Morgunblaðið - 02.04.2005, Page 24
24 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Lionsklúbbur Selfoss boð-
ar til opins fundar um karlaheilsu á
Hótel Selfossi mánudaginn 4. apríl
kl. 19.30. Með fundinum vill klúbb-
urinn opna fyrir fræðslu og um-
ræðu um heilsufar karla en þekkt
er að karlar ræða lítið um heilsufar
sitt og eru gjarnir á að láta slíkt
eiga sig þangað til í óefni er komið.
Lionsklúbburinn hefur fengið til
liðs við sig Eirík Jónsson, yfirlækni
á þvagfæraskurðlækningadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss
sem mun meðal annars ræða um
málefni karla og einnig um sérsvið
sitt, sem er krabbamein í blöðru-
hálskirtli og vandamál því tengd.
Fundað um
karlaheilsu
Selfoss | „Mér finnst gaman og gefandi að vera í
samskiptum við fólk, finnst þetta starf vera
spennandi tækifæri til að takast á við fjölþætt
verkefni innan þessarar stóru stofnunar sem
orðin er til og ég hef metnað til að takast á við
það. Mér finnst gaman að vera í samskiptum við
fólk og það er ekki laust við að maður finni fyrir
eftirsjá að fara úr beinni hjúkrun innan heilsu-
gæslunnar,“ segir Anna María Snorradóttir, ný-
ráðinn hjúkrunarforstjóri Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands.
Hún lauk B.Sc.-prófi í hjúkrunarfræði frá Há-
skóla Íslands árið 1984 og M.Sc.-prófi í heilsu-
gæsluhjúkrun frá University of Michigan í
Bandaríkjunum árið 1987. Anna María hefur
sinnt ýmsum kennslustörfum hjá Háskóla Ís-
lands, Nýja hjúkrunarskólanum og Rauða krossi
Íslands. Hún hefur starfað sem deildarstjóri
heilbrigðissviðs hjá RKÍ og verið sendifulltrúi
við þróunarverkefni á vegum RKÍ. Anna María
hefur verið deildarstjóri við heilsugæslustöðina
á Selfossi frá 1999, þar af verið starfandi hjúkr-
unarforstjóri frá árinu 2002.
„Þetta er ný staða sem er að mörgu leyti
ómótuð en fyrirmyndir eru frá öðrum stofnunum
sem hafa verið sameinaðar. Hjúkrunarforstjór-
inn vinnur að samhæfingu og heildarskipulagi
hjúkrunar á stofnuninni en hjúkrunarsvið stofn-
unarinnar er mjög viðamikið og margþætt. Um
er að ræða hjúkrun á heilsugæslustöðvum á Suð-
urlandi, Sjúkrahúsinu á Selfossi auk þess sem
stofnunin rekur réttargeðdeildina á Sogni og
heilbrigðisþjónustu á Litla-Hrauni. Hin faglega
stjórnun á hverjum stað verður í höndum hjúkr-
unarstjóra,“ segir Anna María.
Áhersla á mikilvægi hjúkrunar
Anna María situr í stjórn HSS ásamt fram-
kvæmdastjóra, lækningaforstjóra og skrif-
stofustjóra. „Það er stefna stjórnarinnar að nota
afl stofnunarinnar til að veita sem besta þjón-
ustu. Það er mikil þekking í hjúkrunargeiranum
innan stofnunarinnar og við viljum auðvitað nýta
þá fagþekkingu sem best fyrir fólkið. Ég sé
mörg tækifæri í sameiningunni en í stórri stofn-
un verður auðveldara með alla símenntun og
endurmenntun starfsfólksins. Einnig verður
nýting á allri sérþekkingu hjúkrunarfræðinga
innan stofnunarinnar meiri og getur nýst öllu
svæðinu í stað þess að vera staðbundin. Það er
nóg af verkefnum til að sinna og stefnan er að
kappkosta að gera vel og betur en áður,“ segir
Anna María sem leggur áherslu á mikilvægi
hjúkrunar í allri starfsemi stofnunarinnar og
bendir á forvarnarþáttinn og fræðslu á ýmsum
sviðum.
„Hjúkrunarfræðingar eru vel menntaður og
stór hópur sem sinnir mörgum rekstrarliðum og
faglegum þáttum auk þess sem gæðamál á stofn-
unum eru mikið í höndum hjúkrunarfræðinga.
Það má alveg segja að við fylgjum fólki eftir frá
vöggu til grafar og höfum heildræna sýn á fólki
og þörfum þess,“ segir Anna María.
Hún bætir við, spurðum það hvernig sé að
starfa sem hjúkrunarfræðingur í heilbrigð-
isþjónustunni: „Það er gaman að vera hjúkr-
unarfræðingur og þetta er mjög gefandi starf.
Það þykir kannski undarlegt að þrátt fyrir erf-
iðar aðstæður oft á tíðum þá er alltaf gefandi að
annast fólk. Við horfum á allt lífsferli mannsins
sem eðlilegan þátt, einnig líknarþáttinn þegar
fólk skilur við lífið.“
Lífið er tækifæri til að þroskast
„Ég er útivistarmanneskja og sæki orku í úti-
veru, svo stunda ég líka jóga í frítímum,“ segir
Anna María sem á fjögur börn og eru þrjú þeirra
heima við. „Lífið er tækifæri þar sem manni gef-
ast ákveðnir möguleikar til að þroskast og eflast.
Það sem maður fæst við verður alltaf til aukins
þroska. Ég vil sjá þessa stofnun okkar hér á Suð-
urlandi eflast og að við getum boðið upp á mjög
góða þjónustu. Við erum með fólk sem hefur
góða þekkingu til að takast á við þetta verkefni.
Það er mikill kostur fyrir íbúana að geta sótt
þessa þjónustu í heimabyggð,“ segir Anna María
Snorradóttir, hjúkrunarforstjóri Heilbrigð-
isstofnunar Suðurlands.
Nýr hjúkrunarforstjóri á Suðurlandi sér mörg tækifæri í heilbrigðisþjónustunni
Það er alltaf gefandi
að annast fólk
Eftir Sigurð Jónsson
fréttaritara
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Nýr hjúkrunarforstjóri Anna María Snorra-
dóttir er mikil útivistarmanneskja og stundar
jóga í frítíma sínum.
Stokkseyri | Nú er hægt að lesa
ljóð og lauga sig samtímis í Sund-
laug Stokkseyrar. Ljóð í lauginni er
samstarfsverkefni Bókasafns og
Sundlaugar Stokkseyrar. Þetta er í
annað sinn sem þessir aðilar taka
höndum saman og gefa sundlaug-
argestum kost á menningu samfara
heilsubótinni. Ljóðskáldið í ár er
Stokkseyringurinn Guðríður Ester
Geirsdóttir. Brot úr ljóðinu Til þín
Óbeislað haf sem brotnar á klettum
og mótar þar listaverk
sem enginn getur eignað sér.
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Ljóð í lauginni
♦♦♦