Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Sikileyingar eru sérstaklegastoltir af Normanna-tímabilinu, sem stóð í tværaldir frá árinu 1100,“ segir
Gylfi Guðjónsson sem sótti eyjuna
heim sl. haust. „Miklar byggingar og
minnismerki eru frá þessum tíma,
m.a. má nefna konungshöllina í
Palermo, þar sem þing og heima-
stjórn hefur aðsetur, og dómkirkj-
una í Monreale, djásn eyjarskeggja.
Sikiley á sinn sérfána, en hefur af-
ar sterka stöðu innan ítalska lýð-
veldisins. Níutíu þingmanna heima-
stjórn situr á eyjunni, þar af sitja 50
þeirra á ríkisþinginu í Róm. Ein
stærsta tekjulind landsmanna er
ferðamenn og fræg eru hin góðu vín
frá Sikiley."
Gylfi bendir á að mafían hafi fest
rætur á Sikiley á 14. öld og hefur
ríkt þar síðan. "Orðið „mafía“ þýðir í
raun „vinátta“. Mafíuleiðtogar voru
fengnir til að aðstoða heimamenn
þegar bandamenn hertóku eyjuna úr
höndum Þjóðverja og Ítala í seinni
heimsstyrjöldinni. Saga mafíunnar
er blóði drifin, en fyrstur til að gera
tilraun til að uppræta hana var ein-
ræðisherrann Benito Mussolini.
Þegar hann komst til valda eftir
fyrri heimsstyrjöldina, hóf hann
grimmilega herferð gegn mafíunni,
en sú aðför lognaðist út af er Muss-
olini og Ítalía drógust inn í seinni
heimsstyrjöldina. Hátoppur í víga-
ferlum mafíunnar mun hafa verið ár-
ið 1976 þegar Aldo Moro, forsætis-
ráðherra Ítalíu, var myrtur.“
Óvina heimsóknir
Á Palermo-flugvelli tók heimamað-
urinn Riccardo Borga á móti hópn-
um og var honum til halds og trausts
allan tímann.
„Fjallið Pellegrino gnæfir yfir
höfuðborgina í 860 metra hæð og
þaðan sést vel yfir hafið og borgina.
Varðturnar frá liðnum öldum eru
áberandi um alla Sikiley frá strönd-
um til fjalla og þegar sást grilla í
óvinaskip, var eldur kveiktur og
reykmerki gefin til að láta eyj-
arskeggja vita af grunsamlegum
heimsóknum.
Palermo er borg full af bílum,
þröngum götum, gömlum húsum,
skemmtilegu fólki og er borgin sér-
lega vinsæl til ráðstefnuhalds. Graf-
hýsi eða katakomburnar í Palermo
eru fræg fyrirbæri, en upphafsmenn
grafhýsanna voru Capuchins-
munkar. Sjá mátti átta þúsund
múmíur frá 1599 til 1920, en árið
1971 var sett alþjóðlegt bann á slíkt
verklag með látið fólk. Þekktasta
múmían er af Rosaliu Lombardo,
tveggja ára stúlku, sem lést 6. des-
ember 1920. Læknirinn dr. Solafia
frá Palermo meðhöndlaði líkið með
efnum, sem hann gaf aldrei upp hver
væru, en ennþá virðist sem Rosalia
haldi útliti sínu og sofi værum svefni.
Minnismerki fyrri tíma
Íslenski hópurinn heimsótti bæina
Cefalu, Monreale og Caccamo, sem
vert er að skoða. „Cefalu er sextán
þúsund manna ferðamannabær með
mikla sögu, um 70 km austur af
Palermo. Stór höfði klýfur bæinn og
þar í kring má sjá rústir gamalla
bygginga, sem taldar eru vera um
þrjú þúsund ára gamlar. Ekki er vit-
að hvaða fólk var þarna á ferðinni,
en sjá mátti m.a. höggvin göng
gegnum bergið með útgönguleið
neðar í höfðanum.
Bærinn Caccamo er staðsettur
uppi í dal á milli Cefalu og Palermo
og er þekktur fyrir forna kastala og
miðaldalegan miðbæ. Bærinn dreg-
ur ekki að sér ferðamenn, en þó
mátti þar í miðaldakastala skynja
vald og auð fyrri tíma, þar sem jafn-
vel saklaust fólk var látið játa á sig
sakir eða sekt annarra í dýflissum,
lofað lífi og framtíð, en síðan líflátið
til öryggis. Í bænum var haldin sex-
réttuð veisla að sikileyskum sið með
viðeigandi veigum, söng og dansi,“
segir Gylfi.
Snekkjan vélarvana
Að morgni eins ferðadagsins var
hópurinn mættur í góðu veðri að
skemmtisnekkju við höfnina í Cefalu
því daginn átti að nýta til siglinga.
