Morgunblaðið - 02.04.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 29
FERÐALÖG
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
410 4000 | landsbanki.is
Ferðalán
Nánari upplýsingar á landsbanki.is eða í næsta útibúi.
Það getur breytt öllu að hafa aðgang að ferðaláni
á hagstæðum kjörum. Þá er aðeins spurning um
að fylgja eigin innsæi og taka sér gott frí.
• Þú færð lán fyrir ferðinni
• Þú færð lán fyrir gjaldeyrinum
• Þú getur sótt um á landsbanki.is og reiknað þitt lán
Besti tíminn til að fara í frí
er þegar þú þarft á því að halda!
www.floridafri.com
Hótel - íbúðir - siglingar
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Vika íDanmörku
hertzerlendis@hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
27
70
7
03
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
„Gönguferðir á Spáni“
Eigum enn nokkur pláss laus eftirtaldar vikur:
18. maí, 25. maí, 28 maí
Upplýsingar á: www.sumarferdir.is,
www.mountainwalks.com og
elsfrares@terra.es
TRANS Atlantic er nýleg ferða-
skrifstofa sem er norður á Akureyri
og hefur það að leiðarljósi að stuðla
að auknu framboði á ferðum frá
landsbyggðinni og nú er unnið að
því að koma á beinu flugi frá Egils-
stöðum til Kaupmannahafnar.
Markmiðið er einnig að kynna
nýja og spennandi áfangastaði og
Trans Atlantic býður meðal annars
upp á ferðir til Mexíkó þar sem
dvalið er í bænum Playa del Carm-
en. Þegar hefur skólaútskriftar-
hópur bókað sig í fyrstu ferðina
þangað sem farin verður í maí. „Við
bjóðum upp á fjögurra og fimm
stjörnu hótel sem „allt er innifalið“
og þá erum við að tala um allan mat,
alla drykki, skipulagða skemmti-
dagskrá, siglingar, líkamsrækt og
margt fleira,“ segir Ómar Banine
einn af eigendum Trans Atlantic og
bætir við að sérstaklega vel sé hugs-
að um börn í barnaklúbbum hót-
elanna. „En við bjóðum líka upp á
ódýrari strandhús fyrir þá sem það
vilja og núna erum við með mjög
ódýr þriggja stjörnu hótel á sér-
stöku tilboðsverði.“
Indíánaslóðir heimsóttar
Hjá Trans Atlantic er einnig hægt
að fara í þriggja landa ævintýraferð-
ir sem standa í tvær vikur, en þá er
farið til Mexíkó, Belize og Guate-
mala. „Þá er farið á slóðir Maya-
indíána og skoðaðar fornar menjar
og einnig er farið inn á sérstakt
svæði þar sem jagúar, sú tigna
skepna heldur sig í miklum mæli.
Indíánaþorp eru heimsótt, farið inn
í regnskóginn og synt við næst
stærsta kóralrif í heimi,“ segir Óm-
ar og bætir við að Trans Atlantic
stefni að því að koma á víðtækum
menningartengslum á milli Íslands
og Mexíkó. „Við erum að vinna í því
að koma á vinabæjarsamskiptum á
milli Akureyrar og Playa del Carm-
en og ýmislegt skemmtilegt er í far-
veginum í þeim málum.“
FERÐASKRIFSTOFA | Trans Atlantic á Akureyri
Bjóða ferðir í sumar til Mexíkó
Hótelsvæði við ströndina í Mexíkó þar sem allt er innifalið.
www.transatlantic.is
Hvaða frí er þér minnisstæðast?
„Ætli það sé ekki þegar við fór-
um með börnin á skíði til Madonna
á Ítalíu í fyrsta sinn fyrir tveimur
árum. Sú ferð er okkur öllum mjög
eftirminnileg. En svo eru það sum-
arfríin á Mallorca. Þangað höfum
við farið tvisvar sinnum og verið
rosalega ánægð með þær ferðir.
Það er svo einfalt að fara með
krakka þangað í þægileg fjöl-
skyldufrí.“
Eru börnin alltaf með þegar
þið farið í frí?
