Morgunblaðið - 02.04.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 39
UMRÆÐAN
HOLLENSKI auðkýfingurinn
J.J. van Oosterom hefur á síðustu
fjórtán ár fjármagnað og staðið fyrir
svokölluðu Amber-skákmóti í Món-
akó. Það sem gerir fyrirkomulag
þessa öfluga móts óvenjulegt er að
keppendur tefla annars vegar eina
blindskák þar sem tímamörkin eru
25 mínútur + 20 sekúndur á hvern
leik og svo hefðbundna atskák.
Þetta er ekki eini óvenjulegi skák-
viðburðurinn sem þessi umsvifa-
mikli auðkýfingur hefur staðið fyrir
á síðustu 15 árum. Í nokkur ár í röð
fjármagnaði hann einvígi á milli
sterkra hollenskra stórmeistara og
öflugustu kollega þeirra í heiminum.
Einnig stóð hann fyrir veglegu
skákmóti í Buenos Aires árið 1994
sem tileinkað var Sikileyjarvörn og
eins helsta sérfræðingsins í þeirri
byrjun, rússneska stórmeistarans
Lev Polugaevsky. Allt fram til árs-
ins 1998 sá hann til þess að keppni
færi fram á milli stórmeistara sem
voru öflugastir í heiminum á tíma-
bilinu 1950–1980 og færustu skák-
kvenna heims. Friðrik Ólafsson
tefldi einu sinni í slíkri keppni sem
fram fór í Vín árið 1993. Stuttu eftir
síðustu keppnina af þessu tagi varð
hann afar heilsuveill og í febrúar
1999, sagði hollensk skákkona grein-
arhöfundi, að ættingjar mannsins
hefðu þá afráðið að hætta öllum fjár-
austri til skáklistarinnar fyrir utan
að halda áfram með Amber-mótið.
Þessi saga á við um marga auðkýf-
inga sem haft hafa áhuga á að
styrkja skáklistina; af einni eða ann-
arri ástæðu draga þeir úr þátttöku
sinni. Hinsvegar er afar ánægjulegt
að þetta skemmtilega mót sé enn
haldið á hverju ári. Flestir af öfl-
ugustu skákmönnum samtímans
hafa tekið þátt þar fyrir utan Garry
Kasparov. Það hefur verið tilfinning
höfundar að ein ástæða þess að
Vishy Anand hefur ekki blómstrað
meira sem skákmaður sé sú að undir
niðri þyki honum Kasparov hafa
staðið sér framar. Þetta hafi gert
það að verkum að í undirmeðvitund-
inni tryði hann því ekki að það yrði
almennt viðurkennt að hann væri sá
besti. Núna þegar skrímslið með
þúsund augun hefur dregið sig í hlé
ætti að vera tækifæri fyrir stiga-
hæsta virka skákmann heims að
sýna virkilega hvað í honum býr. Á
Amber-mótinu í ár gerði hann það
svo sannarlega þar sem munaði
tveimur og hálfum vinningi á honum
og næsta manni. Forsenda þessara
yfirburða var frábær byrjun hans á
mótinu en að loknum sjö umferðum
af 22 hafði hann unnið allar skákir
sínar. Í annarri umferð tefldi Ind-
verjinn snjalli hvasst til sigurs í
blindskák sinni gegn Franscisco
Ponz Vallejo.
Hvítt: Viswanathan Anand (2.786)
Svart: Francisco Pons Vallejo
(2.686)
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. g4
h6 8. Bg2!? e5 9. Rf5 g6
Í skákheimi nútímans hafa öflug-
ustu meistarar heims þann lúxus að
geta notað skákforrit og skákgagna-
banka til þess að aðstoða sig við að
þróa sig í listinni. Á tíma Friðriks og
Fischers var það ekki hægt en í dag
þýðir það að menn fórna peðum og
mönnum oft snemma tafls án þess
að taka með því teljandi áhættu.
Áttundi leikur hvíts hafði í för með
sér annaðhvort peðstap eða manns-
fórn og að sjálfsögðu velur Anand
síðari kostinn.
(Sjá stöðumynd 1)
10. De2!
Hugmyndin er að langhrókera,
leika f-peðinu til f4 og opna svörtu
kóngsstöðuna. Þessu hefur áður ver-
ið leikið en ekki á meðal þeirra
bestu.
10. ...gxf5 11. exf5 Bd7!?
Nýjung sem hefur í för með sér að
svartur fær tvo létta menn fyrir
hrók í stað þess að vera manni yfir.
Rökin fyrir hugmyndinni eru þau að
þægilegra verður að tefla svörtu
stöðunni en Anand sýnir fram á ann-
að.
12. Bxb7 Bc6 13. Bxa8 Bxa8 14.
Hg1 Rbd7 15. 0-0-0 Be7 16. h4 Da5
17. Bd2 Rd5 18. Rxd5 Dxd5 19.
Dxa6 Bb7 20. Da3 Dc6 21. Bb4 Rb6?
22. g5!
Svartur verður nú verulega að-
þrengdur og skömmu síðar hrynur
staðan.