„Harmonikkurnar voru þandar um
borð og útsýni frá hafi í átt til Sikil-
eyjar stórkostlegt. Eftir þó nokkra
siglingu, kom mikill reykur frá vél
snekkjunnar og hún stöðvaðist. Þar
sem enginn í áhöfninni þekkti til vél-
arinnar, var ákveðið að senda tvo
reynda íslenska trillukarla niður í
vélarrúm og í ljós kom að vatn var í
olíunni. Þeir hófu þegar viðgerð með
gamalli rörtöng og dældu vatni út af
vélinni og úr tönkum skipsins. Haft
var samband í land og óskað eftir
vélasérfræðingi og öðru skipi til að
taka við farþegunum ef ekki tækist
að koma vélinni í gang. Svo fór þó að
sérfræðingurinn kom vélinni í gang
með aðstoð Íslendinga og verkfær-
um um borð sem áhöfnin vissi ekk-
ert um,“ segir Gylfi.
Hið fræga eldfjall Etna, sem trón-
ir í fjögur þúsund metra hæð, var
svo auðvitað líka sótt heim. Fjallið
hafði nýlega gosið og enn mátti sjá
eldana frá bænum Taormina, þar
sem Halldór Laxness skrifaði Vef-
arann frá Kasmír. Farið var á rútu
upp í 1.800 metra hæð þar sem er
óvirkur gígur á stærð við Kerið og
ótrúleg byggð um hlíðar allt í kring.
Þarna er m.a. að finna þorp, sem fór
undir hraun árið 1669, eyddist og
byggðist upp aftur, en er nú eina
byggðarlag Sikileyjar sem á sér eng-
ar fornminjar. Kirkjan í hlíðinni
slapp og enn má sjá hraunflákana
beggja vegna við hana. Upp úr
hrauninu vaxa sérstakar vínþrúgur,
sem ræktaðar eru til víngerðar.
Rútuumferð er ekki leyfð í bæn-
um Taormina, sem byggst hefur í
ótal hæðum. Þar er hringleikahús
frá liðnum öldum auk þess sem
Taormina státar af bestu baðströnd-
um Sikileyjar ásamt bænum Cefalu,
að sögn Gylfa Guðjónssonar.
Ljósmynd/Sighvatur Cassata
Hluti af bænum Cefalu og höfðinn mikli með hofunum, séð frá skemmtiferðaskipinu undan ströndum Sikileyjar.
Þröngar götur á slóðum mafíunnar
SIKILEY
TENGLAR
.....................................................
Vefsíða fylgdarmannsins
www.son.it
join@mbl.is
Sikiley er heillandi heimur með fallegum bað-
ströndum, miklu fjalllendi og tveimur virkum eld-
fjöllum. Gylfi Guðjónsson fór í haust ásamt ferða-
félögum í þægilegt Miðjarðarhafsloftslagið.
Héraðsráðið í gamla bænum Caccamo þar sem loftið lyktar af aldagamalli
mafíu. Hallandi undir flatt er Gylfi Guðjónsson og ferðafélaginn Sighvatur
Cassata, sem er hálfur Sikileyingur, situr við borðið.
Ljósmynd/Sighvatur Cassata
Bræðurnir Sigurður og Sævar Hannessynir þenja nikkurnar eftir vel
heppnaða ferð Sævars í vélarrúm skemmtisnekkjunnar.
Fossavatnsgangan
Fossavatnsgangan á Ísafirði er
elsta skíðamót sem enn er við
lýði á Íslandi og hefur jafn-
framt verið fjölmennasta skíða-
göngumót landsins undanfarin
ár, með 100–150 þátttakendur.
Komin er hefð á að gangan fari
fram fyrsta laugardag í maí og
markar hún jafnan lok skíða-
vertíðarinnar hér á landi. Að
þessu sinni fer ganga þó fram
hinn 30. apríl. Göngunni er ætl-
að að vera vettvangur fyrir alla
unnendur skíðaíþróttarinnar
og hollrar útiveru, hvort sem
það eru þrautþjálfaðir keppn-
ismenn, útivistarfólk, trimm-
arar, byrjendur eða börn. Allir
geta valið sér vegalengd við
hæfi, og hversu breitt sem bilið
verður á milli manna í braut-
inni, þá sameinast allir að
göngu lokinni í hinu víðfræga
Fossavatnskaffi, þar sem við-
urkenningar eru veittar og
borðin svigna undan kaffikrás-
unum.
Skráning og nánari upplýs-
ingar á www.fossavatn.com
VOR 2005
Sölustaðir: sjá www.bergis.is
Fréttasíminn
904 1100