„Við förum yfirleitt aldrei ein í frí,
við hjónin, en erum reyndar að
fara til Afríku á næstunni með
kunningjahjónum okkar. Við skipu-
lögðum sjálf ferðina og förum fyrst
til Maputo, síðan til Swazilands og
skoðum þar Kruger-dýragarðinn.
Ég hef lengi haft áhuga á að koma
til Afríku og hlakka mikið til að
fara þangað.
Hvert vilja börnin helst fara?
„Skíðaferðin stendur upp úr hjá
þeim. Þessi vika á Ítalíu var æð-
isleg. Við erum öll mikið á skíðum
og þau fóru strax í skíðaskóla þeg-
ar við komum og náðu góðum tök-
um á að renna sér. Þau unnu til
verðlauna í sínum aldursflokki og
skreyta þau hillurnar hjá þeim.
Eftir þessa ferð er stelpan farin að
æfa skíði. Þeim fannst ferðin æð-
isleg og eru alltaf að kvabba um að
fara aftur. Við fengum mjög gott
veður og þó að þetta hafi verið
stuttur tími er vika á skíðum á við
tveggja vikna frí. Þetta var besta
fríið að okkar mati.“
Hvernig var tekið á móti ykkur?
„Krakkarnir töluðu ekki ensku
þegar við vorum þarna en þau elsk-
uðu skíðakennarann sem talaði
fingramál við þau. Við borðuðum á
veitingastöðum á hverju kvöldi og
það var ekkert mál að krakkarnir
kæmu með. Það var sama hvert við
fórum, það var allstaðar tekið vel á
móti okkur.“
Getur þú mælt með hótelum
og matsölustöðum á Ítalíu
og Mallorca?
„Við vorum á hótel Arnica í Ma-
donna og fórum á æðislegan veit-
ingastað þar sem heitir Ristorante
da Alfiero og var í göngufæri frá
hótelinu. Þegar við vorum á Calla
Mallorca gistum við á Cala Millor
Park og borðuðum oft á veitinga-
stað í miðbænum sem hét Tonu’s
sem okkur fannst mjög góður. Þar
fengum við gott ferskt pasta en
staðurinn er rekinn af fjölskyldu og
unnu fjölskyldumeðlimir, líka börn,
á staðnum. Ef við vildum fá Paella
þá varð að panta hana daginn áður,
svo hún væri fersk. Þau sögðu okk-
ur að þau ættu ekkert á lager held-
ur færu sérstaklega út að veiða
fiskinn í hana, annars væri hún
ekki fersk.“
MINNISSTÆÐASTA FERÐIN
Skíðaferð með fjölskyldunni
www.hotelarnica.com//
info@hotelarnica.com
Ristorante da Alfiero 38084
Madonna Via Vallesinella 5
sími: 0465 440117
Hótel Cala Millor Park, Mallorca
sími: 00 34 971 585 503
Bára Ægisdóttir
hjá Ferðaskrifstofu
Íslands
Ægir Snorrason, Bára Ægisdóttir og Alda Snorradóttir.
FYRIRTÆKIÐ Eurover hefur haf-
ið innflutning á frönskum hjólhýs-
um. Að sögn Harðar Bjarnasonar
hjá Eurover eru hjólhýsin þeim eig-
inleikum búin að hægt er að lækka
topp þeirra svo unnt sé að geyma
þau í bílskúr þegar ekki er verið að
nota hjólhýsin. Hjólhýsin er hægt að
fá í fimm mismunandi stærðum og
eru allt frá því að vera fyrir 2–3 og
upp í 4–5 fullorðna einstaklinga. Þau
íburðarmestu eru að sögn Harðar
með heitu rennandi vatni og öllum
þægindum, sóltjaldi, fortjaldi og
hægt að fá í þau sjónvarp, útvarp og
geislaspilara. Hjólhýsin kosta á
bilinu 1.550.000 kr. og upp í um
1.850.000 krónur. Verða þau til sýnis
á sumarsýningu Kringlunnar sem
stendur yfir dagana 14.–20. apríl.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá
Eurosport, Laugavegi 32.
Hjólhýsi sem passa í bílskúr
HJÓLHÝSI