22. ...hxg5 23. hxg5 Kd7 24. f6
Rc4? 25. Dc3 Bf8 26. b3! Rb6 27.
Dxe5 Hh4
Hvítur lýkur nú skákinni með lag-
legri og einfaldri fléttu.
(Sjá stöðumynd 2)
28. Bxd6! Dxd6
28. ...Bxd6 hefði verið svarað með
29. De7+ Kc8 30. Hxd6 og hvítur
vinnur.
29. Hxd6+ Bxd6 30. Hd1 Rc8 31.
g6 Hh1 32. Df5+ og svartur gafst
upp.
Sigurvegari á svona móti þarf
einnig að hafa stríðsgæfuna með sér.
Í atskák þar sem Anand hafði hvítt
gegn Veselin Topalov, en sá deildi
nýverið efsta sætinu með Kasparov
á Linares-ofurskákmótinu, kom upp
eftirfarandi staða eftir 45. leik hvíts:
(Sjá stöðumynd 3)
Anand hafði haft aðeins betra tafl
en Búlgarinn hafði ýtt a-peðinu of
langt fram þannig að máthætta
skapaðist. Hann var enn grandalaus
um hana þegar hann lék 45. ...Bf8?
en svo virðist sem 45. ...Ka2 hefði
haldið jöfnu. Indverjinn var ekki
lengi að nýta sér þetta og eftir 46.
Rd3! gafst svartur upp þar sem
hann verður mát bæði eftir 46.
...Ka2 47. Bb2 a3 48. Rc1# og 46.
...Bxc4 47. Bb2+ Ka2 48. Rc1#.
Lokastaða mótsins varð annars
þessi:
1. Viswanathan Anand (2.786)
15½ vinning af 22 mögulegum.
2. Alexander Morozevich (2.741)
13 v.
3.–4. Vassily Ivansjúk (2.711) og
Peter Leko (2.749) 12 v.
5. Vladimir Kramnik (2.754) 11½
v.
6.–8. Peter Svidler (2.735),Veselin
Topalov (2.757) og Alexei Shirov
(2.713) 11 v.
9. Boris Gelfand (2.696) 10 v.
10. Francisco Pons Vallejo (2.686)
9½ v.
11. Evgeny Bareev (2.709) 8 v.
12. Loek Van Wely (2.679) 7½ v.
Enn vekur athygli að „heims-
meistarinn“ Vladimir Kramnik
blandar sér ekki alvarlega í toppbar-
áttuna í móti sem hann teflir í. Von-
andi hefjast menn brátt handa við að
koma sér saman um einn viður-
kenndan heimsmeistara, nú þegar
Kasparov hefur stigið af sviðinu.
Reykjavíkurrisarnir
mynda nýjar stjórnir
Stærstu taflfélögin í Reykjavík,
Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið
Hellir, héldu fyrir skömmu aðal-
fundi sína og varð nokkur endurnýj-
un í báðum stjórnum félaganna.
Hinn 10. mars sl. hélt Taflfélag
Reykjavíkur sinn aðalfund og varð
Óttar Felix Hauksson kjörinn for-
maður. Á sínum fyrsta stjórnarfundi
skipti stjórnin með sér verkum
þannig að fráfarandi formaður, Torfi
Leósson, er varaformaður, Gunn-
laugur Karlsson er gjaldkeri og Rík-
harður Sveinsson er ritari. Aðrir
meðlimir stjórnarinnar eru: Bene-
dikt Jónasson, Ólafur Kjartansson,
Sigurlaug Friðþjófsdóttir, Ólafur
Ásgrímsson, Þorfinnur Björnsson,
Kristín Sigurðardóttir og Ásgeir
Tryggvason. Fram kemur í frétta-
tilkynningu frá félaginu að hin nýja
stjórn hyggist efla barna- og ung-
lingastarf félagsins og jafnframt
verði stefnt að því að senda lið til
keppni á Evrópumeistaramót tafl-
félaga á Ítalíu seinna á árinu. Tafl-
félagið Hellir hélt sinn aðalfund 31.
mars sl. og var Gunnar Björnsson
endurkjörinn formaður félagsins.
Aðrir í stjórn eru: Lenka Ptácník-
ová, Kristján T. Högnason, Davíð R.
Ólafsson, Vigfús Óðinn Vigfússon,
Andri Áss Grétarsson, Þorsteinn
Hilmarsson, Hrannar Baldursson og
Sigurbjörn Björnsson. Þeir tveir
síðastnefndu eru nýir í stjórn en
báðir hafa komið við sögu í fé-
lagsmálum skákhreyfingarinnar þó
að þetta sé í fyrsta skipti sem þeir
sitja í stjórn Hellis.
Anand sigrar með
glæsibrag á
Amber-skákmótinu
Anand og Topalov að kryfja skák sína til mergjar.
Óttar Felix Hauksson og hans nýja stjórn í TR.
Stöðumynd 1.
Stöðumynd 2.
