Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 61
MENNING
PRAKKARAR hljóta gjarnan
makleg málagjöld í bókmenntum
og hefur þeim oft verið ætlað að
vera öðrum víti til varnaðar. Sem
dæmi má nefna fór heldur illa fyr-
ir þeim Max og Mórits (Max und
Moritz). Saga Wilhelm Busch um
þá piltana er stundum sögð vera
ein af fyrstu teiknimyndasögunum
og fjallar hún um hrottalega
hrekki andhetjanna. Þeim hefnist
hins vegar fyrir bellibrögðin og
enduðu þeir félagar sem andafóð-
ur eftir að hafa verið hakkaðir
niður í smátt.
Sigurbjörn Þorkelsson, höf-
undur bókarinnar Prakkarastrik
Bjössa, segir bæði í inngangi og á
bókarkápu að textinn eigi að ein-
hverju leyti að vera lesendum við-
vörun um að ganga ekki of langt í
prakkarastrikum sínum. Lesandi
kynni að álykta sem svo að slík yf-
irlýsing frá höfundi gulltryggði
móralska frásögn sem miðlaði
skýrum siðaboðum. Undirritaðri,
sem almennt er ekki hrifin af ein-
hliða siðapredikunum í bók-
menntum, kom það því mjög í
opna skjöldu þegar henni blöskr-
aði móralsleysið.
Prakkarastrik Bjössa er ekki
heildstæð saga, segir í inngangi
bókarinnar, heldur er um að ræða
sjálfstæðar myndir af uppátækjum
stráksins. Formið veldur því hins
vegar að bókin verður fljótt leiði-
gjörn upptalning. Orsakasamband
sagnanna er lítið sem ekkert og
mikið er um endurtekningar á
keimlíkum og oft ófrumlegum
hrekkjum. Í upphafi ráða kúk og
piss brandarar að
mestu ríkjum.
Bjössi pissar framan
í lækninn sem kom
honum í heiminn
með keisaraskurði,
hann prumpar fram-
an í ættingja sína og
kúkar á hausinn á
ömmu sinni. Hann
slettir vatni á
hempu prestsins
sem er að skíra
hann „svo engu varð
líkara en presturinn
hefði pissað í sig
eða að pissað hefði
verið utan í hann“
(bls. 14) og hann
pissar framan í pabba sinn.
Í fyrstu eru prakkarastrikin
nokkuð saklaus, og hugsanlegt er
að einhver börn kynnu að hafa
einhverja ánægju af því að lesa
um þau. Þegar fram í sækir fara
þau hins vegar að taka á sig nýjar
og hrottalegri myndir. Bjössi klín-
ir tyggjói í hár bekkjarsystur
sinnar, hann vísar gestum sem
haga sér ekki eftir hans höfði úr
afmælisveislu sinni og lætur þá
standa úti í frostinu uns hann seg-
ir að þeir megi snúa aftur til veisl-
unnar og níðist á ungum dreng
sem liggur vel við höggi og manar
hann upp í alls kyns vitleysu.
Loks keyrir um þverbak þegar
Bjössi gerir alvarlegt at í föður
sínum. Hann hringir í hann í vinn-
una og segir honum að besti vinur
hans hafi fengið hjartaáfall og hafi
látist á leið á sjúkrahús. Bjössi
virðist þó ekki eiga að vera and-
hetja í anda Max og Mórits. Sam-
úð sögumanns virðist yfirleitt vera
með Bjössa og hrottaskapur hans
er sjaldnast fordæmdur. Sögumað-
ur á það jafnvel til að leggja
blessun sína yfir und-
arleg uppátækin.
„Þetta atvik er nátt-
úrulega óstjórnlega
fyndið, en hverslags
uppátæki og húmor er
þetta eiginlega?“ segir
hann um eitthvert
hermdarverkið (bls.
71).
Í raun minnir sögu-
maður á eftirlátssamt
og firrt foreldri sem
finnur barni sínu fátt
til foráttu og glottir út
í annað yfir ósvífni þess
þegar það biður krakk-
ann um að láta af vit-
leysunni, svona rétt til
málamynda. Eins og svo mörg
börn myndu gera undir slíkum
kringumstæðum gengur Bjössi á
lagið. Hann verður æ óviðkunn-
anlegri eftir því sem líður á bók-
ina. Þegar smíðakennarinn rekur
sig í vélsögina og missir framan af
þremur fingrum í smíðatíma hefur
Bjössi mestar áhyggjur af hillunni
sem hann var að smíða því á hana
slettist blóð, „það stóð aldrei til að
hillan yrði rauð“ (bls. 56).
Skortur á næmi einkennir stíl
bókarinnar líkt og aðalpersónu
hennar. Hann er talmálslegur og
svo virðist sem verið sé að reyna
að líkja eftir tungutaki unglinga.
Textinn er hlaðinn orðum á borð
við „þvílíkt“, „maður“, „vá“, „ekk-
ert smá“, „eða eitthvað“ og er af-
raksturinn oft rembingslegur:
„Hann tók þvílíkt tilhlaup“ (bls.
35). „Já, hátíðlegt og flott var það
maður, vá“ (bls. 74). „Ekkert smá
undrandi“ (bls. 33). „Á borðinu var
þessi líka flotti kristals blómavasi
sem langa langa amma og afi hans
höfðu keypt í Danmörku fyrir tvö-
hundruð árum eða eitthvað“ (bls.
19). Textinn hefði haft gagn af
prófarkalestri.
Ég rengi ekki þá yfirlýsingu
höfundar, að hann hafi raunveru-
lega ætlað lesendum bókarinnar
Prakkarastrik Bjössa að læra eitt-
hvað af sögunni. Lesturinn skilur
þó lítið eftir annað en óhugnað.
Bjössi er ekki prakkari, heldur
óþokki sem hefði best hlotið sömu
örlög og Max og Mórits.
Ekki prakkari, heldur óþokki
BÆKUR
Barnasaga
eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Myndskreyting kápu: Margrét Jónsdóttir
Prentun: Litróf ehf. Bókband: Bókavirkið
ehf. Bls. 96 bls.
Útgefandi og útgáfuár:Höfundur: Sig-
urbjörn Þorkelsson, 2005.
PRAKKARASTRIK BJÖSSA
Sigurbjörn Þorkelsson
Sif Sigmarsdóttir
AFTUR til
steinsins er
heiti nýrrar
ljóðabókar eft-
ir Njörð P.
Njarðvík sem
JPV útgáfa
hefur gefið út.
Njörður P.
Njarðvík er
doktor í íslenskum bókmenntum
og hefur verið prófessor við Há-
skóla Íslands í allmörg ár.
Seinni árin hefur Njörður auk
kennslu og ritstarfa verið í for-
ystu í SPES, alþjóðlegrar barna-
hjálpar sem rekur heimili fyrir
munaðarlaus börn í Afríkuríkinu
Togo.
Njörður hefur fengið fjölda við-
urkenninga fyrir skáldskap sinn
og störf að mannúðarmálum.
Aftur til steinsins er 64 bls.
Jón Ásgeir hannaði kápu en
mynd á kápu er eftir Eddu Jóns-
dóttur.
Ljóð Daily Vits
FRÁ
Stanslaus orka
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
-fyrir útlitið
Nr. 1 í Ameríku
Góð heilsa - Gulli betri
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Saumlaust
aðhald
Þú minnkar
um 1 númer
Litir: Svart -
hvítt - húðlitað