Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 57
DAGBÓK
Stjórnarnefnd NATO-þingsins fundar einusinni á ári í einhverju aðildarríkjaAtlantshafsbandalagsins og nú um þessahelgi kemur hún saman hér á Íslandi.
Um eitt hundrað manns taka þátt í fundinum,
bæði þingmenn og starfsmenn þjóðþinga aðildar-
ríkjanna, auk embættismanna NATO-þingsins.
Forseti NATO-þingsins er franski þingmaðurinn
Pierre Lellouche. Fulltrúar Íslands á fundinum
eru þrír, Guðmundur Árni Stefánsson, formaður
Íslandsdeildar NATO-þingsins, Einar Oddur
Kristjánsson og Magnús Stefánsson.
Átta ár eru liðin síðan stjórnarnefndarfundur
var haldinn á Íslandi, að sögn Andra Lúthers-
sonar, alþjóðaritara á alþjóðasviði Alþingis.
„NATO-þingið er alþjóðleg þingmannasamtök
sem starfa sjálfstætt og óháð Atlantshafsbanda-
laginu,“ segir Andri. „Það má segja að því sé ætl-
að að vera ákveðinn þekkingarbrunnur fyrir þjóð-
kjörna þingmenn sem veljast í þessar landsdeildir
og efla eininguna milli aðildarríkja NATO. Jafn-
framt er því ætlað að auka samskiptin við ríki sem
ekki eru aðilar að NATO.
Á annan tug ríkja eiga aukaaðild að NATO-
þinginu og svo er talsverður fjöldi áheyrnaraðila
og annarra samstarfsaðila.“
Segir Andri að þetta samstarf teygi sig ansi
langt suður og austur. „NATO-þingið á náin sam-
skipti við ríki Norður-Afríku, í Mið-Austurlöndum
og jafnvel í Mið-Asíu.“
Andri segir stjórnarnefnd NATO-þingsins
fjalla um innri málefni þingsins, um þingsköp
NATO-þingsins, samskipti NATO-þingsins við
þjóðþing samstarfsríkja, fjármál þess og annað
sem kalla mætti venjuleg aðalfundarstörf. „Það
eru aftur á móti engar efnislegar, pólitískar
ákvarðanir teknar á þessum fundum,“ segir hann.
Allt það starf fari fram í málefnanefndum NATO-
þingsins, þær séu ekki á Íslandi að þessu sinni.
Málefnanefndirnar eru að sögn Andra fimm;
efnahagsnefnd, öryggis- og varnarmálanefnd,
stjórnmálanefnd, vísinda- og tækninefnd og loks
félagsmálanefnd. Þær fjalli um afmörkuð svið inn-
an þessara geira, búi til skýrslur og ályktanir sem
síðan er fjallað um á vorþingi og ársfundi NATO-
þingsins. Þess á milli fari þær víða, heimsæki ríki
og eigi viðræður við stjórnvöld og ýmsa aðra aðila.
Stjórnarnefnd NATO-þingsins mun ekki aðeins
sitja á fundum í heimsókn sinni hingað til lands.
„Það á að fara með hópinn vestur á Snæfellsnes
og fara þar upp á jökul. Þetta verður heilsdags
skoðunarferð um Snæfellsnes og Vesturland. Það
er þegar gerður góður rómur að þessari för,“
sagði Andri Lúthersson.
Alþjóðasamstarf | Stjórnarnefnd NATO-þingsins fundar á Íslandi um helgina
Eflir einingu aðildarríkja
Andri Lúthersson er
ritari Íslandsdeildar
NATO-þingsins. Hann
lauk BA-gráðu í stjórn-
málafræði við Háskóla
Íslands 1997 og MA-
gráðu í alþjóðasam-
skiptum frá Kent-há-
skóla í Kantaraborg í
Bretlandi ári síðar.
Hann hefur starfað sem
blaðamaður á Morgun-
blaðinu og sendifulltrúi Rauða krossins í
Makedóníu en hefur verið alþjóðaritari á al-
þjóðasviði Alþingis frá 2000. Andri býr í
Reykjavík ásamt unnustu sinni, Sigríði L.
Gunnarsdóttur, og syni þeirra, Ísak Andrasyni.
Íslandsmótið.
Norður
♠G109
♥Á A/Allir
♦ÁD1096
♣ÁG54
Vestur Austur
♠87642 ♠ÁKD53
♥KD1075 ♥86
♦K ♦G8
♣108 ♣D732
Suður
♠–
♥G9432
♦75432
♣K96
Þröstur Ingimarsson og Hermann
Lárusson stóðu sig vel í þessu spili úr
þriðja leik úrslitanna. Þeir voru í NS
gegn Birni Eysteinssyni og Guðm. P.
Arnarsyni:
Vestur Norður Austur Suður
Björn Þröstur Guðm. Hermann
– – 1 spaði Pass
4 spaðar 4 grönd * Pass 5 tíglar
5 spaðar Dobl Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Innákoma Þrastar á fjórum grönd-
um var vel ígrunduð, því hann sá í
hendi sér að makker ætti stuttan spaða
og væri því líklegur til að falla vel að
öðrum láglitnum. Hermann valdi tígul-
inn og Björn reyndi að yfirtaka samn-
inginn með fimm spöðum. Þröstur
doblaði nú til að sýna alvöru spil og
Hermann ákvað þá að freista gæfunnar
í slemmu.
Björn kom út með hjartakóng og
Hermann lagði niður tígulásinn í öðrum
slag. Þegar trompkóngurinn kom, tók
Hermann annað tromp og stakk svo
þrisvar spaða og hjarta á víxl. Hann var
að vonast til að fríspila fimmta hjartað,
en það gekk ekki eftir og í lokastöðunni
átti Hermann ÁGxx í laufi í borði og
K9x heima með einu hjarta. Hann varð
að náð þremur slögum á lauf og gerði
það með því að spila út laufgosa og láta
hann fara, enda hlaut austur að eiga
drottninguna fyrir opnun sinni á spaða.
Falleg slemma hjá Hemma.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Pétur Blöndal er
ekki svo slæmur
MÉR dettur Pétur aldeilis í hug
þegar hann hóf máls á að það ætti að
gefa öryrkjum tækifæri á að vinna
úti í um 2 tíma á dag, án þess að
skerða bætur og skattleggja, að mig
minnir. Hann sagði að heilsufarið
myndi skána, og ríkið græða þar af
leiðandi.
Sá hefur rétt fyrir sér. Ég undir-
rituð hef þegið bætur í 4 ár en heils-
an sýnist mér leyfa í dag að ég geti
unnið 2–3 tíma á dag, og með það í
farteskinu réði ég mig í þriggja tíma
vinnu við matráðskonustörf, og átti
að hefja vinnu 1. apríl. Mig langaði
til að eiga smá pening aukalega svo
ég fékk þær upplýsingar hjá Trygg-
ingastofnun að af 52 þús. kr. bótum
myndu þær skerðast verulega. Því
miður gleymdi ég að reikna með líf-
eyrissjóðsgreiðslum og félagsgjöld-
um, þannig að varla stendur nokkuð
eftir af nýja „kaupinu mínu“.
Ég fór því sneypuför áðan til
vinnuveitandans og tilkynnti að
þetta gengi ekki upp. Héðan í frá
mun ég leitast við að vinna eitthvað
svart. En maður verður samt rétt-
indalaus gagnvart vinnuveitanda.
Sigríður Björnsdóttir,
kt. 300438-7419.
Þakkir fyrir góða dagskrá
á Talstöðinni
ÉG vil koma á framfæri kæru þakk-
læti fyrir góða dagskrá á Talstöðinni
um páskana, sérstaklega leikritin og
upplestur Illuga á Ben Húr. Bestu
kveðjur.
Hlustandi.
Mp3-spilari týndist
NÝR mp3-spilari týndist í Breiða-
gerði þriðjudaginn 29. mars milli kl.
13.30–14. Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 847 7699.
Skúli er týndur
KÖTTURINN Skúli sem býr á
Njálsgötu 32 hefur ekki komið heim
síðan á páskadag. Sést hefur til hans
í kringum Skóla-
vörðustíginn.
Skúli er brönd-
óttur með hvíta
bringu og loppur
og brúna ól um
hálsinn, nokkuð
stór en mjög
blíður og góður.
Hann er hálf persneskur og því að-
eins loðnari en margir kettir og með
aðeins flatara andlit. Hann er líkleg-
ur til að reyna að laumast inn um
opna glugga eða hurðir til að sofa og
gæti hafa lokast einhvers staðar inni
ef hann hefur komist inn óséður.
Þeir sem búa í nágrenni Njálsgötu
eða Skólavörðustígs eru beðnir að
svipast um eftir honum og þeir sem
hafa orðið hans varir hafi samband
við Davíð í síma 862 7392.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
HB FASTEIGNIR
Sími 534 4400 • Hús Verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde löggiltur fasteignasali
Sjarmerandi íbúð í grónu hverfi - Hraunbær 180, 110 Rvk. -
2 hæð verð 16,3 millj. OPIÐ HÚS Í DAG
• Heildarstærð 95,5 fm
• Fallegar innréttingar
• 2 hæð
• 2.svefherb.