Stöðumynd 3.
daggi@internet.is
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
Mónakó
14. Amber blind- og atskákmótið
19.–31. mars 2005
NÝVERIÐ stóð Reykjanesbær í
annað sinn fyrir svokölluðu Fram-
kvæmdaþingi. Markmiðið með
þinginu er að draga
saman upplýsingar um
fyrirhugaðar fram-
kvæmdir í og við
Reykjanesbæ á árinu
og fá glögga mynd af
kostnaði við þær fram-
kvæmdir sem fram fara
á vegum sveitarfé-
lagsins, ríkisins og
verktakafyrirtækja.
Bæði almenningur og
verktakafyrirtæki stór
og smá sýndu þessu
þingi mikinn áhuga. Á
forsvarsmönnum
þeirra fyrirtækja sem töluðu á
þinginu um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á þeirra vegum á árinu, var
ekki annað að heyra, en að almenn
bjartsýni ríki meðal manna um mik-
inn uppgang í þessu fimmta stærsta
sveitarfélagi á landinu. Eftir miklar
umhverfisframkvæmdir og upp-
byggingu á þjónustu við fjölskyldur
sé staðan sú, að hingað horfi bæði
fólk og fyrirtæki í æ ríkara mæli og
sjái Reykjanesbæ sem
góðan valkost.
Ímynd
Reykjanesbæjar
Bæjaryfirvöld hafa
unnið markvisst á
þessu kjörtímabili að
því að breyta ásýnd
bæjarins með miklum
umhverfisbótum.
Breytingar sem auka
enn frekar lífsgæði
okkar sem nú þegar
búum hér og störfum
og jafnframt gera
Reykjanesbæ enn betur í stakk bú-
inn til að taka við fleiri íbúum og
fjölga atvinnutækifærum í aðlaðandi
umhverfi. Þannig hefur Reykjanes-
bær öðlast betri og jákvæðari ímynd
með breyttri bæjarmynd sem vakið
hefur athygli.
Umhverfisbreytingarnar eru einn
þáttur þess að gera bæjarfélagið
áhugaverðara til búsetu auk þess að
hafa áhrif á lífsgæði fólks. Þess er nú
þegar farið að sjást merki að þessi
ákvörðun bæjaryfirvalda hefur verið
rétt.
Í nýju hverfi, Tjarnahverfi, hefur
nú verið úthlutað 540 nýjum íbúðum
og þar er einnig að rísa grunnskóli
og nýlega var leikskólinn stækkaður.
Jafnframt er mikill áhugi fyrir íbúð-
um við sjávarsíðuna í Keflavík sem
nú eru í byggingu og fleiri íbúðir á
því svæði munu bætast við á næst-
unni. Hér er verð á húsnæði mun við-
ráðanlegra en t.d. á höfuðborgar-
svæðinu.
Gott samfélag
Af þessu má ljóst vera að Reykja-
nesbær er mjög svo ákjósanlegur
valkostur til búsetu. Hér ríkir sá
metnaður að samfélagið sé fjöl-
skylduvænt. Á undanförnum árum
hefur verið lagt mikið fjármagn í að
hlúa að skólastarfi og gera grunn-
skólana betur í stakk búna til að tak-
ast á við krefjandi verkefni. Í því
hverfi sem nú er að byggjast upp
tekur til starfa í haust nýr grunn-
skóli, sem mun leggja áherslu á nýj-
ungar í kennsluháttum. Fjölbrauta-
skóli Suðurnesja er öflugur
framhaldsskóli og nú í haust tekur
Íþróttaakademían til starfa í sam-
vinnu við Háskólann í Reykjavík.
Hér er val á milli sjö leikskóla þar
sem börn eru tekin inn við 2ja ára
aldur. Í bítlabænum er auðvitað rek-
inn tónlistarskóli og eins og lands-
menn vita er hér stundað öflugt
íþróttalíf.
Nálægðin við
höfuðborgarsvæðið
Nú hefur samgönguráðherra til-
kynnt að lokið verði við að tvöfalda
Reykjanesbrautina. Sú aðgerð er
fagnaðarefni, en ekki eingöngu okk-
ar sem búum á Reykjanesi, vegurinn
er þjóðbraut allra landsmanna og
tenging við alþjóðaflugvöll. Öruggari
og betri akstursskilyrði er gífurlegt
hagsmunamál fjölskyldna í landinu.
Sú staðreynd að staðsetning
Reykjanesbæjar, nærri alþjóða-
flugvelli og nærri stóru atvinnusvæði
sem höfuðborgarsvæðið er, hlýtur að
vekja áhuga margra sem eru að huga
að breytingum á sínum högum. Það
er full ástæða til að vekja athygli á
Reykjanesbæ sem hefur gjörbreyst
á undanförnum árum eins og fram
hefur komið. Hér er framsækið, fjöl-
skylduvænt samfélag, sem býður
nýja íbúa velkomna.
Reykjanesbær samfélag í sókn
Björk Guðjónsdóttir fjallar
um Reykjanesbæ ’Nú hefur samgöngu-ráðherra tilkynnt að
lokið verði við að
tvöfalda Reykjanes-
brautina.‘
Björk Guðjónsdóttir
Höfundur er forseti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar.