bolta í heitum potti
Kátína
Akureyri | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hvort var heitt eða kalt hjá þér á Kan-
arí? Nú … var heitt, helvíti varstu heppinn.
Talið er að um eða yfir 5.000 Íslendingar
hafi dvalið á Kanarí yfir páskahátíðina og
auðvitað var hluti þeirra úr sveitinni minni,
reyndar ótrúlega margir enda vinsælt mjög
hjá bændum og þeim sem eru uppteknir á
sumrin og vilja sumarblíðu um hávetur.
Þeir sem dvöldu á Kanarí um páskana
munu hafa verið veðurheppnir en hinir sem
voru þar fyrr í vetur áttu í mesta basli við
að halda á sér hita. Eins gott að hafa haft
sængina með og helst rafmagnsofn líka.
Þeir sem ekki mundu eftir því gátu eins átt
von á því að fara með sjúkraflugi heim. Gár-
ungarnir segja að vinsælasta lagið í Óska-
stundinni á næstunni verði lagið ,,Í kulda á
Kanarí,“ það eigi bara eftir að semja það.
Talandi um hávetur annars vegar og
sumarblíðu hins vegar, þá finnum við að
vorið nálgast óðfluga, farfuglarnir komnir,
krummi búinn að verpa og græni liturinn á
leiðinni eða eins og skáldið Tómas Guð-
mundsson segir: „ … Því áður en fólk kom á
fætur í morgun var fyrsta grasið úr mold-
inni sprottið … “ Vorið kemur alltaf á
óvart, annaðhvort lætur það bíða eftir sér
eða kemur þegar enginn á von á því. En því
fylgir alltaf þessi skemmtilega stemning,
útileikir barna, hróp og köll, gatnafram-
kvæmdir, jarðvinna, jarm og baul, og arfinn
og skriðsóleyin sem enginn hefur saknað,
mætt aftur og götusóparinn, hann mætti nú
alveg fara að láta sjá sig.
Vorumræðan að þessu sinni fyrir nú utan
kuldann Kanarí er fasteignaverð. Of hátt í
Reykjavík og of lágt úti á landi ef þú ert
kominn í 100 km fjarlægð frá dýrð Drott-
ins. Hvenær skyldi fólkið í Reykjavík átta
sig á því að það getur selt litlu blokkaríbúð-
ina og keypt sér heilt einbýlishús úti á landi
fyrir sama verð, gengið í vinnuna, sent
krakkana í fína skóla og lifað góðu lífi ef það
bara fær vinnu og kemst í lágverðsverslun
öðru hvoru. Þeir sem reka „KrónuBónus-
inn“ láta sér nefnilega ekki detta í hug að
opna búð á krummaskuðunum nema vera
vissir um að græða mikið á þeim. Hólmarar
eru bara svona ótrúlega heppnir, nema að
fleiri staðir fylgi í kjölfarið, hver veit. Hitt
er víst að of hátt verð á nauðsynjavöru
hamlar vexti annarrar verslunar og þjón-
ustu úti á landi.
Úr
bæjarlífinu
RANGÁRÞING EYSTRA
EFTIR STEINUNNI ÓSK KOLBEINSDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Samtökin Lands-byggðin lifi haldatvo fundi á sunnu-
dag, 3. apríl. Fyrst í
íþróttahúsinu á Þórshöfn
kl. 11 og síðan í Öxi við
Kópasker kl. 15. Ragnar
Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur á Laugasteini í
Svarfaðardal kynnir sam-
tökin og ýmis verkefni
sem eru á döfinni og þá
verða umræður og fyr-
irspurnir.
Landsbyggðin lifi er
hreyfing fólks sem vill efla
byggð um land allt og er
áhersla lögð á að tengja
fólk saman, mynda sam-
starfsvettvang þeirra sem
hafa það að stefnu sinni að
styrkja heimabyggðina.
Upplýsingar um sam-
tökin má finna á vefnum
landlif.is
Landsbyggðin
Útivistarsvæðið að Hömrum við Akureyri nýturæ meiri vinsælda, en þar geta börnin alltaffundið sér eitthvað að gera. Tjörnin hefur mik-
ið aðdráttarafl, en þar er m.a. hægt að draga sig á milli
bakka á þar til gerðum fleka. Það kann unga kynslóðin
vel að meta en við þá iðju er hægt að una sér dagana
langa.
Morgunblaðið/Kristján
Farið um á fleka
Hjálmar Frey-steinsson orti ígær, 1. apríl, af
kunnu tilefni:
Komið er í bátinn babb,
blekkinguna nú ég skil;
Auðunn Georg aprílgabb,
aldrei hefur verið til.
Séra Hjálmar Jónsson
segir allt hafa sinn
gang, jafnvel him-
intunglin:
Nú mun senn á vori von,
veðrið mun það bæta.
Auðun Georg Ólafsson
ætlar sér að mæta.
Tíðindi bárust úr páfa-
garði í hádegisfréttum í
gær og Kristján Eiríks-
son orti:
Senn kveður páfinn páfagarð
og preláta í sínum ranni
svo opið stendur og
ófyllt skarð
handa útvöldum framsóknar-
manni.
Af fréttastjóra
pebl@mbl.is
Vopnafjörður | Unnið er að undirbúningi
þess að stækka viðlegupláss og athafna-
svæði við höfnina á Vopnafirði og er það
gert í tengslum við hugmynd HB Granda að
flytja loðnubræðsluna í Örfirisey í Reykja-
vík þangað og byggja yfir hana þar og jafn-
vel stækka hana. Þá hafa umsvif á sviði sjáv-
arútvegs í sveitarfélaginu aukist síðustu
misseri.
Í Bændablaðinu segir að heimamenn
fagni þessum hugmyndum en Vilhjálmur
Vilhjálmsson, yfirmaður uppsjávarsviðs HB
Granda staðfesti að þessi hugmynd væri
uppi. Hann tók fram í samtali við blaðið að
engin ákvörðun hefði verið tekin en að hann
teldi meiri líkur en minni á að af þessu yrði.
Loðnubræðslan í Örfirisey afkastar um
350 tonnum á sólarhring og er því ekki stór
verksmiðja en ef til flutnings kemur verður
möguleikum til stækkunar haldið opnum.
Alls var landað um 99 þúsund lestum af
sjávarafla í Vopnafirði í fyrra, meira en
nokkru sinni fyrr. Í ár gæti svo farið að
landaði yrði á milli 140 og 150 þúsund tonn-
um þar.
Hugmynd
að flytja
loðnubræðslu
Skagafjörður | Ákveðið var á fundi sveit-
arstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
að tenging Þverárfjallsvegar til norðurs
frá Sauðárkróki verði um ós Gönguskarðs-
ár. Ekki hefur verið samstaða um málið
innan meirihlutans en skipulags- og bygg-
ingarnefnd hafði lagt til að farin yrði efri
leið en samgöngunefnd vildi fara Ósleið líkt
og vegamálastjóri hafði lagt til þar sem
kostnaður við Ósleið er mun minni.
Samgöngu- og bygginganefnd sam-
þykkti á fundi fyrir nokkru að verða við ósk
vegamálastjóra, en Byggðaráð hafði áður
samþykkt að verða við þeirri ósk.
Reyndar gekk það ekki þrautalaust hjá
sveitarstjórn að afgreiða málið en Gísli
Gunnarsson (D) forseti sveitarstjórnar
lýsti því yfir að Bjarni Maronsson (D) væ-
rivanhæfur til að taka þátt í umfjöllun
þeirra fundargerða sem um var að ræða og
óskaði eftir að varamaður hans, Katrín
María Andrésdóttir (D), tæki sæti. Bjarni
mótmælti úrskurðinum en kvaðst ekki
myndu taka þátt í afgreiðslunni. Eftir
fundarhlé tók Katrín María sæti Bjarna
við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Framsóknarflokks lögðu fram
bókun þar sem harðlega var mótmælt að
forseti vísaði Bjarna Maronssyni úr fund-
arsal og töldu hann ekki hafa vald til þess,
það væri verksvið sveitarstjórnar.
Þverárfjalls-
vegur fari um ós
Gönguskarðsár
♦♦♦
Þorlákshöfn | Kammersveit
Reykjavíkur heldur tónleika í Þor-
lákskirkju í Þorlákshöfn á morgun,
sunnudaginn 3. apríl, kl. 17. Á efn-
isskránni er strengjakvintett Schu-
berts í C-dúr op. 163, sem oft hefur
verið nefndur drottning kamm-
erverkanna. Kammersveitina skipa
á þessum tónleikum Rut Ingólfs-
dóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir,
fiðlu, Þórunn Ósk Marinósdóttir,
víólu, Sigurður Bjarki Gunnarsson
og Hrafnkell Orri Egilsson á selló.
Marta Guðrún Halldórsdóttir
sópransöngkona og Snorri Örn
Snorrason lútu- og gítarleikari
flytja svo verk úr ýmsum áttum í
Versölum, Þorlákshöfn næsta
fimmtudag, 7. apríl, og daginn eft-
ir, í hádeginu 8. apríl, mun sr. Bald-
ur Kristjánsson fjalla um fjölmenn-
ingarsamfélagið á Hafinu bláa.
Þá stendur yfir myndlistarsýning
Aðalheiðar Skarphéðinsdóttur í
Bókasafni Ölfuss en hún nefnist
„Fagur fiskur í sjó“.
Menning í Ölfusi