• Björt íbúð
• Stutt í alla þjónustu
• Stutt í alla þjónustu
• Barnvænt hverfi
• Laus við kaupsamning
• Stutt í útivistarparadís
Sigríður Hvönn, sölufulltrúi, sími 692 1010.
90ÁRA afmæli. Mánudaginn 4.apríl verður níræð Árný Snæ-
björnsdóttir, Seljalandi 5, Reykjavík.
Af því tilefni tekur Árný á móti gestum
í dag, laugardaginn 2. apríl, í Víkinga-
sal Hótels Loftleiða kl. 14–17. Blóm og
gjafir eru afþakkaðar en söfnunarkassi
frá Umhyggju, félagi til stuðnings lang-
veikum börnum, verður á staðnum.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 2. apríl, ersjötugur Torfi Jónsson, kenn-
ari og myndlistarmaður.
70 ÁRA afmæli. Í dag, 2. apríl, ersjötugur Kristján K. Hall,
Vogatungu 31a, Kópavogi. Eiginkona
hans, Edda Konráðsdóttir, á afmæli 4.
apríl. Af því tilefni taka þau á móti ætt-
ingjum og vinum í Blómasal Hótels
Loftleiða kl. 15–17.30 í dag.
40 ÁRA afmæli. Í dag, 2. apríl, erfertugur Þorvaldur Kristinn
Hilmarsson, Andrésarbrunni 12,
Reykjavík. Í tilefni dagsins tekur hann
á móti vinum og vandamönnum í dag
frá kl. 14 til 17.
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur held-
ur tvenna tónleika á Austurlandi
um helgina, þeir fyrri verða í Vala-
skjálf á Egilsstöðum í dag laugar-
daginn 2. apríl kl. 17 og í Egilsbúð
á Neskaupstað á morgun sunnu-
daginn 3. apríl kl. 14. Gestur á
báðum tónleikunum verður Berg-
lind María Tómasdóttir, einn af
færustu flautuleikurum landsins,
sem reyndar er ættuð frá Nes-
kaupstað. Þá munu nokkrir aust-
firskir lúðraþeytarar taka þátt, en
fyrir austan eru blásarar, sem
jafnast á við þá bestu í landinu.
Þar má nefna Gillian Haworth,
Einar Braga Bragason og Tristan
Willems.
Undanfarin ár hefur Lúðrasveit
Reykjavíkur gengið í gegnum
mikla endurnýjun. Á meðan eldri
meðlimir hafa verið að hverfa af
vettvangi einn og einn hafa ungir
félagar fyllt skörðin og er aldurs-
breiddin nú allt frá 12 ára upp í 80
ára. Meðal hinna yngri félaga eru
nokkrir Austfirðingar, sem hafa
notið góðrar leiðsagnar Lárusar
Halldórs Grímssonar hljómsveitar-
stjóra og haft góðan félagsskap af
sér eldri hljóðfæraleikurum. Má
þar nefna Sóleyju Þrastardóttur
flautuleikara, Báru Sigurjóns-
dóttur saxófónleikara og Daníel
Friðjónsson klarinettuleikara, sem
mun leika einleik á tónleikunum.
Efnisskráin verður í líflegri
kantinum, en þar á meðal eru
syrpur með lögum Stevie Wonder
og Blood Sweat and Tears-hópsins,
básúnueinleiksverkið Poeme a la
Carte þar sem einleikari er Sigur-
björn Ari Hróðmarsson og hið sí-
gilda verk Rimsky-Korsakovs The
Flight of the Bumblebee þar sem
Daníel Friðjónsson verður í ein-
leikshlutverkinu. Einnig verða
flutt frumsamin tónverk meðlima
sveitarinnar, „Hver tók ostinn
minn“ eftir Báru Sigurjónsdóttur
og „Óður“ eftir Lárus Halldór
Grímsson hljómsveitarstjóra en
þar er einleikari Berglind María
Tómasdóttir.
Lúðrasveit Reykjavíkur leggur land undir fót
Tvennir tónleikar á Austurlandi
SÝNINGU Ráðhildar Ingu-
dóttur „Inni í kuðungi – Einn
díll“ lýkur sunnudaginn 3. apríl
í Kling & Bang galleríi, Lauga-
vegi 23. Sýning Ráðhildar
gengur út frá þeirri staðreynd
listamannsins að draumar séu
helmingur tilveru hennar og
hefur hún endurgert drauma í
formi myndbanda og innsetn-
ingar í Kling & Bang galleríi.
Kling & Bang gallerí er opið
fimmtudaga til sunnudaga kl.
14–18.
Sýningum
lýkur á Inni
í kuðungi